Tíminn - 24.04.1993, Blaðsíða 18

Tíminn - 24.04.1993, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 24. apríl 1993 Reykjavík — Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag 24. april I Hótel Lind, Rauðarárstlg 18, og hefst kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp I kafflhléi. Aögangseyrir kr. 500,-. Kaffiveitingar innifaldar. Ftwnsóknarfélag Reyiýavfkur Framsóknarfélögin í Hafnarfirdi Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30. Komiö og fáið ykkur kafflsopa og spjallið. Ftamsóknarfélögin Sigrún Akranes — Bæjarmál Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 24. aprfl kl. 10.30. Rætt um þau mál, sem efst eru á baugi I bæjarstjóm. BæfarfuMlrúamir Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Munið siöasta fund vetrarins mánudaginn 26. april kl. 20.301 flokksskrifstofunni við Lækjartorg. Dagskrá: Vorið góða grænt og hlýtL Sigriður Hjartar fjallar um vorið og sumariö I garðinum I máli og myndum. Fjölmenniö og takiö með gesti. Stjórrán Steingitmur Páll stefán Almennur stjómmálafundur verður haldinn I Miögarði, Skagafirði, mánudaginn 26. april n.k. kl. 21. Frummælandi: Steingrlmur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins. Atak Ul endurrelsnar, tillögur flokksins I efnahags- og atvinnumálum. Þingmenn kjördæmisins sitja fyrir svörum, ásamt frummælanda. Kjörxtæmissamband framsóknarmanna Norðurfattdl vestra v0”Sro ^ - - — — Vífilstaðaspítali —viðhald og viðgerðir Innkaupastofnun rlkisins, f.h. tæknideildar rlkisspltala, óskar eftir tilboð- um I verkið .Vlfilstaðaspltali — viðgeröir á gluggum og steypu'. Helstu magntölur eru: Endurnýjun fremri hluta karmstykkja 393 m Endurnýjun pósta 186 m Glerskipti 133 m2 Glerfalslistar 718 m Sprunguviögeröir 110 m Endursteypa 20 m2 Háþrýstiþvottur 550 m2 Sílanbööun 563 m2 Málun veggja 563 m2 Málun glugga úti og inni 1596 m Verktlmi er frá 7. júnl 1993 til 30. ágúst 1993. Útboðsgögn verða seld á Innkaupastofnun rlkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavlk, frá og með mánudeginum 26. aprll 1993 á kr. 6.226,- m/vsk og veröa opnuð á sama stað fimmtudaginn 13. mal 1993 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóöendum sem þess óska. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVIK Hafnarstræti 107, Akureyri Utanhússfrágangur Innkaupastofnun rlkisins, f.h. dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, óskar hér með eftir tilboðum I utanhússfrágang o.fl. við húsið að Hafnarstræti 107 á Akureyri. Um er að ræða múrviögerðir, sllanböðun og málningu utanhúss, einnig gluggaviðgerðir, viögeröir á svölum, byggingu grind- verks á ióð ásamt öðrum smærri verkþáttum. Vegg- og þakfletir eru um 1100 fermetrar. Framkvæmdum skal vera að fullu lokið 1. september 1993. Útboösgögn verða seld hjá Innkaupastofnun rlkisins, Borgartúni 7,105 Reykjavlk, frá og með þriðjudeginum 26. aprll 1993 á kr. 6.225 m/vsk. Tilboð veröa opnuö á sama stað þann 12. mal nk. kl. 11.00 I viöurvist viöstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK Einar Gunnar Jónsson Fæddur 4. júní 1950 Dáinn 15. apríl 1993 Nú er tregt tungu að hræra, og þá ekki síður að koma viðeigandi orðum í form hins ritaða