Tíminn - 15.02.1995, Page 11
Mi&vikudagur 15. febrúar 1995
Wfímiritu
11
Lárus Hall Alexandersson
Ytri-Fagradal
Fæddur 2. febrúar 1897
Dáinn 6. febrúar 1995
Fannbreiöan hylur dalinn.
Það er vetrarkvöld, tiltölulega
kyrrt eftir stormasama tíö að
undanförnu. Kyndilmessan er
nýliöin, dimm og sólarlaus, og
samkvæmt þjóötrúnni ættum
viö ekki aö þurfa aö vænta mik-
illa snjóa á næstunni. Skyldi
þaö rætast?
Eg sit viö sjónvarpiö og er aö
horfa á síðustu fréttir dagsins.
Þá hringir síminn. Hún Halla
frænka mín í Fagradal er í sím-
anum og segir: „Hann gamli afi
minn var aö kveðja." Svo einfalt
var þaö. Og þótt engum ætti aö
koma á óvart að maður sem á
skammt eftir í hundrað árin
skuii segja skiliö viö þetta jarðlíf
og kveðja, þá er eins og maöur
sé aldrei viðbúinn aö fá þessa
frétt. Allt mitt líf hefur Lárus í
Fagradal veriö hluti af tilver-
unni, og nú hefur hann kvatt.
Lárus var fæddur á kyndil-
messu, 2. febrúar áriö 1897, og
var því nýlega orðinn 98 ára
þegar hann lést.
Foreldrar hans voru Alexand-
er Loftsson frá Víghólsstöðum á
Fellsströnd og Jófríöur Jónsdótt-
ir frá Hlein í Eyrarsveit.
Lárus fæddist í Arney, en árið
sem hann fæddist fluttu foreldr-
ar hans aö Frakkanesi og bjuggu
þar í 14 ár. en voru síðan á ýms-
um stööum á Skarösströnd.
Hann fór ungur úr föðurhúsum,
og 14 ára að aldri fór hann í
vinnumennsku og var á ýmsum
t MINNING
bæjum, aðallega á Skarösströnd.
Aö þeirra tíma hætti var hann
sendur til sjós og réri m.a. úr
Bjarneyjum. Þaðan var mikið
útræöi nokkuð fram á þessa öld,
en nú er þar allt í auðn eins og í
mörgum öðrum Breiðafjarðar-
eyjum, sem mörgum stöðum
fremur vom foröabúr þessara
byggðarlaga. Lárus var eftirsótt-
ur til vinnu, því hann var af-
burða verkmaður og ósérhlíf-
inn, hafði enda snemma vanist
vinnu, og allt sitt líf var hann sí-
vinnandi, gat einhvernveginn
ekki unað sér öðruvísi, og hans
kynslóð, sem fæddist fyrir og
um síðustu aldamót varð fyrst
og fremst að treysta á sig, atorku
sína og fyrirhyggju til að yfir-
stíga þá erfiðleika sem jafnan
mættu fólki þá í erfiöri lífsbar-
áttu, og það fer ekki hjá því, að
slík barátta móti fólk til lengri
tíma.
Árið 1924 flyst hingað að
Innri- Fagradal fjölskylda norð-
an úr Bjarnarfirði. Þetta var fað-
ir minn, systkini hans og for-
eldrar. Tveimur árum síöar gift-
ast þau Lárus og Borghildur föð-
ursystir mín, Guðjónsdóttir, og
hefja búskap í Ytri-Fagradal, þar
sem þau bjuggu allan sinn bú-
skap, fyrst ein en síðan í sam-
býli meö Steinólfi, syni þeirra,
og hans fjölskyldu.
Þau Borghildur og Lárus eign-
uðust þrjú börn:
1. Steinólfur, sem býr í Ytri-
Fagradal. Kona hans er Hrefna
Ólafsdóttir frá Hamri í Hamars-
firði. Þau eiga fjögur börn: Ólöf
Þóra, býr í Reykjavík, Sesselja,
býr á Höfn í Hornafirði, Halla
Sigríður, býr í Ytri-Fagradal, og
Stefán Skafti, einnig til heimilis
í Ytri- Fagradal.
2. Alda, sem búsett er í
Reykjavík. Hennar sonur er
Andri Jón.
3. Erla, sem býr í Ósló. Henn-
ar sonur er Stefán Hrafn, hrein-
dýrabóndi á Grænlandi.
Þeim fer nú óðum fækkandi,
sem mótuðust á fyrstu áratug-
um þessarar aldar og voru sér-
stæðir persónuleikar, bundu
bagga sína ekki sömu hnútum
og samferðamenn, og sköpuðu
sér með því þá sérstæðu eigin-
leika sem gera þá minnisstæða.
Láms var einn þeirra.
