Tíminn - 21.09.1994, Síða 2

Tíminn - 21.09.1994, Síða 2
2 Miðvikudagur 21. september 1994 Líkur á aö samningar séu aö nást milli fjármálaráöuneytisins og Miöbœjar Hafnarfjaröar hf. um aö vínbúö veröi staösett í byggingunni: ÁTVR a6 flytja úr eigin Núverandi húsnœöi ÁTVR í Hafnarfiröi. Til stendur aö flytja úr húsnœöinu og leigja í hinum umdeilda Miöbœ Hafnarfjaröar. Tímamynd cs Reykjavíkurborg: Húsaleigu- bætur sam- þykktar Reykjavíkurborg mun greiba húsaleigubætur á næsta ári samkvæmt lögum sem sam- þykkt voru á Alþingi sl. vor. Borgarráb samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- málarábs þess efnis. í greinargerb Láru Björnsdóttur félagsmálastjóra til borgarstjóra kemur fram ab gera megi ráð fyrir ab um 2800 leiguíbúðir séu í Reykjavík sem er meira en helmingur allra leiguíbúða á landinu. Gert er ráð fyrir að um helmingur endurgreibslu ríkis- ins vegna húsaleigubóta fari til Reykjavíkur, eöa um 200 millj- ónir. Kostnaður Reykjavíkur- borgar sjálfrar verbi 125 millj- ónir sem er nokkuð lægri upp- hæð en notuð var árib 1993 til húsaleigustyrkja. Lára reiknar með að rekstrarkostnaður skrif- stofu sem sæi um afgreiðslu húsaleigubóta geti verið um þrjár milljónir á ári en stofn- kostnaöur um tvær milljónir. Samkvæmt mati Þjóðhags- stofnunar er fjöldi bótaþega húsaleigubóta á landinu öllu áætlabur 5500 manns. ■ Sá Veibibók og sjónvarps- þcettir vœntanlegir frá Eggert Skúlasyni: Eggert í vib- ræoum vib út- varpsfélagib Eggert Skúlason fréttamabur hefur undanfariö átt viðræbur við forsvarsmenn íslenska út- varpsfélagsins um að koma þar aftur til starfa. Eggert segir enga niðurstööu komna úr þessum viðræðum og algerlega óvíst hvort af samningum verður. Eins og kunnugt er var Eggert rekinn af fréttastofu Stöðvar 2 í sumar eftir ab hann tók sæti í stjórn íslenska útvarpsfélagsins fyrir hönd starfsmanna. Ýmsir, bæði innan Stöðvar 2 og utan, töldu uppsögnina óþarfa. Eggert segir vibræburnar aö frumkvæði forsvarsmanna íslenska útvarps- félagsins. Engin niðurstaða hef- ur enn náðst, en með uppsagn- arfresti og uppsöfnuðu sumarfríi verbur hann á launaskrá hjá fyr- irtækinu fram í desember. Þá er þessa dagana að koma út veibibókin „Dásamleg veibi- della" eftir Eggert Skúlason, fréttamann á Stöb 2. Eggert er þessa dagana ab vinna að tökum á sjónvarpsþáttum um rjúpuna. Hann segist þó ekki vera ab gera þættina fyrir Stöb 2. Stefnt er ab því ab þættirnir um rjúpuna verbi tveir og verbi tilbúnir næsta haust. ■ Ab undanförnu hafa stabib yf- ir samningar milli Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. og fjármála- rábuneytisins um kaup eba leigu ÁTVR á húsnæði í hinu nýja verslunar- og þjónustu- húsnæði sem risiö er í bæn- um. Snorri Olsen, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að ráðuneytinu hafi boðist þetta húsnæði undir vínbúð og það sé búið að vera í skoðun. „Hvort það nást samningar um þennan flutning þori ég ekki að segja. Það getur vel verið að það skýrist í þessari viku. Þetta er til skoðunar í ráðuneytinu en eng- in ákvörbun hefur verið tekin um þetta að svo stöddu," segir Snorri. Hann segir ab ekki sé verið ab tala um kaup á húsnæöi heldur leigu. „Þetta er auðvitað spurn- ing um aö fara úr eigin húsnæði yfir í leiguhúsnæði og ákvörð- unin hlýtur að byggjast á því hvort slíkt teljist skynsamlegt út frá þeim leigukjörum sem eru boðin og það er ákvörðun sem ráöuneytið tekur. Það er ekkert sem segir að áfengisverslanir verði að vera í húsnæði sem er í eigu ríkissjóbs, enda er það alls ekki alls staöar," segir Snorri Ol- sen. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að ákveðið hafi ver- ið að reyna samninga við eig- endur Mibbæjar Hafnarfjarbar hf. um leigu fyrir áfengisversl- unina á fyrstu hæð hússins. Hann var spurbur hvort það hefði verið pólitísk ákvörbun að reyna að ná samkomulagi við Miðbæ Hafnarfjarðar hf. „Maður veit nú aldrei hvað flokkast undir pólitískar ákvarð- anir. Það held ég að sé nokkuð ljóst að þaö mun fara vel um verslunina í þessu húsnæði. Svo er hitt alltaf matsatriði hvaba verði menn eru tilbúnir að kaupa slík gæbi. Ég hugsa að búðin taki sig betur út þarna en á hinum staðnum þó að ég sé alls ekki aö kvarta undan hon- um. En ég get ómöglega tjáð mig um hvort þetta heitir pólit- ísk ákvörðun eða eitthvað ann- að," segir forstjóri ÁTVR. Höskuldur var spurður hvort það væri viðtekin venja ab verslanir ÁTVR færu úr eigin húsnæbi yfir í leiguhúsnæbi. Ibnnemasamband íslands fagnar 50 ára afmæli n.k. föstudag, 23. september og verbur tímamótanna minnst á ýmsan hátt um helgina. Á afmælisdaginn munu þing- menn, sveitarstjórnarmenn og jafn- vel einhverjir ráðherrar skoba verk- námsaðstöbu ibnnema meb því ab heimsækja ibnmenntaskóla lands- „Nei, það veröur nú ekki flokk- ab undir viðtekna venju. Hinu er ekki að leyna ab það hefur svolítið borib á kvörtunum vegna skorts á bílastæðum þarna viö lækinn. Reyndar var nú umsagnar bæjaryfirvalda og lögreglu leitað á sínum tíma og þetta var þá talið í lagi. Það er ins. Um kvöldið verbur svo haldinn sérstakur hátíbarfundur sambands- stjórnar Ibnnemasambandsins í baðstofu iðnaðarmanna í gamla Iðnskólanum viö Lækjargötu. Hátíðarsamkoma verður svo í Borgarleikhúsinu á laugardag og af- mælisfagnaður á veitingastaönum Ömmu Lú um kvöldið. ■ rétt að verslun í Hafnarfirbi hef- ur verið mun meiri en við átt- um von á. Nágrannar okkar telja ab til ama sé hvað aðsókn er þarna mikil seinnipart föstu- dagsins. Það eru nú kannski einu hnökrarnir sem eru á þessu þar," segir Höskuldur Jónsson. Keppt um bestu heimilda- myndina Nærfellt 90 norrænar stutt- myndir og heimildamyndir verða sýndar á norrænni kvikmyndahátíö sem fram fer í Háskólabíói dagana 21.-25. september. Hátíðin er haldin árlega, nú í fimmta sinn, en í fyrsta skipti hér á landi. 57 myndir taka þátt í keppni um bestu stuttmynd og bestu heimildamynd 1994. Þar af eru fjórar íslenskar myndir. Sérstök nefnd annaðist forval mynda til þátttöku í keppninni en dóm- nefnd, skipuð fulltrúum frá öll- um Norðurlöndunum, velur verðlaunamyndirnar tvær, en hvor um sig hlýtur verðlaun að upphæð 250 þúsund krónur, en Reykjavíkurborg og mennta- málaráðuneytið leggja til verð- launaféð. Ýmsar þeirra mynda sem taka þátt í keppninni hafa þegar hlotið verðlaun á kvik- myndahátíðum. Abgangskort sem gildir á allar sýningar kostar 2 þúsund krón- ur. í tengslum vib hátíðina verður starfræktur sérstakur klúbbur á Sóloni íslandus og þar hittist kvikmyndagerðar- fólk frá ýmsum löndum, að því er segir í fréttatilkynningu frá Nordisk Panorama, en boðið verður upp á lifandi tónlist og skemmtiatriði. Þeir einir fá að- gang að klúbbnum sem eru meb aögartgskprj. T,.'9^ ■ lönmenntun í brennidepli: Ibnnemasamband íslands 50 ára Nordisk Panorama:

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.