Tíminn - 06.08.1994, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.08.1994, Blaðsíða 11
Laugardagur 6. ágúst 1994 11 Norðmenn rafvæða sjálfstjórnarsvæði Palestínu Norðmenn ætla að veita sjálf- stjórnarsvæðum Palestínumanna styrk sem nemur um fimmtán- hundruð milljónum íslenskra króna á næstu þremur árum. Pen- ingarnir eiga að greiða fyrir raf- væðingu á Gazaströndinni. Samkomulag um að Norðmenn tækju að sér að sjá um rafvæðing- una var undirritað á fimmtudags- kvöldið af Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna og Svein Sevje, sendiherra Noregs. Norska frétta- stofan NTB greindi frá þessu í gær. Samkomulagið skiptir Palestínu- menn miklu máli en það kemur líka til með að hafa jákvæð áhrif á norskt efnahagslíf sem blómstrar um þessar mundir. Eftir því sem Asbjörn Mathisen, hjá norska ut- anríkisráöuneytinu, segir þá er reiknað með því að norsk fram- leiðsla veröi notuð við uppbygg- ingu rafveitunnar. Enn hefur ekki verið gengiö frá því hvað norsk fyrirtæki verða fengin til að framleiða upp í samninginn um rafvæðinguna því ekki var vitað nema Palestínu- menn óskuðu eftir því að fyrir- tæki annarra landa yrðu fengin til verksins. ■ Serbar snúast gegn Bosníu-Serbum Sremska Raca, Sarajevó, Belgrad Serbneskir landamæraverðir gerðu í gær mörghundruð vöru- flutningabíla afturræka við landa- mærin að Bosníu. Bílarnir voru hlaðnir vörum ætluðum Bosníu- Serbum. Júgóslavía, sem saman- stendur af Serbíu og Svartfjalla- landi, sleit bæði stjórnmála- og efnahagssambandi við Bosníu- Serba eftir að þing þeirra hafnaði friðaráætlun fimmveldanna. ■ Breitt yfir boðskap Evrópusinna Evrópuhreyfingin í Noregi sem og andstæðingar aðildar landsins að Evrópusambandinu ætla að byggja lokasókn baráttu sinnar fyrir þjóðaratkvæöagreiösluna á því sem hefur verið kallaö ungfrú Smith áhrifagjafinn. Hreyfingarnar hafa pantað sam- tals 4000 auglýsingaspjöld til að koma boðskap sínum á framfæri á síðustu vikunum fyrir þjóðarat- kvæðagreiðsluna. Þrátt fýTir bág- an fjárhag hafa fylgismenn ESB- aðildar vinninginn meö 3500 veggspjöld á móti 500 spjöldum andstæöinganna. Vandi beggja er þó sá sami því aö tískufataverslunarkeðjan Hennes og Mauritz haföi fyrir löngu pant- að nánast öll veggspjöld í Noregi síðustu vikuna fyrir þjóðarat- kvæðagreiðsluna. Boðskapur and- stæðra fylkinga í Evrópumálum hverfur því á örlagastundu á bak við misjafnlega mikið klæddar fyrirsætur H&M. Galdralæknar gegn alnæmi í austurhluta Afríku er nóg ab gera hjá galdramönnum í sveit- um og þorpum. Vegna slæmrar stöðu ríkissjóba í viðkomandi löndum hafa þeir sem sinna heil- brigbismálum orbib að finna nýj- ar leibir til ab berjast gegn vágest- um mannkyns á borb við al- næmi. í Tansaníu hyggjast heilbrigbis- stéttirnar grípa til sama ráðs og í Úganda og virkja hina 60.000 galdramenn landsins til að draga úr kostnaði til heilbrigðismála. Eftir því sem fréttastofan ips hermir er þegar farið að notast við alþýðulækningar á ríkis- sjúkrahúsinu í höfuðborginni Dodoma. Góður árangur hefur náðst í baráttunni við stein- smugu eða niðurgang, mislinga, kíghósta og stjarfa sem er ein al- gengasta dánarorsök hjá börn- um. Á landsbyggbinni njóta galdra- mennirnir mikilla vinsælda. Þeir eru bæbi mun ódýrari en venju- legir læknar og ekki þarf aö fara yfir langan veg til að komast til þeirra. Leibin til næstu heilsu- gæslustöðvar er aftur á móti oft löng og ströng. I nágrannalandinu Úganda njóta galdramenn ekki bara virð- ingar sem trúarleiötogar og lækn- ar. Konur trúa þeim gjarnan fyrir tilfinningamálum sínum og kyn- lífsvanda. Formælendur samtak- anna Læknar án landamæra segja að hið síðast nefnda geri þab að verkum að galdralæknar séu heppilegir bobberar upplýsinga- áróðurs í stríðinu við útbreiðslu alnæmis. Galdralæknarnir þurfa þó aö læra ýmislegt fyrst áður en þeir geta farib ab fræða. Tepoista Nakyanzi, starfsmaður Aðstobar vib eyðnisjúka í Úganda, segir að fræða þurfi tilvonandi fræbara á því hvernig alnæmisveiran smit- ist og hvað sé öruggt kynlíf. Nakyanzi hefur nú í heilt ár starf- að við að fraeða galdralækna um þessa hluti. í Úganda er ein og hálf milljón manna og kvenna smituð af alnæmisveirunni en íbúar landsins eru um 20 milljón- ir. Þó að tala smitaðra haldi áfram að hækka er vandinn ekki ræddur opinberlega. „Við fáum að vísu enga peninga, en ég hef lært mik- ið um læknisaðferðir Vestur- landabúa og hvernig umgangast megi sjúklinga," segir galdramab- urinn Nahib Kikonyogo. Hann starfar nú að því að upplýsa íbúa heimahéraðs síns um alnæmi. Þar til fyrir skemmstu trúbi hann því að eyðni væri læknanleg. „Nú veit ég að ég hef aðeins losað fólk við einkenni sjúkdómsins án þess að lækna það af honum." ■ íranir saka Bandaríkjamenn um hatursáróbur Teheran, Reuter Akbar Hashemi Rafsanjani, for- seti írans, segir að Bandaríkin séu í raun að ná sér niður á stjórn ísl- amstrúarmanna í íran þegar rík- isstjórn landsins sé sökuö um ab standa á bak við árásir á gyðinga í ísrael og víðar. Rafsanjani segir ab íran sé fórn- arlamb áróðursstríðs vegna sprengjuárásanna í Argentínu og Bretlandi þó ab þeir sem dugleg- astir séu við að ásaka írani um hermdarverk hafi ekkert fram ab færa sem styðji mál þeirra. „Land eins og Bandaríkin, sem telur sig í forystuhlutverki nýrrar heimsskipanar... tekur forystuna í ab ásaka saklaust land án sann- ana... knúib af hatri sem bylting okkar hefur sáð í myrkar hjarta- rætur þess, mun ab lokum gera lítið úr sjálfu sér," sagði forsetinn þegar hann flutti bæn að við- stöddu fjölmenni. í síbustu viku kallaði Warren Christopher, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, íran „alþjóbleg- an útlaga" sem hafa þyrfti í haldi. ■ SZ-Zeichnung: Pepsch Gottscheber Mykjudælur Mykjudreifarar Flórsköfukerfi Básmottur Leitió nánarí upplýsinga. Ingvar Helgason hff. VÉLASALA Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000. BÆNDUR Eigum til á lager nokkrar tegundir búvéla. Gott verð og greiðslukjör. Leitiö nánarí upplýsinga. l Ingvar | { I J Helgason hf. vélasala ~ ' ~=~' Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.