Tíminn - 07.03.1992, Side 17
Laugardagur 7. mars 1992
Tíminn 17
tekið málstað minn móti einhverj-
um, sem höfðu víst ekki borið mér
sem best söguna. Hjaltalín var
þannig skapi farinn, að hann var
hlynntur einstæðingum og lítil-
mögnum, án þess að láta mikið á því
bera við þá.
Mikið var um dansskemmtanir í
leikhúsinu svonefnda, sem var rétt
hjá skólahúsinu. Flykktust þangað
skólapiltar og þjónustustúlkur Stef-
áns kennara á sunnudagskvöldum,
og var dansað oftast alla mánudags-
nóttina, en ekki var það nema einu
sinni eða tvisvar, sem ég steig fæti í
leikhúsið, og það aðeins stutta
stund; ég hafði af ýmsum ástæðum
enga iöngun til að vera þarna með.
Kvöldfundir voru og haldnir í leik-
húsinu einu sinni í viku, nokkru eft-
ir að kennslustundum var lokið, en
þær stóðu yfir frá því klukkan níu á
morgnana til klukkan tvö eða þrjú á
daginn og tíu mínútna frí á hverjum
klukkutíma. Próf var haldið yfir
okkur tvisvar um veturinn, inntöku-
próf og miðsvetrarpróf, og svo burt-
fararpróf að vorinu, og fór þá hver
heim til sín. Ég vann heima um
sumarið og fór svo á skólann aftur
næsta haust. Ég hafði allar nauð-
synjar mínar heiman að og gat oft-
ast sótt þær jafnóðum, því ekki var
langt milli Möðruvalla og Litlu-
Brekku, og ég vílaði ekki fyrir mér í
þá daga að fara þar á milli að vetrar-
lagi.
Unniö fyrir gýg?
Þegar vorprófi var lokið, fór ég
heim og vann heima um sumarið,
en um haustið fór ég aftur í skólann
og settist þá í efri bekk. Leið svo vet-
urinn nokkurn veginn á sama hátt
og sá næsti á undan nema hvað ég
þá hafði húsnæði í Nunnuhóli, sem
var kotbær örskammt frá Möðru-
völlum, ásamt öðrum nemanda sem
var sonur hjónanna, er þar áttu
heima. Leið mér þar vel, því þessi
hjón voru í vinfengi við foreldra
mína. Nú er þessi bær í eyði.
Um vorið 1895 vorum við öll í efri
bekk brautskráð frá Möðruvöllum,
því námstíminn þar var ekki nema
tveir vetur, nema ef einhverjum
gekk námið svo illa, að hann kæmist
ekki upp úr neðri bekk eftir fyrri
veturinn, þá varð hann að sitja tvo
vetur í neðri bekk og þann þriðja í
efri bekk. Nú er, eins og allir vita,
sjálfsagður þriggja vetra námstími í
gagnfræðaskólum, hvort sem námið
gengur vel eða illa, og tel ég það
framför.
Nú eru margir af hinum fornu fé-
lögum mínum komnir „yfir um“, og
sumir hafa farið til annarra landa og
sest þar að. Samt hefi ég séð nokkra
þeirra aftur á tveimur minningar-
samkomum Möðruvallaskólans; í
fyrra skiptið árið 1930 en í síðara
skiptið 1947, á „Möðruvellingamót-
inu“, sem haldið var á Möðruvöllum
og sumpart á Akureyri. Var okkur
öllum mikil ánægja að hittast aftur
eftir svo mörg ár.
Eftir að ég útskrifaðist af skólan-
um, settist ég að heima í Litlu-
Brekku og beið þess með mikilli eft-
irvæntingu að sjá einhvern árangur
skólaveru minnar, sem fyrst og
fremst átti að vera brautryðjanda-
starf, í þá átt að ungar stúlkur færu
að sækja skóla þennan og það yrði
svo smátt og smátt til þess, að kven-
fólk færi að sækja aðrar mennta-
stofnanir landsins ásamt karlmönn-
unum. En er hvert árið leið eftir
annað, án þess nokkur önnur stúlka
kæmi á Möðruvallaskólann á eftir
mér, fór mér aö verða í meira lagi
órótt og fannst ég hafa unnið fyrir
gýg. Og mér þótti þetta því undar-
legra, af því að annar eins áhrifa-
maður og Stefán kennari fýlgdi fram
sömu hugsjón og ég að því er snerti
sameiginiegt skólanám karla og
kvenna á öllum skólum, æðri og
lægri, og skeytti engu þeirri mót-
báru kvenfrelsis-andstæðinga, að
slíkt mundi leiða af sér lauslæti og
ólifnað. En með því að Guð gætti
mín og varöveitti frá að fremja
nokkuð það sem gæti stutt þessa
skoðun þeirra, tilfærði kennarinn
þetta einu sinni til að sýna fram á,
að það væri engin ástæða til að
halda því fram, að samvera karla og
Jórunn Jónsdóttir
var eina stúlkan
sem lauk gagn-
fræðaprófi frá
Möðruvallaskóla.
