Tíminn - 24.04.1993, Síða 9

Tíminn - 24.04.1993, Síða 9
Laugardagur 24. apríl 1993 Tfminn 9 Umberto Bossi, leiötogi Lega Nord, eina flokksins þarlendis sem hefur byr í seglin. Ungar stúlkur hylla einn dómaranna, sem nú eru þjóðhetjur Itala. menntamenn í þeirri tékkóslóv- akísku. Lögmenn og dómarar eru sú starfsstétt, sem borið hefur uppi sóknina gegn spillingunni. Þeir eru því hetjur dagsins í aug- um almennings, sem greinilega telur að tími sé kominn til gagn- gerra breytinga. Til þess bendir að í þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu helgi greiddu yfir 80% þeirra, sem á kjörstað fóru, at- kvæði með því að núverandi kosningakerfi, sem er hagstætt smáflokkum, verði aflagt. Líklegt er talið að í staðinn komi ein- menningskjördæmi að bresk- franskri fyrirmynd. Ekki eru allir á einu máli um ágæti þeirrar nýjungar. Einhverj- ir giska á að einmenningskerfið muni að vísu leiða til þess að þingmenn verði óháðari flokkum sínum en fyrr, en hinsvegar sé hætt við að þeir verði í staðinn háðir stórlöxum í kjördæmum sínum, á Suður-Ítalíu þá helst mafíuguðfeðrum. Enn segja sumir að þetta kunni að leiða til þess að Ítalía detti sundur í þrennt: norðurhluta undir stjórn Norðlendingabandalags (Lega Nord), miðhluta undir stjórn vinstriflokka og suðurhluta und- ir stjórn kristilegra demókrata — og mafíuhópa. Tvær þjóðir? Sá möguleiki gæti verið nálæg- ari en einhverjum kann að virð- ast í fljótu bragði. Hið núverandi ríki Ítalía varð ekki til fyrr en eft- ir miðja s.l. öld. Þá hafði það svæði, sem nú er þetta ríki, ekki verið undir einni stjórn frá því um miðja 6. öld. Norðurhluti þess var í gegnum aldirnar í nán- um samböndum við lönd handan Alpa (Austurríki, Frakkland o.s.frv.) og varð þeim nokkuð samferða í heildarþróun hugar- fars og menningar. Sambönd Suður-Ítalíu voru hinsvegar ekki síst og lengi mest við Spán, Balk- anskaga og Norður- Afríku. Þar að auki var Suður-Ítalía með Sik- iley frá 12. öld til sameiningar Ítalíu á 19. öld lengst af ein ríkis- eining, ýmist sjálfstæð eða undir erlendum yfirráðum. íbúar ríkis þessa, sem gekk undir nöfnum eins og Napólíríki og Sikileyjar báðar, voru lítt hrifnir af samein- ingunni við Norður- og Mið- ítal- íu; má raunar vera að þeir hafi litið á hana sem undirokun er- lendis frá. Það er sem sé engan veginn víst að Suður-ítalir hafi þá almennt litið á sig sem sömu þjóð og Norður-ítali (og gagn- kvæmt) og ekki einu sinni víst að þeir séu farnir til þess enn. Þetta, ásamt með rótgrónum hefðum aftan úr forneskju, á mikinn þátt í því hve lífseigar mafíurnar hafa reynst. Hvað sem fólki á Suður- Ítalíu og Sikley kann að finnast athugavert við mafíurnar, hafa þær það gildi í augum þess að þær eru suðurítalskar og siki- leyskar og raunar áhrifamestu suðurítölsku og sikileysku aðil- arnir sem verið hafa við lýði í meira en öld. Sá sem þetta ritar hefur oftar en einu sinni hitt Norður-ítali, sem ekki mega heyra minnst á að þeir séu taldir vera af einni þjóð og Suður- ítal- ir. Með hliðsjón af þessu er ekki víst að Lega Nord harmaði mjög að Ítalía, ríki sem ekki er nema rúmlega 130 ára gamalt, leystist upp. Flokkabandalag þetta, sem kannski hefur nú um þriðjung Norður-ítala á sínu bandi, komst á blað f stjórnmálunum með því að beita sér fyrir sérhagsmunum norðurlandsins. Duglegir og iðjusamir Norður-ítalir, segir Lega Nord, vinna fyrir ofurút- blásnu skrifstofubákni stjórnar- innar í Róm