Tíminn - 05.01.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.01.1995, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 5. janúar 1995 i_____ wmtnu 7 Pétur Bjarnason, þingmaöur á Vestfjörbum: Tveir B-listar auka möguleika á 2 mönnum „Þeir, sem eru a& undirbúa frambob BB-lista Framsóknar á Vestfjör&um, telja einfaldlega a& fylgi flokksins sé í verulegri hættu meö þeirri rö&un sem nú blasir vi& á B- Iistanum. Þar sem í fyrsta lagi er óreynt fólk í öll- um sætum og í ö&ru lagi efsta sætib skipab manni sem ekki er Vestfir&ingur, hefur aldrei verib hér og þekkir lítib til mála hérna, a& okkar mati," sag&i Pétur Bjarnason, þingma&ur Vestfir&inga, sem afþakkab hef- ur 2. sæti á lista Framsóknar- flokksins í kosningunum í vor. Tíminn spurði Pétur um markmiðin með framboði BB- lista, sem nú er í undirbúningi — og hvort menn óttuöust ekki að atkvæði kynnu að dreifast svo að hvorugur B-list- inn næði kannski inn manni. „Með BB-lista teljum við okkur ná til framsóknar- manna allra, auk þess sem við Gunnlaugur gætum þá báðir náð eitthvað út fyrir flokkinn, þannig að við ættum verulega möguleika á að fá tvo menn á Vestfjörðum. En það teljum við útilokað með núverandi lista. Miðað við það fylgi, sem Framsóknarflokkurinn hefur átt hér alla tíð, og miðað við það að við náum til allra fram- sóknarmanna með þessu móti, þá tel ég hins vegar úti- lokað að skipting atkvæða yrði þannig að við misstum báða mennina." Pétur segist auk þess hafa fengið það staðfest hjá höf- undi kosningalaganna, að 1. maður tveggja lista ætti mun meiri möguleika á aö komast að heldur en 2. maður á ein- um lista. Ástæðan sé sú, að nú sé ekki lengur notuð deiling heldur svokölluð kjördæmis- tala, sem dregin er af fyrir Pétur Bjarnason. hvern mann umfram þann fyrsta. Pétur sagði ennþá óvíst hvernig stjórn Kjördæmisráðs- sambandsins muni taka áskor- un um að heimila BB-lista í kjördæminu. ■ Gunnlaugur M. Sigmundsson: Vilji menn fara í framboð, þá gera þeir það vitanlega C unnlaugur M. Sigmundsson. „Ég hef ekki trú á að það verði af neinu BB-framboði á Vest- fjörðum. En við búum vitan- lega í frjálsu landi, þannig að vilji menn fara í framboð, þá gera þeir það að sjálfsögðu," svaraði Gunnlaugur M. Sig- mundsson, spurður um af- stöðu til þeirrar hugmyndar að heimilað verði framboð BB- lista á Vestfjörðum, þar sem Pétur Bjarnason skipaði efsta sæti. Gunnlaugur, sem skipar efsta sæti á lista Framsóknarflokks- ins á Vestfjörðum, sagði það ákvörðun Kjördæmissam- bandsins hvort framboð BB- lista verður heimilað. Þannig að hann hefði raunar ekkert að segja um slíkar hugmyndir. ■ Ný lög um atvinnuréttlndl útlendinga frá öbrum en abildarríkjum EES: „Au-pair" þurfa at- vinnuleyfi Ný lög um atvinnuréttindi út- lendinga — annarra en ríkis- borgara í 16 a&ildarríkjum EES — tóku gildi um áramótin. Me&al hclstu breytinga er a& framvegis ver&ur greint á milli þriggja tegunda atvinnuleyfa: Tímabundib atvinnuleyfi er veitt atvinnurekanda til a& rá&a útlending í tilgreint starf um tiltekinn tíma. Obundib at- vinnuleyfi er veitt útlendingi til a& vinna á íslandi. Og at- vinnurekstrarleyfi veitir rétt til sjálfstæ&rar vinnu eöa stofnun- ar fyrirtækis. Erlendir námsmenn í íslensk- um skólum þurfa framvegis at- vinnuleyfi. Sömuleibis þarf sér- stakt leyfi til að ráða 17-30 ára einstaklinga í vist (au-pair) á ís- lensk heimili. Undanþágur frá kröfu um at- vinnuleyfi veröa: Annars vegar varanlegar undanþágur, t.d. fyrir EES-borgara og sendirá&sstarfs- menn. Og hins vegar verbur felld ni&ur atvinnuleyfisskylda fyrir: Vísinda- og fræöimenn, flesta listamenn, íþróttaþjálfara, blaða- og fréttamenn, ökumenn fólks- flutningabifreiða sem koma meö erlenda ferðamenn, og fleiri hópa sem starfa hérlendis fjórar vikur á ári eða skemur. Útlendingar með lögheimili á íslandi, sem vilja starfa sjálfstætt, skulu sækja um atvinnurekstr- arleyfi. ■ PRÓFNÁM - FRÍSTUNDANÁM Öldungadeild á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Fjölbreytt tungumálanám m.a. íslenska fyrir útlendinga, norðurlandamál, enska, franska, þýska, hollenska, spænska, ítalska, arabíska, japanska, rússneska, gríska og portúgalska. Verklegar greinar og myndlistarnámskeið teikning, málun, módelteikning, bókband, fatasaumur, skrautskrift, og margt fleira. Námsaðstoð fyrir skólafólk í stærðfræði, stafsetningu og fleiri fögum eftir þörfum. Kennsla fyrir börn í norsku, dönsku, sænsku og þýsku. Sérkennsla í lestri og skrift Ný námskeið: Glerskurður, stjörnuspeki, trúarbrögð heims, olíumálun og 100 stunda námskeið í svæðanuddi. Innritun í prófadeild fer fram 9. - 10. janúar 1995. Innritun í almenna fiokka fer fram 18. - 19- janúar 1995. Námsflokkar Reykjavíkur óska nemendum sínum gleðilegs árs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.