máis, þegar jafn hörmuleg tíðindi berast, að vinur og samstarfs- maður í blóma lífsins er fyrirvaralaust burt kallaður úr faðmi fjölskyldu, vina og vandamanna. Orðin á þessu blaði verða því varla mörg og skapast fyrst og fremst af þörf til að koma á framfæri þakklæti til Ein- ars á Brú og fjölskyldu hans fyrir ánægjuleg samskipti og vináttu, einkum síðan Einar réðist í það af miklum áhuga og hugrekki að vera í fararbroddi þátt- takenda úr röðum bænda að taka þátt í vatnableikjuverkefni því á Austurlandi sem nú er farið að skila raunverulegum árangri. Það er kaldhæðnislegt að á sama tíma og að verulega vænleg þátta- skil eru að eiga sér stað á þeim vettvangi, sem óhætt er að segja að ýmsir hafi haft mismikla trú á, að þá hrífi örlögin svo mikinn máttarstólpa, sem Einar var, af sjónarsviðinu. Minnst var á hugrekki hér að framan í sambandi við þátttöku í téðu verkefni, sem felst meðal annars f því að veiða smáfisk úr Þríhymingsvatni og gera tilraun til að ala hann upp í slát- urstærð og selja. Engum var það ljósara en Einari að ýmsir yrðu til að líta svo óvenjulegt þróunarverkefni gagnrýnis- augum. Þrátt fyrir það og ýmsa byrjun- arörðugleika varð Einari þó fljóúega Ijóst að hér var um raunhæfan kost að ræða og hafði hugrekki til að fylgja því ótrauður eftir. í stað þess að leggja árar í bát bætti hann sífellt aðstöðuna til eldis og slátrunar heima fyrir. Síðasta samtalið sem ég átti við Einar, aðeins degi áður en hann mætti örlög- um sínum, einkenndist af athafnaþrá hans og tilhlökkun til að hefja veiðar og eldi allra næstu daga, enda lá nú fyrir að gott verð fengist fyrir sumaralda viili- bleikju á erlendum markaði. Er nokkur fúrða þótt mannskepnan í vanmætti sín- um eigi stundum erfitt með að skilja rök lífsins og spyrji, í þessu tilfelli, hvers vegna við fáum ekki að deila þessum ár- angri með svo vandfundnum samferða- bóndi, Brú, Jökuldal manni og vinna áfram að því verki, sem Einar átti svo drjúgan þátt I að hefja og auðvelda með áhuga sínum og atorku. Þær eru orðnar ófáar ferðimar, sem við sonur minn, Jón Heigi, og aðrir sem verkefninu tengjast, höfum farið upp að Brú og notið vinsemdar og gestrisni þeirra hjóna Einars og Önnu, jafnvel dögum saman. Þær samverustundir verða seint fullþakkaðar né fúllmetnar, en þeim mun sárar saknað nú, þegar svo stórt skarð er fyrir skildi. Þótt kynni oWsar Einars hafi ekki verið ýkja löng, kynntist ég mörgum mann- kostum hans. Hann kom mér ætíð fyrir sjónir sem dagfarsprúður, vel gefinn maður, fumlaus og með afbrigðum verk- laginn og úrræðagóður þegar á reyndi. Mér leið ætíð vel í návist Einars, ekki síst þegar haldið var til fjalla, þar sem hjarta hans sló hraðar af þeirri gleði sem ætíð fylgir náttúmbömum og auðveldlega hrífur samferðamenn. Skemmst er að minnast síðustu ferðar okkar saman, ásamt Jóni Helga, þegar við sóttum fúnd á Akureyri fyrir aðeins þrem vikum síð- an. Leiðinda færð hafði gert fyrir heim- ferðina, sem reyndist þó næsta léttvæg, þar sem Einar var sjálfkjörinn bílstjóri á verstu köflunum og ökufæmi hans kom okkur farsællega yfir allar hindranir. Ekki ætla ég mér þá dul að halda þvf fram að aldrei hafi hlaupið snurða á þráðinn hjá okkur, frekar