Tíminn - 14.08.1993, Side 15
Laugardagur 14. ágúst 1993
Tíminn 15
Vinnslustöö Státurfétags Suðurlands
mælikvarða lltils byggðarlags.
á
Hvolsvelli. Stofnun hennar á staðnum olli straumhvörfum enda stóriðja á
ins. Með réttu lagi er afmæl-
isdagurinn 2. september, en
þann dag árið 1933 skipaði
sýslunefnd Rangæinga sér-
staka nefnd um byggingar í
landi Stórólfshvols. Þá þegar
var vísir að þéttbýli tekinn að
myndast, en ástæðan var efa-
laust sú að síðla árs 1930
opnaði Kaupfélag Rangæinga
í A-Landeyjum útibú á Hvols-
velli og flutti reyndar starf-
semi sína þangað alfarið árið
1933. Byggð á staðnum tók
að myndast fyrir alvöru um
1945. Vaxtarkippur kom um
1970 og síðan hefur þróunin
verið upp á við. í dag eru íbú-
ar Hvolsvallar um 670 tals-
ins.
Þjónustustaður í
landbúnaðarhéraði
Hvolsvöllur er einn þeirra
staða úti á landsbyggðinni
sem byggir atvinnulíf sitt að
stærstu leyti á þjónustu við
landbúnaðinn. Blómlegar
sveitir eru í næsta nágrenni
og Hvolsvöllur þar nokkurn
veginn miðsvæðis. Þess
vegna er það næsta sjálfgefið
miðað við núverandi þjóðfé-
lagsaðstæður, að þarna sé
þéttbýli. Stærstu atvinnurek-
endurnir á Hvolsvelli eru fyr-
irtæki á borð við Kaupfélag
Rangæinga, verktakafyrir-
tækið Suðurverk og fólks-
flutningafyrirtækið Austur-
leið.
Af opinberum fyrirtækjum
má nefna Vegagerð ríkisins,
sýslumannsembættið í Rang-
árþingi og RARIK. Síðast en
ekki síst skal nefna Sláturfé-
lag Suðurlands sem flutti
framleiðsluþátt starfsemi
sinnar úr Reykjavík að Hvols-
velli fyrir tveimur árum. Fyr-
irtækið veitir nú vel yfír
hundrað manns vinnu. Nokk-
ur fjöldi fólks flutti með
starfseminni að Hvolsvelli frá
Reykjavík og er það að
stærstu leyti skýringin á
rösklega 5% fólksfjölgun sem
orðið hefur á staðnum á und-
anförnum tveimur árum.
Ferðaþjónusta er einnig
talsverð. Hótel Hvolsvöllur er
myndarlegt nýtísku hótel og
þjónustumiðstöðin Hlíðar-
endi er við aðalgötu staðar-
ins. Myndarleg sundlaug er
til staðar og tjaldstæði er
sunnan við byggðarlagið. Á
vormánuðum tók Sælubúið
hf. til starfa en það hefur að-
setur í félagsheimilinu Hvoli.
Það er nokkrus konar þjón-
ustu- og upplýsingamiðstöð
fyrir aðila á sviði ferðamála á
staðnum og í næsta ná-
grenni.
Miklar framkvæmd-
ir í litlu byggðarlagi
Tálsverðar framkvæmdir eru
á Hvolsvelli um þessar
mundir. Fyrr í sumar hefur
verið tekið í notkun átta
íbúða fjölbýlishús, byggt inn-
an kerfis félagslegra íbúða.
Þá er nýr leikskóli í byggingu
sem áætlað er að taka í notk-
un í mars á næsta ári. Jöfn-
unarsjóður sveitarfélaga
greiðir 40% byggingarkostn-
aðar hans.
Verktakafyrirtækið Jón og
Tryggvi hf. sem aðsetur hefur
á staðnum steypir klæðningu
á götur á staðnum og eins má
nefna að unnið er að því að
klæða félagsheimilið Hvol og
tónlistarskólann að utan. Það
er framkvæmd upp á sex
milljónir króna sem er tals-
verð upphæð fyrir lítið sveit-
arfélag.
Hvolsvellingar hafa einnig
verið framarlega á sviði um-
hverfismála enda lét ísólfur
Gylfi Pálmason sveitarstjóri
hafa eftir sér í viðtali við und-
irritaðan í Tímanum vorið
1991 að byggðarlagið væri
náttúrukært. Það orð er lík-
ast til nýyrði, enda eru fram-
kvæmdir sem flokkast undir
umhverfismál og umhverfis-
vernd nýjung á lslandi.
Hvolsvöllur reið þannig á
vaðið í visthæfum fram-
kvæmdum þegar frárennslis-
mál voru tekin þar föstum
tökum og á síðasta ári var
tekinn í notkun fyrri áfangi
nýrrar hreinsistöðvar fyrir
frárennsli og horfa nú mörg
sveitarfélög til sambærilegra
framkvæmda hjá sér. Jafn-
framt hefur á Hvolsvelli verið
mjög mikið gróðursett af
trjágróðri á undanförnum ár-
um.
