Tíminn - 21.09.1994, Síða 9
Mibvikudagur 21. september 1994
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
.
Reuter
DunuunKlaner stendur nú íþeim stórrœbum ab flytja 15 þúsund manna lib til Haiti og var myndþessi tekin þegar
fyrstu þyrlurnar voru ao búast til lendingar á flugvellinum vib Port-au-Prince. Þótt vibbúnaburinn sé óneitanlega tilkomumikill er þab ekki
í samrœmi vib tilefnib, því herforingjaklíkan sem er ab hrekjast frá völdum hefur einungis yfir ab rába sjö þúsund mönnum, illa þjálfub-
um, auk þess sem vopn þeirra eru sögb úrelt brak.
Viöbrögö í Evrópu:
Carter hælt en Clinton ekki
Lundúnum - Reuter
Þótt lausn hafi veriö fundin á
Haítí-deilunni ábur en allt fór í
bál og brand er ekki þar meb
sagt ab Clinton Bandaríkjafor-
seti hafi þar meö aflað sér
trausts meöal bandamanna
sinna í Evrópu. Flestir líta svo á
ab þab sé snarræbi Jimmy Cart-
ers, fyrrum forseta Bandaríkj-
anna, aö þakka ab ekki varb af
innrás, en Clinton þykir nú
standa uppi sem ímynd hins
óreynda og hikandi stjórnmála-
leiðtoga. Því er haldið fram ab
Haítí-máliö sýni þab fyrst og
fremst hve Clinton á mikiö
ólært í utanríkismálum.
Stjómir NATO-ríkjanna hafa
fagnab þeirri lausn sem Carter
átti mestan þátt í og hæla hon-
um fyrir þolinmæði, útsjónar-
Óreiba í
öskubing
Brussel - Reuter
semi og skörungsskap í þessu
máli. Oneitanlega er þó viss
kaldhæðni í því fólgin ab
reynsluleysi og hik var einkum
það sem Carter var brugbið um í'
forsetatíb sinni og almælt var ab
einmitt þetta hefbi oröið hon-
um ab falli er hann leitabi eftir
endurkjöri áriö 1981.
Virtustu blöð í Evrópu ljúka
lofsorði á Carter fyrir fram-
göngu hans í Haítí-málinu.
Frankfurter Allgemeine segir ab
Carter hafi tekist það á tveimur
dögum sem Clinton og ráðgjöf-
um hans, sem alltof oft minni
helst á leikmenn, hafi ekki enst
tvö ár til að koma í kring.
Le Figaro segir ab Clinton hafi
verið það mest í mun aö sagan
frá Sómalíú í fyrra endurtæki sig
ekki, en blaðiö bendir á að enn
geti Bandaríkjastjórn lent í
verulegum vandræbum í Haítí,
um leið og minnt er á hiö forn-
kvebna ab leibin til glötunar sé
oftar en ekki vörbub góbum
ásetningi.
E1 pais segir aö Clinton geti
dregiö þann lærdóm af Haítí-
málinu aö hikib og tvístígand-
inn sem hafi sett mark sitt á öll
hans afskipti af utanríkismálum
síban hann tók við forsetaemb-
ættinu geri ekki annað en ab ala
á valdagræögi hvers konar ein-
ræöisafla.
í E1 Mundo kveður við annan
tón. Þar er Clinton hælt fyrir ab
hafa tekist ab ná fram lausn án
þess ab til innrásar kæmi. Bresk
blöb eru líka flest á þeirri skob-
un ab lausnin hafi fyrst og
fremst verið Clinton aö þakka,
um leið og bent er á að enn sé
langur vegur frá því að hættan á
Haítí sé liðin hjá. Enn kunni ab
koma til blóðsúthellinga og
mikiö starf sé framundan við að
koma á skipulegum stjórnar-
háttum og lýðræöi í landinu. ■
Þingkosningar í
Danmörku:
Vinstri flokkun-
um spáb sigri
Kaupmannahöfn - Reuter
Svo virbist sem helmingur
danskra kjósenda kæri sig koll-
óttan um þaö hvort sú stjórn
sem tekur viö aö loknum þing-
kosningunum í dag veröi meb
rauðum eða bláum stimpli. Við-
horfskönnun, þar sem spurt var
hvort menn teldu lífskjörum
sínum betur borgiö undir
vinstri eða hægri stjórn, bendir
til þess að 50% telji þab ekki
hafa úrslitaáhrif á lífskjörin
hvorn kostinn þeir kjósi. Gall-
up-könnun sem fram fór aö
loknum sjónvarpsumræðum
flokksleiðtoga á mánudags-
kvöld gefur til kynna 53.2%
fylgi við jafnaðarmenn og þá
vinstri flokka sem styðja stjórn
þeirra, á meðan 44.1% lýstu yfir
stuðningi við þá þrjá flokka sem
hafa myndað stjórnarandstöð-
una.
