Tíminn - 15.02.1995, Side 2
2
Uíœttm
Miövikudagur 15. febrúar 1995
Tíminn
spyr,..
Telurbu aö íslenskir stjórn-
málamenn njóti trausts
ungs fólks?
Arnar Jónasson, nemandi í
Menntaskólanum viö Sund:
„Já ég held þa& a& un,gt fólk
almennt treysti þeim. Eg held
hins vegar aö ungt fólk spái
ekkert vo&alega mikiö í þeim
málum og stjórnmálum al-
mennt, en ég held a& þeir sem
á annað borö setja sig inn í
það, treysti þeim."
Hrafnhildur Gísladóttir
nemandi í Menntaskólan-
um vi& Sund:
„Nei. Þeir gera svo margt í
hinu pólitíska lífi sem gerir
það a& verkum að þeir eru
ekki traustsins verðir."
Kjartan Nielson, nemandi í
Menntaskólanum viö Sund:
„Ég held ekki. Ég fylgist nú
reyndar ekkert alltof mikiö
meö stjórnmálum, svona yfir-
leitt. Hins vegar virka þeir nú
ekkert alltof traustvekjandi á
mig þegar ég sé og heyri í
þeim í fjölmi&lum, sérstak-
lega í útvarpi og sjónvarpi."
Ólafur Þ. Þórbarson kominn í slaginn meö nýja hjartaloku og 25 kílóum léttari.
Sérframboðið var best
úr því sem komið var
Ólafur Þ. Þóröarson kominn til starfa á ný. Tímamynd: cs
Ólafur Þ. Þór&arson er uppris-
inn og tekur sæti á Alþingi í dag
eftir aö hafa strítt viö veikindi
fyrir hjarta frá því í haust. Hann
leysir af Pétur Bjarnason, vara-
þingmann sinn, en Pétur hefur
ákve&iö a& fara í sérframboö
eftir a& hafa orbi& undir í próf-
kjöri á Vestfjör&um. Þar hafna&i
Gunnlaugur M. Sigmundsson í
fyrsta sæti, en Ólafur Þ. fer í
baráttusætiö. Hann telur þó sér-
frambob Péturs besta kostinn úr
því sem komiö er.
„Ég er búinn að fara í gegnum
þjálfunarprógramm, sem hófst á
Landsspítalanum og hélt síðan
áfram á Borgarspítalanum og í
Hveragerði," segir Ólafur Þ. Þórð-
arson. „Ég hef náð lygilegum ár-
angri aö mínu viti í að auka mitt
þrek. Ég hef mun meira en tvö-
faldað það frá því að ég kom úr
aðgerð."
Hjartalokan endist í
2000 ár
-Nú ert þú nýlega risinn upp úr
langri og erfiöri sjúkdómslegu. Hefur
mótlœtiö breytt þér á einhvem hátt?
„Þaö hefur kannski haft tvær
afgerandi afæiðingar. Annars veg-
ar er það, að mér er raun aö því
hversu margir tala illa um íslensk-
ar heilbrigðisstéttir. Viö eigum af-
burðafólk á því sviði. Þaö er ekk-
ert launungamál að ég á íslensk-
um læknum líf mitt aö launa.
Bjarni Torfason, skurölæknir á
Landsspítalanum, ákvað að reyna
á mér skurðaögerö við þær að-
stæður, að ég var orðina.mjög
þreklítill. Hann ásamt öðrum
skurðlækni, Kristnijóhannessyni,
leysti málið það snilldarlega að ég
er bara með stálslegiö hjarta þessa
stundina. Þaö er að segja aö í mig
er komin hjartaloka sem endist
sennilega í 2000 ár, ef með þyrfti.
Hitt atriöiö er það, að þetta er
harðasta megrunaraðferð sem til
er aö mínu viti. Ég er búinn aö
léttast um yfir 25 kíló. Það segir
manni kannski aö þaö sé nauö-
slynlegt að hafa einhvern forða
utaná sér áður en maður fer inn á
spítala, því þetta er varla nema
fyrir fullhrausta menn að vera
þarna inni þegar sjúkdómar herja
á þá."
-Mörgum kann að þykja það
nokkuð djarft að taka baráttusœti á
lista fyrir alþingiskosningar á Vest-
fjörðum undir þessum kringumstœð-
um?
„Ég er út af fyrir sig í góðu jafn-
vægi til þess að taka því sem aö
höndum ber í þeim kosningaslag
sem framundan er. Ég fór einu
sinni vestur gagngert með það
fyrir augum að vinna annað sæt-
iö, sem flokkurinn hafði átt og þá
var tapaö, og það vannst. Út af
fyrir sig væri mjög gaman aö geta
endurtekið það. Ég er ekki viss um
að svo verði. Þar verða örlög aö
ráöa.
Mér þótti þaö mjög miöur, að
Pétur Bjarnason, sem hlaut mjög
góða kosningu í pófkjöri í annaö
sætið, skyldi, að mínu viti í fljót-
ræði, hafna því sæti. Þab er nú
einu sinni svo að þaö er ekki gott
aö reikna pólitíkina út. í þeirri
stöðu, að Alþýðuflokkurinn er
klofinn í tvær fylkingar, eru miklu
meiri líkur á að ná þessu sæti
núna heldur en hefur veriö nokk-
un tíma áður.
