Tíminn - 24.04.1993, Blaðsíða 19

Tíminn - 24.04.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 24. apríl 1993 Tíminn 19 Aðalbjörg Benediktsdóttir Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns mlns, föður okkar og tengdaföður, Fædd 1. mars 1904 Dáin 15. apríl 1993 Aðalbjörg Sigurlaug, eins og hún hét fullu nafni, var fædd 1. mars 1904 á Þorvaldsstöðum í Selárdal í Vopnafjarðarhreppi. Foreldrar hennar voru Sólveig Stefánsdóttir og Benedikt Stefánsson, hjón á Þor- valdsstöðum. Sólveig og Benedikt eignuðust 14 böm, þar af komust 11 upp, og var Aðalbjörg 9. í röðinni af þeim sem upp komust. Abba, eins og hún var jafhan köll- uð, ólst upp á Þorvaldsstöðum til 21 árs aldurs, en þá réðst hún sem vinnukona til foreldra minna, hjón- anna Önnu Magnúsdóttur og Bjöms Jóhannssonar kennara. Björn og Anna höfðu þá fyrir nokkrum árum flutt úr Jökuldalsheiðinni til Vopna- fjarðar. Þau hjónin sáu um rekstur sjúkraskýlis á Garði, auk þess sem Bjöm var kennari, fyrst farkennari í sveitinni, en skólastjóri frá 1924. Um það leyti sem Abba kom á heim- ili foreldra minna höfðu þau eignast 6 syni. Þá vom einnig á heimilinu föðurforeldrar mínir, þá orðin öldr- uð, ennfremur blindur maður, Ein- ar Th. Bjamason. Heimilið var því mannmargt og í ýmsu að snúast, því auk heimilisstarfa vom oft sjúkling- ar á sjúkraskýlinu, m.a. færeyskir sjómenn. Auk þess höfðu foreídrar mínir smá búskap. Við bræður munum ekki eftir því hvenær Abba kom til okkar, en það mun hafa verið árið 1925. Hún bara var þarna, og hafði alltaf verið, svo lengi sem við mundum. Það má nærri geta að ekki var alltaf rólegt í kringum Öbbu. Strákamir urðu brátt 8, og eitthvað slæddist með af leikfélögum. Ekki er ömggt, að við höfúm alltaf viðurkennt umgengn- isreglur varðandi nýskúrað gólf og þess háttar. Hún mun hafa lesið eitt- hvað yfir okkur, á sinn hátt, en aldr- ei man ég eftir því að hún hafi verið vond við okkur. Fjaran var leikvöllur okkar. Við komum því oft blautir heim. Einu sinni átti að bæta úr þessu, og vom þá keypt gúmmístíg- vél á allt liðið. Við fómm að sjálf- sögðu strax niður í fjöru, að prófa nýju stígvélin, og ekki er að orð- lengja það, að við komum allir sjó- blautir og stígvélafullir heim. Já, svona var lífið. Vorið 1928 flutti fjölskyldan í Bamaskólahúsið. Þar var rýmra húsnæði. Þó foreldrar mínir hættu rekstri sjúkraskýlisins, þá var mikið að gera. Gestagangur var mikill, og seinni árin önnuðust foreldrar mín- ir móttöku gesta. Eins og áður er getið fluttum við í Skólann 1928. Þar var Abba næstu 26 árin. Hún var því jafnan kennd við Skólann, og kölluð Abba í Skól- anum, og við vomm kallaðir Skóla- strákamir. Þó húsnæðið væri rúm- gott, þá var þetta erfitt húsnæði, þrjár hæðir, þvottahús og geymsla í kjallaranum, skólinn á miðhæðinni, og íbúðin á efstu hæðinni. Abba hafði gott herbergi fyrir sig. Það var hennar helgidómur. Við strákamir fengum ekki að koma þangað. Reyndar var okkur ekki bannað að koma þangað inn, en þetta vom bara óskráð Iög. Abba átti ekki margar tómstundir. Hún greip stundum í orgelið. Hún hafði ekki lært að spila, en spilaði danslög „eftir eyranu", eins og það var kallað. Hún hafði næmt eyra fyr- ir tónlist, og hafði gaman af að dansa. Einnig hafði hún gaman af að grípa í spil. Fullorðna fólkið spilaði BLÓMIÐ — góð blómaverslun — Blóm - Skreytingar - Gjafavara Kransar - Krossar - Kistuskreytingar Úrval af servíettum OPIÐ FRÁ KL. 10-21 GRENSÁSVEGI16- SÍMI 811330 töluvert. Pabba fannst gott að grípa í spil, þegar hann hafði lokið við að leiðrétta stíla. Þó Abba hafi ekki notið langrar skólagöngu, þá talaði hún gott mál. Hún var oft orðheppin, og lengi munum við ýmis orðatiltæki hennar og tilsvör, og ekki eingöngu tilsvör- in, heldur líka svipinn sem þeim fylgdi. Abba var alla tíð heilsuhraust, og segja má að henni hafi ekki orðið misdægurt. Foreldrar mínir áttu heima í Skól- anum til ársins 1954, en þá fluttu þau í Holt, nýbyggt hús, sem byggt var í Skólatúninu. Móðir okkar andaðist 1967 og faðir okkar 1968. Nokkm eftir að foreldr- ar mínir féllu frá fór Abba að vinna í Frystihúsinu, og vann hún við að hakka fiskúrgang í refafóður. Hún var þá komin af léttasta skeiði, orðin 65 ára. Þarna vann hún í 14 ár, eða þangað til hún var 79 ára. Það var til þess tekið af húsbændum hennar í frystihúsinu, að hún var aldrei frá einn einasta dag öll þessi ár. Þjónusta var aðalsmerki Öbbu. Þjónustulundin var henni í blóð borin. Abba fékk viðurkenningu frá Búnaðarfélagi íslands, fyrir 25 ára þjónustu hjá sömu fjölskyldu. Þetta var silfurskeið, með áletmn. Abba var vel að þessari viðurkenningu komin, en hún flíkaði ekki þessum grip, og aldrei sýndi hún mér þessa skeið. Hinsvegar sýndi hún með stolti gestum myndir af „strákunum sínum", konum þeirra, bömum og bamabörnum. Abba var ein af þeim fyrstu sem fluttu í leiguíbúðir aldraðra, Sunda- búð 1. Hún fékk þama bjarta og skemmtilega íbúð, og þama dvaldi hún í tæp 15 ár. Það var gaman að heimsækja hana. Hún hellti á könn- una, og oft átti hún eitthvert góð- gæti. Umgengni hennar var sérstök. Þetta var hennar helgidómur. Þama vom ýmsir smáhlutir, ásamt mynd- unum, sem áður er um getið. Sem betur fer sýndum við „strák- amir hennar" og fjölskyldur okkar Öbbu ræktarsemi, en á engan er hallað, þó getið sé frábærrar ræktar- semi Önnu Bimu Sigurðardóttur, bróðurdóttur minnar. Hún var í miklu uppáhaldi hjá Öbbu, og mátti gamla konan varla af henni sjá. Við bræðumir og fjölskyldur okkar þökkum Önnu Bimu innilega alla ræktarsemi í garð Öbbu. Svo vel vildi til að Anna var hjá Öbbu á and- iátsstundinni. Abba hefði varla getað hugsað sér að hafa það öðmvísi. Nú er Abba horfin. Hún valdi sér þjónustuhlutverkið, og skilaði því hlutverki með sóma. Fyrir hönd „strákanna hennar" og Qölskyldna þeirra þakka ég Öbbu að leiðarlok- um. Far þú í friði. Blessuð sé þín minning. Jóhann Björnsson Lögreglustöðin á Akureyri Frágangur innanhúss Innkaupastofnun rlkisins, f.h. dóms- og kirkjumálaráöuneytisins, óskar hér meö eftir tilboöum (innanhússfrágang I lögreglustöðinni á Akureyri. Annars vegar er um að ræöa rif og fullnaðarfrágang um 60 fm. skrif- stofuhúsnæðis. Hins vegar eru ýmsar lagfæringar I húsinu, aöallega vegna eldvarna. Framkvæmdum skal vera að fullu