Tíminn - 12.11.1994, Síða 14

Tíminn - 12.11.1994, Síða 14
14 Laugardagur 12. nóvember 1994 Fréttir í vikulok Sjúkralibar í verkfall Heilsugæslukerfi borgarinnar er nánast lamab eftir aö verkfall sjúkraliða hófst á miönætti í fyrradag. Fjölmargir sjúklingar hafa veriö sendir heim af þessum sökum. Sjúkraliðar á höfuð- borgarsvæöinu telja sig hafa dregist aftur úr öörum stéttum heilbrigðiskerfisins og tilboð ríkissáttasemjara reyndist ekki vibunandi aö mati þeirra. Flest sveitarfélög hafna þátttöku í húsaleigubótakerfinu Mikill meirihluti sveitarfélaga landsins hefur hafnað þátttöku í húsaleigubótakerfi ríkisstjórnarinnar. Aöeins 25 sveitarfélög af 171 hafa tilkynnt aö bæturnar veröi greiddar samkvæmt ákvæöum félagsmálaráðuneytisins. Skuldasöfnun heimilanna eykst enn Skuldir heimilanna viö Iánakerfiö halda áfram að vaxa, aðal- lega vegna náms- og húsnæðislána en hlutur bankakerfisins í lántökum heimilanna hefur staðiö í stað. Frá árinu 1980 hafa skuldir heimilanna vaxiö úr 13% af landsframleiöslu í 64%. Þessi mikla eftirspurn hefur m.a. stuöiaö ab því háa vaxtastigi sem verið hefur frá því aö vextir voru gefnir frjálsir. Þetta kem- ur fram í haustskýrslu Seðlabanka íslands. Slæmt ástand í húsnæöismálum geöfatlaöra 38 geöfatlaöir íbúar Reykjavíkur eru nánast á götunni. Aukþess býr stór hluti fólks viö afar óörugga búsetu og sumir búa á gisti- heimilum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem birt var nýlega í félagsmálaráði borgarinnar. Meöalaldur þingmanna lækkar Sex úr hópi eldri þingmanna munu væntanlega hætta þingsetu næsta vor. Þetta veldur því aö meðalaldur þingmanna lækkar verulega þar sem yngra fólk kemur inn í staðinn og óttast eldri borgarar aö þörfum þeirra veröi síður sinnt vegna þessa. Máli Listahátíöar Hafnarfjaröar vís- aö til Ríkisskattstjóra Meintri óreiöu í rekstri Listahátíðar Hafnarfjaröar hf. verður ekki vísað til RLR en Ríkisskattstjóri mun skoða gögn og kanna hvort eðlilega hafi verið aö málum staðiö. Alheimsfundur á Þingvöllum áriö 2000? Komiö hefur upp sú hugmynd aö trúar- og þjóðarleiðtogar heimsins sameinist á alheimsfundi sem haldinn yröi á Þing- völlum áriö 2000. Þetta eru hugmyndir bandarísku alþjóöa- stofnunarinnar en tillaga hefur veriö borin fram á Alþingi um athugun þessa möguleika. Hætt viö skattlagningu blaöabarna Fjármálaráðherra, Friörik Sophusson, bobaði í vikunni aö blaöa- og merkjasala yröi skattlögö en líkur eru á aö hætt veröi viö þær hugmyndir eftir hávær mótmæli. Davíö Oddsson for- sætisrábherra greip inn í málið og veröur þaö endurskoðaö í kjölfariö. Forskot á jólavertíÖina Undirbúningur jóiavertíöarinnar er hafinn hjá kaupmönnum og eru nokkur brögö aö því að kaupmenn séu fárnir aö skreyta glugga sína og klæöa verslanir sínar jólaskrúöanum. Ólafur Skúlason biskup er óánægöur meö þetta fyrirkomulag og segist hafa talið að hann heföi gert samkomulag viö kaupmenn um aö þeir héldu aö sér höndum fram aö aðventu. Kaupmenn kannast ekki viö slíkt samkomulag. Snarpir skjálftar í Grindavík Nokkrir snarpir jaröskjálftar uröu í Grindavík abfaranótt fimmtudagsins. Styrkleiki þeirra var allt aö 3,4 á Richter og hrundu munir úr hillum en slys eöa tjón hlutust ekki af. Álpönnurnar frá Alpan hf. á Eyrarbakka hafa notib vinsœlda bœbi hér á landi og erlendis, en fyrirtœkib hefur keypt nýja vélasamstœbu, sem rafbrynjar potta og pönnur og gerir þær endingarbetri. Tímamynd Pjetur Alpan hf. á Eyrarbakka hefur fjárfest í nýrri sjálfvirkri rafbrynjunarsamstœbu: Rafbrynjun á pottum og pönnum hindrar tæringu álpönnunar Alpan hf. á Eyrarbakka hefur