Tíminn - 26.09.1992, Blaðsíða 7
Laugardagur 26. september 1992
Tíminn 7
landar sínir ættu að að senda flug-
vél eftir honum Ævari, svo þeir
yrðu fyrstir að ná þessari uppgötv-
un! En svo fór nú ekki að þeim ráð-
um væri fylgt“
Séð í gegnum
„þokuna"
Þú áttir meginþátt í smíði íssjár-
innar, sem kom svo mjög við sögu
fyrir nokkru þegar flugvélar frá
stríðsárunum fundust djúpt í
Grænlandsjökli og voru dregnar
upp úr jöklinum?
„Já, hér er um radartæki að ræða,
sem notað er til þess að mæla þykkt
á jökulís. Við hófum að gera til-
raunir með þetta tæki, sem nefnist
íssjá, um 1976 og einnig var verið
að gera áþekkar tilraunir erlendis.
Tækið skyldi geta mælt þykkt svo-
nefndra þíðjökla, en þá er átt við
jökla þar sem hiti íssins er ekki
undir frostmarki. Hitastig allra ís-
lenskra jökla er sjálft frostmarkið,
svo þetta snerti okkar jöklarann-
sóknir mjög mikið. En í þíðjöklum
eru dropar af leysingavatni niðri í
ísnum sem hafa þau áhrif á út-
varpsbylgjurnar, sem mælitæki
sendir frá sér, að bylgjurnar truflast
og dreifast. Fyrir vikið finnst ekki
botninn undir jöklinum. Þessu má
líkja við það að reynt sé að skoða
landslag f þoku.
En svo hugkvæmdist einhverjum
að væru lengri bylgjur notaðar,
mætti komast í gegnum dropana
og niður á botn. Fórum við með til-
raunatæki upp á Vatnajökul og gaf
það góða raun, þótt ýmis tækni-
vandamál kæmu í ljós. Þar á meðal
var það að fá þurfti tæki, sem sent
gæti frá sér svo sterkar rafsegul-
bylgjur að þær kæmust alla leið á
botninn og síðan upp á ný. Orka
þessara fyrstu tækja okkar nægði
ekki til þess að mæla nema mjög
grunnan jökul.
En þar er skemmst frá að segja að
ég sá strax leið til þess að smíða
tæki, er senda mundi frá sér svo
sterkar bylgjur að þær næðu gegn-
um kflómetraþykkan jökul eða
dýpri. Aðferðin kom svo Ijóst og
skýrt upp í hugann að það þurfti
engar tilraunir að gera. Eg smíðaði
tækið um veturinn og við fórum
með það á jökulinn sumarið eftir.
Árangurinn var prýðilegur og við
mældum kflómetraþykkan jökulís.
Sendirinn, sem ég smíðaði, þurfti
auðvitað móttökutæki og þann
hluta smíðaði samstarfsmaður
minn, Marteinn Sverrisson. Mig
minnir að þetta hafi verið 1978.
Nokkru seinna fór maður frá Raun-
vísindastofnun með þetta tæki okk-
ar, sem nú hafði verið skírt íssjá, til
Alaska, en þar skyldi prófa ýmsar
ÍTexti: Atli Magnússon
Ljósm.: Árni Bjarna
gerðir af tækjum til svona mælinga
og ákveðið var að nota það fram-
vegis sem best reyndist. Tækið héð-
an reyndist skila besta árangrinum
og hafa afkomendur þess verið f
notkun síðan. Jú, þess var óskað að
við leituðum að þessum bandarísku
flugvélum á Grænlandsjökli og sem
kunnugt er þá fundust þær strax.
íssjáin reyndist mjög vel heppnað
tæki og er nú búið að kortleggja
botninn undir öllum helstu jöklum
landsins með hjálp hennar. Talið er
að mögulegt sé að leita eftir vatni í
eyðimörkum með íssjánni eða af-
komendum hennar, til dæmis í Sa-
hara. Einhverjar tilraunir hef ég
heyrt að gerðar hafi verið til þess og
að þær hafi skilað árangri."
Sagt fyrir um eldgos
Uppgötvanir þínar eru orðnar
margar. Ein mun vera síritandi
hallamcelir, sem mœlir landsig á
eldvirknisvæðum?
„Já, Norræna eldfjallastöðin er hér
í Jarðfræðihúsi Háskólans og með
okkur og tæknimönnum hennar er
gott samstarf. Mér var kunnugt um
áhuga þeirra á að smfða sfritandi
hallamæli sem mældi jarðlagahalla
og sagði ég fyrir um gerð tilrauna-
tækis sem var sett upp við Kröflu.
