Tíminn - 12.11.1994, Qupperneq 16
Laugardagur 12. nóvember 1994
16
JÓNA RÚNA á mannlegum nótum:
Áreiti
Vissulega þykir okkur flestum
óþægilegt aö verða bitbein
hvers kyns áreitla. Flest áreiti er
óviðkunnanlegt, vegna þess að
á bak við hegðun og hátterni
áreitlanna er iöulega einhver
brotalöm, eins og t.d. skortur á
skilningi á þörfum og viðhorf-
um annarra. Þegar verið er að
hrella okkur á einhvern hátt
eigum viö venjulegast í vök að
verjast. Við sjáum ekki tilgang
meö hegðun áreitilsins og eig-
um því erfitt með að verjast
þeim óþægindum sem geta
komið upp í lífi okkar, ef við
lendum í því að aðrir eru að
svekkja okkur með til þess
gerðu áreiti og aðgerðum. Oft-
ast hvimleiðum og röngum.
Ertandi nærvera, sem er nei-
kvæð og ósæmileg, getur verið
óviöeigandi og óþægileg, eins
og dæmin hafa sannað. Engar
sýnilegar ástæður þurfa að vera
til staðar, þegar við verðum fyr-
ir því að aðrir amast við okkur.
Það er engu líkara en áreitlar
beri ekki skynbragö á hvernig
eölilegum samskiptamörkum á
að vtra háttað á milli manna. Ef
viö reynum aö finna út t.d.
hvers vegna við verðum fyrir
hrekkjum og skömm annarra að
ósekju, þá getum við átt í örð-
ugleikum með að átta okkur á
hvaða hvatir liggja á bak við
áreitið.
Engu líkara er þó, en að ein-
staka okkar verði hreinlega að
hrjá aðra til að fá notið sín og
við virðumst fá einhverja óskilj-
anlega ánægju út úr slíku fram-
ferði, þótt neikvætt sé og af-
vegaleitt. Staðreynd málsins er
þó sú, að það er afbrigðilegt að
hrella aðra og þaö eigum við öll
að vita. Ágætt er, að við eigum
sem jákvæðust samskipti hvert
við annað, þannig eigum við
þátt í því að skapa mannúðlegra
mannlíf. Best er, ef við gerum
ekki hvert öðru óbærilegt að
þrífast. Það er nefnilega vitað,
að meö öllu óþarfa áreiti getum
við stuðlað að því, að þeir sem
fyrir verða bugist og brotni sam-
an fyrir bragðið.
Sldlningsleysi er eitt af því
sem gerir það að verkum að
áreitlar eru öðrum óþægilegri,
einmitt vegna þess að þeir sök-
um vanþekkingar amast við
öðrum að ósekju. Ef við stönd-
um í þeim staðreyndarsporum að
skilja ekki til fulls viðhorf og
vilja annarra til lífsins, þýðir
það ekki að við getum leyft okk-
ur hvað sem er í samskiptum
við viðkomandi. Þau samskipti,
sem byggjast upp á því að við
getum ekki um frjálst höfuö
strokið, vegna þess að ófull-
komið fólk íþyngir okkur og
áreitir, eru náttúrlega röng og
þeim þarf aö breyta. Það, að
gera ýivert öðru gramt í geði
þegar færi gefst, er auðvitað
mjög slæmt samskiptasjónarmið
og því er mikilvægt að uppræta
vangæfa hegðun flestra áreitla.
Viö eigum að forðast aö láta
eins og það sé í lagi aö gera öðr-
um lífið óbærilegt með vanvirð-
andi framkomu og ósæmilegu
áreiti, sem þjónar engum sýni-
legum tilgangi, þó margir áreitl-
ar ástundi það og þyki það því
miður ávinningsvert. Best er, ef
við höfnum öllum heimskuleg-
um hrekkjum og ásækjum ekki
aðra að ósekju. Áreitlar eru óá-
hugaverðir og hljóta sem slíkir
að verða öllum til ama. ■
ö)
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að rába leikskólakennara eða annaö upp-
eldismenntab starfsfólk í störf í neöangreinda leik-
skóla:
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440
Leikgarbur v/Eggertsgötu, s. 19619
Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290
Ægisborg v/Ægisíbu, s. 14810
í 50% starf e.h.:
Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360
Lækjarborg v/Leirulæk, s. 686351
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskóla-
stjórar. '
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnu-
stabir.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
LAUSN A GATU NR. 42
mmm krossgatan nr. 43
E\R B 8 B / V 'A Cl K G
•MuMA F i / k y B B / fi T A
B f T / K L Æ j U R ri Ý nb’l A L
r J lo B U *iAA /V Æ G / MKt-nn n K T '0 Æ L
’æ \ Yl R 1 Æí G StJú fi K Æ K fi s T 1
WcMC j L Af 1 i’AK A U »«ii U T A /i B '0 K A £
iú A // A jArt M fi u L c.00 uROAfi. L á f KfAOÍk PÝk KPÍrf /1 Ý 5
í / A So«P K1tC6ik .S K Æ K H KÍAfSA Flfi S K L '0 Æ ‘‘jArf: Æ S H /
’Ci 1 — iTIKA ‘,r Æ K K A 'OCAíiO T Æ G L / £ i K T / £
..Æ j LÆ <*r.i*nA ro í\ A G A ÍKA6U6 Æ U e U G / iTTZt Æ £ /
Ítjzbt : ■ 8 K i StáSA k Æ :TfJ '0 TL ft Æ K A $ ftliS.I R
B Æ y 2 Æ H "V G G f !V:C, G Æ f AÍT
jfU Æ s AulA 'Æ (i Æ T/iO f u K 'b á r / ‘iL 'A 1
dl» L Æ s T A ««* £lA u '0 fi Æ H Æ G 4
‘U / j 0 'A T f Y L G S K / ú H A A