fest kaup á nýrri alsjálfvirkri samstæöu til rafbrynjunar á pottum og pönnum, sem kemur hingað til lands innan skamms, en fyrirtækið hefur þó þegar sett á markað hér á landi þessar framleiösluvörur. Fyrst um sinn veröa pottarnir og pönnurnar rafbrynjaðar hér á landi, eöa allt þar til nýja vélasamstæðan hef- ur verið tekin í notkun, en hún kostar um 20 milljónir króna. „Viö ákváöum, til aö bæöi gleðja okkur og landa okkar, að setja framleiösluna á innlenda markaöinn strax," segir Láms Elísson, framkvæmdastjóri Alp- an, en fyrirtækiö hefur um ára- bil framleitt álpönnur, sem hafa líkað mjög vel. Lárus segir aö í rúmt ár hafi Álverið hf. í Garöabæ séö um aö rafbrynja pönnur og potta á meban aöferöin hafi veriö í þró- un. Hann segir kostinn viö þess- ar nýju vörur vera aö ílátin, og þá sérstaklega þau sem ætluð eru til suðu, ekki tærast jafn- mikið, t.d. þegar ílátið er standa í nokkra daga meö söltum vökva. Viö þetta er hætta á aö álið undir húöinni tærist, en rafbrynjunin kemur í veg fyrir þaö. Lárus segir reynsluna af þessu mjög góba og vonum framar, og ekki síöri því sem gerist með sambærilegri aöferö, sem mikið er notuö erlendis. Hins vegar veröur kostnaöurinn mun minni, þegar sjálfvirka vélasam- stæban veröur tekin í notkun. Um 45 starfsmenn starfa hjá Alpan hf. og segir Lárus afkom- una hafa verið sæmilega. Fyrir- tækið hafi þó lent í því áriö 1991, aö senda frá sér pönnur sem reyndust gallaöar, en hrá- efni sem notað var í húöina reyndist gallaö. Hann segir þaö hafa verið mikið áfall, en nú sjái fyrir endann á því, þar sem ver- ið sé' að skipta afganginum af gölluöu framleiðslunni. Langstærstur hluti framleiösl- unnar fer á erlenda markaði eöa um 97,4%, og innanlandsmark- aður því ekki mikilvægur fyrir fyrirtækiö. Hins vegar hefur innanlandsmarkaður nýst fyrir- tækinu til þróunar og prófunar á framleiösluvörum og nefnir Lárus að veitingastaöir hafa ver- ið fengnir til Iiðs viö Alpan í þessum tilgangi. Hráefnis hefur aö mestu leyti veriö aflað er- lendis, en þó segir Lárus aö í auknum mæli hafi verið hægt að færa viðskiptin til innlendra aðila. Hann segir aö svo sé kom- iö að hráefniskaup erlendis frá hafi numið um 90 milljónum á síöasta ári, en velta fyrirtækisins hafi veriö 350 milljónir og því hafi innlend verðmætasköpun numiö um 260 milljónum króna. ■ íslenska einsöngslagiö: Þorsteinn Hannesson segir frá séra Bjarna Þorsteinssyni A morgun kl. 14 verður Þor- steinn Hannesson óperu- söngvari staddur í þjóölaga- stofu yfirlitssýningar Islenska einsöngslagsins í Geröubergi þar sem hann rabbar viö sýn- ingargesti um ævi og starf séra Bjama Þorsteinssonar, tónskálds og þjóölagasafnara. Séra Bjarni Þorsteinsson á Siglufiröi vann mikiö og merkt starf meö sölnun þjóð- laga í sveitum landsins á árun- um 1880-1905. Lengst af var hann prestur á Siglufirði og er hans oft getiö sem föbur Siglu- fjaröar. Sjálfur ólst Þorsteinn Hannesson upp á Siglufirði og haföi hann þá persónuleg Séra Bjarna Þorsteinsson. kynni af Bjarna Þorsteinssyni. í þjóblagastofu sýningarinnar má sjá íslensk þjóðlög Bjarna Þorsteinssonar og heimildir um söfnun hans, s.s. sýnishorn sem Benedikt á Auönum skráöi og sendi Bjarna 1899, ásamt at- hugasemdum Benedikts og svarbréfi Bjarna. Þjóðlagasafnið var gefið út á árunum 1906-09. Þaö var af- rakstur 25 ára starfs séra Bjarna Þorsteinssonar. íslensk þjóölög Bjarna Þorsteinssonar voru gef- in út af Carlsbergsjóðnum í Kaupmannahöfn, þar sem eng- inn útgefandi fékkst á íslandi, aö því er segir í frétt frá Geröu- bergi. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.