Hann var einstaklega góöur
granni, hjálpsamur og greiðvik-
inn hvenær sem á þurfti aö
halda. Aö vísu vorum við ekki
alltaf sammála, enda var það
kannski einn af eðlisþáttum
hans að vera ekki endilega á
sömu skoðun og viðmælandinn
hverju sinni. Hann tók engum
sannindum sem sjálfgefnum,
hafði sínar skoðanir á flestum
hlutum og krufði mál til mergj-
ar. Það þýddi engum aö segja að
svona væri þetta bara, það varð
að vera rökstutt. Hann varð aö
finna sinn sannleik sjálfur, og
var þá jafnan sama hver í hlut
átti, því hann var þeirrar skoð-
unar að menntun ein út af fyrir
sig og háar stöður í embættis-
stiga sköpuðu mönnum ekki
óskeikulleika í skoöunum og
ákvarðanatöku.
Hann var eðlisgreindur,
hnyttinn í tilsvörum og
skemmtilegur í viöræðum og
naut þess að eiga skoðanaskipti
viö menn um hin ólíkustu efni.
Lárus var um tvítugt þegar
Framsóknarflokkurinn var
stofnaöur og ég hygg að hann
hafi þá strax gengið til liðs við
flokkinn, a.m.k. man ég ekki
eftir Lárusi öðm vísi en :,em ein-
lægum framsóknarmanni og
jafnvel að sumra dómi nánast
örlítið öfgakenndum á stund-
um. En samvinnuhugsjónin og
stefnumál Framsóknarflokksins
voru þau lífssannindi sem hann
fylgdi af heilum hug og honum
var mikið í mun að þau fengju
sem mestan hljómgrunn hjá
þjóðinni. Honum hefur því ef-
láust orðið þungbært þegar sam-
vinnuhreyfingin varð fyrir því
áfalli á síöustu árum að liðast í
sundur og tapa þeim krafti sem
hún hafði verið samvinnu-
mönnum um allt land til sam-
vinnu og atvinnuuppbyggingar.
Lárus var góður bóndi og
hafði góðan arð af búi sínu og
þar naut hann konu sinnar, sem
var forkur til vinnu og svo natin
við skepnur að einstakt mátti
teljast.
Síðustu árin dvöldu þau hjón-
in á Dvalarheimilinu Barmahlíö
á Reykhólum og nutu þar góðr-
ar umönnunar. En hann þráði
alltaf dalinn sinn fagra og þótt
hann blasti við sjónum hir
sunnan fjarðarins var þaö ekki
nóg, hugurinn var jafnan á
heimaslóðum. Lárus hafði
lengst af verið heilsuhraustur,
en hafði þó iengi þjáðst af gigt
og síðustu árin var hann orðinn
slæmur í fótum. Það lýsir hon-
um kannski vel þegar hann fyrir
nokkru var spurður um heils-
una, er hann svaraði: „Hún er
góð nema lappirnar. Ég væri
góður ef ég fengi nýjar lappir,
jafnvel þótt þær væru af íhalds-
manni!" Og svo hló hann hátt
með hrekkjablik í augum.
Þessar fáu línur voru aldrei
hugsaðar sem úttekt á lífshlaupi
Lárusar í Fagradal, heldur til aö
þakka langa samfylgd og gott
nágrenni og óska honum vel-
farnaðar á nýjum brautum þar
sem gigtin hamlar ekki för.
Ég bið honum, Boggu minni
og fjölskyldum þeirra blessunar.
Sigurður Þórólfsson
Minningarsjobur um
Pál H. Asgeirsson
Norska handbókin.
Á stjórnarfundi Félags íslenskra
mótívsafnara, þann 26. nóvem-
ber á síðastliðnu ári, var tekin sú
ákvörðun að stofna sérstakan sjóð
til minningar um Pál H. Ásgeirs-
son, flugumferðarstjóra og flug-
póstsafnara. Skipulagsskrá sjóðs-
ins var síðan samþykkt á jóla-
fundi sama félags, þann 20. des-
ember síðastliðinn. Þá var einnig
skipuö stjórn fyrir sjóðinn, en
hana skipa: Guðný Einarsdóttir,
ekkja Páls heitins, Hlöðver B.
Jónsson og Sigurður R. Pétursson.
Ekki er að efa aö þarna hefir
Garðar Jóhann Guðmundsson
gengið fram fyrir skjöldu til að
minnast Páls. Er það vel og á
hann þakkir skildar fyrir það, en
Garðar Jóhann er formaður ís-
lenskra mótívsafnara. Þegar þetta
er skrifað, er vitað um nokkuð
marga stofnendur sjóðsins. Sýnir
það best þann hlýhug er íslenskir
frímerkjasafnarar bera til Páls
heitins. Umsjónarmaður þáttar-
ins kynntist honum fyrst fyrir
rúmum tveim áratugum, er við
unnum saman að stofnun Klúbbs
Skandinavíusafnara og einnig í
Félagi frímerkjasafnara í Garðabæ
og Hafnarfiröi. Var samstarf okk-
ar alla tíð einstaklega gott og vilji
hans til að hjálpa bæði við út-
breiðslustarf, kennslu og söfnun
meðal þeirra yngri var alltaf mik-
ill og starfið fúslega unnið. Síð-
ustu árin starfaði hann til dæmis
meðal unglinga þeirra, er koma
saman í Seljakirkju vikulega til að
leika sér meö frímerki.
