Tíminn - 06.08.1994, Side 12
12
wPlmlWyl
Laugardagur 6. ágúst 1994
Haukur Kristjánsson
Fæddur 13. júlí 1928
Dáinn 15. júlí 1994
Þegar samferöamabur, vinur og
mágur hverfur af sjónarsviöinu
yfir móöuna miklu langt um ald-
ur fram, veröur manni hugsaö til
liöinna ára og áratuga og þess
hversu samskipti viö viökomandi
voru manni mikils viröi og
ánægjuleg. Ekki veröur hjá því
komist aö þetta mat veröur meö
æriö misjöfnum hætti. Einn
þeirra, sem ljúfar og ánægjulegar
minningar eru tengdar viö, er
Haukur Kristjánsson, sem lést á
Fjórbungssjúkrahúsinu á Akureyri
15. júlí s.l., abeins 66 ára gamall.
Haukur var næst yngstur átta
barna hjónanna Ingibjargar Jó-
hannsdóttur og Kristjáns Árna-
sonar, sem lengst voru kennd viö
Krithól í Skagafiröi. Haukur
stundaði nám í Laugaskóla og viö
Iðnskólann á Akureyri og tók þaö-
an próf í bifvélavirkjun 1949.
Hann vann viö þá iön til ársins
1958, er hann tók viö viðhalds-
verkefnum véla og tækja viö
Mjólkursamlag KEA og stjórnaöi
t MINNING
viðhaldsdeild fyrirtækisins til ævi-
loka eða í 36 ár.
Þekking Hauks á véltækni og viö-
haldi véla var langt umfram þaö
sem ætla mátti miðað viö skóla-
göngu. Hann var gæddur sérstakri
hugvitssemi gagnvart allri vél-
tækni og nýsmíbum varðandi vél-
væðingu mjólkuriönaðarins og
var snillingur á því sviði. Mér er
kunnugt um það ab hann var oft
fenginn til þess að setja upp nýjar
vélar og betrumbæta vélakost
Mjólkursamlagsins á Sauöárkróki
og var talinn einstakur völundur
varöandi margvísleg vandamál er
upp komu í sambandi viö
vinnsluvélar Samlagsins. Hann
var ósérhlífinn til allra verka,
enda mikilsmetinn af samstarfs-
mönnum sínum.
Haukur var félagshyggjumaöur
sem féll vel inn í hóp glaðra fé-
laga, söngmaður góður svo sem
sönnum Skagfiröingi sæmdi og fé-
lagi í Karlakórnum Geysi í áratugi.
Hann var hreinskiptinn og hafði
ákveðnar skoðanir á flestum mál-
um og lét þær óhikað í ljós.
Haukur kvæntist Önnu Stein-
dórsdóttur 1952. Þau eignuðust
tvö börn: Úlfar vibskiptafræðing,
framkvæmdastjóra á Akureyri,
sem kvæntur er Hólmfríði Anders-
dóttur bókasafnsfræbingi; og
Selmu menntaskólakennara á Ak-
ureyri, sem gift er Þengli Ásgríms-
syni tæknifræðingi.
Þaö var um 1980 aö Haukur fór
aö kenna þess sjúkleika, sem hann
barðist við af atorku æ síðan. Fór
hann þá til Englands í hjartaab-
gerð og náði þá aftur verulegum
starfsþrótti og stundaði störf sín af
sama áhuga og fyrr. Síöar fór þó
að halla undan fæti, svo ab ráðlegt
þótti að hann gengist undir að-
gerö á ný nú í sumar. Fáum dög-
um fyrir þá aðgerð komu þau
hjónin vestur í Skagafjörðinn til
að hitta frændur og vini. Ekki varð
þess vart þá að Haukur byggi með
kvíða í brjósti um framhaldið.
Hann var jafn jákvæður og glabur
sem fyrr. Ef til vill hefur þó ótti
búið honum í brjósti og ferðin í
heimahérað til systra og vina ver-
ið óbein kveðjustund vegna hugs-
anlegra vistaskipta, sem síðar
komu á daginn.
Ævi Hauks Kristjánssonar verður
ekki rakin hér frekar. Öllum sem
honum kynntust var það ljóst að
hann var mannkostamabur til
orðs og æðis, sem mátti ekki
vamm sitt vita í neinu, hjálpsam-
ur og góðviljaöur í hvívetna.
Okkur hjónunum og börnum
okkar eru í minni margar glebi-
stundir er við áttum með þeim
Hauki og Önnu, er leið þeirra lá til
okkar í heimsóknum þeirra í
Skagafjörðinn. Ekki síður áttum
við saman gleðistundir á heimili
þeirra á Akureyri í Kringlumýri 1
og nú síðustu árin að Víðilundi 1.