í sjónvarpsumræðunum skor-
aði Paul Nyrup Rasmussen á
kjósendur aö leyfa jafnaðar-
mönnum aö halda verki sínu
áfram og bæta lífskjör almenn-
ings í landinu. í umræðunum
bar mest á Uffe Elleman-Jensen
af hálfu stjórnarandstæbinga,
en hann sagði ab þótt jafnaðar-
menn hefðu nú efnt til átveislu
væri blákaldur veruleikinn sá aö
þjóbin þyrfti ab borga reikning-
inn.
Kosningafræöingar telja líklegt
að Rasmussen muni ekki eiga
um marga kosti ab velja eftir
kosningar. Þeir leiða rök að því
að hann muni mynda minni-
hlutastjórn, sem sennilega þurfi
að reiða sig á vinstri flokkana til
að halda völdum en sækja
stuðning til borgaralegu flokk-
anna til ab koma mikilvægum
efnahags- og utanríkismálum í
gegnum þingið.
Enginn danskur stjórnmála-
flokkur hefur náð meirihluta á
þingi síðan 1914. Löng hefð er
því fyrir málamiðlunarlausnum
á vettvangi stjórnmálanna en
þar hafa þrír miöjuflokkar löng-
um rábið úrslitum.
Á kjörskrá í samtals 103 kjör-
dæmum eru rétt tæpar 4 millj-
ónir Dana, en þingmenn á
danska þjóðþinginu eru 179 að
tölu.
Italía:
Fyrrum dómsmálaráðherra
handtekinn fyrir meint tengsl
Einkarekin bálfararstofnun í
Belgíu liggur undir grun um að
henda ekki reiður á jarðneskum
leifum þeirra sem fyrirtækið
tekur að sér að brenna, að því er
opinber saksóknari. í Brussel
upplýsti í dag. Rannsókn á
starfseminni hófst eftir að þrá-
látur orðrómur hafði verið á
kreiki alllengi og eftir að fyrr-
verandi starfsmaöur hjá bálfar-
arstofnuninni hafði létt á hjarta
sínu hjá lögreglunni.
„Það lítur út fyrir ab líkin séu
sett í ofnin eitt af öðru," segir
talsmaður saksóknarans í sam-
tali við fréttamann Reuters og
staðfestir að síðan sé öskunni
safnað saman og tekið af henni
af handahófi ábur en leifar séu
afhentar ættingjum eða fyrir-
tækjum sem annast útfarir. ■
Antonio Gava, fyrrum dóms-
málaráðherra og einn áhrifa-
mesti stjórnmálaráðherra á
Ítalíu, var handtekinn í gær,
grunaöur um tengsl við mafí-
una í Napólí. Lögreglan segir
að Gava, sem er 64 ára kristi-
legur demókrati, hafi veriö
sóttur í hús sitt í Róm fyrir sól-
arupprás og sé nú í haldi í her-
fangelsi þar í borg.
Með tilliti til glæpastarfsemi
gegndi Gava lykilhlutverki í
stjórn landsins á árunum
1988-91, en hann er áhrifa-
mestur þeirra stjórnmála-
manna sem hafa verið teknir
höndum í herferð þeirra sem
nú fara með völd í landinu
gegn spillingu og glæpum.
Tugir annarra manna sem til
skamms tíma höfðu mikil
völd í þjóðfélaginu hafa verið
handteknir. í þeim hópi er
fyrrverandi varaformaður
dómsmálanefndar ítalska
þingsins, sósíalistinn Raffaele
Mastrantuono, auk ýmissa
þekktra kaupsýslumanna og
meintra leiðtoga mafíunnar í
Napólí og nágrenni. í tilkynn-
ingu frá saksóknara í Napólí
segir að 98 handtökuskipanir
hafi verið gefnar út og and-
virði mörg hundruð milljóna
íslenskra króna hafi veriö gert
upptækt.
Þessi nýja sókn á hendur spill-
ingaröflum á Ítalíu kemur í
kjölfar vitnisburðar Alfieris
nokkurs sem um tíu ára skeiö
var óumdeildur leiðtogi Ca-
morra-deildar mafíunnar, en
áhrifasvæbi hennar er Napólí
og nágrenni. Alfieri var hand-
tekinn 1992 ásamt helsta
handbendi sínu, Gallasso að
nafni. Hvorugur hafði á sér
orð fyrir ab vera sómakær. í
mars sl. rauf Alfieri þagnarheit
mafíunnar og lét lögreglunni í
té ýmsar upplýsingar. Hann
kvað ástæðuna þá ab hann
vildi færast nær guði sínum.
Antonio Gava var ekki í fram-
boöi þegar kosið var til þings á
Ítalíu í vor, en margir líta svo á
að í þeim kosningum hafi ör-
lög gömlu flokkanna og spill-
ingaraflanna í landinu verið
ráðin. Annar fyrrverandi
stjórnmálaskörungur frá Na-
pólí, sem situr í fangelsi sakað-
ur um spillingu, er Francesco
De Lorenzo, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra. Gava var
dómsmálaráðherra í stjórn
Andreottis, sem varð sjö sinn-
um forsætisráðherra. Hann
hefur verib ákærður um aðild
að mafíunni á Sikiley. Úr-
skurðar um það hvort mál
hans kemur fyrir rétt er að
vænta í desember. ■