Tíminn - 11.07.1992, Page 3

Tíminn - 11.07.1992, Page 3
Laugardagur 11. júlí 1992 Tlminn 3 Þórarinn V. Þórarinsson viss um að maður mundi vinna mál við ónýtan lífeyrissjóð, a.m.k. fyrir mannréttindadómstólnum: Getur stjórnarskráin frelsað fólk úr ónýtum lífeyrissjóóum? REKSTRARKOSTNAÐUR LÍFEYRISSJÓÐA SEM HLUTFALL AF IÐGJÖLDUM i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i 4 7 10 13 16 19 22 25 28 31 34 37 40 43 46 49 52 55 58 61 64 67 „Ég er því alveg sannfærður um að maður mundi vinna slíkt mál, ef ekki hér á landi þá fyrir Mannrétt- indadómstólnum," svaraði Þórar- inn V. Þórarinsson framkvæmdastj. VSÍ, spurður hvort hann væri þeirr- ar skoðunar að stjórarskráin gæti losað mann undan þeirri lagakvöð að borga iðgjöld í einn og ákveðinn lífeyrissjóð, t.d. síns stéttarfélags, hversu handónýtan sjóð sem þar væri um að ræða. í nýju fréttabréfi VSÍ vísar Þórar- inn til 67. gr. stórnarskrárinnar sem segir „að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema al- mannaheill krefji enda sé það gert samkvæmt lögum og komi þá fullt verð fyrir." Það geti varla talist al- mannaheill, að einstaklingur sé skyldaður til að kaupa sér lélega eða í versta tilfelli alls enga lífeyristrygg- ingu með greiðslum í ónýtan lífeyr- issjóð. Stjórnarskráin hljóti að vemda menn gegn lagalegri skyldu til að tryggja sér „rétt“ í sjóði, þar sem meira en tíunda hver innborguð króna er étin upp í rekstrinum, segir Þórarinn. Óheimil skattheimta þríðja aðila „Ég held að lagaákvæðið gangi of langt,“ segir Þórarinn. Ef t.d. Jón smiður á Akureyri segði; „Ég ætla að borga mín lífeyrisiðgjöld til Lífeyris- sjóðs verslunarmanna, sem vill veita mér viðtöku í sjóðinn. Því þó að Líf- eyrissjóður trésmiða á Akureyri vilji að ég borgi til sín þá er rekstrar- kostnaður þess sjóðs svo hár (kring- um 20%) að ég tel mig sjá fram á það að ég muni aldrei fá neitt til baka úr þeim sjóði.“ Þórarinn segir þetta einfaldlega óheimila skattheimtu í þágu þriðja aðila. Er VSÍ kannski að undirbúa stuðning við einhvern sem vill láta reyna á slíkt mál? „Nei, við erum nú ekki að því. En auðvitað gæti það komið til álita að greiða fyrir slíku. Við teldum hins vegar karlmannlegra að vinna að breytingum á kerfmu með því að taka á vandamálinu án milligöngu dómstóla. Vandamálið er mjög vel skilgreint, mjög vel skýrt. Það sem stendur þarna dálítið í vegi ennþá eru spurningar um völd og spurn- ingar um áhrif. Að hluta til tengjast þessar spurningar því hvort menn eigi að vera frjálsir að því í hvaða fé- lögum þeir eru. Þetta er angi af sama meiði,“ sagði Þórarinn. En hafa þeir ekki takmarkaðan tíma til að bíða slíkra lausna sem sjá fram á að standa kannski uppi sjö- tugir að eiga lítil sem engin lífeyris- réttindi þrátt fyrir að hafa í áratugi greitt 10. hluta launa sinna í iðgjöld? „í mínum huga eru ekki önnur mál stærri óuppgerð í okkar samfé- lagi en þetta“, sagði Þórarinn. í fréttabréfi VSÍ kemur m.a. fram að fram að 10 af alls 67 lífeyrissjóð- um, sem nú taka við iðgjöldum, eyddu milli 10-19% allra greiddra ið- gjalda í rekstrarkostnað árið 1990. Hlutfallið sveiflast frá tæplega 1% og upp í 19%. Að meðaltali fara 4% ið- gjaldanna í rekstrarkostnað, en það þýðir nærri 500 milljónir á ári. Miðað