Til Akureyrar fómm við sjaldan
án þess að koma við hjá þeim og
njóta vinsamlegra samvista og
veitinga á þeirra fallega og menn-
ingarlega heimili, hvort sem var í
stóra húsinu við Kringlumýri eða
litla, fallega og velbúna heimili
þeirra að Víðilundi. Þau hjón
höfðu lag á því að hafa allt í kring-
um sig fallegt og vel vandað, enda
bæði smekkvís og menningarleg í
öllum sínum háttum.
Við hjónin viljum nú að leiðar-
lokum þakka Hauki, Önnu konu
hans og börnum þeirra öll sam-
skipti á liðnum árum og votta
þeim öllum, sem eftir lifa, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Vemm þess viss að minningin
um góðan dreng lifir og að í tím-
ans rás heldur lífiö áfram.
Guðjón Ingim.
Færeysk spennusaga og Hamlet
Út er kominn 43. pakki íslenska
kiljuklúbbsins hjá Máli og menn-
ingu og hefur hann að geyma
þrjár bækur. Þær eru Hvalimir í
Tanganyikavatni eftir Lennart Hag-
erfors, Engill, pípuhattur og jarðar-
ber eftir Sjón og Ljúfer sumamótt í
Fœrcyjum eftir Jógvan Isaksen.
Sænski rithöfundurinn Lennart
Hagerfors hefur komið til íslands
og kynnt verk sín, og hefur Lesbók
Morgunblabsins birt sögu eftir
hann. Skáldsagan, sem íslenski
kiljuklúbburinn gefur nú út, bygg-
ist á hinum fræga leiðangri Stan-
leys til Afríku árið 1871 þegar
hann fann landkönnuðinn Li-
vingstone, og sló höfundur ræki-
lega í gegn með þessari bók þegar
Fréttir af bókum
hún kom út árið 1985. Ásgeir Ás-
geirsson þýddi söguna og er hún
gefin út með styrk frá Norræna
þýðingarsjóðnum. Kápu gerði
Ingibjörg Eyþórsdóttir; bókin er
169 blaðsíöur.
Skáldsaga Sjóns, Engill, pípuhattur
og jarðarber, kom fyrst út fyrir
fimm árum. Þetta er saga um ungt
fólk í samtímanum í sólríku, evr-
ópsku þorpi, og hefur sagan verib
kölluð súrrealísk ástarsaga. Káp-
una hönnuðu þeir Sjón og Þór Eld-
on; bókin er 139 blaðsíður að
lengd.
Sakamálasagan Ljúfer sumamótt í
Fœreyjum kom fyrst út í Færeyjum
árið 1990 og síðar í Danmörku á
dönsku; abrar þýðingar eru í
vændum. Sjaldgæft er að íslenskir
lesendur komist í tæri við færey-
skar spennusögur og má ætla að
þessi bók veki athygli hér sem
annars staöar. Þýðinguna gerði Ás-
geir Ásgeirsson. Kápu hannaði
Næst; bókin er 224 blaðsíður.
Skiptibók klúbbsins, bók sem fé-
lagar geta fengiö í stað einhverrar
ofangreindra (eba auk þeirra), er
Hamlet eftir William Shakespeare,
snilldarverk í þýðingu Helga Hálf-
danarsonar.
Bækurnar eru prentabar í Skot-
landi. Ritstjóri íslenska kilju-
klúbbsins er Árni Óskarsson. ■
DACBOK
Lauqardaqur
6
ágúst
218. daqur ársins -147 daqar eftir.
3 1. vlka
Sólris kl. 4.49
sólarlag kl. 22.16
Dagurinn styttist um
6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sunnudagur 7. ágúst: Brids-
keppni, tvímenningur, kl. 13
og félagsvist kl. 14. Dansaö kl.
20 til 23.30 um kvöldið í Ris-
inu, Hverfisgötu 105.
Dagsferð um Hreppa og
Landsveit 17. ágúst. Upplýs-
ingar á skrifstofu félagsins.
Ljóbatónleikar
í Hafnarborg
Sunnudaginn 7. ágúst n.k.
heldur Hanna Dóra Sturlu-
dóttir sópran, ljóðatónleika í
Hafnarborg, Hafnarfirði. Með-
leikari á píanó er Hólmfríður
Sigurðardóttir.
Hanna Dóra er fædd í Búðar-
dal árið 1968. Hún stundaöi
söngnám í Söngskólanum í
Reykjavík hjá Kristni Sig-
Hanna Dóra Sturludóttir
mundssyni og Snæbjörgu
Snæbjarnardóttur. Þaðan lauk
hún VIII. stigi með hæstu ein-
kunn vorið 1992 og hefur síð-
an verið í framhaldsnámi í
Hochschule der Kunste í Berl-
ín og er söngkennari hennar
þar próf. Anke Eggers.
