Tíminn - 24.04.1993, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 24. aprfl 1993
Blómlegt söng-
líf í Skagafirði
Frá Guttorml Öskaresyni, fréttaritara
Tfmans I SkagaflrðL
Kóra- og sðngstarf í Skagaflrði
hefur verið mikið og gott í vetur.
Kariakórinn Heimir undir söng-
stjóm Sólveigar S. Einarsdóttur
og Rökkurkórinn undir söng-
stjóra Sveins Áraasonar hafa
haldið tónleika í Niðgarði, á Sauð-
árkróki og Hofsósi en hafa auk
þess farið í söngferðir norður í
Eyjafjörð.
Undirleikarar með karlakómum
Heimi hafa verið Thomas Higger-
son og Jón St Gíslason. Einsöngv-
arar eru Álftagerðisbræður, þeir
Pétur og Sigfus Péturssynir og
Einar Halldórsson. Thomas Hig-
gerson leikur einnig með Rökkur-
kómum en einsöngvarar með hon-
um em Sigurlaug Maronsdóttir og
Hjalti Jóhannsson. Undirtektir
hafa verið mjög góðar og aðsókn
að söngmótum frábær.
Nú síðasta vetrardag var Kirkju-
kór Sauðárkróks með tónleika á
kirkjukvöldi í Sauðárkrókskirkju.
Söngstjóri og undirleikari var
Rögnvaldur Valbergsson. Ein-
söngvarar með kómum vom J6-
hann Már Jóhannsson, Ólöf Ás-
bjamardóttir, Ólöf Harðardóttir og
Guðmundur Ragnarsson. Það ný-
mæli var á söngskránni að nýstofh-
aður kvartett, sem enn hefur ekki
hlotið nafn, kom fram f fyrsta sinn.
Kvartettinn skipa þeir Jóhann Már
Jóhannsson, Guðmundur Ragn-
arsson, Magnús Sigmundsson og
Jón Gunnlaugsson.
Söng þeirra félaga var forkunnar-
vel tekið og vom þeir kallaðir fram
til að syngja aukalög. Nú bfða
menn spenntir eftir því hvenær
þessir söngglöðu félagar láta f sér
heyranæsL
Offramboð á
amfetamíni
J’að hefur verið offramboð á
amfetamfni síðustu tvö árin,“ segir
Ólafúr Guðmundsson, fulltrúi í
forvamardeild lögreglunnar f
Reykjavík en nýlega handtóku
tollverðir í Keflavík 35 ára gamlan
Hollending með hátt í eitt og hálft
kfló af amfetamíni sem álitið er
vera hátt í 20 milljóna virði.
Amfetamín hefur verið viðvarandi
á íslenskum ffkniefnamarkaði
undanfarinn áratug að sögn Ólafs
og heldur aukist en hitt Hann
segir að amfetamfn sé verk-
smiðjuframleitt örvandi efni sem
virki ekki ósvipað og kókaín.
„Það dregur úr öllum fmmþörfum
eins og hungm, þorsta, kvíða,
þreitu o.s.frv. Þegar víman hverfur
kemur þunglyndið strax þannig að
menn sem em þunglyndir hressast
en sfðan verður þunglyndið verra á
eftir," segir ólafur m.a. um virkni
þessa efnis. -HÞ
Árið 1992 var mjög gott vatnsár í vatnsbúskap Landsvirkjunar:
Þórisvatn fylltist
tvisvar í fyrra
Þórísvatn fylltist tvisvar í fyrra sem hefur aldrei gerst áöur. Venjan er sú
að vatnsboröiö nál hámaríd yfir sumarmánuðina. (fyrra voru hins vegar
toppamir í vatnsboröinu tveir. Sá fyrri var (lok febrúar. Ástæöan fýrír
þessu voru einstaklega miklar rigningar í fýrravetur.
Árið 1992 var mjög gott vatnsár.
Ársúrkoman í Reykjavfk mældist
1.012 mm sem er um 27% yfir
meðallagi. Ársúrkoman á Akureyri
mældist 648 mm sem er um 32%
meira en f meðalári. Þessi mikla
úrkoma skilaði sér f góðu vatns-
rennsli í jökulám.
Þórisvatn, sem er aðal uppi-
stöðulón fyrir raforkuvirkjanir í
Þjórsá, fylltist Ld. tvisvar í fyrra
sem er einstakt.
Það er venja að vatnsborðið nái
hámarki á vor- og sumarmánuð-
um. í fyrra gerðist það að vatns-
borðið steig um heila þrjá metra á
einum mánuði frá miðjum janúar
til miðs febrúar og náði þar með
svipaðri hæð og yfir sumarmánuð-
ina. Hin háa vatnsstaða f janúar og
febrúar segir meira en mörg orð
um tíðarfar vetrarins 1991- 1992.
Vegna hárrar stöðu Þórisvatns
vorið og sumarið 1992 rann mikið
vatn framhjá Þórisvatni eða 992
gfgalftrar. Innrennsli í Þórisvatn
var 1.018 gígalítrar í fyrra en það
er minnsta innrennsli f vátnið síð-
an Kvíslárveita var tekin í notkun.
-EÓ
Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður alþýðuflokksmanna, spáir sameiningu Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags um næstu aldamót:
Segir að ágreiningsmálum
A-flokkanna fari fækkandi
Össur Skarphéöinsson, fbrmaöur þingflokks Alþýðuflokksins, telur að
hugmyndafræðilegur ágreiningur Alþýðuflokksins og Alþýöubandalags-
ins sé srfellt aö mínnka. Yfirlýsingar Óiafs Ragnars Grímssonar, for-
manns Alþýöubandalagsins, um Nató séu enn ein staðfesting á þvf.