við rekstrarkostnað stærstu sjóðanna ætti — með fækkun sjóða og stækkun — að vera hægt að lækka þennan kostnað um allt að helming. Þannig mætti spara kring- um 200 milljónir kr. á ári. Munurinn svari því til 1,5% til 2% hækkunar á iðgjaldi eða til aukinna réttinda sem þessu svarar. í ljós kemur að mikil fylgni er með litlum sjóðum og miklum kostnaði. Þannig er rekstrarkostnaður um 4.400 kr. á hvern sjóðfélaga ári að meðaltali hjá sjóðum með færri en 3 þúsund félaga. Hann lækkar síðan með auknum fjölda og er kominn niður í 2.100 kr. á mann í sjóðum með fleiri en 9 þúsund félagsmenn. „Samkeppni", er að mati Þórarins það sem til þarf að koma til þess að fækka sjóðum, lækka kostnað og bæta Iífeyristryggingarnar. Sú ein- falda breyting, að menn mættu velja sér lífeyrissjóð, mundi á skömmum tíma leiða til sameiningar lífeyris- sjóða svo tugum skipti. Sjóðirnir yrðu að keppa um hylli sjóðfélaganna með því að sýna fram á betri árangur í rekstri, meiri hæfni til greiðslu lífeyris og meiri sveigjan- leika í samsetningu lífeyristrygginga en nú er. Þórarinn segir hlut ein- staklingsins hvarvetna fara vaxandi og heildarlausnir í þágu óskil- greindra meðaltalsmanna eigi því undir högg að sækja. „Því hljóta lífeyrissjóðirnir að svara þessum kröfum tímans þannig að t.d. barnlaus maður þurfi ekki endilega að kaupa barnalífeyris- tryggingu. Hann gæti valið sér líf- eyrissjóð og þær lífeyristryggingar, sem honum henta. Að þessu hlýtur VSÍ að starfa á komandi misserum, því þær aðstæður sem nú ríkja eru ekki ásættanlegar," segir Þórarinn. Ef fólk má velja sér sjóð fylgir því þá ekki líka að sjóðir mega velja sér félaga? Þannig að heilsutæpir fengju kannski ekki aðild að neinum sjóði? „Það yrði að setja reglur um það líka. Til þess að sjóðir fengju að starfa yrðu þeir að uppfylla ákveðnar kröfur, þar með talið að taka við mönnum. Hitt er annað mál, og það er vakandi í þessari umræðu í dag, að örorkulífeyriskostnaður sjóðanna hefur farið mjög vaxandi. Menn eru farnir að horfa á það að það gangi ekki að hafa réttindamyndun þann- ig, að ef einstaklingur, sem í raun- inni er aldrei vinnufær, komist út á vinnumarkaðinn, kannski í 1 ár eða 2, þá eigi hinir sjóðsfélagarnir að bera kostnað af framfærslu hans það sem eftir lifir, eins og hann hafi ver- ið fullvinnandi.“ Þóarinn segir vitanlega ekki spurningu að það þurfi að sjá fýrir framfærslu þessa fólks. En það eigi að gera í einhverju miklu stærra kerfi, en ekki einstökum lífeyrissjóð- um. Örorkulífeyrismálin séu þannig hvort sem er í töluverðu uppnámi. Menn séu því m.a. famir að velta því fyrir sér hvort ekki sé heppilegra að fara með stærri hluta örorkulífeyris- trygginganna í einhvern sameigin- legt kerfi, hvort sem það yrði þá á vettvangi almannatrygginganna eða annarra. Dreifa þannig áhættunni meira. Sambland af skyldu og frelsi „Raunar held ég að þróunin í þessu kerfi verði sú, að þessi „sósjal" hluti lífeyriskerfisins verði ekkert stærri en þessi 10% eins og í dag, gæti jafnvel orðið minni. Ég held að skyldutryggingin eigi að miðast við lágmarksframfærslu. Síðan kæmi svo einstaklingsbundinn þáttur til viðbótar. Ég held að einstaklings- bundnar tryggingar — hinn arfleif- anlegi hluti — eigi eftir að aukast og að