Tíminn - 14.08.1993, Síða 9
Laugardagur 14. ágúst 1993
Tíminn 9
sem má vera að verði í hausL Þing-
menn sem falla myndu með því
missa þinghelgina er hingað til
hefur hlíft mörgum þeirra fyrir
Hreinum höndum.
Meira að segja
mafíumar...
Flestir ítölsku stjómmálaflokk-
anna eru f rústum eftir uppljóstr-
anir um spillingu sem þeir hafa átt
hlut að og nærst á. Nánast sá eini
af þeim sem blómstar er Lega
Nord, nýr af nálinni og ekki flækt-
ur í spillinguna. Hann virðist helst
vilja losa Norður-Ítalíu að ein-
hveiju leyti úr tengslum við aðra
landshluta. Líklegt er að breyting-
amar á kosningakerfinu verði til
þess að smáflokkar ýmsir þurrkist
út af þingi. Þeir stærri af gömlu
flokkunum, einkum kristilegir
demókratar og sósíalistar, hafa far-
ið svo illa út úr spillingarmálunum
að margir telja að þeir eigi sér vart
viðreisnar von. Kristilegir demó-
kratar hafa í örvæntingu skipt um
nafn að fordæmi höfúðandstæð-
ings síns, kommúnistaflokksins,
og kallast nú Alþýðuflokkur (Part-
ito Popolare). Kommúnistaflokk-
urinn fyrrverandi hefur ekki held-
ur sloppið við áföll út af spillingar-
málunum, þótt ekki sé hann jafti
illa flæktur í þau og hinir. Enda var
tilvistarréttlæting kaldastríðskerf-
isins gamla að halda honum frá
völdum.
M.a.s. mafíumar virðast vera að
missa kjarkinn fyrir hörðum at-
gangi Hreinna handa. Rétt fyrir
mánaðamótin framdi sjálfsvíg í
fangelsi í Róm Antonio Gioe, að-
stoðarforingi Salvatores Riina,
sem talinn er vera yfirforingi sikil
eysku mafíunnar og situr inni síð-
an í janúar. Er það í fyrsta sinn sem
háttsettur mafíuforingi sviptir sig
lífi f ítölsku fangelsi.
Þar sem stjómmálageirinn á ítal-
íu er vegna sóknarinnar gegn spill-
ingunni nærfellt lamaður segja
ýmsir sem svo að þar sé nú „valda-
tómarúm." Aðrir, eins og Giovanni
Sartori, prófessor í stjómmálavís-
indum við Flórensháskóla, segja að
Ítalía dagsins í dag sé „lýðveldi
dómaranna." Hann og fleiri láta í
ljós áhyggjur af því að dómaramir
séu vegna niðurlægingar stjóm-
málamannanna að verða úr hófi
valdamiklir og kunni það að leiða
til geðþóttakenndra ráðstafana af
þeirra hálfu, eins og sumir telja að
þegar hafi gerst í herferðinni gegn
spillingunni. En vera má að marg-
ir ítalir líti svo á að ekki sé betri
kosta völ.
Páfí w'ð Laterankirkju eftir sprenginguna þar — sú atlaga haföi þveröfug áhrif
viö þaö sem taliö er aö til hafi veriö ætlast.
Komið við kvikuna í
ítölum
f þvf sambandi em tilræðin gegn
menningarverðmætum og bygg-
ingum sem hafa sögulegt gildi at-
hyglisverð. Það fyrsta af þessum
tilræðum, sem til þessa em nokk-
uð sérstæð (en ekki einstæð) í
hryðjuverkasögunni, var framið í
maf gegn Uffizisafhi í Flórens.
Óhætt mun að fúllyrða að af fáu
séu ftalir jafn stoltir og afrekum
forfeðra sinna í arkítektúr og öðr-
um listgreinum. Stoltið af þessu er
samgróið þjóðarstolti þeirra og
kannski drýgsti liður þess. Það að
nú skuli vera hafin eyðingarher-
ferð gegn þessum minjum er
nokkuð, sem ætla má að komi
þeim úr jafnvægi umftram flest
annað. Mörgum mun þykja að með
þessum tilræðum sé brandi beint
að kjama hópsjálfsímyndar ítala.
Ekki er ólíklegt að hryðjuverka-
mennimir geri sér vonir um að
gagnvart slíkum voða muni þjóð
þeirra fallast hendur.
