Tíminn - 22.12.1993, Síða 1

Tíminn - 22.12.1993, Síða 1
Sigurður Líndal um gildi fullveldisins________________________Sjá bls. 2 Vilhjálmur Árnason skrifar jólahugleiðingu Sjá bls. 5 Miðvikudagur 22. desember 1993 SJÁLFSTÆÐUR, MÁLEFNALEGUR OG GAGNRÝNINN 241. tbl. 77. árg. Verð í lausasölu 125 kr. Búðahnupl algengast í jólamánuði „Desember er sá mánuð- ur þar sem oftast er kært vegna hnupls úr verslun- um. Það voru 10 kærðir um síðustu helgi og 3 í gær." Þetta segir Ómar Smári Ármannsson hjá lög- reglunni í Reykjavík. Að mati lögreglunnar eru það einkum þtjár ástæður sem valda því að mest ber á þjófnaði úr verslunum í jólamánuðin- um. Þar ber fyrst að telja mikið framboð af varxiingi f verslun- um í mánuðinum og oft er hann staðsettur þannig að fólk á mjög auðvelt með að nálgast viðkomandi vöru og stinga henni inn á sig, eða í vasann, enda oftast um smávaming að ræða. í annan stað reynir efna- lítið fólk að komast yfir jóla- gjafir á þennan máta og í þriðja lagi eru kaupmenn meira á varðbergi gegn búðahnupli í desember en á öðrum árstíma. GRH Þriðja hvert heimili með allt innhú ótryggt Ný könnun hefur leitt í ljós þá geigvænlegu niður- stöðu að þriðjungur allra heimila í landinu, eða kringum 30.000 fjölskyldur, hefur innbú sitt (þar með talinn fatnað og aðra nauðsynlegusm hluti) ótryggt með öllu. Samband íslenskra trygginga- félaga gerði þessa könnun sem sýndi að aðeins 67% heimila í landinu eru með einhvers konar innbústryggingar. Þar sem hver ein milljón í innbústryggingu kostar tæplega 2.200 kr. á ári þykir mönnum ótrúlegt að þetta ástand geti eingöngu verið auraleysi landsmanna að kenna. Trygginga- menn óttast jafnframt að ótryggð- um heimilum hafi farið fjölgandi en ekki fækkandi að undanfömu. „Okkur finnst hlutfall tryggðra heimila mjög lágt hér á landi, t.d. ef við bemm okkur saman við hin Norðurlöndin,' sagði Daníel Haf- steinsson, tæknifræðingur hjá Sambandi íslenskra tryggingafé- laga. „Samkvæmt þessari könnun okkar kemur í ljós að 67% heimil- anna em með einhverskonar inn- bústryggingar, sem er alveg ótrú- Ríkissjóðshallinn 10,6 milljarðar Stjómarmeirihlutinn á AI- þingi samþykkti fjárlög með 9,7 milljarða halla í fyrrinótt. Þetta er mesti halli á fjárlögum sem dæmi em um. AI- þingi var slitdð í fyrrinótt eftir að búið var að samþykkja fjárlög, breytt búvörulög og breytingar á skattaIögum.„Þetta er mesti halli sem sýndur hefur verið við fjár- lagagerð og hlýtur að vekja hjá manni vissar efasemdir mn hvert stefni í ríkisfjármálum. Þrátt fyrir stór orð ríkisstjómarinnar um aðhald og spamað í ríkisfjármál- um eykst hallinn ár frá ári,' sagði Guðmundur Bjamason, nefnd- armaður í fjárlaganefnd. Guðmundur sagðist vona að það sama gerist ekki á næsta ári og gerist í ár, að hallinn tvöfaldist frá samþykkt fjárlaga, en gert var ráð fyrir því í fjárlögum að hall- inn í ár yrði 6,4 milljarðar, en nú stefnir í að hallinn verði um 13 milljarðar. Guðmundur sagði að í nokkr- um atriðum í fjárlögum fyrir næsta ár gæti óraunsæis. Hann nefndi útgjöld til heilbrigðismála og Atvinnuleysistryggingarsjóð sem dæmi um það. Guðmundur sagðist þó hafa á tilfinningunni að veikleikamerki fjárlaga næsta árs séu ekki eins mikil og á fjár- lögum þessa