Tíminn - 07.03.1992, Side 15

Tíminn - 07.03.1992, Side 15
Laugardagur 7. mars 1991 Tíminn 15 konurnar riðu hóandi fyrir fjárhóp- inn. Ég minnist ungu stúlkunnar, sem sýndi Petrúnu frumburð sinn á að- fangadag. „Þessi blessaða litla manneskja," sagði hún og sótti tvo eingirnisboli, sem hún hafði spunnið í og prjónað sjálf. „Skyldi mega nota þetta á litla kroppinn?" Síðar baettust tveir drengir við og þá hétu systkinin „þetta blessað litla fólk“. Þegar foreldrar mínir voru fluttir úr sveitinni, var ég löngum í þeirra húsakynnum þar á sumrin með börnin mín. Þessi sumur eru sveip- uð sólskini í minningunni. Smá- fólkið fylgdi Petrúnu í fjósið á morgnana og að loknum mjöltum kom hún upp til mín með kaffi- könnuna sína í annarri hendi og rjómalögg, nýfleytta ofan af brúsa, í hinni. Meðlætið lagði ég til og þannig drukkum við ævinlega sam- an morgunkaffið og ræddum mál- in. Stundum var lítill blómvöndur dreginn upp úr svuntuvasanum, kannske dálítið bældur, og settur í vatnsglas á borðið. Þá hafði hún brugðið sér vestur í Bæjarholt í morgunsárið eftir þessari heimilis- prýði. Synir mínir voru í sveit hjá henni, Iærðu að sitja hest og meta íslenska náttúru. Það varð þeim dýrmætt veganesti. Það þurfti engin ósköp til þess að gleðja hana Petrúnu. Ég minnist ferðar okkar norður yfir Holta- vörðuheiði til þess að sjá hafís á Hrútafirði í júní, dagsferðar fyrir Jökul og ógleymanlegrar ferðar austur yfir Fjall á sjötugsafmælinu hennar, svo að nokkuð sé nefnt. Á slíkum stundum gat hún átt það til að slá saman höndunum og segja: „Nú þykir mér gaman.“ Síðar fæddust barnabörnin mín og aftur var komið „þetta blessaða iitla fólk“ til sögunnar. Og öll hændust þau að Petrúnu, sem þótti verst að vera ekki aðeins yngri, svo að þessi kynslóð gæti verið hjá sér sumarlangt. Petrún batt ekki alltaf bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. Hún var fáskiptin við marga og seintekin, en þeir sem eignuðust vináttu hennar hlutu þar dýrgrip. Hún var orðvör og heyrði hún last- mælgi eða fásinnu, sagði hún gjarnan með sínum sérstaka tón: ,Ætli það?“ Hún krafðist iítils fyrir sjálfa sig, en engan þekkti ég örlátari, þótt ekki væri miklu að miðla á verald- arvísu. Hún átti fallega og einlæga trú á góðan guð. Því kynntist ég best, þegar ég átti í höggi við erfiðan sjúkdóm. Þá átti ég hana að, eins og ævinlega, þegar ég þurfti mest. Nú er hún horfin okkur um sinn. Efst í huga mér er ómælt þakklæti fyrir öll okkar kynni og fyrir að hafa átt hana að vini. Og þess er minnst með trega, að ,$ú hönd sem þig kærast kvaddi í haust hún kveður þig ekki í sumar. “ Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir Vilt þú stjórna loftinu á þínum vinnustað? Þá kemur JÖTUNN til liðs við þig. Loft- og hitablásararnir frá NOVENCO henta vel á alla vinnustaði, stóra og smáa. Þeir fást í stærðum frá 4500-40000 kgkal/t. Þá má tengja við hitaveituvatn, gufu og ketilvatn. Hægt er að fá inntak fyrir ferskt loft til loftræstingar og inntak fyrir blandað loft. Þreplaus stilling eða þriggja hraða. Nýju HJV þakblásararnir frá NOVENCO fást í fimm stærðum. n Hámarksafköst eru 2,9 m! á sekúndu. Að baki allrar framleiðslu NOVENCO liggur mikið starf í rannsóknarstofum fyrirtækisins. Afraksturinn er hágæða vara á góðu verði. Beinn sími sölumanna er 68 56 56. O M lés fý HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 Árshátíð Árshátíð Rangæingafélagsins í Reykjavík verður haldinn í AKOGES-salnum í Sigtúni 3, laugar- daginn 14. mars næst komandi. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30. Fjölbreytt skemmtiatriði. Miðasala verður í Sigtúni 3, miðvikudaginn 11. marskl. 17.00-19.00. Stjórnin ^RARIK ^.^1 RAFMAGNSVEÍTUR RlKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja aðveitustöðvarhús á Eskifirði. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf- magnsveitna ríkisins við Þverkletta 2, Egilsstöð- um, og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 10. mars 1992 gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Egilsstöðum fyrir kl. 14:00, miðviku- daginn 25. mars 1992 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK 92001, Eskifjörður- aðveitustöð“. Reykjavík, 6. mars 1992 Rafmagnsveitur ríkisins rCjarvalsstofaíParís Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykjavíkurborg, menntamálaráðuneytið og Seðlabanki íslands lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefnist Cité Interna- tionale des Arts, og var samningurinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvals- stofu og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjórnar Cité Intemationale des Arts, er tek- ur endanlega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir, en lengst er heimilt að veita listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár. Þeir, sem dvelja í Kjarvalsstofu, greiða dvalar- gjöld er ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í Parísarborg. Dvalar- gestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af hús- næði og vinnuaðstöðu, og jafnframt skuldbinda þeir sig til þess að dvöl lokinni að senda stjórn Kjarvalsstofu stutta greinargerð um störf sín, ef óskað er. Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu, en stjórnin mun á fundi sínum í apríl fjalla um afnot listamanna af stofunni tíma- bilið 1. ágúst 1992 til 31. júlí 1993. Skal stíla um- sóknir til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til stjórnarnefndarinnar í skjala- safni borgarskrifstofanna að Austurstræti 16, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim reglum sem gilda um afnot af Kjar- valsstofu. Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun. Umsóknum skal skila í síðasta lagi 30. mars n.k. ______________Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu^

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.