Til þess að gera langa sögu stutta,
þá reyndist tækið mjög vel og hafa
nú verið gerðir margir mælar
byggðir á sögu hugmynd, þar á
meðal í öðrum löndum. Nákvæmn-
in er slík að sé mælirinn settur nið-
ur á réttan hátt, getur hann senni-
lega mælt allt niður að eins milli-
metra hreyfingu á eins kflómetra
vegalengd. Að minnsta kosti má
mjög auðveldlega sjá eins senti-
metra hreyfingu. Krafla gaf góð
tækifæri til prófana á þessu áhaldi
og hefur ekki eitt einasta eldgos
orðið eftir að mælirinn kom til,
sem ekki var búið að segja fyrir
um.“
Lífgeislun
Þú hefur smíðað svonefht Kirlian-
tæki, sem myndar lífútgeislun frá
laufblöðum og fleiri lífverum og
sovéskir vísindamenn gátu sér
mikið orð fyrir.
„Ég vil ekki gera mikið úr þessu
hvað mig snertir. Þetta er tækni
kennd við Rússann Kirlian, sem var
brautryðjandi á þessu sviði. Hann
vann við þetta f áratugi og varð
heimsfrægur fyrir. Ég fékk teikn-
ingar af myndavél hans frá Moskvu-
háskóla, smíðaði svo áþekka vél og
náði allgóðum árangri. En til þess
að ná lengra þarf mikið dýrari og
fullkomnari Ijósmyndunaráhöld."
Jurtablanda gegn
ónæmissjúkdómum
En nú vendum við okkar kvæði í
kross og komum að mesta áhuga-
máli þfnu um þessar mundir, en það
eru lækningatilraunir þínar með
sérstöku jurtaseyði, sem meðal
annars er notuð í rót af lúpínu.
Ji, en þó er ekki rétt að kenna
þetta við lúpínuna eina, því í seyð-
inu eru fimm eða sex jurtir. Lúpín-
an gerir seyðið þó frábrugðið, því
stöku hinna jurtanna hafa áður ver-
ið notaðar í lækningaskyni. Ég og
fleiri álíta að seyðið styrki einkum
ónæmiskerfið og kvillum er því
tengjast. Ekki síst hafa margir, er
þjást af krabbameini, trú á því. Ég
hóf tilraunir fyrir þrem eða fjórum
árum og eru það á annað þúsund
sjúklingar sem hafa notað seyðið.
Alltaf eru nokkur hundruð sjúk-
lingar með það að staðaldri. Ég
framleiði þetta sjálfur og allt að 60-
65 lítra á dag. Um árangur vil ég
ekki vera margorður, en læknis-
.fræðileg rannsókn er að hefjast og
munu margir læknar koma þar við
sögu og segja álit sitt á mögulegri
gagnsemi. Eg og fleiri teljum okkur
þó hafa séð mjög merkilega hluti
eiga sér stað. Við teljum að þarna
kunni merkileg virk eftii að vera að
finna, en síðari tími mun leiða í ljós
hið sanna um það.
Ég hef um langt árabil starfað í fé-
lagi sem heitir „Heilsuhringurinn"
og ritað mikið í tímarit þess. Saman
komið væri það efni í stóra bók, þótt
þar sé ekki um mínar athuganir eða
rannsóknir að ræða. En ég fylgist
mikið með erlendum skrifum um
hollustumál og rita svo í einni heild
um fjölmarga þætti þeirra, þegar ég
þykist hafa hlotið næga yfirsýn yfir
þá. Þannig vil ég gera efhið aðgengi-
legt almennum lesendum."
Vaknaði snemma með þér áhugi á
tækni og uppfínningum?
„Ég hef verið innan við fermingu,
tíu eða tólf ára, þegar ég fór að
verða mjög áhugasamur um hvers
kyns tækni. Þar var raffræði og raf-
tækni af öllu tagi ofarlega á blaði.