lífeyrissjóðirnir hljóti að fara inn á þann markað. Samanlagt væri ekki óeðlilegt að miða við 12-15% sparn- að “ - HEI Gróðrarstöðin Mörk á 25 ára afmæli: Til sýnis um helgina Cróðrarstöðin Mörk verður opin al- menningi til sýnis þessa helgi í til- efni af 25 ára afmæli hennar. Einn- ig kemur út litprentaö veggspjald um tré og runnna á íslandi sem er hið fyrsta í röð veggsjalda sem stöðin ætlar að gefa út. Stöðin er stærsta gróðrarstöðin í einkaeigu á landinu en eigendur hennar eru þau Pétur N. Ólason og Martha C. Bjömsson. Gróðrarstöðin hefur m.a. tekið þátt í kynbótum á íslensku birki og er nú fyrsta kynslóð þess í uppeldi. Hún hefur einnig verið með í rækt- unarverkefni á skógarplöntum og býður upp á úrval skógarplantna í fjölpottabökkum fýrir bæjarfélög og landeigendur. Búvörusamningsnefnd á enn eftir að ná saman um mjólkurframleiðsluna: Tími nefndarinnar er við að renna út Mikillar óþreyju gætir aú meðal kúabænda og í mjólkuriðnaðin- um vegna þess bversu seint gengur að ná samkomuiagi t svokall- aðri búvörusamningsnefnd, en sú nefnd á að semja viðauka við búvörusamninginn um mjólkurframleisluna. Nefndin hefur tii hliðsjónar níðurstöður 7- mannanefndar sem skilaði af sér í vor. Svo virðist sem talsverðrar tregðu gæti hjá fulltrúa Alþýðuflokks í nefndinni að samþykkja áframhaldið og ekki hefur veriði form- legur fundur í nefndinni um hríð. Ekki náðist í Guðmund Ólafs- son, fulltrúa Alþýöuflokks í nefndinni, í gær og ekki heldur Cuðmund Sigþórsson í landbún- aðarráðuneytinu, formann henn- ar. Guðmundur Lárusson, for- maður Félags kúabænda, situr í nefndinnni og var hann f gær óhress með seinagang mála. „Það er f það minnsta ljóst að það má ekki tefjast miklu lengur að setja reglugerö um sfjóra á mjólkurframieiðsiunni á næsta verðlagsári. Það þarf m.a. að eyða ákveðnum óvissuþáttum f sam- bandi við verslun með fullvirðis- rétt milli manna. Það linnir ekki sfmhringingum t)l næstum allra sem hafa verið að fjalla um þessi mál, því það eru fjöldamargir sem eru að hugsa um að selja eða kaupa rétt þurfa að vita í hvaða farvegi þetta verður. Ástandið er m.ö.o. að verða alveg óþolandi,“ sagði Guðmundur Lárusson í samtali við Tfmann í gær. Guðmundur segir að það sem nást þuríl fram f þessu nefndar- starfi séu auk þess að fá skýrari niðurstöðu í söiu á fullvirðisrétti, að ákveða hvað verði um þann þiggja milljóna lftra mjólkurkvóta sem er f leigu hjá Framleiönisjóöi. Hvað varði bændur og mjólkur- iðnaðinn sameiginlega sé vita- skuld það hvernig stuðningni við mjólkurframleiðsluna verði hag- að. Ákvörðun um það þurfi að liggja fýrir mjðg fljótlega elnkum ef taka á upp belnar greiðslur í stað niðurgreiðslna. „Ef nýtt fýr- irkomulag á að taka gildi í. sept- ember — sem er raunar nánast útilokaö og yrðí varla iyrr en um áramót — þá þýðir það algera end- urskipulagningu á öllu verðmynd- unarferlinu. Niðurgreiðslurnar hafa verið notaðar sem hluti af verðlagningunni, til að hafa óhrif á vermyndun einstakra vöru- flokka. Sá þáttur hefur að hluta verið f höndum mjólkuriðnaðar- ins, sem mlssir hann aigeriega út úr höndunum á sér sem þýðir aft- ur atveg nýtt verðlagningarmynst- ur,“ segir Guðmundur Lárusson. -BG —GKG.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.