Tíminn - 07.03.1992, Síða 16

Tíminn - 07.03.1992, Síða 16
16 Tíminn Laugardagur 7. mars 1992 Höfundur eftirfarandi frá- sagnar, Jórunn Jónsdóttir, var fædd 1874 á Litlu- Brekku í Hörgárdal. Hún gekk í Möðruvallaskóla og varð gagnfræðingur þaðan 1895, eina stúlkan sem tók gagnfræðapróf í þeim skóla. Jórunn var lengi bama- kennari í Hörgárdal og víðar í Eyjafirði. Hún fékkst nokk- uð við þýðingar og önnur rit- störf og birti margt af því í Norðurljósinu, blaði því sem Arthur Gook gaf út á Akur- eyri. Til eru í handriti endur- minningar Jórunnar um skólaárin á Möðruvöllum, og birti Gils Guðmundsson rit- höfundur þær í fimmta bindi af „Gesti“ árið 1988. YRSTU ÁRIN eftir ferm- inguna bar ekkert það til tíðinda fyrir mér, sem í frásögur sé fær- andi, nema ef telja skyldi það, að ég fór að Hlöðum í Glæsibæjarhreppi til að læra dálítið í dönsku hjá Ólöfu Sigurðardóttur skáldkonu, er ég var átján ára að aldri. Það varð nú samt maður hennar, Halldór Guðmundsson smiður, sem aðallega kenndi mér dönskuna, og reyndist hann mér góður kennari. En ég var búin að kynnast Ólöfu nokkuð áður, því ég hafði verið hjá henni dálítinn tíma einu eða tveimur árum áður til að læra ofurlítið til handanna, og okk- ur féll vel saman, svo ég sagði henni í trúnaði dálítið frá æskudraumum mínum. Ég segi frá þessu af því að það varð tilefni til þess, að mér auðnaðist að vinna dálítið að fram- kvæmd þeirrar hugsjónar, sem mér var í þá daga kærust og dýrmætust allra, en það var kvenfrelsismálið, sem þá var komið að vísu á dagskrá, en lítið sem ekkert komið til fram- kvæmda. Gramdist misréttið Ég veitti snemma eftirtekt því mis- rétti, sem var milli karla og kvenna, og gramdist það mjög. Og með því að hugsanir mínar og æskuþrár beindust mjög að því að vinna eitt- hvert afreksverk til mannfélags- umbóta, fékk ég brennandi löngun til að vinna að framgangi kvenfrels- ismálsins; sérstaklega þeim þætti þess, að kvenfólk fengi aðgang að öllum skólum til jafns við karl- menn. Þetta átti að vera ævistarf mitt. En það hefði að líkindum ekk- ert úr því orðið, ef ég hefði ekki kynnst Ólöfu á Hlöðum. Henni á ég það að þakka, að ég komst á einn af skólum þeim, sem þangað til hafði verið ætlaður karlmönnum einum. Það var hún, sem hvatti mig á allar lundir til að reyna að komast á gagnfræðaskólann á Möðruvöllum. Eg var nú að sjálfsögðu til í það, eins og nærri má geta, en til þessa þurfti ég að fá samþykki foreldra minna. Það leið því ekki á löngu eftir að ég kom heim, að ég færði þetta fyrst einslega í tal við föður minn. Hann tók því vel að því leyti að hann var því ekki mótfallinn í sjálfu sér, að ég færi á skóla þennan sökum þess, að ég var kvenmaður, því hann var laus við alla fordóma í garð kvenna. En með því hann var mjög varfærinn maður og athugull, var honum það undir eins ljóst, að þetta var talsvert mikil áhætta, því ef svo tækist til, að ég gæti ekki staðið mig reglulega vel við námið, færi allt í hundana; og tilgangur minn með skólagöngunni hefði þá að engu orðið, því kven- frelsisóvinir hefðu þá ekki verið seinir á sér að tilfæra það sinni skoðun til stuðnings, að stelpa þessi hefði nú svo sem ætlað að sanna, að kvenfólk hefði jafngóða námshæfi- leika og karlmenn, en orðið sér til minnkunar, og þannig mundi