Tíminn - 05.01.1995, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.01.1995, Blaðsíða 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburl, og Subv.mib: Norban stormur og styttir smám saman upp. Fer ab lægja vestantil í kvöld. • Faxaflói, Breibafj., Faxafl.- og Breibafj.mib: N. stormur og él. Fer ab lægja í kvöld, fyrst vestantil. • Vestf., Strandir og Norburl. vestra, Vestfj.- og Norbv.mib: N. hvassvibri eba stormur. Eljagangur. • Norburl. eystra, Austurl. ab Glettingi, Norbaustur- og Austur- mib: A. og na. nvassvibri eba stormur og snjókoma. Norblægari er líb- ur á daginn. • Austf. og Austfj.mib: Norban hvassv. eba stormur og slyddu- eba snjóél síbdegis. • Subausturl. og Subausturmib: Allhvöss subaustanátt og skúrir í fyrstu. Snýst í norban storm eba rok síbdegis, fyrst vestantil, og styttir ab mestu upp. veikindaleyfi Ólafur G. Einarsson veitti skólastjóra Austurbæjarskóla, Alfreð Eyjólfssyni, veikinda- leyfi í gær, en Alfreð óskaði eftir að komast í leyfi þar sem hann þarf að fara í aðgerð á sjúkrahúsi. í fyrradag hafði Áslaug Brynj- ólfsdóttir fræðslustjóri veitt Al- freð tímabundið leyfi frá störf- um á meðan mál hans vegna stjórnunarúttektar fræðsluskrif- stofunnar á Austurbæjarskóla færi fram. í frétt frá menntamálaráðu- neytinu í gær kemur fram að ráðuneytið telur að fræðslu- stjórinn hafi ekki farið að lög- um um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þegar skólastjórinn var leystur frá störfum um stundarsakir. Ástæöan mun vera sú að ekki lá áður fyrir formleg áminnig til skólastjórans frá fræöslustjóra. í samtali við Tímann í gær sagð- ist fræðslustjóri helst ekki vilja tjá sig um þessa ákvörðun ráöu- neytisins fyrr en hún hafi heyrt eitthvað frá ráðuneytinu. Áð- spurð staðfesti hún að hafa ekki haft samráð við ráðuneytið um málsmeðferðina áður en hún tók á því, þar sem ekki hafi náðst í neinn þar í fyrradag þeg- ar hún reyndi að leita samráðs. Hún sagði hins vegar aö lög- fræðingur, sem hún leitabi til vegna málsins, hafi talið hana hafa heimild til að veita skóla- stjóranum leyfi með þessum hætti samkvæmt 44. gr. grunn- skólalaganna, sem segi eitthvað á þá leiö aö ef fræbslustjóri telji að aðgerðir í máli þoli enga bið geti hann tafarlaust gripið til ráðstafana til úrlausnar, en um meðferð slíkra mála fari að öbru leyti samkvæmt lögum. Áslaug lagði áherslu á ab hún teldi sig hafa verið að tryggja vinnufrið í skólanum þar sem vofað hafi yf- ir ab kennarar og starfsólk myndu ekki mæta til starfa eftir jólafríið. Hins vegar hafi hún ekki veriö aö leysa skólastjórann frá störfum eða dæma hann á einn eða annan hátt meb þessu, abeins ab gefa honum leyfi meban málið yrði kannað. Fræðslustjórinn sagðist hins vegar síður en svo ætla að setja sig upp á móti túlkun og niður- stöbu yfirboðara sinna. Aðspurb um hvort ekki hefði verið ebli- legra að hún veitti skólastjóran- um einfaldlega veikindaleyfi eins og ráðuneytið hafi nú gert kvaðst hún hafa rætt við. Alfreð um veikindi hans og hugsanlegt veikindaleyfi, en hún hafi ekki heimild til ab bjóða slíkt leyfi aö fyrra bragði, þab þyrfti að koma fram ósk um slíkt. ■ Hávertíö er nú hjá líkamsrœktarstöbvunum og öbrum þeim sem gefa sig út fyrir ab skipuleggja líkamsþjálf- un, þar sem landsmenn hafa lagst í samviskubit vegna mikils áts yfir jólin. jóna Dís var vib œfingar hjá World Class stöbinni í Reykjavík ígcer, en hún er einmitt ein af þeim sem æfir ab stabaldri og er því sú fyrirmynd sem nautnaseggirnir jólahaldsins horfa til og segja: „ Svona œtla ég ab gera." Vmamynd: cs Núverandi og fyrrverandi féiagsmálarábherra vegast á um toppscetib á lista krata í Reykjaneskjördœmi: Hafnfirskir kratar segja Guðmund Árna í sterkri stööu Þrír frambjóðendur Alþýbu- flokksins í prófkjöri, sem flokkurinn hefur bobab til í Reykjaneskjördæmi dagana 21. og 22. janúar, eru taldir eiga einhverja raunhæfa möguleika á efstu tveim sæt- um listans, og þá ef til vill þingsætum. Þetta eru þau Gubmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri, heil- brigbisrábherra og síðast fé- lagsmálaráðherra, Rannveig Gubmundsdóttir, félagsmála- ráðherra, og jafnvel Petrína Baldursdóttir. Stóri slagurinn stendur milli þeirra Rannveig- ar og Gubmundar Árna. Félag ísl. stórkaupmanna gekk formlega úr VSÍ um nýlibin áramót: VR fær starfsgreinasamning Félag íslenskra stórkaup- manna gekk formlega úr VSÍ um nýliöin áramót og ætlar ab standa sjálft að gerð næstu kjarasamninga við sína við- semjendur, sem flestir eru inn- an raba VR. Jafnframt hefur FÍS rábið til sín Baldvin Haf- steinsson lögfræbing til að sinna kjaramálum félagsins, en hann vann áður að þeim málaflokki hjá Verslunar- mannafélaginu. Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags ísl. stórkaupmanna, segir að félagið muni koma til móts MAL DAGSINS Alit lesenda Síðast var spurt: asi no/ V°r áramótaskaup ' RÚVfyndiö? Nú er spurt: Vœriþab rétt hjá kennurum aö fara í verkrall? Hringió og látið skoðun ykkar í Ijós. Mínútan kostar kr. 25.- SÍMI: 99 56 13 við kröfur VR hvað varðar gerð starfsgreina- og sérkjarasamn- inga eins og VR hefur lagt áherslu á. Hann segir aö stór- kaupmenn muni þó ekki eiga frumkvæbi að gerb næstu kjara- samninga, þótt þab standi fyrir utan heildarsamtök atvinnurek- enda. Formaður FÍS segir að úrsögn félagsins úr VSÍ sé í takt vib það sem hefur verið að gerast í þess- um efnum bæbi á Norðurlönd- unum og annarsstaðar í Evrópu. Hann segir að sérhæfing og verkaskipting séu þeir þættir sem þar séu efst á baugi og m.a. af þeim sökum hafi íslenskir stór- kaupmenn ákveðið ab gera slíkt hið sama. Abspurbur segir Birgir að brottför stórkaupmanna úr VSÍ hafi farið fram í mesta bróðerni en segir það einkamál félagsins og VSI hvaða áhrif úrsögnin hef- ur á fjárhag samtaka atvinnurek- enda. Ákvörðun um úrsögn úr VSÍ var tekin sl. sumar með 6 mánaða fyrirvara og kom því til framkvæmda um sl. helgi. ■ Tíminn ræddi við nokkra krata í kjördæminu í gær. Deild- ar meiningar eru greinilega um það hver styrkur frambjóðend- anna er. Hins vegar eru menn sammála um að engir „blokkar- smiðir" séu á kreiki og kannað- ist enginn við slíkar hugmyndir. „Ef menn ætla að búa til blokk, verður það að gerast þetta 3-4 dögum fyrir kjörið, eigi blokkin að halda," sagöi einn viðmælenda, en tók fram að slíkt kæmi naumast til greina í þessu prófkjöri. Samsæris- kenningar væri aðeins ab finna í blöðunum. í Hafnarfirbi sagbi viðmæl- andi okkar að Guðmundur Árni væri með „fullt hús" þar í bæ. Hann fengi rússneska kosningu í fyrsta sætið. „Athugaðu bara ab Hafnarfjörður skiptir sköp- um í kjördæminu og verður lík- lega með meira en 50% atkvæð- anna. Auk þess vitum við að Guðmundur nýtur góðs fylgis um allt kjördæmið. í síðasta prófkjöri í Hafnarfiröi mættu 3.200 til ab kjósa, — en flokkur- inn fékk enn meira í kosningun- um eba 3.800 atkvæöi. Þetta sýnir styrk okkar Hafnarfjarðar- krata," sagði vibmælandi okkar í gær. I bæjum nær höfuöborginni var annað að heyra. Menn sögbu að uppi væru verulega skiptar skoöanir innan flokksins um ágæti Guömundar Árna sem stjórnmálamanns. Menn höll- uðust víðast hvar að Rannveigu Guðmundsdóttur sem efsta manni á lista flokksins, ekki síst fólk handgengib flokksfor- manninum. „Það er sitthvað ab vera góöur bæjarstjóri og að vinna afrek í þjóömálapólitík. Það hefur sannast á Guðmundi Árna Stef- ánssyni," sagði einn þeirra sem rætt var við. Hann sagðist geta fullyrt að Guðmundur ætti ekki tryggðan einróma stuðning Hafnfirðinga í 1. sætið. „Rannveig er þessa stundina að skora mörk sem góður félags- málaráðherra. Það er tekið eftir henni, og hún mun uppskera eins og hún sáir til. Á Suðurnesj- um er í raun enginn sterkur frambjóðandi, og það er ljóst að suður frá mun fólk velja Rann- veigu efsta á lista, en hafna Guðmundi Árna í það sæti." í prófkjörinu 21. og 22. janú- ar næstkomandi eru eftirtalin í framboði: Elín Harðardóttir, húsmóðir og matsveinn, Hafn- arfirði; Garðar Smári Gunnars- son, verkstjóri, Hafnarfirði; Giz- ur Gottskálksson, læknir, Garðabæ; Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismabur, Hafnarfirði; Hrafnkell Óskars- son, læknir, Keflavík; Petrína Baldursdóttir, alþingismaður, Grindavík; og Rannveig Guð- mundsdóttir, félagsmálaráð- herra, Kópavogi. ■ TVOFALDUR 1. VINNINGUR Mál skólastjóra Austurbœjarskóla: Rábherra veitir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.