en öðmm mönnum í ófullkomleika sínum. Hitt vil ég þó fullyrða að slíkt var fátítt og gleymdist fljótt þegar málin vom rædd og varð í raun ekki til annars en að styrkja vináttuböndin og gagnkvæma virðingu þegar frá leið. Þessum fátæklegu og vanmáttugu orð- um fer nú að fækka og mun ljúka án þess að rekja sögu, ætt eða uppruna þessara ágætu hjóna, Einars Gunnars Jónssonar og eftirlifandi konu hans, Önnu Guðnýj- ar Halldórsdóttur. Nefna vil ég þó böm þeirra, hvert öðm mannvænlegra, en þau em í aldursröð: Elstur er Sigvarður Öm, þá Halldór Valur, Hrafnhildur Unn- ur og yngst tvíburamir Einar Már og Drífa Dröfn, en þau tvö eiga að fermast nú í vor. Forsjóninni vil ég, fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar, þakka að hafa fengið að njóta samfylgdar Einars á Brú. Þá verður Önnu og bömunum seint full- þökkuð ánægjuleg samskipti og vinátta, sem af heilum huga er vænst til að megi haldast og dafna enn frekar í framtíð- inni. Ég veit að í þessum eftium tala ég einnig fyrir munn allra sem að bleikju- verkefninu standa. Sérstakar samúðar- kveðjur var ég beðinn fyrir til ykkar frá Per Grotnes og einnig frá þeim Lis Hammer og Thomas Aræbo frá Færeyj- um, með kærri þökk fyrir ógleymanlega heimsókn að Brú sumarið 1991. Við þig, Anna mín, vil ég segja þetta: Ég þykist vita að þú sért lítið gefin fyrir að menn beri tilfinningar sínar á torg. Þú verður samt að þola mér og fjölskyldu minni það, að láta f ljósi þá heitu bæn að þú og bömin megi, með guðs hjálp og góðra manna, öðlast þann styrk sem þarf til að sigla lífsins fleyi með þeirri reisn, sem ykkur er í blóð borin, í gegnum öldufalda sorgarinnar. Megi blessun fylgja ykkur og öðrum, sem um sárt eiga að binda, og blessuð sé minning Einars á Brú. Þórarinn Lárusson Sæunn Tómasdóttir Fædd 1. október 1911 Dáin 14. april 1993 Sæunn Tómasdóttir lést á Sólvangi 14. apríl síðastliðinn eftir langvarandi heilsuleysi. Þótt dánarfregnin kæmi ekki beint á óvart hefur viðskilnaður við kæra ættingja og vini alltar viss áhrif á þá sem eftir standa. Ósjálfrátt reikar hugurinn til þeirra stunda sem maður hefur átt með hinum látna. Mér er Ijúft að minn- ast Sæunnar föðursystur minnar með nokkrum orðum. Sæunn fæddist að Hólum í Biskups- tungum þann 1. október 1911. Hún var dóttir hjónanna Tómasar Bjamasonar og Óskar Tómasdóttur og næstelst níu systkina; sjö þeirra komust upp og eru hin sex öll á lífi. Sæunn fluttist fiögurra ára gömul með foreldrum sínum að Helludal í sömu sveit. Þar sleit hún bamskónum og gott betur. Hún átti sitt heimilisfang I foreldrahúsum fram á þrí- tugsaldur. Stundaði hún ýmis störf á vetmm svo sem fiskvinnu suður með sjó og f Reykjavík. Einnig starfaði hún við íþróttaskólann I Haukadal í nokkra vet- ur. Á sumrin var hún heima við bústörf- in. Vorið 1942 verða þáttaskil hjá Sæunni. Þá giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Bimi Bjamasyni frá Haukatungu á Snæfellsnesi. Þau höfðu þá stofnað sitt heimili að Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Þar bjuggu þau fram til 1951 er þau flytja sitt bú í hraunið vestan Hafnar- fjarðarkaupstaðar og nefndu staðinn Sæból. Þar hafa þau búið allar götur síð- an að undanskildum