Óeðlilegt er ekki að grunsemdir
vakni um að einmitt þetta sér-
kenni umræddra hryðjuverka, að
þau beinast að sumu þvf sem
merkast þykir af því er saga og
menning ftalfu hafa látið eftir sig,
þýði að háttsettir menn standi á
bak við hryðjuverkin, menn sem
vanist hafi þvf að vera í efsta lagi
samfélagsins og líta á samfélagið f
heild sinni sem sinn hlut fyrst og
fremst, eins og ósjaldan mun ger-
ast um hástéttarfólk. ítölsku
hryðjuverkin gegn menningu og
sögu, væri hægt að segja, eru þess-
leg að á bak við þau standi voldug-
ir menn, sem sjái fram á valda- og
virðingarmissi og hóti því í ör-
væntingu að taka þau verðmæti
samfélagsins, sem því er sárast
um, með sér í glötunina. Hugsun-
in á bak við þetta athæfi mundi
samkvæmt þessari tilgátu vera
eitthvað á þessa leið: Fyrst þetta er
ekki mitt lengur, eyðilegg ég það.
En hafi tilgangurinn með tilræð-
um þessum verið að stöðva Hrein-
ar hendur virðist þau hafa haft
þveröfúg áhrif. Tilræðin vöktu al-
menna reiði og drógu athyglina frá
áður áminnstum sjálfsvígum. Dag-
inn eftir sprengingamar tilkynntu
dómarar að Amaldo Forlani, fyrr-
um forsætisráðherra, væri undir
grun um aðild að hneykslum og
væri þegar farið að rannsaka það
mál. Forlani er sá fimmti af fyrr-
Teikning þessi f ftölsku blaöi mun
eiga aö vera afAndreotti, sem ein-
dregiö ber af sér allar sakir.
verandi forsætisráðherrum Italfu,
sem í því lendir. Sama dag hófúst
rannsóknir á grundvelli gmn-
semda um að Giulio Andreotti,
fmynd ftalska kaldastrfðskerfisins f
flestra augum, hafi átt hlut að því
að blaðamaður að nafni Mino Pic-
orelli, sem myrtur var 1979, yrði
ráðinn af dögum. Þetta eru heldur
meinleg örlög fyrir mann, sem í
áratugi var einn virtustu stjóm-
málamanna Vesturlanda og mætti
Ld. oft sem forsætisráðherra fyrir
hönd ítalfu á ráðstefnur leiðtoga
sjö mestu iðnríkja heims.
Geðshræringin eftir sprenging-
amar leiddi og til þess að ftalska
þingið samþykkti breytingar á
kosningakerfinu. Það voru þing-
menn búnir að draga á langinn
lengi, enda líklegast að breyting-
amar verði til þess að fjölmargir
þeirra falli í næstu kosningum,
ALUR VELKOMNIR
Baondaskóllnn á Hvanneyrl
Hagþjónusta landbúnaóarlns
Rannsóknarstofnun landbúnaóarlns
RENAULT
..er nú á besta veröinu
Vegna hagstæörar gengisþróunar og tollabreytinga
bjóöum viö nú Renault fólksbíla á betra veröi en
nokkru sinni fyrr. Hér aö neðan er verðsamanburður á
Renault 19 og Renault Clio og nokkrum
sambærilegum fólksbílum frá Asíulöndum. Eins og
fram kemur hefur dæmiö snúist viö og er nú hægt aö
kaupa vandaðan evrópskan fólksbíl á betra veröi en
er á sambærilegum japönskum bílum.
Verö 1/11 '92 Verð 1/8 '93 Hækkun
RENAULT19 RT 1.189.000,- 1.349.000,- 13%
TOYOTA COROLLA GLi 1.214.000,- 1.419.000,- 17%
HYUNDAI ELANTRA GLSi 1.049.000,- 1.337.000,- 27%
MMC LANCER GLXi 1.073.000,- 1.398.000,- 30%
RENAULT CLIO S 1.049.000,- 1.069.000,- 2%
NISSAN SUNNY SR 889.000,- 1.117.000,- 26%
MMC COLT GLXi 1.019.000,- 1.357.000,- 33%
SUZUKI SWIFT GL 828.000,- 1.155.000,- 39%
* Samanburður er samkvæmt verðlistum viðkomandi umboða á
hverjum tíma. Ryövörn, skráning og málmlitur ásamt miklum
aukabúnaöi er innifalið í verðinu á Renault.
RENAULT
-fer á kostum
Bflaumboðið hf.
Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633