Tíminn - 15.02.1995, Síða 6
Wamnu
Mi&vikudagur 15. febrúar 1995
Hilmar Jónsson, einn frumherjanna í Þjóövaka, yfirgefur flokkinn meö látum. Suöurnesjamenn
sœtta sig ekki viö Ágúst í efsta sœti og saka hann um yfirgang. Hilmar:
Sorgarsaga Jóhönnu — búin
ab missa stjóm á Þjóðvaka
„Frá mínum bæjardyrum séb
er þetta mikil harmsaga fyrir
Jóhönnu Sigurbardóttur. Ég
fæ ekki séð annab en aö hún
sé búin ab missa tökin á
Þjóðvaka. Völdin eru komin
í hendur Kolkrabbanum eins
og annab, altjent sé ég ekki
annað. Enginn, sem fylgst
hefur meb málunum og
unniö ab þeim, botnar í því
hvers vegna hún afhendir
hreyfinguna þessum
manni," sagbi Hilmar Jóns-
son, rithöfundur í Keflavík, í
samtali vib Tímann í gær.
Hann starfabi í undirbún-
ingsnefnd fyrir landsfund
hreyfingar sem kennd var
vib grasrótina. Hilmar telur
ab í þab minnsta 20 manns í
Reykjavík og á Reykjanesi
yfirgefi Þjóbvaka vegna
meints yfirgangs Ágústar
Einarssonar.
Hilmar yfirgaf Þjóbvaka með
látum um helgina, þegar ljóst
var að Ágúst Einarsson pró-
fessor, eigandi stórfyrirtækja í
sjávarútvegi, mundi leiða
framboðslista Þjóbvaka í
Reykjaneskjördæmi.
„Strax og Jóhanna fór aö
taka þennan mann meb sér út
á land, fundum vib ab þab fór
að fjara undan okkur. Þegar
hann er orðinn ritari, þá telur
hann ab hann eigi ab móta
lögin eftir sínu höfði," sagði
Hilmar Jónsson í gær.
Ástæban fyrir brotthvarfi
sínu úr Þjóðvaka segir Hilmar
þá ab hann sé ósáttur við sjáv-
arútvegsstefnu Ágústar Einars-
sonar. Fjölmargir Suðurnesja-
búar séu sama sinnis og hann
og telji sig ekki eiga samleið
með Þjóðvaka.
Á föstudaginn héldu þrír fé-
lagar í Þjóövaka kynningar-
fund á Suburnesjum, sem um
60 manns sóttu. Uppistaðan
var krókaleyfismenn, sem
greinilega studdu Kristján Pét-
ursson, fyrrverandi yfirtoll-
vörö, sem barist hefur hat-
rammlega fyrir málefnum
krókaleyfismanna. Ágúst Ein-
arsson sat fundinn og þar fauk
heldur í hann.
Hilmar segir að á laugardag
um klukkan tvö hafi veriö
hringt í hann og honum sagt
af kunningja sínum ab mæta
strax í Hafnarfirði. Þab eigi ab
ganga frá listanum. Þetta kom
Hilmar jónsson.
Hilmari á óvart.
„Ég hafði nú verið á fundi
meb Ágústi kvöldið áður, en
ekki hafði hann neina ástæðu
til að boba mig, enda var ég
ekki stuöningsmaður hans. Ég
fór inneftir og þar var fá-
menni, eitthvað kringum tutt-
ugu manns. Ágúst sat þar í for-
sæti og stýrði fundi. Hann tal-
abi fyrir hönd uppstillingar-
nefndar sem hann hafbi setib
Töluverö andstaöa viö framkomnar tillögur Vegageröar aö hœtta viö aö
byggja ferjubryggjur viö Djúp og leigja Fagranesiö í önnur verkefni:
A skjön viö fyrri sam-
þykktir Alþingis
„Ég hef alltaf sagt ab mibað
vib abstæbur þá verbi þessar
ferjubryggjur ab koma og síb-
an verbi unnib jöfnum hönd-
um ab uppbyggingu Djúpveg-
arins. í ööru lagi er þab örygg-
isþátturinn, sem vib horfbum
uppá í vetur og einnig í fyrra,"
segir Jóna Valgerbur Kristjáns-
dóttir þingkona Kvennalista á
Vestfjörbum, sem situr í sam-
göngunefnd Alþingis.
