Tíminn - 05.01.1995, Blaðsíða 8
8
VuKiim
Fimmtudagur 5. janúar 1995
Fremur gott ástand í
efnahagsmálum
Tékklands dregur aö
sér innflytjendur, en
þeir sœta harönandi
viömóti af hálfu
stjórnvalda og al-
mennings
Af fyrrverandi fylgilöndum
Sovétríkjanna í austan-
verðri Mið- Evrópu og á
Balkanskaga er það víst án vafa
Tékkland sem stendur sig best í
efnahagsmálum. Á þeim vett-
vangi er gróska þarlendis og at-
vinnuleysi lítið, eftirspurnin á
vinnuafíi meira að segja sum-
staðar miklu meiri en framboð-
ið.
Þannig er það í Prag, höfuð-
borg Tékklands. Þar vantaði fyr-
ir fáeinum vikum menn í um
15.000 störf, en aöeins um 2000
manns voru á sama tíma skráðir
atvinnulausir þar í borg.
300.000 ólöglegir?
Mikil atvinna og á austurevr-
ópskan mælikvarða góð lífskjör
hafa leitt til þess ab til Tékk-
lands sækir fjöldi fólks, einkum
frá öðrum löndum fyrrverandi
austurblokkar. í sumar voru þar
um 35.000 vinnandi útlending-
ar með atvinnuleyfi, þar af um
13.500 Úkraínumenn. Þab segir
þó ekki alla sögu um þetta, því
að í landinu er fjöldi manns,
sem komist hefur inn í þab
ólöglega og/eða dvelst þar án
tilskilinna leyfa. Einhverjir sér-
fræbingar um þetta segja ab það
fólk sé vart færra en 300.000.
Einnig meðal þess eru Úkraínu-
menn fjölmennir, en í þeim
hópi er og margt Hvítrússa,
Rúmena, Víetnama og annarra.
Tékknesk stjórnvöld voru um
hríð umburðarlynd við ólög-
legu innflytjendurna, enda
töldu þau sig hafa þörf á miklu
af láglaunavinnuafli fyrir efna-
hagsundur sitt. En ét því er. nú
orðin breyting. Kemur ýmislegt
til, ekki síst að almenningur er
farinn að verða órólegur út af
vaxandi fjölda útlendinga í
landinu. Annað er að Þýskaland
stendur innflytjendum ekki al-
veg jafn opið og var. Fjölmargir
innflytjendur á leið þangaö fóru
gegnum Tékkland, en nú hefur
Tékkland með samningi við
Þýskaland samþykkt að þýsk yf-
irvöld sendi til Tékklands ólög-
lega innflytjendur, sem komi
þaðan til Þýskalands. Samning-
ur þessi mun hafa verið gerður
að frumkvæbi Þjóbverja og segir
þýskt blað þá hafa borgað Tékk-
um 60 milljónir marka fyrir að
gangast undir þetta.
Þetta þýbir að sumir innflytj-
endanna, sem ætluðu lengra
vestur, komast ekki lengra en til
Tékklands og verða þar um
kyrrt, því að flest virðast þeir
frekar vilja en að snúa aftur til
föburlanda sinna. Vera kann að
enn ein ástæða til vaxandi óróa
meðal Tékka út af innflytjend-
um sé að þeim lítist ekki á
„múltikúltúralisma" Vestur-
landa sem að öllu leyti gæfulegt
fordæmi.
Ungir Bandaríkja-
menn
Tékkneska útlendingalögregl-
an gerir nú meira ab því en var
„ Róttœkir" snobhöfbar á samkomu í Prerov á Maeri: 40% segja þá meina hlutina vel.
„Annars verðum við kaffærð"
Sígaunum ógnab í Pardubice í Bæheimi: Lýbveldisflokkur hefurþá á hornum sér ásamt meb gybingum og Þjób-
verjum.
til skamms tíma að leita ólög-
lega útlendinga uppi og er harb-
ari við þá en vaninn hefur verið
í Vestur-Evrópu. Hver sá útlend-
ingur, sem lögreglan stendur ab
því ab vera án tilskilinna papp-
íra, er umsvifalaust rekinn úr
landi. Þetta er skelfilegt í augum
þeirra ólöglegu. Meðal þeirra
eru t.d. Úkraínumenn með há-
skólamenntun, sem eru í bygg-
ingarvinnu sem ófaglærðir
verkamenn á meira en helmingi
lægri launum en tékkneskir
samverkamenn þeirra. En þeir
prísa sig sæla meb þau kjör,
mibað við þau sem bjóbast í
ættlandinu, og geta jafnvel sent
talsvert af peningum heim til
fjölskyldna sinna.
