Tíminn - 24.04.1993, Blaðsíða 1
maMam
Laugardagur
24. apríl 1993
75. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 110.-
Nýsköpun
nemenda
Verðlaunaveiting og sýning á
verkum gunnskólanemenda í
nýsköpunarkeppni verður opn-
uð í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Markús Öm Antonsson mun
afhenda verðlaunin við athöfn í
Ráðhúsinu kl. 14 í dag. Þá verða
jafnframt veitt sérstök tækni-
verðlaun fyrir tæknilegt innsæi
sem Guðbrandur Steinþórsson
rektor Tækniskóla íslands af-
hendir.
Eldur í
sumarhúsi
t gærdag kviknaði í vegg-
klæðningu á nýlegum sumarbú-
stað við Meðalfellsvatn. Heima-
menn höfðu slökkt eldinn þegar
slökkvilið Reykjavíkur kom á
vettvang. Skemmdir urðu
óverulegar.
íslandsbanki hefur á síðustu þremur árum afskrifað meira af útlánum en Lands-
banki þó að Landsbanki sé nærri helmingi stærri:
íslandsbanki hefur
tapað mest allra
íslandsbanki hefur á síðustu þremur árum afskrifað mest
allra íslenskra banka. Bankinn hefur tapað meira en
Landsbanki þó að Landsbankinn sé nærri helmingi stærri
en íslandsbanki. Tap íslandsbanka er fjórum sinnum meira
en Búnaðarbanka þó að bankarnir séu af svipaðri stærð.
Guðni Ágústsson, formaður bankaráðs Búnaöarbanka,
segir þetta sanna að það skipti ekki máli hvert rekstrar-
form bankanna er þegar kemur að útlánatöpum og afskrift-
um.
íslandsbanki hefúr á síðustu þrem-
ur árum afskrifað mest allra ís-
lenskra banka. Bankinn hefúr tapað
meira en Landsbanki þó að Lands-
bankinn sé nærri helmingi stærri
en íslandsbanki. Táp íslandsbanka
er fjórum sinnum meira en Búnað-
arbanka þó að bankamir séu af
svipaðri stærð. Guðni Ágústsson,
formaður bankaráðs Búnaðar-
banka, segir þetta sanna að það
skipti ekki máli hvert rekstrarform
bankanna er þegar kemur að út-
lánatöpum og afskriftum.
Ágúst Einarsson, formaður banka-
ráðs Seðlabankans, gagnrýndi rík-
isbankana harðlega á ársfundi
Seðlabankans í vikunni.
Hann sagði: „Það að hafa blandað
Vorverk'
in í garð
inum
Voríö er komið og sá tími upp
runninn þegar fólk fer að huga
að görðum og gróðri. Tímanum í
dag fylgir sérstakur blaðauki
um garðrækt og garðykju. Þar
er fjölbreytt efni sem nýst getur
þeim sem rækta vilja garðinn
sinn.
Tfmamynd Ami Bjama
saman faglegum bankasjónarmið-
um, pólitískri varðhundagæslu og
byggðastefnu í starfsemi ríkisvið-
skiptabanka á undanfömum ára-
tugum hefur leitt til þeirra vand-
kvæða að afskriftaþörf er mikil,
veikburða atvinnurekstur víða og
ekki nægjanlegt aðhald í rekstri
bankanna."
Guðni Ágústsson vísar þessum
staðhæfingum algerlega á bug og
bendir á tölur um afskriftir og tap
viðskiptabankanna á síðustu árum
þessu til staðfestingar.
Afskriftir bankanna 1990-1992
í milljónum króna
Landsb. Búnaðarb. fslandsb.
1990 79 142 329
1991 572 130 591
1992 1326 253 1087
Samtals 1977
525
2007
Framlag bankanna í afskriftasjóð
1990-1992
í milljónum króna
Landsb. Búnaðarb. íslandsb.
1990 1419 249 565
1991 1000 354 815
1992 4067 637 1512
Samtals 6486 1240
2892
Mesta áfall í sögu Þjóðminjasafnsins þegar bróðurparturinn af verðmætasta bátasafni þess
frá 19.öld og upphafi 20. aldar brann til ösku. Þjóðminjavörður:
Guðni segir þessar tölur ómerkja
hrokafull og röng ummæli for-
manns bankaráðs Seðlabanka.