Töluverb andstaöa er á norb-
anverðum Vestfjörðum vib
framkomnar tillögur sem vega-
málastjóri ab höfðu samrábi viö
samgöngurábherra hefur kynnt
í samgöngunefnd þingsins, þess
efnis aö hætt verbi við byggingu
ekjubryggja vib ísafjarðardjúp
og Fagranesib verbi leigt Slysa-
varnaskóla sjómanna. Þar er
einnig lagt til aö 30 ára gamall
bátur, gamla Fagranesib, verbi
notaður til aö þjónusta íbúa vib
Djúp. Á móti er lagt til aukib
framlag til uppbyggingar Djúp-
vegarins, eöa 300-350 miljónir
króna á ári næstu fjögur árin. En
talib er að uppbygging vegarins
muni kosta 1,2 miljarða króna
og veröi ekki lokið fyrr en eftir
12 ár.
Athygli vekur ab þessi tillaga
er lögö fram í samgöngunefnd-
inni rúmu ári eftir afgreibslu
vegalaga þar sem gerb var sér-
stök samþykkt um Djúpferjuna.
í þeirri samþykkt var kveöið sér-
staklega á um byggingu ferju-
bryggja vib Djúp, sem áætlaö er
ab muni kosti um 60 miljónir
króna. í sam-
þykktinni er
gert ráb fyrir
því ab fjár-
magna eigi
b y g g i n g u
ferjubryggj-
anna að einum
þribja af vega-
áætlun, hafna-
áætlun og ein-
um þriöja af fjárlögurm
Jóna Valgerbur segir að í fyrra-
sumar hefbi verib unnið aö
þessari áætlun og m.a. fór
Hafnamálastofnun ab kanna
aðstæbur og teikna bryggjur á
viðkomandi stöðum. Það var
svo tilbúið í ágúst-september í
fyrra, en síöan þá hefur ekkert
gerst í málinu. Hún vekur jafn-
jóna Valgerbur
Kristjánsdóttir.
framt athygli á því aö fyrirhug-
ub breyting á gamla Fagranes-
inu er talin kosta um 80 miljón-
ir króna.
í síðustu viku ítrekabi bæjar-
stjórn ísafjarðar samþykkt sína
frá því í fyrra með öllum greidd-
um atkvæðum, ab staöið veröi
við fyrri áform um byggingu
ekjubryggja viö Djúp. Sömu-
leibis samþykktu Alþýðuflokks-
félögin á norðanverbum Vest-
fjörbum og sveitarstjórnarfull-
trúar þeirra ályktun í síbustu
viku þar sem skorað er á Sighvat
Björgvinsson, ibnaðar- og vib-
skiptaráðherra, ab beita sér fyrir
því aö ferjubryggjumar veröi
byggöar og bílferjan Fagranesið
veröi áfram staðsett á ísafiröi.
í. Ágúst stillti sjálfum sér í
efsta sætib, kennara úr Hafn-
arfirði, Lilju Gubmundsdótt-
ur, í annað sæti, bróbir hennar
var í uppstillingarnefnd. í
þriðja sætið setti hann skóla-
bróður sinn, Gubmund Ólafs-
son, sem enginn þekkti haus
né sporö á, en hafði verið í
uppstillingarnefndinni. í
fjórba sætið kom þó Suður-
nesjamaður, Jörundur Guð-
mundsson, þekktur skemmti-
kraftur, búsettur í Vogunum.
Viöbrögðin voru nú vægt sagt
dræm við þessari uppstillingu.
