Tíminn - 22.12.1993, Side 9

Tíminn - 22.12.1993, Side 9
Miðvikudagur 22. desember 1993 timlirn 9 ✓ Alyktun fulltmafundar Landssambandsins gegn áfengisbölinu FulJtrúafundur Landssambands- ins gegn áfengisbölinu, haldinn 6. des. 1993, varar eindregið við eftirtöldum atriðum: 1. Einkavæðingu áfengis- sölu. Hvergi hefur neysla minnkað þar sem sú leið hefur verið farin, heldur þvert á móti aukist og sums staðar svo að í óefni er komið, m.a. vegna heilsutjóns og félagslegra vandkvæða, sem margfaldast þeg- ar neysla eykst. 2. Áfengisauglýsingum, beinum og óbeinum. Landssambandið hvetur lög- regluyfirvöld til að stemma stigu við brotum á banni við áfengisaug- lýsingum og bendir á að þeir, sem græða á framleiðslu og sölu áfengis víða um heim, sjást ekki fyrir í þessum efnum, bijóta lög með beinum auglýsingum og greiða fyrir þær óbeinu með fé eða í fríðu. 3. Fjölgun áfengisveitinga- staða. Miðbær Reykjavíkur dregur nú þegar dám af aumustu hverfum er- lendra borga og ofbeldisverk eru tíð á áfengisveitingastöðum og í nágrenni þeirra. Mál er að linni fjölgun slíkra staða, bæði þar og annars staðar. Fulltrúafundurinn hvetur ís- lendinga til vakandi vitundar um þann voða, sem vímuefnaneyslu fylgir, og er áfengi þar áhrifaríkast ógæfuvalda. — Heilbrigði og hollir lífshættir geyma þau gildi sem gull- væg reynast í siðmenntuðu samfé- lagi. Fulltrúafundurinn heitir á ís- lendinga að hefla virka sókn gegn öllum vímuefnum með hag og heill þjóðarinnar að leiðarljósi. HLJÓMDISKAR Portrait Atli Heimir Sveinsson. ✓ Ut er kominn hljómdiskur sem íslensk tónverkamiðstöð gefur út í samvinnu við Ríkisútvarpið og með stuðningi frá Eimskip. Þessi diskur er sá sjötti í röð portraitdiska Tónverkamiðstöðvarinnar og er með þremur konsertum eftir Atla Heimi Sveinsson. Verkin eru: Flautukonsert (1973), einleik- ari Robert Aitken. Könnun (1971), einleikari er Ingvar Jónasson víóluleikari. Jubilus n (1986), einleikari er Oddur Bjömsson básúnuleikari. Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm Páls P. Pálssonar og Guð- mundar Emilssonar leikur í öllum verkunum. Hér em á ferðinni upp- tökur frá ólíkum tímum og gefa þær góða mynd bæði af tónskáld- inu og af flytjendunum. Atli Heimir Sveinsson er löngu orðinn þjóðkunnur fyrir tónsmíðar sínar og störf að tónlistarmálum og hefur hann hlotið margs konar viðurkenningar bæði hér heima og erlendis. Árið 1976 hlaut hann Tónlistarverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir Flautukonsertinn, sem hér er endurútgefinn í flutningi Roberts Aitken og Sinfómuhljóm- sveitar íslands. Verk Atla Heimis Sveinssonar spanna vítt svið. Af þeim má nefna óperumar Silkitrommuna og Viki- vaka, ballettinn Tímann og vatnið, sjö einleikskonserta og fjölda hljómsveitar- og kammerverka auk einleiksverka. Einnig hefur hann samið tónlist fyrir leikhús og mörg sönglög hans hafa náð vin- sældum. Atli Heimir er félagi í Konunglegu sænsku tónlistaraka- demíunni. Bæklingur á þremur tungumál- um fylgir disknum, en Guðmund- ur Andri Thorsson skrifaði text- ann. Á framhlið bæklingsins er myndverk eftir Erling Pál Ingvars- son. (Fréttatilkytming) Kaupfélag V-Húnvetninga Hvammstanga Jt , Gleðileg jól farsœlt komandi ár Pökkum samstarf og viðskipti á liðnum árum Kaupfélag Bitrufjarðar Óspakseyri óskar öllum gleðilegra jóla og gæfu á komandi ári Þakkar. viðskiptamönnum sínum og starfsfólki gott samstarf á liðnum árum Kaupfélag Stöðfirðinga Stöðvarfirði óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári r'v :■> - Pakkar gott samstarj og viðskwti á Hiðnum>arum &

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.