Ég verö aftur á móti aö segja
það eins og er, aö úr því að búið er
að ala á óánægju allt frá því að
prófkjörið fór fram, og árangur
þeirrar iðju er að sumum fram-
sóknarmönnum hefur orðið það
heitt í hamsi að þeir munu trú-
lega ekki styðja flokkinn, þá tel ég
betra úr því sem komiö er, að Pét-
ur fari fram með lista. Ástæðan er
sú, aö það er þó skárra að þessir
menn kjósi Pétur og hann fái
einnig fylgi frá öðrum stjórn-
málaflokkum, sér í lagi frá sjálf-
stæöismönnum á sunnanverðum
Vestfjöröum. Þeir sem hafa glaðst
yfir því að Pétur hafi ákveðiö að
fara í framboð ættu að skoða
hvaðan líklegast er að hann taki
fylgiö."
Pétur tekur mest frá
Sjálfstæðisflokki
-Þú vilt meina að hann taki fylgi
ftá örðum en Framsóknarmönnum?
„Hann tekur að mínu viti mun
minna fylgi frá framsóknarmönn-
um heldur en frá sjálfstæðis-
mönnum. Ástæðurnar eru tvær.
Önnur er sú að það er mikil
óánægja á sunnanverðum Vest-
fjöröum meb framboð sjálfstæöis-
manna. Þeir líta svo á að það séu
fimm ísfirðingar — og þá kalla ég
menn ísfiröinga, hvort sem þeir
eru Norður-ísfirðingar eða Vestur-
ísfirðingar — í efstu sætunum.
Hin ástæðan er sú, ab sá maður,
sem átt hefur hvað mestan stuðn-
ing meðal sjómanna í röðum
sjálfstæðismanna, var færöur nið-
ur um eitt sæti eftir að hann hafði
fariö í gegnum prófkjör. Ég er al-
veg handviss um það, að sjálf-
stæðismenn skaða si§ á því. Með
allri viröingu fyrir Ólafi Hanni-
balssyni, þá er það nú einu sinni
svo aö sjómannastéttin er fjöl-
menn á Vestfjöröum, og sé
mönnum sýnd óvirðing sem að
hafa unniö að heilindum aö
hennar málefnum, þá taka vest-
firskir sjómenn því óstinnt."
Áróður á lágu plani
-Núverandi kvótakerfi, sem ekki
er vinsœlt á Vestfjörðum, hefur verið
eignað núverandi formanni Fram-
sóknarflokksins. Hver er staða
flokksins fyrir vestan?
„Staða Framsóknarflokksins er
sterk á Vestfjöröum. Núverandi
ríkisstjórn hefur skaðað atvinnu-
líf Vestfjarða svo mikiö, að þaö
þarf að fara aftur til þeirra tíma
þegar hruniö varð í lok Viöreisnar
til aö finna einhverja hliðstæbu.
Kvótakerfið er ekki vinsælt á
Vestfjörðum. Vissulega hefur þaö
verulega galla og ekki skynsam-
legt að mínu viti að festa það í
sessi meb því ab taka út m.a. end-
urskoðunarákvæði úr kvótalög-
unum. Hinu er ekki að leyna aö
það er ákaflega billeg lausn, að
styja kvótakerfið á Alþingi, eins
og Einar Kristinn Guðfinnsson
gerði, en ætla síðan að koma meb
einhverjar tillögur fyrir kosningar
sem honum er manna best ljóst
aö veröa aldrei samþykktar af
Sjáfstæðisflokknum. Sjávarútveg-
stillögur þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum eru í
reynd fyrst og fremst kosninga-
áróður á mjög lágu plani."
Hikubu ísfiröingar?
-Þetta er erfitt fyrirþig að þurfa að
berjast gegn þeim manni sem þú
vannst með fyrir síðustu kosningar?
„Menn hefðu gjanan vilja kom-
ast hjá því aö lenda í þessari aö-
stöðu. Hinu er ekki aö leyna, að
eftir að Pétur var búinn að hafna
öðru sætinu í vitna viðurvist, þá
var nokkur vandi á höndum.
Menn á Vestfjörðum, sem höföu
spurnir af því aö mér heföi batnað
hraöar«n búist var við, leituðu til
mín og báöu mig að taka annað
sætið. Ég met marga þessa menn
mikils og svaraði því til að ef þeir
héldu aö þetta yröi til sátta meöal
framsóknarmanna á Vestfjöröum
myndi ég gefa kost á mér."
-Hvor ykkar hefur meira persónu-
fylgi, þú eða Pétur Bjarason?
„Því er erfitt að svara. Niður-
stööur þeirra kosninga sem nú
fara í hönd munu í reynd byggj-
ast á þessu. Á vissan hátt er mitt
eigiö persónufylgi þekktari stærö
fyrir mig og þægilegra að svara
fyrir þaö heldur en hvert persónu-
fylgi Pétur Bjaranson muni hafa. í
því prófkjöri sem fór fram á Vest-
fjöröum kom eitt mér meira á
óvart en nokkuð annaö og þaö
var hversu lítil þátttakan var á Isa-
firöi. Ég gat ekki skilið þaö á ann-
an veg en þann, ab þessi mikli
munur á stuðningi flokksins í
sveitarstjórnarkosningum og
þátttökunnar í prófkjörinu hafi
verið af hálfu ísfiröinga nokkurt
hik um að meta þaö hvorn þeir
vildu heldur, Gunnlaug Sig-
mundsson eða Pétur Bjarnason."