Kristján Pétursson var settur í
6. sæti listans. Það var eins og
að nefna djöfulinn sjálfan ab
nefna nafn Kristjáns vib þá
Ágúst og Gubmund, sem fór
mikinn á þessum fundi," sagbi
Hilmar.
„Síban var gert hlé á fundin-
um, aballega til ab róa taugar
fundarstjóra sem virtust mjög
úr iagi gengnar. Síðan var sett-
ur fundur og þá kom Ágúst
meb tillögu um ab þab yrbi
gengib frá fyrsta og öbru sæti
listans. Kristján Pétursson
kom strax meb breytingartil-
lögu um að allur listinn yrbi til
endurskobunar, enda höfbu
flestir litib svo á ab þetta væru
bara tillögur til umfjöllunar,
vildu að fleiri en 20 manna
hópur afgreiddi listann, víb-
tæk könnun væri gerð á upp-
stillingunni. En þab var nú
ekki abferb Ágústar. Þessi til-
laga var felld meb 12 atkvæb-
um gegn 6.
Þá kom tillaga prófessorsins
um sig í fyrsta sætib. Ég stakk
þá upp á Jóni Sæmundi Sigur-
jónssyni, sem ég áleit ab hefbi
miklu víbtækari stubning til
ab leiba listann en Ágúst. Jón
kom seint á fundinn, og neit-
abi ekki ab vera í kjöri. Ágúst
fékk 12, en Jón Sæmundur 6
atkvæði.
Einn mabur sagbi sig úr
flokknum þarna á fundinum,
trúnabarmabur starfsfólks í
Straumsvík. Hann hafbi lesib
Ágústi pistilinn í lokin. Síban
gerbist þab ab haldinn var
stjórnar- og mibstjórnarfund-
ur á sunnudag og þar var sjáv-
arútvegsstefnunni frestab
fram yfir kosningar. Á mánu-
dag var ég búinn ab gera þab
upp vib mig ab í þessi samtök
hefbi ég akkúrat ekkert ab
gera," sagbi Hilmar Jónsson,
rithöfundur í Keflavík, og spá-
ir hruni Þjóbvaka í komandi
kosningum. ■
/ón Sœmundur gafekki kost á
sér til framboös hjá Þjóbvaka
á Reykjanesi, en þriöjungur
uppstillingarnefndar gaf hon-
um samt atkvœbi sitt í efsta
sœti listans:
„Allir vissu
ab ég var
ekki í 1~x’*í"
„Þab var öllum ljóst á fundin-
um aö ég vildi ekki gefa kost á
mér á listann á Reykjanesi,"
sagbi Jón Sæmundur Sigur-
jónsson, deildarstjóri í heil-
brigbisrábuneytinu, í samtali
viö Tímann. Þrátt fyrir þab
fékk hann þriöjung atkvæba
hjá uppstillingarnefnd Þjób-
vaka í Reykjaneskjördæmi í
efsta sætib.
í sjónvarpinu um helgina var
frá því greint aö Jón Sæmundur
hefbi farib halloka í atkvæða-
greibslu og tapab illilega fyrir
Ágústi Einarssyni.
Jón Sæmundur sagbi ab hann
hefbi komib inn á uppstilling-
arfund sem þá stób yfir á kosn-
ingaskrifstofu Þjóbvaka í Hafn-
arfirbi, seinni partinn á laugar-
dag. Hann segir ab þar hafi ver-
ib upplýst ab hann ætlabi sér
ekki fram á Reykjanesi.
„Síban þegar farib er í at-
kvæbagreibslu um fyrsta sætib,
kemur fram tillaga um mig ab
mér forspurbum. Ég horfi á
þetta í undrun, því allir sem ég
ræddi vib í pásunni voru ab
segja ab þab væri leitt ab ég
vildi ekki vera meb, þannig ab
þab var öllum ljóst hver minn
vilji var. Sjálfum fannst mér
sjálfsagt mál ab Ágúst Einars-
son fengi stubning í efsta sætib.
