Tíminn - 12.11.1994, Side 2

Tíminn - 12.11.1994, Side 2
2 fffwswtu Laugardagur 12. nóvember 1994 Nýnasistar sœkja hugmyndir í Eddur og Eddukvœöi, eins og nasistar á fjóröa áratugnum, og grauta öllu saman — Rœtt viö Heimi Pálsson, sem tók þátt í pallborösumrœöum á bókamessunni í Gautaborg um áhrifskrifa Snorra á öfgahópa í Evrópu: „Lesa fombókmenntir okkar svona eins og fjandinn biblíuna" „Menn telja einhverja rök- studda ástæbu til þess ab þab geti gerst þab sama nú og á fjórba áratugnum subur í Evr- ópu, þegar nasistar nábu ab gera íslenskar fornbókmenntir eiginlega ab sínum bókum. Þeir settu bæbi mikib fé í rannsókn- ir á þeim og sinntu þeim langt umfram þab sem menn höfbu séb annars stabar. Þetta varb til þess ab þessar norrænu bók- menntir urbu hálfilla sébar á Norburlöndum, þab er ab segja áhuginn á íslenskum fornbók- menntum dvínabi verulega í Svíþjób og Danmörku. Menn litu á þær alla vega þannig ab þeim var ekki hampab sérstak- lega. Mönnum fannst þær verba hálfgerb biblía nasist- anna," sagbi Heimir Pálsson, magister, í samtali vib Tímann ígær. I síbasta mánuði tók Heimir Pálsson þátt í pallborösumræð- um á hinni miklu bókasýningu, Bok & bibliotek, sem fram fór í Gautaborg. Umræbuefnib var þjóöararfurinn okkar, íslenskar fornbókmenntir. Og út af því var spunnin upp spennandi fyrir- sögn, sem sé hvers vegna hinir al- ræmdu nýnasistar Evrópu, Skinn- höföar eöa Skallar, sæktu fyrir- myndir til íslensku fornbók- menntanna, einkanlega til Eddukvæða. Ekki varð annaö séö en að umræöurnar vektu almennan áhuga í Gautaborg, því talsvert á annað hundrað manns hlýddi á umræðurnar, sem stóbu í þrjá stundarfjórð- unga. Lars Lönnroth prófessor í Gautaborg, stýröi umræðunum, en auk Heimis tók þátt í þeim Kristinn Jóhannesson, lektor í Gautaborg. Nýnasistar og Óbinsblótsamfélög „Það er sama hvað okkur síðari tíma mönnum finnst um þessar bókmenntarannsóknir, sem fóru fram í Þýskalandi á fjórða ára- tugnum, sumt af þeim var ekki al- veg galið. En sumt er þannig að þab er lesið með hláturkrampa. Engu ab síður er þetta eitthvab sem mönnum finnst ástæða til að draga alvarlegan lærdóm af. Og þegar það gerist núna að þessir Skinnhöfðar suður um alla álfu, sem þykjast vera að stofna einhverskonar Óðinsblótsamfé- lög, þá leita þeir skiljanlega í Eddurnar til að finna sér ein- hverja texta sem þeir geta skoðað um þetta og lesa þetta svona dá- lítiö eins og fjandinn les biblíuna. Þeim er svosem nokkuð sama um hvað stendur þar, þeir eru fyrir- fram ákveðnir í hvað þeir ætla ab fá út úr því," sagði Heimir. „Skallarnir suður í Evrópu rugla saman öllu sem hægt er að rugla saman. Þeir hafa einhverjar óljós- ar heimildir frá rómverskum sagnariturum frá því fyrir Krists burb um hin germönsku blót, síð- an hafa þeir allskonar dularfullar sagnir og óskiljanlegar túlkanir á hellaristum um Óðinsdýrkunina. Þeir hafa sagnir um einhverskon- ar Óbinsvillimannaflokk, sem fer um og á sjálfsagt eitthvað skylt vib norrænu sagnirnar af ber- serkjunum. Síðan lesa þeir það sem sagt er um Óðin í Hávamál- um og Óðinskvæðunum í Eddu. Að lokum hræra þeir þessu öllu saman, líta á þetta allt eins og sambærilegar heimildir, sem er