og Suður-ítölum með allri þeirra óráðsíu og ma- fíuskap. Ekki fer á milli mála að Lega Nord átti talsverðan þátt í því að farið var að fletta ofan af spillingunni. Það byrjaði einmitt fyrir alvöru í Mflanó, mestu borg norðurlandsins. Skipting spillingarköku Svo er að heyra á mönnum, kunnugum á Ítalíu, að af öllum stjórnmálaflokkum þar sé nú Lega Nord sá eini, sem hafi byr í seglin. Harðar atlögur stjórn- málasamtaka þessara gegn spill- ingu gömlu flokkanna og barátta fyrir hagsmunum norðlendinga eru efalítið aðalástæður til þess. Fylgi virðist Lega Nord draga til sín frá gömlu flokkunum öllum. Um heildarsvip flokks þessa eða flokkabandalags segir áður- áminnstur Martin Jacques að það minni í senn á pólsku Samstöðu, Slóveníu (sem sleit sig frá Júgó- slavíu fyrst lýðvelda þar) og Le Pen. Reikna má með að smáflokkar ýmsir þurrkist út með tilkomu nýs kosningakerfis og sumra mál er að kristilegir demókratar og sósíalistar eigi sér ekki heldur viðreisnar von. Svo mjög hafi þeir sett ofan við allar afhjúpan- irnar. Langflestir forustumenn þeirra séu dæmdir úr leik af þeim sökum og tekið geti tímann sinn að koma upp nýjum sem von sé til að kjósendur taki mark á. Afhjúpun spillingarinnar hefur ekki aðeins gert flokka þessa ærulausa í augum almennings, heldur og haft í för með sér fyrir þá gífurlega rekstrarörðugleika. Flokkarnir voru reknir með fjár- magni, sem spillingarkerfið út- hlutaði þeim, og þar sem það kerfi er nú lamað, fá flokkarnir enga peninga þaðan lengur. Flokkssjóður kristilegra demó- krata er tómur og um fimmtungi starfsliðs flokksins hefur verið sagt upp f sparnaðarskyni. Sósíal- istaflokkurinn er sagður gjald- þrota í raun. Fyrir Lýðræðislega vinstri- flokknum, eins og kommúnista- flokkurinn heitir nú, blæs ekki heldur byrlega. Hann var að vísu ekki eins mikið í spillingunni og hinir, enda tilvistarréttlæting kerfis þess sem spillingin var samofin að halda kommúnistum utan þess. A.m.k. síðustu árin var þessi útilokun kommúnista /vinstrilýðræðissinna þó ekki al- ger á Norður-Ítalíu, þar sem þeir hafa lengi ráðið miklu í borgar- og héraðsstjórnum. í Mflanó var spillingarkökunni þannig skipt af nákvæmni meðal helstu flokka þar í borg. Sósíalistar, valdamesti flokkurinn þar, fengu helming- inn, en hinum helmingnum var skipt jafnt á milli kristilegra demókrata og vinstrilýðræðis- sinna. Gröfueigendur Dýptarmælir fyrir gröfur Dýptarmælinn má nota við beltis-, hjóla- eða trakt- orsgröfur. Mælirinn sýnir dýpt skóflunnar upp á sentimeter. Þú sparar tíma, fyrirhöfn og fyllingarefni. Mælirinn nýtist vel við skurðgröft með eða án halla, við gröft húsgrunna og við að slétta plön í rétta hæð. Hann hentar afar vel í slæmu skyggni, vondu veðri og foræði. Við höfum fyrirliggjandi örfá tæki til afgreiðslu strax. Mælirinn er íslensk uppfinning. Leitið nánari upplýsinga í síma 91-683675. ÍSLENSK TÆKI, Grensásvegi 13, Reykjavík. HANKMO HNÍFAHERFI ÁVINNSLUHERFI Viðurkennd hlekkjaherfi 2 stærðir fyrirliggjandi Breidd Þyngd 2,90 m 152 kg 3,50 m 179 kg Hafið samband við sölumenn okkar,sem gefa allarnánari upplýsingar. jJjBO Ingvar i = = f Helgason hf- vélasala — Sævarhöfða 2 SÍMI 91-674000 ii 1111111 ^nfélin SpoHUnb Súðarvogi 18 Knarrarvogi 2 Sími 91-685128 Fax 91-685119 kini|mc varahlutir í flestar GERÐIR VÉLSLEÐA YAMAHA VIÐGERÐARÞJÓNUSTA Vélhjól, vélsleðar, utanborðsmótorar o.fl.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.