Tíminn - 22.12.1993, Síða 3
Miðvikudagur 21. desember 1993
tímlnn
3
Á VÍÐAVANGI
Vinir í raun
Alþingi lauk haustverkunum
með talsverðum fyrirgangi í
fyrrinótt. Fjárlög voru af-
greidd með 10.5 milljarða halla og
tveggja þrepa virðisaukaskattur fær-
ir skattsvikurum björg í bú. Þjóð-
hagsstofnun og rfldsstjóm spá góð-
um efnahagsbata og fyrir liggur að
atvinnuleysi á eftir að aukast svo um
munar. Hækkun útsvara var nauðg-
að upp á sveitarstjómir sem ekki fá
lengur að ráða álagningarprósent-
unni, sem komin er í hendur mið-
stjómarvaldsins eftir þær miklu
skattkerfisbreytingar sem sam-
þykktar vom á síðustu nótt haust-
þings. En vegna almennrar tekju-
rýmunar er alis óvíst að útsvarstekj-
ur sveitarfélaganna hækki.
Mörg önnur tíðindi og undur
urðu síðustu þingnóttina. Jón
Baldvin lýsti yfir aðdáun á stjóm-
visku og framsýni Halldórs Ás-
grímssonar og Ólafur Ragnar lýsti
því yfir í ræðustóli að Davíð Odds-
son hafi sýnt mikla og ótvíræða
forystuhæfileika og reist sér óbrot-
gjarnan minnisvarða með því að
innleiða tveggjá þrepa virðisauka-
skatt.
Hins vegar veittust foringjar Al-
þýðubandalagsins harðlega að
framsóknamiönnum fyrir tillögur
þeirra og málflutning, sem beind-
ist að því að skipa skattamálum af
skynsamlegu viti og til hagsbóta
fyrir þá, sem minna mega sín og
lægstu launin hafa.
Oddvitar stjómarinnar viður-
kenndu að tveggja þrepa skattur-
inn myndi ekki leiða til þeirrar
tekjujöfnunar, sem stefnt var að.
Á þeim mátti skilja að margar leið-
ir aðrar væm vænlegri til að ná því
markmiði. Samt greiddu þeir at-
kvæði með tveggja þrepa skattin-
um og töldu sig vera að standa við
einhvers konar þjóðarsátt með því
tiltæki. Þá gerðust einnig þau und-
ur á Alþingi að KvennaMstinn var
ekki einhuga um afstöðu til skatt-
breytinganna, þar sem ein þing-
konan sat hjá í atkvæðagreiðslu
um þrepaskiptingu virðisauka-
skattsins.
Enn er of snemmt að draga af-
gerandi ályktanir af næturfundin-
um síðasta fyrir jólafrí. Lofið, sem
formaður Alþýðubandalagsins jós
yfir formann Sjálfstæðisflokksins,
gæti bent til að „sögulegar sættir'
séu ekki útilokaðar, og undarieg er
sú tilviljun að árásirnar á Fram-
sóknarflokkinn skuli bera upp á
sama næturfund.
Að sama leytinu er ekki fullljóst
hvort hugur fylgir máli þegar for-
maður Alþýðuflokksins lýsir yfir
aðdáun sinni á mannkostum og
pólitískri framsýni varaformanns
Framsóknarflokksins. En varast
ber að taka þá skýringu gilda að
sinnaskiptin stafi eingöngu af því
að stjómmálakempurnar séu
komnar í jólaskap.
Öll þau misvísandi viðhorf, sem
fram komu á næturfundinum
fræga, benda til þess að pólitískar
línur séu ekki eins skýrar og yfir-
leitt er af látið. Á milli flokkanna
eru ekki þau regindjúp og ætla
mætti og skilin milli vinstri og
hægri eða fijálshyggju og félags-
hyggju eru ekki eins vel mörkuð
og oftast er af látið.
Hins vegar eru það óopinber
trúarbrögð að tilteknir flokkar eigi
saman en ekki aðrir. En sannfær-
andi markalínur hafa aldrei verið
dregnar. Persónuleg andúð og
uppbelgt orðagjálfur skiptir fólki
fremur í flokka en markviss stefna
í þjóðmálum.
Hvað sem því líður, þá ber það
vott um einhvers konar hugarfars-
breytingu að Ólafur Ragnar viður-
kennir hina miklu mannkosti
Davíðs Oddssonar og hefur orð á
þeim, og að Jón Baldvin fær þá
hugljómun að hyggilegast væri að
fara að ráðum Halldórs Ásgríms-
sonar varðandi skattalöggjöf. En
hefur síðan þann boðskap að
engu, gegn betri vitund.
En minnisstæðust kann síðasta
nóttin fyrir jólafrí að verða fyrir
það að þá lofsöng Alþýðubanda-
lagið Davíð Oddsson og lýsti yfir
samstöðu með ákvörðunum hans,
en hallmælti Framsóknarflokkn-
um harkalega fyrir að vera ekki
sama sinnis og Sjálfstæðisflokkur-
inn.
OÓ
N Y HANDBÓK FYRIR SÆLKERA
' ' '
Matreiðslubók
í tilefni af
35 ára afmæli
smjörsölunnar sf.
I þessa bók höfum við
valið úrval uppskrifta,
sem hafa verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi
Osta- og smjörsölunnar.
Það er von okkar,
að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi,
OSTA- OG SMJÖRSALAN SF