Hún segir hér frá
skólalífinu og
draumi sínum um
að frumkvæði sitt
hvetti konur að
sækja fram til auk-
innar menntunar
kvenna við skólanám þyrfti endilega
að spilla siðferði þeirra. Og nú, þeg-
ar því marki er náð, að stúlkur hafa
jafnan aðgang að öllum skólum og
piltar, veit ég ekki til, að neinar sög-
ur hafí farið af því, að það hafi leitt
til nokkurrar siðspillingar.
Eins og ég drap á áður, liðu mörg ár
frá því ég yfirgaf Möðruvallaskólann
og þangað til nokkur önnur stúlka
kom þangað til náms. Loks kom
þangað stúlka austan af Tjörnesi, ef
ég man rétt, og var við nám einn
vetur. Eftir vorprófið heimsótti hún
mig að gamni sínu, þó við hefðum
aldrei sést, og spjöiluðum við ýmis-
legt saman. Síðan fór hún aftur
heim í átthaga sína og ætlaði að
koma aftur um haustið og halda
áfram námi, en hún dó áður en af
því yrði. Það leið ekki á löngu þang-
að til skólahúsið á Möðruvöllum
brann til kaldra kola, mig minnir
það væri vorið eftir — og var það
ekki byggt þar upp aftur, heldur var
skólinn fluttur til Akureyrar, og eftir
það var skólinn í þremur bekkjum
og námstíminn þrír vetur. Hefir allt-
af verið mikil aðsókn að honum,
bæði af piltum og stúlkum.
Jón Hjaltalín skólastjóri: Var viö
brugöiö fyrir stjórnsemi.
Heimiliskennari
Meðan ég beið þess, að ég sæi ein-
hvern árangur af skólaveru minni,
gat ég ekkert unnið að framgangi
þess málefnis, sem mér var þá allra
kærast, annað en það, að ég skrifaði
lítið eitt um það í kvennablað, sem
gefið var út á Seyðisfirði og hét
„Framsókn". Útgefendur þess voru
þær mæðgur frú Sigríður Þ. Skapta-
sen, kona Skapta Jósefssonar, rit-
stjóra .Austra", og Ingibjörg dóttir
hennar. Frú Sigríður var systir séra
Jóns Þorsteinssonar, sem var prest-
ur á Möðruvöllum í Hörgárdal mörg
ár, og frú Valgerðar, forstöðukonu
kvennaskólans á Laugalandi. Auk
mín skrifuðu í áðurnefnt kvenna-
blað tvær eða þrjár aðrar, sem áhuga
höfðu fyrir sama máli, þar á meðal
frk. Ólafía sál. Jóhannsdóttir, sem
flestir kannast líklega við, því hún
var þjóðkunn, bæði fyrir framúr-
skarandi mannkosti og allra helst
fyrir það, að hún barðist fyrir ýms-
um góðum málefnum, sem miðuðu
til mannfélagsumbóta, svo sem
bindindismálinu o.fl. Mörgum árum
ævinnar varði hún til að reyna að
bjarga ungum stúlkum, sem lent
höfðu í eymd og ógæfu sökum þess,
að vondir menn höfðu leitt þær út í
ólifnað og spillingu.
En svo ég víki nú aftur að sjálfri
mér, þá langaði mig mjög mikið til
að takast á hendur eitthvert annað
ævistarf heldur en hin venjulegu
kvennastörf, t.d. kennslustarf eða
verslun. En það varð nú talsverð bið
á því, að mér byðist nokkuð slíkt.
