Tíminn - 22.12.1993, Page 18
18
tiinlnn
Miðvikudagur 22. desember 1993
BÓKMENNTIR
GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON
Hestamannabók
Skjaldborg hefur sent frá sér
bókina „í fararbroddi, með
hestinn í öndvegi", eftir
Hjalta Jón Sveinsson. Pessi bók ber
Hjalta Jóni glöggt vitni, en varla
getur garpurinn talist nýgræðingur
í hestabókmenntum. Ritstjóri Eið-
faxa um langt árabil og þekktur
bókahöfundur um hesta. Þessi bók
er númer tvö í ritröðinni „í farar-
broddi" og eru viðmælendur Hjalta
valinkunnir úr hestamennskunni.
Þeir eru Andrés Kristinsson á Kvía-
bekk, Bjöm Runólfsson á Hofs-
stöðum, Brynjólfur Sandholt yfir-
dýralæknir, Guðmundur Jónsson
og Sigrún Eiríksdóttir á Höfn, Jó-
hann Þorsteinsson á Miðsilju, Kári
Amórsson fv. formaður LH, Magni
Kjartansson í Árgerði og Reynir
Aðalsteinsson á Sigmundarstöð-
um.
Á þessari upptalningu sést að
hér er ekkert smá mannval leitt
fram á völlinn og sumir sveinanna
þekktir að því að hafa munninn
fyrir neðan nefið. Þeir spanna líka
alla breidd hestamennskunnar. Frá
ræktandanum til útreiðamannsins
og frá sýningarmanninum til dýra-
læknisins. Frágangur bókarinnar
er áberandi góður, enda hefur
Skjaldborg aldeilis komið nálægt
faginu áður. Letrið og umbrotið
mjög skemmtilegt og fjöldi mynda
prýðir bókina.
Hjalti Jón segist halda þeirri
meginreglu að láta frásögnina
renna án truflunar. Ég held að les-
endur þessarar skemmtilegu bókar
vilji ekki láta trufla sig við lesturinn
alveg til síðasta stafs.
Höfundur, [ miðið, staddur aö Kirkjubæ á Rangárvöllum, ásamt Sigurði Haralds-
syni, fv. bónda þar, og Bimi Runólfssyni á Hofsstöðum I Skagafiröi, einum við-
mælenda sinna.
r
Oskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegra jóla
árs og friðar
Þökkum gott samstarf og viðskipti
á liðnum árum.
*kJ£aupfélag ^Zangæinga
Skáldverk
aldarinnar
Mál og menning hefur sent frá sér
síðara bindi skáldsögunnar
Ódysseifur eftir James Joyce. Þetta
verk er eflaust frægasta skáldverk 20.
aldarinnar. Sagan er svo mögnuð í
frásagnartækni sinni, lærdómi, hisp-
ursleysi og útsmoginni gamansemi
að hún „virkar á nútimamenn eins og
fjallið eina", eins og Halldór Laxness
orðaði það eitt sinn.
Samt gerist ekkert merkilegt: Það
segir frá einum degi 1 lífi nokkurra
Dyflinnarbúa, nánar tiltekið 16. júnl
1904, frá amstri þeirra, búksorgum,
misdjúpum hugsunum og mismerk-
um athöfnum. En einhvem veginn
tekst Joyce að flétta saman örlög
þessa „venjulega" fólks svo úr hefur
orðið ný Hómerskviða um þann ei-
lífa ferðalang Ódysseif, f gervi aug-
lýsingasafnarans Leopolds Blooms,
og glímu hans við hinstu rök mann-
legrar tilveru.
Skáldsagan Ódysseifur eftir James
Joyce var fyrst gefin út í París árið
1922. Hún mátti þola ritskoðun og
bönn í mörg ár í hinum enskumæl-
andi heimi, og var ekki gefin út fyrr
en sjötíu árum sfðar, eða árið 1992.
Nú er hún loksins komin út á ís-
lensku í þýðingu Sigurðar A. Magn-
ússonar.
Bókin er 385 bls. Verð: 2980 kr.
Kóraninn í jóla-
bókaflóðinu
Mál og menning hefur sent frá sér
eitt af undirstöðuritum mannkyns-
ins, Kóran.
Kóran er hin helga bók múslíma.
Þar eru skráðar opinberanir þær sem
Gabríel erkiengill miðlaði Múham-
með spámanni allt frá því er hann
tók að boða hina nýju trú árið 610 til
dauða hans árið 632. Sumir hlutar
bókarinnar vom ritaðir meðan Mú-
hammeð var enn á lífi, en ekki allir.
Samkvæmt hinni íslömsku arfleifð
skipaði eftirmaður spámannsins svo
fyrir eftir dauða hans að opinberun-
unum skyldi safnað á bók og skyldu
safnaðarmeðlimir miðla þvf sem þeir
höfðu skráð eða Iagt á minnið. Þess-
um textum var sfðan steypt saman og
bókinni skipt f 114 kafla sem ekki var
raðað eftir tímaröð, heldur lengd,
þannig að kaflamir verða sífellt
styttri eftir því sem á líður.
Stíll bókarinnar er margbreytilegur.
Á elstu opinberununum, frá þeim
tíma er Múhammeð var einsamall að
predika yfir heiðingjum, er háleitur
og ljóðrænn blær. Textinn frá síðustu
árunum er skipulegri og ber svipmót
af því að þá hefur myndast trúarsam-
félag, sem þarf á fræðikenningu og
lífsreglum að halda, enda þótt trúar-
hitinn sé samur við sig.
Kóran er elsta og langmerkasta verk
klassískra bókmennta Araba. Músl-
fmar telja hann vera hið óskeikula
orð Allah og í honiun eru þær reglur
um rétta breytni sem lífsmáti þeirra
byggist á.
Helgi Hálfdanarson þýddi bókina,
en hann er landskunnur fyrir snilld- 1
arþýðingar sfnar á perlum heimsbók-
menntanna.
Kóran er 420 bls., unnin f G. Ben.
prentstofu hf. Robert Guillemette
hannaði kápuna. Verð kr. 3880.
Bófahasar
Didda dojojong og Dúi dúgnaskít-
ur heitir fyrsta bamabók Einars Kára-
sonar, sem er nýkomin út hjá Máli og
menningu. Þetta er spennusaga um
12 ára félaga, sem rekast á bófa uppi í
Öskjuhlið og ákveða að hafa hendur í
hári þeirra. Leikurinn berst víða um
Hlíðamar og flugvallarsvæðið, enda
er mikið í húfi, heill fjársjóður og
heiður spæjaranna. Umhverfið er
kunnuglegt og margar litríkar per-
sónur koma við sögu. Anna Cyrtthia
Leplar myndskreytti bókina, sem er
115 blaðsfður og unnin f Prentsmiðj-
unni Odda. Verðið er 1390 krónur.