Fjölbreytt afmælis-
dagskrá
Afmælisdagskráin hefst nú í
morgunsárið kl. 10 með göngu á
Hvolsfjall og lýkur henni með
hygvekju í Stórólfshvolskirkju.
Milli kl. 15 og 17 verður fjöl-
breytt afmælisdagskrá í félags-
heimilinu Hvoli og verður af-
mæliskaffi á eftir.
Þarna mun Karlakór Rangæ-
inga meðal annars flytja sérstak-
an texta eftir Pálma Eyjólfsson
við lagið Undir bláhimni. Þá sýn-
ir Ottó Eyfjörð ljósmyndir frá
staðnum sem hann hefur tekið á
undanförnum áratugum. Sam-
komunni stjórnar Benedikt
Árnason, hrossabóndi á Tjald-
hólum, sem eru skammt utan
við Hvolsvöll, en Benedikt er
betur þekktur sem leikari og
leikstjóri við Þjóðleikhúsið um
áratuga skeið.
Jafnframt er í boði skemmtun
fyrir yngstu kynslóðina, forn-
bflasýning og sitthvað fleira. Um
kvöldið verður svo dansleikur í
félagsheimilinu Hvoli þar sem
hljómsveitin Hálft í hvoru sér
um fjörið.
Á næsta laugardegi eftir viku
mun útvarpsstöðin Bylgjan
verða stödd eystra og tileinkar
Hvolsvelli dagskrá sína. Þá um
kvöldið mun hljómsveitin Plá-
hnetan leika í Hvolnum, því víð-
fræga ballhúsi.
„Með þeim vorhug
skal vinna og trúa“
Það sem er kannski sterkasti
aflvaki byggðarlaganna úti á
landi er ástin til þeirra frá
fólkinu sem þau byggir. Slík-
ar hugrenningar koma
glögglega fram í afmælisljóði
Pálma Eyjólfssonar sem
sungið verður eystra síðar í
dag. Þar segir meðal annars:
Þar sem blómin við götumar glóa,
gleðja augu hin laufprúðu tré.
Vex upp skógur í Vallarins móa,
viðarlundi i huganum sé.
Þar sem œskan vill bgggja og búa,
bjartsýn framtíð er niðjunum trgggð.
Með þeim vorhug skal vinna og trúa,
vera samtaka að efla okkar bgggð.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
blaðamann á Selfossi.
Með sínu nefl
Þá er sumarleyfum lokið og tími til kominn að þátturinn hefji göngu
sína að nýju. Þar sem nú er komið fram í ágúst er fyrra lag þáttarins
næstum sjálfkjörið en það er „Einu sinni á ágúst kveldi", eftir þá bræður
Jón Múla og Jónas Ámasyni. Þótt þetta lag sé trúlega eitt vinsælasta
sönglag þar sem ágústmánuður kemur við sögu er við hæfi að hafa
seinna lagið líka tengt árstímanum, því nú er farið að dimma á kvöldin
og raunveruleg kvöldstemning að skapast Því er seinna lagið „Kvöldvís-
ur“ sem eru íslenskt þjóðlag og vísumar em þjóðvísur eða alþýðuvísur.
Góða söngskemmtunl
EINU SINNIÁ ÁGÚST KVELDI
D A D
Einu sinni á ágúst kveldi
G D
austur í Þingvallasveit
G D
gerðist í dulitlu dragi
Em A D
dulítið sem enginn veit,
Em A D
nema ég og nokkrir þrestir
Em A D
og kjarrið græna inn f Bolabás
D7
og Ármannsfellið fagurblátt
G Em
og fannir Skjaldbreiðar
E A
og hraunið fyrir sunnan Eyktarás.
Em A D
Þó að æviárin hverfi
Em A D
út á tímans gráa rökkurveg,
Em
við saman munum geyma þetta Ijúfa leyndarmál,
A D
landið okkar góða, þú og ég.
G
A
I > ( M I
X 0 1 2 3 0
Am
KVÖLDVÍSUR
Am E7
Kvölda tekur sest er sól,
Am Dm G C
stígur þoka’á dalinn.
Dm Am Dm E7 Am
Komið er heim á kví—a—ból
E7 Am Dm E7 Am
kýmar, féð og smalinn.
2
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurtindum,
líður á þennan dýrðardag;
drottinn stýri vindum.
3.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurheiðum,
lfður á þennan dýrðardag;
drottinn stýri leiðum.
4.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurhnjúkum,
líður á þennan dýrðardag;
drottin hjálpi sjúkum.
5.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurfjöllum,
líður á þennan dýrðardag;
drottinn hjálpi oss öllum.
6.
Senn er komið sólarlag,
sendi oss drottinn friðinn,
og svo gefi annan dag
eftir þennan liðinn.
D
o
o
X 0 0 2 3 1
Em
( M >
0 2 3 0 0 0