lokiö 1. september 1993. Útboðsgögn veröa seld hjá Innkaupastofnun rikisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavlk, frá og meö þriðjudeginum 26. aprll 1993 á kr. 6225,- m/vsk. tilboö veröa opnuö á sama staö 12. mal 1993 kl. 11.30 I viöurvist viöstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK Bygging íbúðarhúss að Árlandi 9, Reykjavík Innkaupastofnun rlkisins, f.h. félagsmálaráöuneytisins, óskar eftir tilboö- um I byggingu Ibúöarhúss aö Áriandi 9, Reykjavlk. Brúttóflatarmál hússins er 323 m!. Brúttórúmmál hússins er 1130 m5. Húsið er á einni hæö og byggt úr steinsteypu. Verkiö tekur til allrar vinnu viö gröft, lagnir, uppsteypu, smlöi og frágang hússins aö utan sem innan ásamt frágangi lóöar. Verkiö skal hefjast I mal og skal vera aö fullu lokiö eigi slðar en 15. febrúar 1994. Þó er heimilt að Ijúka lóðarfrá- gangi slöar, þó eigi slðar en 1. júll 1994. Útboösgögn veröa seld hjá Innkaupastofnun rlkisins, Borgartúni 7,105 Reykjavlk, frá og með mánudeginum 26. aprfl 1993 á kr. 12.450,- m/vsk. Tilboö veröa opnuö á sama staö 10. mal 1993 kl. 11.00 I viöurvist viöstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK Helga Svanbergs Jónssonar bóoda Lambhaga, Rangárvöllum Sjöfri Guömundsdóttlr, Helga Dagrún Helgadótbr Jón Þór Helgason Ásdís Stelnunn Tómasdótör Guömundur Ómar Helgason Gunnar Ásbeig Hclgason Hafdís Þórunn Helgadóttír Björgvin Reynir Hetgason J Sumardvalarheimilið Kjarn- holtum, Biskupstungum 31. maí-28. ágúst. Ævintýraleg sumardvöl fyrir 6-12 ára böm. Reiðnámskeið, íþrótta- og leikjanámskeið, ferðalög, sund, sveitastörf, kvöldvökur. Nýjungarl Nú er hægt að skrá sig inn á heimilið alla daga, eins lengi og hverjum hentar (lágmarkstími 6 dagar). Stórlækkað verð! Aðeins kr. 2.000,- á dag (um 25% verð- lækkun). 20% afsláttur í ágúst eða kr. 1.600,- á dag. Visa-Euro raðgreiðslur. Upplýsingar og innritun í síma 91- 641929. Til félaga í starfsmannafé- lagi fýrirtækja Sambandsins og lífeyrisþega sem hafa verið í félaginu Úthlutun oriofshúsa, sem félagið á að Bifröst i Norðurárdal eða hefur samið um leigu á annars staðar á landinu, fer fram i byrj- un maimánaðar. Umsóknareyðublöð eru á vinnustöðunum og hjá Jóhanni Steinssyni, Goða hf., Kirkjusandi við Laugamesveg, sími 91- 686366 og hjá Guðrúnu Þorvaldsdóttur í Samvinnulífeyrissjóðn- um, Laugalæk 2a, Reykjavík. Oriofshúsanefnd SFS Kœru vinir Innilegar þakkir til allra þeirra er samglöddust mér á 80 ára af- mœli mínu 17. apríl síðastliðinn. Sérstakar þakkir til alls þess góða fólks er aðstoðaði mig við veisluhaldið. Björn Þórðarson Blönduhlíð Dalasýslu Góður Lappi! Til sölu Volvo Lapplander 1982. Bíllinn er í góðu ásig- komulagi, skoðaður 1993. Hann er með díselvél, kröft- ugu spili, léttstýri, nýupptekn- um hemlum að aftan, kúlu og krók, auka eldsneytistönk- um, kösturum og stór toppgrind getur fylgt. Tilbúinn í átök. Verð kr. 290 þúsund staðgreitt. Upplýsingar í síma 91- 814062 eftir kl. 18.00. Tvær vatnslitamyndir Gunnlaugs Scheving af Múlakoti eru til sölu. Stærð um 50x50 sm. Upplýsingar í síma 685347.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.