fara, ef kvenfólk færi af monti og mikil- læti að reyna að gerast jafnokar karlmanna! Leyfi „á hærri stööum" Hvort sem nú um þetta var rætt lengur eða skemur, varð það úr, að foreldrar mínir samþykktu fyrir sitt leyti, að ég færi á Möðruvallaskól- ann, en það var ekki nóg; til þess þurfti að fá leyfi „á hærri stöðum". Ég hitti því einu sinni að máli Hall- dór Briem, einn af kennurum skól- ans, og leitaði upplýsinga um það, hvort ég sem stúlka mundi fá inn- göngu á hann. Kennarar skólans voru ekki heldur einráðir í þessu efni, en Briem lofaði að komast eftir því hjá yfirstjórn fræðslumála í Reykjavík, hvort ég mundi fá að stunda nám á Möðruvallaskóla, og gaf hann mér góðar vonir um að ekki mundi verða nein fyrirstaða á því, og það reyndist rétt hjá honum. Þóttist ég nú hafa komið ár minni vel fyrir borð og fannst lífið brosa við mér. Svo fór ég á skólann næsta haust, 1893, og var ég þá á tvítugasta árinu. Man ég enn, hvílíkum stórtíðindum þetta þótti sæta, og hafa menn sjálf- sagt litið misjöfnum augum á það, en um það hirti ég ekki, ég bara þóttist góð fyrir minn hatt að vera búin að fá heitustu ósk mína upp- fyllta. Samt voru það nú mikil við- brigði fyrir mig að koma af fámennu heimili í þvflíkt fjölmenni, því fyrir utan nær því fjörutíu skólanemend- ur var margt fólk í húsi Stefáns Stef- ánssonar kennara, er síðar varð skólameistari við þennan skóla að Jóni Hjaltalín látnum, og frú Stein- unnar Frímannsdóttur konu hans; hafði ég húsnæði hjá þeim um vet- urinn. Þrír kennarar Þrír voru kennarar við skólann þegar ég kom þangað og mörg ár þar á eftir: Jón A. Hjaltalín skólastjóri, Halldór E. Briem og Stefán Stefáns- son, sem áður er nefndur. Vil ég nú Jórunn Jónsdóttir: „Fékk brenn- andi löngun til þess að kvenfólk fengi aðgang að öllum skólum til jafns við karlmenn. “ með fáum orðum lýsa hverjum þeirra fyrir sig, en að mínu áliti stóðu þeir allir vel í stöðu sinni, og mér féll vel við þá alla. Hjaltalín skólastjóra var með réttu viðbrugðið fyrir stjórnsemi, enda þurfti hann á henni að halda, þar eð hann hafði bæði fjölda nemenda og þar að auki margt hjúa, því hann bjó jafnframt stórbúi á Möðruvöllum. Hann var eins og fæddur til að stjórna, og hann var einn af þeim mönnum, sem hafa eitthvað það við sig, sem hefir þau áhrif, að menn ósjálfrátt virða þá og hlýða þeim, án þess þeir þurfi að hafa mörg orð eða beita hörðu. Ef skólapiltar voru t.d. í áflogum eða með einhvers konar gauragang og hávaða sem ekki átti að eiga sér stað, þá þurfti Hjaltalín ekki annað en sýna sig í dyrunum, þá datt allt í dúnalogn, þó hann segði ekkert. Hann var stilltur og al- vörugefinn, en þó skemmtilegur í kennslustundum. Námsgreinar þær sem hann kenndi voru: Enska, ís- lenska (málfræði og réttritun) og ís- landssaga. Halldór Briem var veill til heilsu og naut sín því verr í kennslustundum en ella hefði verið. Það bætti heldur ekki um, að margir af nemendum sýndu honum lítilsvirðingu á ýmsan hátt og fundu sér allt til að setja út á hann að ástæðulitlu eða ástæðu- lausu; að minnsta kosti hefir það verið viðurkennt, að hann hafi verið einna mestur lærdómsmaður af kennurunum þremur, og voru þeir þó engir skussar að lærdómi og menntun. Ég fyrir mitt leyti hafði ekki annað en allt það besta af