árs. Hann sagðist telja að ríkisstjómin hefði í nokkmm atriðum tekið tillit til gagnrýni stjómarandstöðunnar og fært útgjöld og tekjur til sam- ræmis við raunveruleikann. EÓ Á hverju ári tapa fjölskyldur eignum sfnu I eldsvoöum. lega lágt hlutfall. Og enn færri, eða 54%, eru síðan með húseigenda- tryggingar, þ.e. sem snúa að hús- eigninni sjálfri (m.a. vegna fok- og vatnstjóna), sem er líka mjög lágt hlutfall. Okkur sýnist að á hinum Norðurlöndunum séu um 90% heimila með þessar tryggingar báð- ar,' sagði Daníel. Um það hvemig þetta hlutfall hafi áður verið sagðist hann ekki hafa upplýsingar, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem svona könnun hefur verið gerð. Menn gmni þó að ótryggðum heimilum hafi frekar farið fjölgandi en hitt. Könnunin byggist á talningu tryggðra heimila hjá öllum tryggingafélögunum. Heildarfjöldi tryggðra heimila er síðan borinn saman við fjölda fjöl- skyldna í landinu. Þær em um 92 þúsund samkvæmt nýlegum upp- lýsingum Hagstofunnar. Þess má einnig geta að um 94.500 íbúðir er að finna í skýrslum Fasteignamats ríkisins. Það styður grunsemdir um fjölg- un ótryggðra heimila að skýrslur Tryggingaeftirlitsins sýna að heild- ampphæð greiddra iðgjalda fyrir heimilistryggingar hefur staðið í stað (um 460 miUjónir kr.) síðustu árin. Sú niðurstaða könnunarinnar að þriðjungur allra heimila í landinu sé án innbústrygginga kom Magnúsi Steinarssyni hjá Vátrygg- ingafélagi íslands alveg á óvart. „Þetta kannski skýrir af hveiju svo mörg ótryggð heimili brenna,' sagði Magnús. „Ég tel að það geti varla verið kostnaðinum einum að kenna að þriðja hver fjölskylda í landinu hefur innbú sitt allt ótryggt. Það hljóta að vera ein- hveijar aðrar skýringar." Sem dæmi um tryggingariðgjald nefndi Magnús að hver milljón í innbústryggingu (sem bætir tjón af völdum bruna, vamsskaða og inn- brotum) kostar aðeins 2.195 krón- ur með öllum álögum. Heimilistrygging upp á eina milljón kostar 3.250, en lækkar síðan hlutfallslega. Þannig kostar heimilistrygging upp á 3 milljónir með öllum gjöldum 8.235 kr. á ári. Þótt lágmarkstrygging sé marg- falt betri en engin trygging segir Magnús yfirleitt brýnt fyrir fólki að hafa tryggingarupphæðina sem næsta raunverulegu verðmæti inn- búsins. Byggt á upplýsingum tjóna- skoðunarmanna sé 3ja milljóna króna innbú eigmlega í lægri kant- inum, þ.e. ef um er að ræða heimili sem stendur saman af tveim ein- staklingum eða fleiri, sem búa sæmilega. En verður eitthvað gert? Daníel segir það óvíst hvað hægt sé að gera. Þetta séu fijálsar tryggingar og þar sé með ekki hægt að neyða neinn til að tryggja. En væntanlega verði farið í gang með kynningar- starf eftir áramótin, þar sem fólk verði hvatt til þess að huga betur að þessum málum. HEI FYRIR HESTA OG HESTAMENN MR búðin*Laugavegi 164 ||___ sími 11125 ■ 24355___ I DAG VSI kærir verkfall sjó manna til Félagsdóms bls. 4 Ung hjón missa allt sitt í eldi á Husavík bls. 4 Heilbrigöisráöherra sker sömu útgjaldaliöi niöur í tví- og þrígang bls. 4 Jólablað 1 bls. 5-27 ÞJONUSTA Sjónvarpsdagskrá bls.28 Gengisskráning bls. 30 Bíó bls. 31 dcLgpaA/ NÝTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELU 13-SlMI 73655

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.