Tíminn - 26.09.1992, Síða 1
Laugardagur
26. september 1992
180. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
VSÍ hafnar geröum
samningí við Félag
járniðnaðarmanna:
Alls ekkert
aö marka
undirskrift
samninga?
Framkvæmdastjóm Vinnu-
veitendasambands íslands
hefur lýst því yfir meö bréfi til
Félags járniðnaðarmanna að
undirritaður kjarasamningur
þess við félagið frá 1. septem-
ber sl. hafi ekki kornist á, en
samningurinn var samþykktur
einróma i fundi Félags jára-
iðnaðarmanna þann 22. sept-
embersl.
öra Friðriksson, formaður
Félags jámiðnaðarmanna og
varaforseti Alþýðusambands
íslands, segir að með þessu sé
VSÍ að brydda upp á nýjum að-
ferðum við gerð kjarasamn-
inga þar sem ekkert virðist
vera að marka undirskrift
þeirra. Hann segir að framhald
málsins sé ( höndum ríkls-
sáttasemjara enda verði að líta
svo að framkvæmdastjóra VSÍ
hafi fellt gerðan samning við
járniðnaðarmenn. „Þelrri
vinnuregiu hefur verið fram-
fylgt f gegnum árin að samn-
ingamenn mæla eindregið
með samþykkt samnings eins
og þeir hafa undirritað hann.
Á því byggist það traust sem
nauðsynlegt er við samninga-
gerð,“ segir öra Friðriksson.
Það sem elnkum veldur þess-
um sinnaskiptum VSÍ er 2. gr.
samningsins sem kveður á um
það að laun umfram kauptaxta
haldf gildi sínu. Þetta atriði
hefur löngum verið eltt helsta
barittumál Félags járalðnað-
armanna og fleiri verkalýðsfé-
iaga. Nokkru eftir undirrituu
samningsins gerðist hið
óvenjulega að aðilar sem ekki
voru við samningagcrðina
voru uppi með túlkanir um
samkomuiagið í fjöimiðlum
og í framhaldi af því gerði VSÍ
kröfu um að þessi grein samn-
ingsins hefði tímabundið gildi
og væri ekki hluti af kjara-
samningnum, en því hafnaði
Félag járaiðnaðarmanna enda
um grundvallaratriði að neða f
samningnum. -gth
NORSTAR símo
Northern
símakerfi
Símakerfið er
og 16 innanhússlínur.
hagstæðu verði.
nöfsíaf
kemur þér stroi í somband
\i Jramtíðino
northom
fclccom
PÓSTUR OG SfMI
Söludeildir í Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og póst- og símstöðvar um land allt
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga segir tilgangslaust að reyna að gera
samninga við stjórnvöld. Þau svíki alla samninga:
Sveitarfélögin hafa í
hótunum við stiómvöld
Stjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi á Egilsstöðum í
gær að gera hlé á störfum sveitarfélaganefndar sem m.a. vinnur að tillög-
um um sameiningu sveitarfélaga, á meðan stjóravöld hafi uppi áform um
að tjúfa samninga sem ríkisvaldið gerði við sveitarfélögin um endurgreiðsl-
ur á virðisaukaskatti. Stjórn sambandsins telur tilgangslítið að leggja vinnu
í flókna samningsgerð sem engin trygging er fyrir að stjóravöld standi við.
Sveitarfélaganeftidin vinnur að til-
lögum um umdæmi sveitarfélaga,
tekjustofna þeirra, verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga og aðgerðir
ríkisvalds til að auðvelda samein-
ingu sveitarfélaga. Ríkisstjómin
hefur lagt mikla áherslu á að tillög-
um þessarar nefndar verði hmndið í
framkvæmd á kjörtímabilinu. Fé-
lagsmálaráðherra hefur t.d. lagt til
að kosið verði í ný og sameinuð
sveitarfélög í næstu sveitarstjómar-
kosningum sem fram eiga að fara
1994.
Ástæðan fyrir því að samtök sveit-
arfélaga ætía að slíta þessari vinnu
að sinni a.m.k. er að þau treysta ekki
lengur samningum sem stjómvöld
hafa gert við þau. Árið 1990 var
gerður samningur um endur-
greiðslu á virðisaukaskatti af snjó-
mokstri, sorphirðu o.fl. Nú hefur
ríkisstjómin ákveðið að rifta þessum
samningi einhliða og hætta endur-
greiðslum.
Endurgreiðslumar nema um 600
milljónum á ári. Þetta er svipuð
upphæð og lögguskatturinn svokall-
aði skilaði í ríkissjóð.
í ályktun stjómar sambandsins
sveitarfélaga segir að þessi aðgerð
ríkisstjómarinnar muni leiða til
verulegrar hækkunar á aðföngum
til hitaveitna, sem leiða muni til
verulegrar hækkunar á húshitunar-
kostnaði og leggjast þyngst á þá sem
búa við hærra orkuverð. Þess er
krafist að ríkisstjómin dragi tillögur
sínar til baka. Það sé alger forsenda
fyrir frekari samningsgerð milli rík-
isins og sveitarfélaganna. -EÓ
Sálí
gömlum
bíl-
koppum
„Það var sál í gömlu bílkoppun-
um,“ segir Þorvaldur Nordahl sem
er fertugur og betur þekktur undir
nafninu Valdi koppasali. í tilefhi
dagsins ætla meðlimir Fombfla-
klúbbsins að 'bjóða afmælisbam-
inu í bflferð og kaffisamsæti.
Allt frá árinu 1963 hefur Valdi
safnað bflkoppum og selL Fyrsti
koppurinn var af Benzbifreið en nú
fylla allar mögulegar gerðir af
koppum gamalt útihús við bæinn
Hólm við samnefnda á í nágrenni
Reykjavíkur.
Þegar Tíminn leit inn hjá afmæl-
isbaminu var hann hinn ánægð-
asti með aldurinn og viðskiptin í
Þorvaldur Nordahl.
gegnum tíðina. Mest segist hann
hafa selt af bflkoppum á bifreiða-
.tegundinrar Skoda og Volkswagen.
Greinilegt er samt að honum þykir
miklu meira koma til gömlu bfl-
koppanna en þeirra nýju sem hon-
um finnst vera hálfgert pappadrasl.
Einn af þeim allra elstu er af teg-
undinni Chervolet árgerð 1940.
Vænst þykir Valda samt um bfl-
kopp af Chervolet árgerð 1955 og
hann segir að sá koppur sé alls ekki
til sölu. Afmælisbarnið vill minna
fólk á sig ef það er í vandræðum
með að losna við gamla bflkoppa.
„Það má tala við mig en ekki okra á
mér,“ sagði Valdi að lokum.
-HÞ