síðustu fjórum til fimm árum sem Sæunn eyddi á Sól- vangi. Þau Sæunn og Bjöm eignuðust einn son, Óskar Tómas, fæddan 1949. Hann er vélvirkjameistari, kvæntur Jóhönnu Óskarsdóttur. Þau búa í Hafnarfirði. Kjörsonur Bjöms og Sæunnar er Eðvarð Rafn vélfræðingur, fæddur 1947. Hann á þrjár dætur, Bimu, Sæunni og Bryndísi. Þær eru á aldrinum sautján til tuttugu og eins árs og vom miklir augasteinar Sœbóli ömmu sinnar. Sæunn var ein af lyrstu manneskjun- um sem ég kynntist fyrir utan foreldra mína. Skapgerð hennar og viðmót var slíkt að hún laðaði alla að sér. Sem ung- ur drengur var ég fljótur að skynja það. Sæunn vildi öllum gott gjöra og var henni mjög umhugað um hag annarra. ■llllBIIUf* [ WWwllili J Hún var ein af örfáum manneskjum sem ég hef kynnst sem ég heyrði aldrei heyrt tala illa um náungann. Björtu hliðar lífs- ins og tilvemnnar og það jákvæða í fari samferðafólksins var henni tamara í sinni en það sem miður fór. Þegar mað- ur fær að njóta samfylgdar fólks með slíka mannkosti lærir meður betur að meta það sem maður hefur. Sæunn var sérlega hjálpfús og ósérhlífin. Hennar handtök hér í Helludal vom drjúg fyrr og síðar. Þau hjónin eyddu mörgum vor- um hér f sauðburði og mörg vom þau sumrin sem þau lögðu hönd á plóginn við heyskapinn. Við kunnum ekki síður að meta hennar hjálp við heimilisstörfin eftir að móðir mín féll frá fyrir fjórtán ámm. Meðan Sæunn hafði heilsu til gerði hún fyrir okkur slátur á hverju hausti og var alltaf boðin og búin til að gera við föt af okkur og þrífa hjá okkur. Til marks um áreiðanleika Sæunnar langar mig að vitna í þann mæta mann Sigurð Greipsson í Haukadal. Þegar Sæ- unn var ung manneskja átti hún eitt sinn leið suður til Reykjavíkur. Sigurður biður hana um þann greiða að fara með peninga fyrir sig til afborgunar á stóm láni. Sæunn var fús til þess. Hún setti aurana í litla skjóðu og saumaði hana tryggilega innaná flíkina sem hún gekk í og ekki þarf að efast um að krónumar hafi komist á réttan stað. Þessu hafði Sigurður oft orð á. Gestrisni Sæunnar var einn af eigin- leikum hennar sem ekki er hægt að láta ógetið. Ekki þurfti að gera boð á undan sér; ættingjar og vinir vom velkomnir hvenær sem var. Það var einsog það hvfldi sérstakur friður yfir þeirra heimili enda ekki við öðm að búast þegar hús- ráðendur og umhverfi er jafn vinsam- legL Það var líka svo uppbyggilegt að hitta þau bæði. Mér fannst aðdáunarvert í þau fáu skipti sem ég heimsótti Sæ- unni á Sólvang hvað hún fylgdist vel með öllu þótt hennar líkamlega heilsa væri að þrotum komin. Að lokum vil ég ásamt föður mínum þakka Sæunni fyrir alla velvild og hjálp- semi sem hún sýndi okkur. Ennfremur vill Steinar, bróðir Sæunnar, koma á framfæri innilegum þökkum fyrir allt sem Sæunn gerði fyrir hann. Að hans sögn hafa fáar manneskjur reynst hon- um jafn vel og hún. Það sama getum við faðir minn sagt. Systkini Sæunnar þakka þeim hjónum fyrir góða umönn- un móður þeirra síðustu árin sem hún lifði. Við faðir minn og Steinar vottum Bimi, Eðvarði, Óskari, Jóhönnu, Bimu, Sæunni og Bryndísi okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sæunnar. Kristófer Tómasson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.