Loks bar svo til eitt haust, eða
snemma vetrar, að Stefán heitinn
Stefánsson í Fagraskógi, alþingis-
maður, kom í Litlu-Brekku og bað
mig að gerast heimiliskennari á
merku heimili í nánd við Fagraskóg,
og tók ég fúslega því boði, enda var
það einmitt það sem faðir minn vildi
helst, að ég stundaði svona starf. Ég
kenndi svo á þessu heimili um vet-
urinn og á öðru heimili til. Upp frá
þessu kenndi ég meira og minna á
veturna, alls og alls hér um bil tutt-
ugu ára skeið; lengst í Möðruvalla-
sókn, en nokkur seinustu árin á
Svalbarðsströnd.
Það verða nú auðvitað aðrir en ég
að dæma um, hvernig mér hefir far-
ist að leysa þetta starf af hendi, en
eitt get ég sagt með sanni, og það er,
að ég reyndi til þess af öllum mætti
að gera það sem best, einkum var
mér annt um það, að því er snerti
kennsluna í kristnum fræöum, því
þó ég gerði mér fremur litla grein
fyrir gildi kristindómsins mikinn
hluta af kennsluárum mínum, hafði
ég þó einhverja óljósa hugmynd um
það, að þessi kennslugrein væri
meira virði en allar aðrar náms-
greinar. Reyndi ég því (þó ólíku væri
saman að jafna) að nota sömu aðferð
viö kristindómskennslu og séra Dav-
íð, kristindómskennari minn, sem
ég hefi áður minnst á. Það ber lík-
lega öllum samviskusömum mönn-
um, sem fengist hafa við barna-
fræðslu, saman um það, að hún sé
með vandasömustu og ábyrgðar-
mestu störfum. Hvað mig snerti gat
ég aldrei varist þeirri hugsun, ef illa
gekk, að það væri óafvitandi mér að
kenna og tók mér það mjög nærri,
eins og það að hinu leytinu gladdi
mig meira en allt annaö, þegar starf
mitt bar góðan árangur.
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? : SPRUNCIÐ?
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiöa.
Viöhald og viögerðir á iðnaðarvélum — járnsmíöi.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
RAUTTjLyfrvi RAUTT \
uos rTL uos/
. IfRÁÐ J
Útboð
Geitará
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum í lögn
stálræsis og hækkun Vestfjarðavegar um
Geitará í Reykhólasveit.
Helstu magntölur: Lengd kafla 100 m, fylling-
ar og fláafleygar 7.000 m3, neöra burðarfag
660 m3 og stálræsi að þvermáli 2,2 m og
lengd 36 m.
Verkinu skal lokið 1. júlí 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Isafirði og I Borgartúni 5, Reykjavík (að-
algjaldkera), frá og með 9. þ.m. Skila skal til-
boðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann
23. mars 1992.
Vegamálastjóri
Aöal-
fundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 9. mars 1992 kl.
20:30 að Hótel Sögu, Átthagasal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
TIL SÖLU EÐA LEIGU HÚSEIGN í
VESTMANNAEYJUM
Kaup- eða leigutilboð óskast I Kirkjuveg 22, Vestmannaeyjum (Sam-
komuhús Vestmannaeyja). Stærð hússins er 9.275 m3. Brunabótamat er
kr. 102.404.000,-. Húsið verður til sýnis I samráði við Ingvar Sverrisson,
fulltrúa bæjarfógeta I Vestmannaeyjum, sími: 98-11066.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum aðila og á skrifstofu vorri
að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð merkt „Útboð 3801/2“ skulu berast fyrir kl. 11:00 þann 20. mars
1992 þar sem þau verða opnuð í viöurvist viöstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVlK
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjörður Jóhanna Eyfjörð Breiðvangur 14 653383
Kjalarnes Katrín Gísladóttir Búagmnd 4 667491
Garðabær Jóhanna Eyfjörð Breiðvangur 14 653383
Keflavík Guðríður Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvík Katrín Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Lilja Guðmundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búðardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangi Hólmfríður Guðmundsd. Fífusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95- 35311
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Svemir Einarsson Garðarsbraut 83 96-41879
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Erla Guðmundsdóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Heimir Ásgeirsson Melagötu 14 97-71461
Reyðarflörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
Eskifjörður Björg Siguröardóttir Strandgötu 3B
FáskrúðsfjörðurAnna Rut Einarsdóttir Skólavegi 50 A 97-51299
Djúpivogur Ingibjörg Olafsdóttir Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Elín Einarsdóttir Heiömörk 2B 98-34932
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Bjarni Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerði 6 98-31211
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónína og Árný Jóna Króktúni 17 98-78335
Vík Ragnar Freyr Karisson Ásbraut 3 98-71215
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192