össur segist telja aö i nánustu ftamtiö muni A- flokkamir heQa viðræður
um samvinnu eöa sameiningu.
.Jlaunverulegur hugmyndafræðileg-
ur ágreiningur með flokkunum hefur
minnkað með árunum. Það sést t.d. á
því að Alþýðubandalagið hefur á síð-
ustu þremur til fjórum árum verið að
færa sig mjög til frjálslyndisáttar í
efnahagsmálum, þ.e. nær þeim við-
horfum sem Alþýðuflokkurinn hefur
haft. Þar með hefúr verulegum ásteyt-
ingarsteini verið rutt úr vegi,“ sagði
Össur og tók fram að hér horfði hann
framhjá öllu dægurþrasi sem ágrein-
ingi veldur í pólitík.
össur sagði að f þessu sambandi
hefði verið athyglisvert að fylgjast
með umræðum í þinginu í vetur um
einkavæðingu og breytingu ríkisfyrir-
tækja í hlutafélög. Það væri alveg
greinilegt að þingmenn Alþýðubanda-
lagsins væru að mildast f andstöðu við
hugmyndir um einkavæðingu. Þetta
væri sérstaklega áberandi hjá sumum
af yngri þingmönnum flokksins. Þeir
hefðu td. sagt að ekkert væri athuga-
vert við að gera ríkisfyrirtæki að
hlutafélögum.
Sömuleiðis hefði ólafur Ragnar, f rit-
gerð um efnahagsmál sem hann
dreifði á Alþingi í vetur, lýst stuðningi
við þjónustugjöld. össur sagði hann
tala þar um nauðsyn þess að auka sér-
tekjur ríkisfyrirtækja. „Hvað er þá eft-
ir af djúpum hugmyndafræðilegum
ágreiningi? Það er Nató og herstöðin.
Nú hefúr Ólafur Ragnar komið fram
með þessi viðhorf sín til Nató og það
er alveg ljóst að viðbrögð annarra for-
ystumanna í Alþýðubandalagi hafa
ekki verið mjög hörð. Ég dreg því þá
ályktun að á einhverjum tíma,
kannski tveimur árum, verði þessi
skoðun Ólafs Ragnars smám saman
viðhorf Alþýðubandalagsins.
Maður veltir þess vegna því fyrir sér
hvað það sé sem greinir flokkana að.
Ég tel að aðgreining þeirra hafi verið
sögulegt slys. Ég held að smám saman
séu að skapast forsendur til að leið-
rétta það slys. Ég held að þróunin sé í
þá átt, hvað sem líður hörðum ágrein-
ingi um dægurmál. Menn hljóta í nán-
ustu framtíð að fara að ræða aftur í
fullri alvöru hvað það er sem ber á
milli þessara flokka. Mér sýnist að
leiðir þeirra hljóti að liggja saman,
eigum við að segja svona upp úr alda-
mótunum?" sagði Össur. -EÓ
Kariakór Reykjavíkur.
PERSONULEG FERMINGARGJOF
Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur:
Sex tónleikar með fjöl
breyttu efni
• Fram yfir fermingar
bjóðum við sérstakt verð.
• Áletrun og sendingar-
gjald innifalið.
• Stuttur afgreiðslufrestur.
Ath. Sama verð hjá okkur og
öllum þeim verslunum sem selja
vöru okkar hvarvetna á landinu.
01
BORGARFIRÐI EYSTRA
SÍMI 97 - 2 99 77 B
Fyrstu styrktaifélagatónleikar Kariakórs Reykjavíkur á þessu vorí veröa
f Víöistaöakirkju í Hafnarfiröi á morgun, sunnudag 25. apríi kl. 17. Síö-
an heldur kórínn fema tónleika til viöbótar i Reykjavik og eina i Vik í
Mýrdal.
í efnisskrá samsöngva Karlakórs
Reykjavíkur sameinast íslensk
karlakórahefð og nýjar áherslur í
starfi kórsins.
Sungin verða sígild karlakóralög,
óperukórar, kirkjulegir kórar,
negrasálmar og fleira, þar á meðal
tvö lög eftir Pál ísólfsson sem
hefði orðið 100 ára á þessu ári. Þá
flytur kórinn einnig lög úr austur-
vegi, t.d. bráðskemmtilegt lett-
neskt þjóðlag, en kórfélagar telja
sig eiga taugar austur til Lettlands
eftir ógleymanlega heimsókn
þangað sl. haust.
Samsöngvar Karlakórs Reykja-
víkur á þessu vori verða fleiri en
oftast áður. Á morgun kl. 17 verð-
ur sungið í Víðistaðakirkju sem
fyrr segir og á mánudagskvöld kl.
20.30 í Neskirkju.
Þá verða tónleikar í Langholts-
kirkju miðvikudagskvöld og
fimmtudagskvöld kl. 20.30 og á
laugardag kl 17.
Karlakór Reykjavíkur skipa nú 57
söngmenn. Einn þeirra, Sigmund-
ur Jónsson tenór, syngur einsöng
með félögum sínum á vortónleik-
unum en auk hans syngur einsöng
Sigurður Skagfjörð Steingrímsson
bassi. Undirleilári er Anna Guðný
Guðmundsdóttir. Stjómandi
Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik
S. Kristinsson.
Starfsári Karlakórs Reykjavíkur
lýkur í íslensku óperunni sunnu-
daginn 16. maí nk. með heiðurs-
samsöng fyrir Pál Pamplicher
Pálsson sem var aðalstjómandi
kórsins um aldarfjórðungsskeið.