Bri- em að segja, og oftar en einu sinni kom það fyrir að ég gat ekki reiknað svonefnd „heimadæmi" (dæmi sem átti að reikna utan kennslustunda), og þá hjálpaði Briem mér til að reikna þau. Hann kenndi sem sé stærðfræði og auk þess dönsku og mannkynssögu. Stefán kennari Stefánsson var yngstur kennaranna þriggja við Möðruvallaskólann og í „blóma lífs- ins“ að heita mátti, þegar ég kynnt- ist honum. Hann var fjörugur og skemmtilegur og hafði afbragðs kennarahæfileika, enda var hann í mesta afhaldi hjá öllum nemendum. Ekki var hann að fást um það, þó einhver nemandinn svaraði ein- hverri endemis vitleysu, er hann lagði fyrir hann einhverja spurn- ingu í kennslustundum, heldur sagði bara glottandi: „0, fari koll- ótt.“ Hann kenndi landafræði og náttúrufræði; einkum var grasa- fræði eftirlætiskennslugrein hans, og hún þótti mér líka skemmtileg- ust allra námsgreina fyrir utan tungumálin. Stefán samdi bók um grasafræði, sem hann nefndi „Flóru Islands" (íslenska jurtafræði), og hygg ég að hún hafi verið gefin út, þó ekki hafí ég séð hana. Jafnhliða kennslustörfum rak Stefán búskap í talsvert stórum stíl á Möðruvöllum móti Hjaltalín, því Möðruvellir eru feiknastór jörð, enda hefir oftast verið þar tvíbýli síðan ég man eftir. Árið 1908 dó Hjaltalín skólameist- ari, og varð þá Stefán kennari skóla- meistari í hans stað og gegndi því embætti meðan heilsan leyfði. En hann átti við megna vanheilsu að stríða síðustu árin, og þó hann sigldi sér til heilsubótar, reyndist það árangurslaust. Hann dó eftir miklar og langvinnar þjáningar árið 1920. Magnús organisti Loks vil ég með fáum orðum minn- ast á söngkennarann okkar, Magnús heitinn Einarsson á Akureyri, sem ég hygg að kunnur sé um Iand allt sem afbragðs organisti og söng- kennari. Hann kenndi og fjölda- mörgum að leika á orgel. Söng- kennslan virtist vera hans líf og yndi, og það var auðséð, að hann stundaði það starf af lífi og sál. Hann reið út að Möðruvöllum frá Akureyri einu sinni í viku, næstum því hvern- ig sem veður og færi var, og tók ekki nema tvær krónur fyrir hverja ferð. Skyldi það ekki hafa þótt heldur lítið nú á döguml Vitaskuld var eins gott að eiga tvær krónur þá eins og tutt- ugu til þrjátíu krónur nú. Kennsla Magnúsar var skemmtileg og af honum lærðum við mörg falleg lög, sem sumum hverjum er búið að breyta til hins verra, eins og svo mörgum öðrum lögum. Sambúðin við skólabræður Nú læt ég hér með vera lokið þess- um fáu og fátæklegu minningarorð- um um þá fjóra látnu heiðursmenn, sem ég hefi stuttlega lýst hér að framan, og vík ég nú að því að segja ofurlítið frá námsfélögum mínum og sambúð minni við þá. Gáfu sum- ir mér í skyn, að hún mundi ekki verða sem ákjósanlegust, en hún varð skárri en vænta mátti, enda vorum við nú lítið saman nema í kennslustundum. Ég get sagt með sanni, að flestir af sambekkingum mínum gerðu mér aldrei neitt til miska í orði eða verki, en auðvitað voru misjafnir sauðir í mörgu fé, og til voru þeir innan um, sem ekki gátu látið mig alveg í friði, en þó gekk allt nokkurn veginn vandræða- laust okkar á milli, og get ég þess til, að það hafi verið aðallega Hjaltalín að þakka; að minnsta kosti komst ég eitt sinn að því eftir á, að hann hafði

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.