Svo að lesendur þáttarins viti
nánar um tilgang sjóðsins, þá skal
Páll H. Ásgeirsson.
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
skipulagsskrá hans birt hér:
1. grein
Sjóðurinn heitir Minningar-
sjóður Páls H. Ásgeirssonar og er
heimili sjóðsins í Reykjavík.
2. grein
Stofnfé Minningarsjóðs Páls H.
Ásgeirssonar skal teljast það fé er
sjóönum hefur áskotnast fyrir 1.
janúar 1995, en það eru framlög
úr félagssjóði íslenskra mótífsafn-
ara og frá félögum þess. Stofnfé
sjóösins, ásamt öðru fé sem
sjóðnum áskotnast, skal ávaxta í
viðurkenndri bankastofnun.
3. grein
Tekjur Minningarsjóðs Páls H.
Ásgeirssonar eru vextir og verð-
bætur af stofnfé, sem og öðru því
fé sem sjóðnum kann að áskotn-
ast, svo sem gjöfum og áheitum.
Stjórn sjóðsins er heimilt að afla
honum tekna með hverjum þeim
hætti sem stjórnin telur við hæfi.
4. grein
Tilgangur Minningarsjóðs Páls
H. Asgeirssonar er að gefa á
hverju ári heiðursverðlaun til
unglingadeildar á landssýningu
Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara. Þessum heiðurs-
verðlaunum skal úthlutað af
dómnefnd hverrar sýningar. Við-
takandi heiðursverðlaunanna
skal einnig hljóta sérstakt verð-
launaskjal frá stjórn sjóðsins.
Stjórn sjóðsins er einnig heim-
ilt að veita aðrar viðurkenningar
fyrir frímerkjasöfnun til ung-
linga, ef stjórnin telur til þess sér-
staka ástæðu og fjárhagur sjóbs-
ins leyfir.
Stjórn sjóðsins skal varðveita
sérstaka bók þar sem í eru skráðar
allar gjafir til sjóðsins, ásamt
nafni verðlaunahafa hvers árs,
heiti safns hans og árangur á
landssýningunni. Bók þessi skal
liggja frammi á hverjum jóla-
fundi íslenskra mótífsafnara.
5. greln
Stjórn Minningarsjóðs Páls H.
Ásgeirssonar skipa þrír menn til-
nefndir af stjórn íslenskra mótíf-
safnara. Skulu þeir tilnefndir til
tveggja ára í senn og fylgir starfs-
tími almanaksári. Stjómarmenn
sjóðsins skipta sjálfir með sér
verkum. Stjórnin skal fyrst skipub
frá 1. janúar 1995.
6. grein
Stjórn Minningarsjóðs Páls H.
Ásgeirssonar semur árlega reikn-
inga sjóðsins, sem endurskoðend-
ur íslenskra mótífsafnara skulu
endurskoða. Reikningar sjóðsins
skulu bornir upp á abalfundi ís-
lenskra mótífsafnara ár hvert.
7. grein
Skipulagsskrá Minningarsjóðs
Páls H. Ásgeirssonar verður ekki
breytt nema á aðalfundi íslenskra
mótífsafnara.
Ný handbók
Nýlega er komin út í Noregi
handbók um fyrsta norska frí-
merkið, fjóra skildinga skjaldar-
merkið bláa. Bókin
er skrifub af Tore
Gjelsvik og gefin út
af honum í vönd-
uðu litprenti og
góbu bandi. Bókin
er 112 blaðsíður og
kostar eintakið
NKR 300,00. Þá er
innifalið burðar-
gjald innan Evr-
ópu. Þess má geta
að heimilisfang
Gjelsviks er: Ran-
heimsliveien 29,
N- 7053 Ranheim,
Norge.
Bókin er skrifuð
á ensku og þarf
ekki að taka fram
að vinnubrögð
Tores Gjelsvik eru
mjög fullkomin.
Hann hefir áður
skrifaö bækur um
frímerkjafræði og
auk þess hefir
hann í sölu margar
fleiri bækur eftir aöra höfunda, ef
hann er beðinn um bókalista.
Bókin er samansett af 8 aðal-
köflum. Eftir kynningu kemur
kafli um frímerkið sem slíkt með
stórri litmynd, þá um hvernig það
varö til með myndum af tillögum
og svo fjórði kaflinn um lokanib-
urstöðurnar í gerð þess. Þarna er
allt tekið fyrir: pappírinn, blek og
litur, lím, plötuafbrigði og kennt
að þekkja staösetningar í plötu
meb stækkuðum litprentunum.
Næst er svo tekin fyrir notkun frí-
merkisins og dreifing. Þá er skrá
yfir allar þekktar stimplanir merk-
isins, innanlands og utan. Loks er
svo kafli um endurprentanir og
endurgerðir og loks er kafli um
falsanir, gamlar og nýjar, góðar
og slæmar. Loks er svo heimilda-
skráin, þrjár blaðsíður, og svo
allra síðast þakkir til samverka-
manna.
Bókin er einstaklega vel unnin
og nákvæm sem handbók. ■