Einnig auka Tékkar gæslu á
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
landamærum sínum. Þá sam-
þykkti þing þeirra nýlega að
landamæravöröum skuli heim-
ilt að kanna hve mikib reiðufé
útlendingar, sem til landsins
koma, hafi með sér, og megi
vísa þeim frá hafi þeir ekki sem
svarar um 1300 ísl. krónum til
ráðstöfunar á dag, meðan þeir
dveljast í landinu. Þessi regla
gildir þó ekki enn fyrir vestur-
landamenn. „Við þurfum
strangari reglur, annars verðum
vib kaffærb," er haft eftir einum
fulltrúa tékkneskra yfirvalda.
Ergelsi Tékka út af útlending-
um er raunar ekki bundið við þá
sem að austan koma. Það nær
einnig til um 20.000 ungra
Bandaríkjamanna, sem starfa
þarlendis sem enskukennarar,
veitingaþjónar og pizzubakarar,
flestir ólöglega. Þessi innflytj-
endastraumur frá nýja heimin-
um til þess gamla mun að ein-
hverju leyti stafa af því, aö Prag
hefur eftir að járntjaldið féll
komist í tísku hjá bandarískum
æskulýð sem háborg glæstrar og
gamalgróinnar Mið-Evrópu-
menningar. „Þeir láta oft eins
og við ættum ab vera þakklát
fyrir að þeir auðsýni okkur þann
heiður að vinna hér," segir kona
ein í Prag um Bandaríkjamenn
þessa.
„Barnaskapur"
Meðal útlendinga í Tékklandi
og fólks, sem til þeirra er taliö,
eru um 10.000 Víetnamar (þar
af tæplega 400 með atvinnu-
leyfi), Slóvakar, sem frá því á
miðju ári 1994 geta ekki lengur
fengið tékkneskan ríkisborgara-
rétt fyrirhafnarlítiö og um
100.000 sígaunar (ágiskun).
Margir þeirra komu frá Slóvakíu
eftir formlegan skilnað hennar
við Tékkland 1. janúar 1993.
í Tékklandi sem víðar ber orð-
ið talsvert á þesskonar stjórn-
málahópum, sem gjarnan eru
kenndir við hægrikant og þríf-
ast einkum á óánægju, ótta og
óvild gagnvart innflytjendum.
Slíkir hópar tékkneskir fara ekki
leynt með sjálfa sig og áhuga-
mál sín, enda eru tékknesk yfir-
völd vægari við þá en vesturevr-
ópsk yfirvöld við hliðstæða
hópa hjá sér. Fimm snoðhöfðar
af því tagi kveiktu fyrir skömmu
í húsi í Jablonec nad Nisou þar
sem sígaunar bjuggu, og
brenndust tvær konur illa.
Rannsóknardómari, sem fékk
málið til meðferbar, lét sleppa
tilræðismönnunum, á þeim for-
sendum að þeir hefðu framiö
verknað sinn „af barnaskap".
Tékkar almennt virðast sam-
mála stjórnvöldum sínum um
aukinn strangleika gagnvart út-
lendingum/innflytjendum.
Margt snoðhöfða er í hópunum
á hægrikanti og eru þeir sagbir
fljótir til ógnana og ofbeldis,
einna helst gegn sígaunum.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar telja næstum
40% landsmanna ab snoðhöfö-
um þessum gangi gott til með
nýnefndri breytni sinni.
Einn sá helsti af nefndum
samtökum á hægri kanti er Lýð-
veldisflokkur svokallaður. For-
ingi hans er Miroslav nokkur
Sládek, vinur Vladímírs Zhír-
ínovskíjs í Rússlandi að sögn
eins blabs. í áróbri sínum vand-
ar Sládek öðrum þjóðum ekki
kveðjurnar og verða helst fyrir
því sígaunar, gyöingar og Þjóð-
verjar. ■