fullkomið rugl, því þetta er frá gjörólíkum menningarstigum og reyndar gjörólíkum þjóbum og Heimir Páisson. viö höfum ekkert leyfi til að draga almennt neinar línur þama á milli," sagbi Heimir. Helgidansinn kringum textann „Samræbur okkar þarna úti í Gautaborg snerust dálítið um þab hvernig er hægt að bregðast við þessu. Eg sagöi og segi enn að vib getum aldrei komið í veg fyrir það ab hópar af þessu tagi lesi þetta akkúrat eins og fjandinn biblíuna. Við útilokum aldrei slíkar rangtúlkanir og vitleysu, það þýðir ekkert að ætla sér það. En eitt getum viö gert, og vorum við allir sammála um það, og það er að reyna að vekja sem mesta at- hygli á því sem við teljum vera eiginlegt bókmenntagildi og menningargildi þessa texta. Koma þeim almennilega á fram- færi og annab þvíumlíkt. Ég gagnrýndi fræðimenn dálít- ið fyrir að í helgidansi sínum kringum textann stilli þeir sér dá- lítið á milli textans og lesend- anna, setji textann of mikið á stall, umgangist hann með óþarf- lega mikilli kurteisi. Nú lítum við gjaman svo á ab Eddukvæðin hafi verið einhverskonar alþýðu- kveðskapur á sínum tíma. Að minnsta kosti hafa þau varðveist í munnlegri geymd. Og þá vita all- ir ab á meðan eru þau að breytast með hliðsjón af því samfélagi sem þau em stödd í hverju sinni. Þetta heldur áfram þangað til þau eru fest á skinn, og þá er eins og textinn sé djúpfrystur, og þannig á hann aö vera," sagði Heimir Pálsson. Ný þý&ing fyrir hverja kynslób — nema ekki fyrir íslendinga Heimir segir að textafræðin hér á norðurslóöum undanfarna ára- tugi hafi einmitt einbeitt sér að því að reyna að draga fram eitthvab sem kalla mætti hinn upprunalega texta. En við þær aðstæður sé alltaf hætta á því ab einmitt sambandið milli textans og lesandans verði út- undan. „Við vorum að skemmta okkur við ab búa til einhver ágreinings- efni í umræðum okkar. Ég var að stríða þeim á þvi ab þar sem þeir Lars Lönnroth og Kristinn Jó- hannesson lektor ætla að fara ab vinna að nýrri sænskri útgáfu með nýjum sænskum þýðingum og segja að hver kynslób þurfi sína þýðingu á Eddu, þá segbu þeir um leið að hin íslenska út- gáfa eigi náttúrlega að vera helst sem allra nákvæmust eftirlíking af- skinninu, svo íslendingar mættu aldrei fá nýja texta, heldur ættu þeir að una við þab gamla. Eitthvað svona skæklatog kom upp í þessum umræðum okkar," sagbi Heimir. ■ ASI vill nýja skattastefnu: Aukna skatta á umhverfisþætti Alþýðusamband íslands telur naubsynlegt ab á tímum auk- ins atvinnuleysis verbi dregib úr skattlagningu á vinnu hvort sem er í formi tekju- skatts eba tryggingagjalds. Þess í stab verbi skattar á um- hverfisþætti auknir til ab draga úr mengun. í atvinnustefnu samtakanna til nýrrar aldar, sem kynnt var fyrir skömmu, kemur m.a. fram ab ASÍ telur nauösynlegt að end urskoba skattastefnu ríkisins fr; grunni meb það að markmiði ai ná betri auðlindanýtingu er verið hefur. Þá þarf að endur skoða og auka tekjujafnand áhrif skattkerfisins og stuðl; þannig að réttlátara kerfi. Síöas en ekki síst sé nauðsynlegt ai koma á fjármagnstekjuskatti, ei fjármagnstekjur eru í dag þv sem næst óskattlagðar. i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.