Tíminn - 05.01.1995, Page 9
Fimmtudagur 5. janúar 1995
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND .
Alain Juppé, forseti Evrópusambandsins, harborbur í garb Borisar Jeltsin:
Krefst samninga
í stab ofbeldis
París — Reuter
Franski utanríkisráðherrann og
settur forseti Evrópusambands-
ins, Alain Juppé, fordæmir að-
gerðir Rússa í Téténíu og hefur
hvatt aðildarríki Evrópusam-
bandsins til að láta Boris Jeltsin
standa skil á hernaðarumsvifun-
um í Grozny, höfuöborg Téténíu.
Juppé sagði í gær að Rússum
bæri að virða samkomulag al-
þjóðlegu ráðstefnunnar um ör-
yggis- og friðarmál, sem haldin
var í Búdapest í síðasta mánuði.
„Téténía er í raun innanríkis-
mál Rússlands, en í Búdapest var
samþykkt aö aðildarríki sam-
komúlagsins hefðu ákveðinn rétt
til að skipta sér af innanríkismál-
um annarra ríkja, ef svo bæri und-
ir," sagði Juppé, sem tók tíma-
bundið við forsetastöðu Evrópu-
bandalagsins 1. janúar sl. „Við
höfum rétt á að krefja Rússa svara
um aðgerðir þeirra," bætti hann
við.
Hundruð manna hafa látið lífiö
í umsátri rússneska hersins um
höfuborg Téténíu, Grozny. íbúar
Téténíu vilja losna undan yfirráð-
um Jeltsins og virðist baráttuþrek
þeirra mun meira en rússnesku
hermannanna, enda hafa þeir
veitt öfluga mótspyrnu. Jeltsin
hefur verið gagnrýndur bæði
heima fyrir og erlendis fyrir hern-
aðaraðgerðirnar og magnast þær
raddir sem krefjast þess að hann
dragi herafla sinn til baka. í fyrstu
þegar átökin hófust, fyrir rúmum
þremur vikum, töldu flest aðildar-
ríki Evrópusambandsins að um
innanríkismál væri að ræða, en
nú hefur þrýstingur aukist á Vest-
urlönd að láta málið til sín taka
og sá þrýstingur vex eftir því sem
fleiri láta lífið í hinum blóðugu
bardögum.
Juppé sagði ennfremur í gær að
þróunin í Rússlandi gæfi til
kynna að afturhaldssemi og harð-
línustefna færðist í vöxt og menn
væru uggandi yfir þeirri þróun.
„Rússar hafa sótt um inngöngu í
Evrópusambandið. Þeir njóta gíf-
urlegs fjárstuðnings erlendis frá,
og þeir verða að skilja að ef þeir
ætla að gerast aöilar að ESB, veröa
þeir að fara samningaleiðina, ekki
leið ofbeldis," sagöi Juppé.
Þá tóku danskir og sænskir for-
ustumenn í sama streng og Alain
Juppé í gær og hótuðu Danir m.a.
að hætta efnahagsaðstoö sinni
viö Rússa, ef þeir stöðvuðu ekki
blóöbaðið í Grozny. ■
Eldsvoði í flóttamanna-
búbum í Þýskalandi
Bonn — Reuter
Tvær stúlkur af serbneskum
uppruna, tveggja og fjögurra ára,
létust í eldsvoða á flóttamanna-
hæli í suðvesturhluta Þýskalands í
gær. Ekkert bendir enn til aö um
pólitískt hermdarverk hafi verið
að ræða, en þó er rannsókn ekki
lokið á eldsvoöanum.
Stúlkurnar tvær bjuggu með
foreldrum sínum á efstu hæö fjöl-
býlishúss í Wiesenthal, sem hýsir
flóttafólk frá Alsír, Sri Lanka og
fyrrum Júgóslavíu. Móðir þeirra
og systur voru einnig fluttar á
sjúkrahús.
Nýnasistar hafa síðastliöin 4 ár
ítrekaö beint spjótum sínum að
erlendu flóttafólki eftir samein-
ingu Þýskalands árið 1990. Talið
er að um ört vaxandi vandamál sé
að ræða, en yfirvöld segja að að-
eins mjög lítill hópur standi ab
baki þessum ofsóknum. ■
Fjöldamorbinginn Frederick West:
„Umhyggjusamur heimilisfabir"
Lundúnum — Reuter
„Sá Fred, sem við minn-
umst, var góður og umhyggju-
samur heimilisfaðir. Hann var
vinnufíkill og þetta líkist helst
Þrír lífstíöarfangar sluppu úr
hámarksöryggisgceslu. Bretar
cefir vegna ófremdarástands í
fangelsismálum:
Heimta af-
sögn innan-
ríkisráöherra
London — Reuter
Lögreglan leitaði í gær ab
þremur hættulegum föngum,
sem struku úr „hámarksöryggis-
gæslu" í Parkhurst- fangelsinu.
Þetta nýjasta klúöur hefur kallaf\
á hörð viðbrögð almennings,
enda örfáir dagar síðan dæmdum
fjöldamorðingja, Frederick West,
tókst ab hengja sig í klefa sínum.
