Tíminn - 24.04.1993, Side 11
Laugardagur 24. apríl 1993
Tíminn 11
RÆKTAÐU EIGIN GRÆNMETI í GARÐINUM:
IkmiImiIIo
Ingvar
I 1 = l Helgason hf. vélasala
■r SævarhÖfða 2, SÍMI 91 -674000.
Hreðkur
Hreðkur eru af krossblómaætt og
greinast í tvo meginflokka: sumar-
hreðkur og vetrarbreðkur. Sumar-
hreðkur, eða radísur, eru algengari
hér á landi, en þær eru mjög auð-
veldar í ræktun og geta skÚað upp-
skeru eftir einn mánuð við bestu
skilyrðL
Radísumar eru einærar, smágerðar
og hnúðamir em mismunandi að
lögun og lit eftir afbrigðum, en oft-
ast rauðleitir að ofan en hvítir að
neðan. Þær þola nokkurt næturfrost
og ná þroska nánast hvar sem er.
Hreðkur þrífast best í gljúpum og
frjósömum moldaijarðvegi. Mikil-
vægt er að jarðvegurinn sé ekki of
þurr, vegna þess hve rótarkerfi
þeirra nær stutt niður í moldina.
Þess vegna er nauðsynlegt að vökva
beðin á þurrkatímum. Radísumar
em ekki áburðarfrekar og þurfa nán-
ast engan áburð í frjósamri jörð. Alla
jafna er mælt með u.þ.b. 5 kílóum af
áburði á hverja 100 fermetra. Hreðk-
um er hætt við bórskorti og þess
vegna gott að gefa 100-150 grömm
af bóraxi á sama fermetrafjölda fyrir
sáningu. Mælt er með því að sá
hreðkum f raðir, með um 10-20 sen-
tímetra á milli raða og 2-3 sentím-
etra á milli plantna. Ekki má sá of
djúpt. Mátuleg sáðdýpt er 1-1,5 sen-
tímetri. Vegna þess hve hreðkur em
fljótsprottnar er ágætt að sá nokkr-
um sinnum og þá á smáa bletti í
senn, en það tryggir að stöðugt em
til nýjar hreðkur fram á hausL Séu
þær ræktaðar undir plasti utandyra,
má hefja fyrstu sáningu í byrjun maí
og enda þá síðustu í lok júlí. í plast-
húsi án upphitunar má hefia sán-
ingu um miðjan apríl.
Það kemur fýrir að kálmaðkur sé til
vandræða í hreðkum. Vegna þess hve
vaxtartíminn er stuttur er ekki mælt
með eiturefnum, en til að forðast
maðkinn má breiða þéttan acryldúk
yfir beðin. Ef púpur em ekki til stað-
ar f moldinni, getur þetta haldið
kálflugum frá plöntunum.
Hreðkumar em tiltölulega næring-
arsnauðar. Þær em góðar á bragðið
og em oft borðaðar hráar beint úr
garðinum, en einnig em þær vinsæl-
ar í salöt og grænmetisrétti.
Geymsluþol hreðkna er takmarkað.
-ÁG
Rauörófur
Rauðrófur eru af hélunjólaætt, tví-
ærar jurtír, en ræktaðar sem
einærar. Þær hafa ekki verið rækt-
aðar hérlendis í miklum mæli, en
meginástæða þess er að þær eru
hitakærar og á mörkum þess að
gefa hér uppskeru við sáningu í
óupphitaða jörð utandyra.
Það er nánast nauðsynlegt að for-
rækta rauðrófur innandyra í nokkr-
ar vikur, líkt og kál. Á þessum tíma
er forræktun orðin of sein og þess
vegna best að kaupa þessar plöntur
í gróðrarstöðvum. Þá er mikilvægt
að sá þeim í volga jörð, sé sáð í
kalda jörð er hætta á að plöntumar
blómstri og þá tréna rætumar í
stað þess að safna í sig forða.
Gera má ráð fýrir að um 2 grömm
af fræi þurfi til þess að fá um 100
góðar plöntur. Fræið spírar létti-
lega á 6-8 dögum við stofuhita. Eft-
ir 5-6 vikna forræktun er upplagt
að gróðursetja rauðkálið úti í byrj-
un maí. Æskilegt bil á milli raða er
25 sentímetrar og heppilegt bil á
milli plantna er 10 sentímetrar. Ef
ekki er gróðursett í óupphituð
plasthús, er nauðsynlegt að skýla
plöntunum með plastdúk fýrstu
vikumar.
Það er nauðsynlegt að vökva beðin
vel í þurrkum. Áburðarþörfin er
svipuð og hjá gulrótum, eða um 10
kg af alhliða garðáburði á hverja
100 fermetra, og einnig er gott að
gefa 100-150 gr af bóraxi á sama
fermetrafjölda. Þá er æskilegt að
gefa plöntunum köfnunarefnis- og
kalíríkan áburðarlög einu sinni eða
tvisvar um miðjan júlf.
Þegar rauðrófúr eru teknar upp, á
að skera blöðin rétt ofan við rótar-
háls, en ekki má skera í rætumar
sjálfar, því þá „blæðir" þeim. Af-
brigði, sem mælt er með hérlendis,
eru .Egyptisk flatrund’, er myndar
flathnöttóttar rætur og ,Röd valse’
og .Formanova’, sem eru með síval-
ar rætur. Kjörhitastig við geymslu
er 0 gráður og heppilegt er að loft-
rakiséhár.
ÁBURÐARDREIFARAR
Áratuga reynsla á íslandi
Nú innifalið í verði: Vökvastýríng úr ekilssætí á stillingu á áburðarmagni, opnun og lokun.
Sigti til að hreinsa firá köggla og aðskotahluti.
* Hleðsluhæð 92 ctn.
* Skálarbreidd 179 cm.
* Dreifibreidd allt að 18-20 m.
* Dreifibúnaöurínn er aflúttaksdrífinn gegnum lokaðan gfrkassa, sem er með öryggiskúplingu, sem gefur
stöðugan hraða við allar aöstæður.
* Dreifibúnaöur allur úr ryðfríu stáli með 8 dreifispjöldum f mismunandi lengdum.
* Áburðarkassi er bæði á lömum og aftakanlegur, sem auðveldar ásetningu á þrítengibeisli.
* Hefur færanlegan neöri festipinna, þannig aö hægt er að setja hann á allar gerðir dráttarvéla
fyarðoj0 á fsiandi
GUMMIVINNUSTOFAN HF
RÉTTARHÁLSI 2, S.814008 & 814009 SKIPHOLT 35, S. 31055 8t 30688
-ÁG