Tíminn - 22.12.1993, Side 14
14
Miðvikudagur 22. desember 1993
skírteinum með mynd - þau hétu
reyndar vegabréf. Mun þetta hafa
verið gert til þess að torvelda
Þjóðveijum að setja á land flugu-
menn eða njósnara. Þessi ný-
breytni mæltist mjög illa fyrir hjá
jafnöldrum mínum. Dyraverðir
kvikmyndahúsa lágu nefnilega á
því lúalagi að krefja verðandi
gesti um vegabréf ef myndin var
'bönnuð innan tólf ára". Sjálfur
lét ég mig þetta litlu skipta, fé-
lagsþroski minn var ekki meiri en
svo að ég fór aðeins í bíó í fylgd
með foreldrum mínum, og þá að
sjálfsögðu aðeins á myndir sem
leyfðar voru bömum. Sögur
gengu meðal félaga minna af ráð-
snjöllum ungmennum sem snem
á kerfið með því að verða sér úti
um leðurveski sem höfð vom til
hlífðar vegabréfunum og þannig
merkt. Þegar bíó vom fullsetin og
þröng við innganginn dugði
stundum að veifa veskinu fram-
an í dyravörð. Annað bragð, sem
ekki þýddi heldur að reyna nema
í fjölmenni, var að fá léð vegabréf
hjá ömmu eða öðrum velmein-
andi einstaklingi.
Við þjóðvegi komu Bretar víða
fyrir eftirlitsstöðvum. Þar vom
skilti sem á var letrað 'ALLIR
BÍLAR STOPPI HJER.' Gæslu-
menn skoðuðu vegabréf og litu
eftir því að ekki væm myndavél-
ar uppi við eða annað grunsam-
legt.
Mamma var vön að fara með
okkur börnin á sumrin til for-
eldra sinna sem bjuggu á
Fremstafelli í Kinn í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Þangað fórum við líka
sumarið 1940 svo ég varð þá lítið
var við hemámsliðið. Þó
var það eitthvað á stjái út
um sveitir. Hluta þessa
sumars vorum við reynd-
ar í næstu sveit, að Laug-
um í Reykjadal. Nokkur
hætta var talin á loftárás-
um á Reykjavík svo borg-
arböm vom send til sum-
ardvalar í nokkmm hér-
aðsskólum þar sem vom
búðir á vegum Rauða
krossins. Faðir minn veitti
forstöðu búðunum að
Laugum.
Þegar við snemm aftur
suður um haustið höfðu
hermennirnir yfirgefið
skólann. Við urðum samt
talsvert vör við þá. Þeir
höfðu sem fyrr segir búðir
rétt sunnan við skólann
Bretar notuðu Þjóðleikhúsið sem birgöageymslu.
» OG FARSÆLT KOMANDI AR
MEÐ ÞÖKK FYRIR
ÁNÆGJULEG SAMSKIPTi Á ÁRINU
0
KAUPFÉIAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
| CYA*' I
og voru oft að heræfingum á
auðu svæði milli hans og Baróns-
stígs. Þar var þá urð og gijót og
mun ánægjulegra leiksvæði en
nú, eftir að allt var sléttað og tyrft.
Dátarnir vom meðal annars
þjálfaðir í að beita byssustingjum.
í því skyni vom settar upp stand-
andi brúður í líkamsstærð, með
öflugri trégrind en búkurinn poki
fylltur hálmi. Minnir mig þær
væm þijár. Hermennimir skipt-
ust svo á um að gera áhlaup á
þessar ímyndir fjandmannana og
keyra byssusting í kvið þeirra. Við
bróðir minn, sem varð fjögurra
ára þá um veturinn, settum upp
stóla í dagstofunni, réðumst á þá
með herópum og rákum prik
milli rima í stólbökunum. Trúi ég
að pabbi hafi mælst til þess að
herinn flytti þessar æfingar af
skólalóðinni og það verið gert.
Bekkjarbróðir minn fræddi mig
á því að fátt væri Bretum meir til
skapraunar en ef þeir væm kall-
aðir "fokken kreisí" sem þýddi
helvítis asni. Þegar allstór fiokkur
hermanna var við æfingar fram-
an við skólann tókum við okkur
stöðu á svölum á annarri hæð,
tveir níu ára pottormar, og hróp-
uðum í síbylju eins hátt og lung-
un leyfðu: "Fokken kreisí, fokken
kreisíl" Hafi vígamennimir skilið
okkur, sem ég dreg mjög í efa,
létu þeir þessar ávirðingar sem
vind um eyru þjóta.
Breska heimsveldið lagði und-
ir sig fleiri hús í Reykjavík en
Austurbæjarskólann og hélt flest-
um lengur, meðal annars Þjóð-
leikhúsinu sem þá var í smíðum.
Það kemur við þessa sögu á þann
veg að veturinn fyrir hemámið
sótti ég námskeið í smíði
svifflugulíkana sem haldið var í
fokheldum afkima í iðmm þessa
húss. Að námskeiðinu stóðu tveir
ungir heiðursmenn sem nú em
báðir látnir. Þjóðveijar vom þá í
fremstu röð að því er varðaði
svifflug og víst einnig líkcmagerð.
Á veggjum vinnustofunnar í
Þjóðleikhúsinu voru því ýmsar
myndir af þýskum svifflugum og
er mér ekki grunlaust um að
hakakross hafi sést á einhveijum
þeirra. Þegar Bretar lögðu bygg-
inguna undir sig hafa þeir eflaust
talið að þama væm þeir komnir í
nasistahreiður, í það minnsta
bmtu þeir allt sem brotið varð í
stofunni, jafnt líkön sem smíða-
tól.
'vm
TÖLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Hddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000