Uppfinningamðurinn hefur alltaf
verið í mér og hann hefur sem bet-
ur fer fengið að njóta sín. Ég finn að
ég hef náð árangri og það nægum
árangri til þess að ég er heldur
ánægður með hlutskipti mitt í líf-
inu.“
Hér með þökkum við þessum
merkilega hugvitsmanni fróðlegt
spjall og má mikið vera ef enn fleiri
einstæðra uppgötvana er ekki að
vænta frá hans hendi. AM
„Ekki Uöu nema fáeinir mánuöirþar til Kodak var komiö meö mjög svipaöa aöferð eöa svo áþekka aö fram-
hjá einkaleyfinu heföi ekki oröiö komist. “ Tímamynd: Ámi Bjama
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til háskólanáms í
Noregi, Sviss, Svíþjóð
og Þýskalandi
1. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóöi fram I löndum,
sem aöild eiga aö Evrópuráöinu, flóra styrki til framhalds-
náms viö háskóla I Noregi skólaáriö 1993-94. Ekki er vit-
aö fyrirfram, hvort einhver þessara styrkja muni koma I
hlut Islendinga. Umsóknir skal senda til Norges allmenn-
vitenskapelige forskningsrád, Sandakerveien 99,
N- 0483 Oslo 4, fyrir 1. mars n.k., og lætur sú stofnun I té
umsóknareyöublöö og frekari upplýsingar.
2. Svlssnesk stjómvöld bjóða einnig fram I löndum, sem aö-
ild eiga aö Evrópuráöinu, 25-28 styrki til háskólanáms f
Sviss skólaáriö 1993-94. Styrkimir eru eingöngu ætlaöir
til framhaldsnáms viö háskóla og skulu umsækjendur eigi
vera eldri en 35 ára. Nauösynlegt er aö umsækjendur hafi
nægilega þekkingu á frönsku eöa þýsku og þurfa þeir aö
vera undir þaö búnir aö á þaö veröi reynt meö prófi.
3. Sænsk stjómvöld bjóöa fram nokkra styrki handa eriend-
um námsmönnum til aö stunda nám I Svfþjóö námsáriö
1993-94. Styrkir þessir eru boðnirfram f mörgum löndum
og eru ööru fremur ætlaöir til náms sem eingöngu er unnt
aö leggja stund á f Svfþjóö. Sérstök athygli er vakin á þvf
aö umsækjendur þurfa aö hafa tryggt sér námsvist viö
sænska stofnun áður en þeir senda inn umsókn. Styrk-
fjárhæöin er 6.700 s.kr. á mánuði námsárið, þ.e. f 9 mán-
uði. Styrkir til skemmri tfma koma einnig til greina. Um-
sóknir um styrkina skal senda til Svenska Institutet,
Gáststipendier, Box 7434, S-103 91 Stockholm, og lætur
sú stofnun f té tilskilin umsóknareyöublöö fram tll 1. des
ember n.k.
4. Þýska sendlráðiö f Reykjavfk hefur tilkynnt fslenskum
stjómvöldum aö boðnir séu ffam eftirtaldir styrkir
handa (slendingum til náms og rannsóknastarfa I
Þýskalandi á námsárinu 1993-94:
a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu
hafa lokiö a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
b) Nokkrir styrkir til aö sækja þýskunámskeiö sumarið
1993. Umsækjendur skulu vera komnir nokkuð áleiðis
f háskólanámi og leggja stund á nám f öörum grein-
um en þýsku. Einnig þurfa þeir aö hafa góöa undir-
stöðukunnáttu I þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vfsindamanna tii námsdvalar og
rannsóknarstarfa um allt aö sex mánaöa skeiö.
Nánari upplýsingar um styrkina fást I menntamálaráöuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavlk.
Umsóknum um styrki til náms f Svlss og Þýskalandi skal
skilaö til ráöuneytisins fyrir 15. nóvember n.k. á sérstökum
umsóknareyðublööum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytlö,
Staða forstöðumanns
bankaeftirlits
Samkvæmt 13. gr. laga nr. 36/1986 er viðskiptaráðherra
falið að skipa forstöðumann bankaeftirlits Seðlabanka ís-
lands til eigi lengri tíma en sex ára í senn.
Viðskiptaráðuneytið auglýsir hér með stöðu þessa lausa til
umsóknar. Umsóknum ber að skila til viðskiptaráðuneytis-
ins eigi síðar en 30. október n.k.
Viðskiptaráðuneytið, 25. september 1992
Kveöjuathöfn um
Helga Lárusson
frá Klrkjubæjarklaustrl
veröur I Hallgrlmskirkju föstudaginn 2. október 1992 kl. 13,30.
Blóm vinsamlega afþökkuö. Bent á orgelsjóö Hallgrfmskirkju vegna
minningargjafa.
Jaröaö veröur á Kirkjubæjarklaustri 3. október.
Valgerður Jónsdóttlr Auöur Helgadóttlr Winnan
Elfn Frigg Helgadóttlr
Lárus Helgason
Slgrún Helgadóttlr
V _________________________________________________________________/