Niburstaban var svo sú ab Ág-
úst hlaut stubning 12 manns,
en ég fékk 6 atkvæbi og greiddi
ekki atkvæbi sjálfur. Þab fannst
mér hin ágætasta niburstaba.
Þessi frétt af fundinum í sjón-
varpinu um ab ég hefði tapab í
æsilegri atkvæbagreibslu meb
2/3 atkvæba, þar sem atkvæbi
féllu 12:6, sérstaklega þar sem
ég var ekkert inni í myndinni,
var aubvitað hin furbulegasta.
Ég var ekki á höttunum eftir
neinu sæti," sagbi Jón Sæ-
mundur.
Skýringin á þessu óvænta
gengi Jóns Sæmundar, sem ætl-
aði sér ekki fram, mun vera sú
að fulltrúar Suburnesja eiga í
sjávarútvegsdeilu vib Ágúst
Einarsson innan Þjóðvaka og
geta þeir meb engu móti fellt
sig vib hann sem alþingismann
sinn. Þarna er á ferbinni bull-
andi ágreiningur, sem erfibleik-
um kann ab valda fyrir hib nýja
stjórnmálaafl. Atkvæbi þeirra
Þjóbvakamanna af Suburnesj-
um og reyndar víbar, gefin Jóni
Sæmundi, sem var alls ekki í
frambobi, lýsa því ágreiningi
sem getur orbib Þjóbvakanum
dýr í Reykjaneskjördæmi. ■
Össur segir Alþýöuflokkinn aö rísa upp úr öskustó skoöanakannana. Össur:
Stefnt á þrjá menn á þing
„Fyrir einungis örfáum vikum
var útlitib dökkt fyrir Alþýbu-
flokkinn. Skobanakannanir
gáfu til kynna nánast hrun í
Reykjavík, vib vorum í 2 til 3
prósentum. Síbustu tvær kann-
anir sýna ab vib erum í stór-
sókn, erum komin í 10-12 pró-
sent hérna í Reykjavík. Þetta er
þrumusókn. Bæbi þessi sterki
listi sem vib teflum fram og
aukaflokksþingib, sem vakti
athygli fyrir róttækar hug-
myndir, sýna þab baráttuþrek
og hugmyndalegan þrótt sem
ég tel ab Álþýbuflokkurinn búi
yfir umfram abra flokka,"
sagbi Össur Skarphébinsson,
umhverfisrábherra og annar
mabur á lista Alþýbuflokksins í
Reykjavík.
„Á listanum okkar eru fjórir ný-
ir meðal sex efstu. Ég tel þab mik-
inn styrk ab fá Ástu B. Þorsteins-
dóttur hjúkrunarfræðing til liös
vib okkur í þribja sætiö. Það væri
mikill styrkur fýrir þingið að fá
manneskju með slíka yfirburða-
þekkingu á sínum málaflokki til
starfa."
Össur sagði að flokkurinn legði
áherslu á verkalýðsmálin, fjórir
verkalýðsleiðtogar eru á listanum;
einnig velferðarmálin, þrátt fyrir
brotthvarf Jóhönnu. Og málefni
ungs fólks sem áberandi væri á
listanum, meöal annars fulltrúa
beggja fylkinga í Háskólanum,
Röskvu og Vöku, sem sitja hlið
við hlið í 4. og 5. sæti listans.
„Við stefnum á þrjá menn inn á
þing," sagði Össur.
Meðal þekktra nafna úr þjóðfé-
laginu, sem ekki hafa til þessa ver-
ib vibruð við pólitík, eru þessi:
Einar S. Einarsson, framkvæmda-
stjóri VISA- ísland, Hallgrímur
Helgason, rithöfundur, Signý Sæ-
mundsdóttir, óperusöngkona,
Kristjana Geirsdóttir, veitinga-
maður, og Viggó Sigurðsson,
handboltakappi og þjálfari.
Listinn í heild verður birtur í
Tímanum næstu daga, eins og
aðrir framboðslistar eftir því sem
þeir berast. ■