Tíminn - 11.07.1992, Side 13
Laugardagur 11. júlí 1992
Tíminn 13
Á þessum staö fannst lík Tammyar.
skrifað hjá sér, reyndist tilheyra
fólksbíl en ekki jeppa, þannig að
eitthvað hafði honum orðið á í
messunni.
Því var farið í segulböndin af
upptökum af símhringingum á
föstudagskvöldið. Þar heyrðist
æst konurödd skýra frá því að
ekið hefði verið á stúlku og öku-
maðurinn stungið af, með fóm-
arlambið í þokkabót.
Þegar farið var að kanna
hvernig á því stæði að þessu
neyðarkalli hefði ekki verið
sinnt, kom í ljós að lögreglu-
maðurinn, sem tók við því, var
nýbyrjaður á fjarskiptum og
hafði gleymt því, þar sem til-
kynning um líkamsárás hafði
borist strax á eftir. Ef vanari
maður hefði tekið við kallinu,
má telja að lífi Támmy hefði mátt
bjarga.
En á segulbandinu fannst rétta
bílnúmerið. Jeppinn tilheyrði
manni að nafni Jack Glendale
Lynch, sem bjó ásamt sambýlis-
konu sinni í hjólhýsahverfi utan
við bæinn.
þeim saman og endaði rifrildið
með því að Tammy neitaði að
fara með honum á bílnum hans,
kvaðst frekar vilja ganga. Hann
ók burt, en sá sig um hönd og
sneri við til að Ieita hennar. Hún
var þá horfin og hann sagðist
hafa ekið um dágóða stund og
leitað hennar, en án árangurs.
Danny hafði seinast séð unn-
ustu sína um níuleytið föstu-
dagskvöldið 13. júlí. Bæði lög-
reglumönnunum og vinum hans
fannst enginn vafi leika á að
Danny var yfirkominn af sorg og
sjálfsásökunum.
„Ef ég hefði vitað að svona
nokkuð gæti gerst, hefði ég ekki
sleppt af henni augunum,“ sagði
hann. „Hvers konar skepna get-
ur gert svona hluti?"
Lögreglan sneri sér nú að því
að sannreyna sögu Dannys.
Starfsfólk á veitingahúsinu stað-
festi allt sem hann hafði sagt.
Þeir, sem til hans þekktu og
spurðir voru, sögðu það alger-
lega útilokað að hann væri fær
um að fremja slíkan verknað,
síst af öllu gagnvart Támmy, sem
fólk sagði að hann hefði elskað
út af lífinu.
Danny hafði verið sá eini sem
lögreglan grunaði. Þegar ekkert
fannst, sem bendlaði hann við
morðið, sneru lögreglumenn-
irnir sér að öðru. Næstu dagar
fóru í það að mæla göturnar í
leit að vísbendingum. Svæðið
þar sem Tammy hvarf var fjölfar-
ið og reynt var að rekja hvaða
leið hún hafði farið eftir að leiðir
þeirra Danny skildu. Allir þekkt-
ir nauðgarar og ofbeldismenn
voru yfirheyrðir, en útkoman
varð engin.
Umferðarslys
Mánudaginn 16. júlí urðu loks
RÁDNING Á
KROSSGÁTU
Skór og taska Tammyar fundust á þessu götuhorni.
Jack Glendal Lynch skrapp út í
sjoppu og framdi morð í leiðinni.
þáttaskil í rannsókninni. Maður,
sem rak bensínstöð nærri staðn-
um þar sem skórnir fundust,
hringdi í lögregluna. En hann
var ekki að veita upplýsingar,
hann vildi fá upplýsingar. Hann
vildi fá að vita hver útkoman
hefði orðið úr símtali til lögregl-
unnar frá bensínstöð hans á
föstudagskvöldið.
Hann skýrði frá því að um
hálftíuleytið á föstudagskvöldið
hefði kona komið inn á bensín-
stöðina og krafist þess að fá að
hringja strax í neyðarnúmer lög-
reglunnar. Hann kvaðst hafa
heyrt hana skýra frá því að hún
hefði séð hvítum jeppa ekið á
unga stúlku uppi á gangstétt.
Bílstjórinn hefði snarað sér út úr
jeppanum, dregið ungu stúlkuna
inn í hann og ekið á brott í suð-
urátt. Bensínstöðvareigandinn
hafði haft rænu á því að skrifa
hjá sér skráningarnúmer jepp-
ans um leið og konan las það upp
í símann, en honum hafði láðst
að spyrja konuna að nafni.
„Eg held að hún hafi ekki verið
héðan úr bænum, því hún virtist
engan veginn viss um hvar hún
var stödd," sagði hann.
Bensínstöðvareigandinn gat
lýst konunni nokkuð vel og var
nú auglýst eftir henni og hún
beðin um að gefa sig fram. Einn-
ig var leit hafin að jeppanum.
Númerið, sem maðurinn hafði
Eigandi jeppans
fínnst
Þó svo að Lynch væri aðeins 32
ára gamall, átti hann skrautleg-
an feril að baki og sakaskrá hans
var löng og skuggaleg. Hann
hafði verið fundinn sekur um
innbrot, mannrán, skjalafals og
þýfissölu.
Félagsráðgjafi, sem hafði haft
með mál hans að gera, skýrði frá
því að í bernsku hefði hann orð-
ið fyrir barðinu á áfengissýki for-
eldranna, sem bæði misþyrmdu
honum og misnotuðu kynferðis-
lega. Sama gamla sagan, fórnar-
lamb verður gerandi.