Þremenningarnir afplánuðu
allir lífstíðardóm, tveir fyrir morð
og einn fyrir sprengjuárás. Allt
tiltækt lögreglulið var kallað til
leitarinnar og var m.a. notast við
þyrlur og sporhunda.
Verulega er farib ab hitna und-
ir breska innanríkisrábherranum,
Michael Howard, en hann hefur
tekið á sig ábyrgð á málunum
tveimur. Margir krefjast afsagnar
hans, en hann segist bíöa meb
ákvörbun uns rannsókn mál-
anna lýkur.
„Aubvitab geri ég mér grein
fyrir alvöru málsins, en vib verb-
um að reyna að finna nákvæm-
lega orsakirnar fyrir því að svona
atburður á sér stað og koma í veg
fyrir ab hann endurtaki sig,"
sagði Howard viö BBC í gær. ■
sögunni um Jekyll og Hyde,"
segir Christine, mágkona Fre-
dericks West, sem var ákæröur
fyrir morð á tólf konum, en
fannst hengdur í klefa sínum í
fangelsi í Birmingham á nýárs-
dag. Yfirheyrslur í málinu áttu
að hefjast í febrúar, en nú er
ljóst að Frederick West tekur
leyndarmál fortíðarinnar með
sér í gröfina, hvernig svo sem
hann endaði ævi sína. Enn
liggur ekki ljóst fyrir hvort
hann framdi sjálfsmorð eða
var drepinn af einhverjum
innan fangelsismúranna.
Hann var afar illa þokkaður
meðal annarra fanga og mörg
dæmi eru um að haft hafi ver-
ið í hótunum við hann.
Geölæknir, sem hefur tekib
þátt í rannsókn málsins, sagði
í vibtali við The Daily Tele-
graph að ekki væri ofmælt að
lýsa manninum sem óskapn-
abi, er lifað hafi lífinu utan
allra siðgæðismarka samfé-
lagsins, en furðu gegni hvern-
ig slíkum manni hafi þrátt fyr-
ir allt tekist ab láta líta svo út
sem hann væri ofurvenjuleg-
ur.
West var 52ja ára. Meðal
fórnarlamba hans voru, ab því
er talið er, fyrri kona hans og
tvær dætur, átta og sextán ára
að aldri. Seinni kona hans, Ro-
semary, er talin vera samsek
og átti hún að koma fyrir rétt-
inn ásamt manni sínum í
febrúar nk.
Reglulegir fundir
Borgarstjórnar Reykjavíkur
eru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur
fyrsta og þriðja fimmtudag
hvers mánaðar kl. 17:00.
Fundirnir eru opnir almenningi og
er þeim jafnframt útvarpað á
AÐALSTÖÐIININI FM 90.9.
Skrilstota
borgarstjóra
FJÖIBRAUTASXÚUNN
BREIÐHOUI
Kvöldskóli FB — matvælasviö
Á vörönn 1994 stendur þér til boða eftirfarandi nám í kvöld-
skóla FB — matvælasviði:
Grunnnám í matreiðslu og framreibslu — tveggja anna
nám.
Námib er metib sem 1. önn í Hótel- og veitingaskóla íslands.
Sjókokkanám — tveggja anna nám.
Námið veitir réttindi til starfa á fiski- og flutningaskipum minni
en 100 rúmlestir.
Matartæknanám — þriggja ára nám.
Námið býr nemendur undir störf í mötuneytum heilbrigbis-
stofnana.
Nánari upplýsingar veittar við innritun í Kvöldskóla FB 4., 5. og
7. janúar nk.
Skólameistari
RIÖLBRAUTASXÚUNN
BRE1ÐH0UI
Markvisst fjölmiölanám
Hvar: Fjölbrautarskólinn í Breibholti.
Hvenær: Á vorönn 1995, mánudaga og fimmtudaga kl. 21.10-
22.30 frá 9. janúar - 27. apríl.
Fyrir hvern: Nemendur þurfa að hafa haldgóða undirstöðu í ís-
lensku og ensku.
Nemendafjöldi er takmarkabur.
Efni: Farið verður yfir alla helstu þætti fjölmiblunar, s.s. sögu,
siðamál, lög og reglugerbir. Fjallab um dagblöb, tfmarit, sjón-
varp, útvarp, blaðaljósmyndir, umbrot o.fl. o.fl.
Raunhæf verkefni. Greinaskrif fyrir dagblöb. Fréttavinnsla fyrir
sjónvarp.
Umsjónarmabur: Sigursteinn Másson, fréttamabur Stöðvar 2
og Bylgjunnar. Fjöldi gestafyrirlesara.
Verð kr. 12.500 greiðist vib innritun.
Jólatrésskemmtun V.R.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jóla-
trésskemmtun fyrir börn félagsmanna, sunnu-
daginn 8. janúar n.k. kl. 16:00 á Hótel íslandi.
Mibaverb er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200,-
fyrir fullorbna. Mibar eru seldir á skrifstofu V.R.
í Húsi verslunarinnar, 8. hæb. Nánari upplýs-
ingar í síma félagsins, 568-7100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
TOLVUBOND
OG DISKLINGAR
VARÐVEITA
GÖGNIN
Lífstíðarábyrgð.
Útsölustaðir: Tölvu- og ritfangaverslanir.
ÁRVlK
ÁRMÚL11 • REYKJAVI'K • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295