Rekstrarform bankanna skipti ekki
máli þegar komi að útlánatöpum 0|
afskriftum. -E'
Oryggiskerfi vanmáttug gegn
hörðum brennuvörgum
Guðmundur Magnússon þjóðminjavörður segir að öryggis-
kerfi séu vanmáttug gegn þeim sem ætla sér að valda tjóni.
Hinsvegar mun eldsvoðinn í skemmunni viö Vesturvör
verða til þess að allt öryggiskerfið verður endurskoðað.
Hann segir að það sem gerðist við Vesturvör eigi ekki að
geta gerst annarsstaðar þar sem Þjóðminjasafnið á í hlut og
það sé allt gert til að koma í veg fyrír tjón sem hægt er að
rekja til slysni.
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður
segir að í Þjóðskjalasafninu sé reynt að
minnka með öllum mögulegum ráð-
um líkumar á því að þar geti kviknað í
af ástæðum sem hægt sé að rekja til
húsnæðisins og til slysni ýmiskonar.
Hann segir að þar sé reynt að gæta
eins mikillar varúðar og mögulegt er.
En af hinum ýmsu hættum eru starfs-
menn Þjóðskjalasafns mun hræddari
við vatnskaða ss. sjóðandi heitt vatn og
gufú en bruna.
„Þessi atburður gefúr auðvitað tilefni
til þess að endurskoða allt okkar ör-
yggiskerfi. Þama bmnnu menningar-
sögulegir dýrgripir sem ekki verða
bættir. Þetta er mesta áfall sem Þjóð-
minjasafnið hefur orðið fyrir," sagði
Guðmundur Magnússon þjóðminja-
vörður.
Eldsvoðinn í skemmu Sjóminjasafns
Þjóðminjasafnsins við Vesturvör í
Kópavogi, þar sem bmnnu til ösku 18
bátar og þar með bróðurparturinn af
verðmætasta bátasafni Þjóðminja-
safnsins, hefur orðið til þess að vekja
fólk til umhugsunar um það hvemig
staðið er að öryggi þeirra muna og
minja sem geymd em í söfnum lands-
ins.
Elsti báturinn sem brann var fra ár-
inu 1840, sexæringurinn Felbc sem
smíðaður var í Bjamarhöfn á Snæ-
fellsnesi. Auk bátanna var í skemm-
unni hjallur frá Vatnsfirði og rekavið-
ur. Bátaskýlið var reist haustið 1991
en áður höfðu bátamir staðið þar fyrir
utan í reiðileysi eftir að hafa verið
fluttir þangað nokkmm mánuðum
fyrr úr geymslum safnsins í Viðey,
Bessastöðum og víðar.
Ummerki á staðnum benda til þess að
um íkveikju hafi verið að ræða en ekk-
ert eldvamakerfi var í húsinu sem var
án rafmagns. Þegar slökkviliðið kom á
vettvang gekk vatnsöflun erfiðlega og
þegar eiginlegt slökkvistarf hófst var
skemman alelda.
,£f það er eindreginn ásetningur ein-
hvers að valda svona tjóni þá má segja
að hin fullkomnustu öryggiskerfi séu
eiginlega vanmáttug gagnvart því. Það
er fyrst og fremst gegn slysni sem við
viljum verja okkur og það sem gerðist
í skemmunni við Vesturvör á ekki að
geta gerst annarsstaðar hjá okkur,“
segir þjóðminjavörður. Hann segir að
eldvamar- og eftirlitskerfi séu í bygg-
ingum og geymslum Þjóðminjasafhs-
ins auk þess sem húsnæði safúsins sé
vaktað af fyrirtækinu Securitas.
Ólafúr Ásgeirsson þjóðskjalavörður
segir að eitt af því fyrsta sem þurfi að
gera bragarbót á í Þjóðskjalasafninu sé
að gera aðgang að safninu erfiðari en
nú er og setja upp viðunandi viðvömn-
arkerfi fyrir safnið í heild. En Þjóð-
skjalasafnið er á þremur stöðum með
höfuðstöðvar við Laugaveg.
„Það er aðkallandi að ljúka frarn-
kvæmdum í húsnæðinu við Laugaveg
en þar á eftir að koma upp innrétting-
um og fleira slíku sem talið er að muni
kosta um 100-150 milljónir króna.
Fyrr getum við ekki flutt allt okkar á
einn stað.“ -grh