Hanna Dóra hefur sótt nám-
skeið í söng hér heima, í
Þýskalandi og Austurríki. Hún
hefur sungiö með mörgum
kórum og tekið þátt í ópem-
flutningi og tónleikahaldi
bæði hérlendis og erlendis.
Hún söng hlutverk Ritu í sam-
nefndri ópem í nemendaupp-
færslu Söngskólans vorið 1991
og í vetur sem leið hlutverk
greifynjunnar í Brúðkaupi
Fígarós og einnig hlutverk
Pamínu í Töfraflautunni, en
báðar þessar sýningar vom
Franz Schubert, Richard
Strauss, Alban Berg, Jón Ás-
geirsson og Sigvalda Kalda-
lóns. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.
Lyriskar myndir meb
pönki ab Laugavegi 22
Felíx Eyjólfsson sýnir 15 ly-
riskar myndir að Laugavegi 22
þessa dagana. Þetta er níunda
sýning hans. Þarna getur að
líta geo-konkrít myndir með
pönki, t.d. þykkum gljápappír-
og fleiri efna samsetningu.
Felix er næmur á myndbygg-
ingu, svo og meðferð lita og
forma. Sýning Felixar sýnir
saklausa dirfsku og hugarflug.
Sýningin mun standa til 15.
ágúst.
settar upp í Háskólanum í
Berlín.
Hanna Dóra fékk styrk frá Fé-
lagi íslenskra leikara á síðasta
ári og í vor var hún ein af þeim
sem hlutu heiðurslaun Bmna-
bótafélags íslands.
Hólmfríður Sigurðardóttir er
fædd á ísafirði árið 1955. Hún
hóf píanónám 7 ára gömul í
Tónlistarskóla ísafjarðar, þar
sem Ragnar H. Ragnar var að-
alkennari hennar. Frá ísafiröi
lá leiðin til Þýskalands í Tón-
listarháskólann í Miinchen.
Þaðan lauk hún einleikara- og
kennaraprófi árið 1980. Und-
anfarin ár hefur Hólmfríður
starfaö sem meðleikari við
Söngskólann í Reykjavík.
A efnisskrá tónleikanna í
Hafnarborg em verk eftir
Felix Eyjólfsson vib eitt verka sinna.
Fréttir af bókum
Metsölu-
bóká
íslensku
Metsölubókin „Sjáumst þótt
síðar verði" (I'll be seeing you)
sat vikum saman í efsta sæti
metsölulista New York Times í
vor sem leið en hún er nú kom-
in út í bókaklúbbnum Nýjar
metsölubækur. Höfundurinn,
Mary Higgins Clark, hefur verið
kölluð drottning spennusagn-
anna - og ekki að ástæðulausu.
Frá árinu 1975 hefur hún skrif-
að ellefu bækur sem orðið hafa
metsölubækur um allan heim
og níu kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir sögum hennar.
Bókin fjallar um Meghan Coll-
ins sem er fréttamaður á sjón-
varpsstöð í New York. Ekkert
hefur spurst til föður hennar í
tæpt ár en hann hvarf með dul-
arfullum hætti og hefur verið
talinn af. Þegar Meghan er að
vinna að frétt á sjúkrahúsi í
New York er komið þangað
með stúlku sem orðið hefur fyr-
ir hnífsstungu en enginn veit
hver hún er. Læknum tekst ekki
aö halda í henni lífinu og þegar
súrefnisgríman er tekin af and-
liti hennar sér Meghan sína eig-
in spegilmynd! Frá þeirri
stundu er hún dregin inn í
hræðilega martröö.
Mary Higgins Clark er fædd og
uppalin í New York en er af
írsku bergi brotin. Sjálf segir
hún að írski uppruninn skipti
miklu máli fyrir ritstörf sín sök-
um hinnar sterku sagnahefðar
á írlandi. Hvað sem því líður
virðast lesendur jafnt sem
gagnrýnendur kunna vel að
meta bækur hennar, því í
Bandaríkjunum einum hafa
þær selst í meira en 28 milljón-
um eintaka! Þá er á bókarkápu
„Sjáumst þótt síðar verði", vitn-
að í umsögn stórblaðsins New
York Times. „Það er engum
blööum um það að fletta að
Mary Higgins Clark er frábær
spennusagnahöfundur. Efni
bókarinnar er sérlega spenn-
andi og tök höfundarins á því
óaöfinnanleg." ■