Lögreglan færði nú Lynch og
sambýliskonu hans til yfir-
heyrslu. Sambýliskona hans
skýrði frá því að þau hefðu setið
að drykkju föstudaginn 13. apríl
og hún hefði sofnað á sófanum.
Þegar hún vaknaöi aftur, voru
Jack og jeppinn horfin. Hún
kvaðst þá hafa lagst aftur til
svefns og vaknað um miðnættið
þegar Jack kom heim. Hún
spurði hann hvar hann hefði ver-
ið og hann kvaðst rétt hafa
skroppið út. Hún lét það kyrrt
•iggja.
Jack Lynch neitaði í fyrstu að
vita nokkuð um Tammy Garrett.
Hann kvaðst hafa skroppið í
sjoppu á föstudagskvöldið að
vísu, en snúið beint heim aftur.
Eftir nánari yfirheyrslur
brotnaði hann saman og fór að
gráta. Lögreglan vissi sem var að
þetta var fyrsta merkið um það
að glæpamaður væri um það bil
að fara að játa, og þjarmaði því
frekar að honum.
Jack Lynch skýrði þá frá því að
hann hefði ekið um bæinn og
ekið á eitthvað.
„Var það kona?“ spurði lög-
reglan.
„Nei, jú annars, kannski var
það kona,“ var svarið. „Ég lenti
uppi ápangstétt í beygju og ók á
hana. Eg tók hana upp í bílinn til
að aka henni á sjúkrahús. Hún
var meðvitundarlaus fyrst, en
svo vaknaði hún og byrjaði að
æpa og veina. Síðan stökk hún
út úr bfinum og ég sá hana ekki
eftir það.“
Eftir að hafa skýrt frá þessu
snarþagnaði hann. Hann harð-
neitaði að nokkuð fleira hefði
gerst milli sín og Támmy.
Sönnunargögn í
tonnatali
Þó svo að Jack neitaði öllum
sakargiftum um að hafa myrt
Tammy, voru næg sönnunar-
gögn gegn honum önnur. Sæði
og hár, sem fundust á líkinu,
voru frá honum og hann neydd-
ist til að játa að bolurinn, sem
fannst skammt frá líkinu, væri
hans eign.
Það eina, sem nú vantaði, var
konan, sem hafði hringt til lög-
reglunnar frá bensínstöðinni.
Loks á mánudeginum 24. júlí
hringdi hún í lögregluna. Hún
hafði farið úr bænum daginn eft-
ir að hún hafði hringt og hafði
ekki vitað að hennar var leitað
fyrr en daginn áður, en þá hafði
hún samstundis samband. Frá-
sögn hennar gerði það að verk-
um að nú var málið gegn Jack
Lynch pottþétt.
Á þeim tíma, sem leið fram að
réttarhöldunum, var Jack tvisvar
sinnum sendur í geðrannsókn.
Hann skýrði geðlæknunum frá
því að þegar hann drap Tammy
hefði hann heyrt raddir í höfði
sér. Önnur röddin var rödd móð-
ur hans, sem sagði honum að
misþyrma stúlkunni kynferðis-
lega. Hin röddin var karlmanns-
rödd, sem sagði honum að stinga
hana og skera og ljúka þessu af.
Annar geðlæknirinn hélt því
fram að þegar Jack drap Tbmmy
hefði hann í raun verið að myrða
móður sína, sem misþyrmdi
honum í æsku. í gæsluvarðhald-
inu reyndi Jack Lynch tvisvar
sinnum að svipta sig lífi.
Honum var stefnt fyrir rétt
þann 10. febrúar 1992. Kvið-
dómur úrskurðaði hann sekan
um morð að yfirlögðu ráði,
mannrán og nauðgun. Dómar-
inn dæmdi hann í ævilangt fang-
elsi án möguleika á náðun fyrir
morðið og í samtals 2.000 ára
fangelsi fyrir aðrar sakargiftir.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mai er skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Drætti i Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til 10. júll n.k. Vel-
unnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, enr hvattir til að greiða heimsenda
giróseðla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða i sima 91-624480.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarkonur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir hópferð á Kvennaþingið á Egils-
stöðum 20.-23. ágúst n.k.
Vinsamlegast látið skrá ykkur strax hjá Jafnréttisráði, simi 91-27420, og á skrifstofu
Framsóknarflokksins, simi 91-624480.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Sumarferð
framsóknarmanna
Farið verður Kjöl að Blönduvirkjun laugardaginn 8. ágúst.
Nánar euglýst slöar.
Fulltrúaráóið.
Kópavogur-
Fulltrúaráð
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Kópavogi heldur fund
með nefndarfólki og varamönnum i Fulltrúaráöi mánudaginn
13. júlí kl. 20.30 að Digranesvegi 12.
Dagskrá:
1. Sigurður Geirdal bæjarstjóri kynnir reikninga Kópavogs-
kaupstaðar fyrir árið 1991.
2. Önnur mál. Stjórn Fulltrúaráðs.
24. sambandsþing SUF
24. þing Sambands ungra framsóknarmanna verður haldið á Egilsstöðum 28.-30.
ágúst n.k. Dagskrá þingsins verður nánar auglýst siöar.
Samband ungra framsóknarmanna.
Sigurður
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNCIÐ?
Viðgeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og víðgerðir á iönaðarvélum — járnsmíöi.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kœnuvogsmegin - Sími 814110