Tíminn - 15.02.1995, Síða 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.B0 í gær)
• Su&vesturmi&: NA-stinningskaldi og él í fyrstu. Léttir sí&an til, fyrst
A-til.
• Su&url. til Brei&afj, Faxaflóamib og Breibafj.mib: NA-stinnings-
kaldi, en allhvasst N og V-til á mi&um. Víoast léttskýjaö.
• Vestf., Vestfj.miö og NV-mi&: N og NA-hvassviöri e&a stormur.
Vaxandi éljagangur.
• Strandir og Norburland vestra: Allhvass NA me& éljum. Lægir
sí°is.
• Nor&url. eystra og NA-mi&: NA-kaldi e&a stinningskaldi. Dregur
úr éljagangi.
• Austurl. ab Glettingi, Austfir&ir, A-mib og Austfj.mib: NA-gola
e&a kaldi. El.
• SA-land og SA-mi&: NA-kaldi í fyrstu, en N og NA-gola e&a kaldi
sí°is. Léttskýjaö.
Suöurlandslisti Eggerts Haukdal var kynntur í gœr. Eggert segir þetta ekki klofningsframboö
frá Sjálfstœöisflokknum:
„Ég var klofinn frá
flokknum, ekki öfugt"
„Nei, ég er ekki aö kljúfa Sjálf-
stæbisflokkinn. Þessi er öfugt
farið. Sannleikurinn er sá a&
efstu menn þess flokks hér á
Suburlandi klufu mig frá
flokknum og gegn þeim og
Sjálfstæbisflokknum er Subur-
landslistanum beint," sagbi
Eggert Haukdal alþingismab-
ur þegar hann kynnti í gær
sérframbob sitt, Suburlands-
listann — lista utan flokka.
Málefnaáhersla Suðurlands-
listans er mjög í anda hags-
munamála dreifbýlisins og þess
sem Eggert Haukdal hefur barist
fyrir á Alþingi í gegnum árin.
Þannig er t.d. inngöngu í ESB
hafnað og hvatt til aö varúðar
verði gætt í milliríkjasamning-
um og erlendum fjárfestingum
hér á landi. Ekki megi fórna
hagsmunum landbúnaðar í viö-
skiptasamningum milli ríkja
eins og Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra hefur gert
að mati Eggerts. Viðhalda verð-
ur stöðugleika í efnahagsmál-
um. Liður í því sé að afnema
verðtryggingu skulda, enda sé
hún meginorsök skulda heimil-
anna. Endurskoða þurfi fisk-
veiðistefnuna með bættan hag
bátaflotans og útgerða einstak-
linga að leiðarljósi.
„Nei, ég hefu ekki sagt mig úr
Sjálfstæöisflokknum og hef enn
ekki ákveðið hvort ég geri það,"
sagði Eggert Haukdal. Framboð-
inu beinir hann gegn þeim Þor-
steini Pálssyni og Arna Johnsen
sem hann segir hafa unnið
skipulega gegn sér. Um þá sem
skipa Suðurlandslistann segir
Eggert að þeir hafi líklega kosið
Sjálfstæðisflokkinn í gegnum
tíðina en þetta eru auk Eggerts
þessir: Sigurður Ingi Ingólfsson,
Móeiður Ágústsdóttir á Stokks-
eyri, Gísli H. Magnússon Ytri
Ásum, María Leósdóttir á Sel-
fossi, Kristinn Guðnason Skarði,
Sigtryggur Þrastarson Vest-
mannaeyjum, Hannes Sigurðs-
son Þorlákshöfn, Örn Einarsson
Flúðum, Ágúst Grétar Ágústs-
son Vestmannaeyjum, Ragnar
Jónsson Selfossi og Katrín
Samúelsdóttir í Pulu.
- SBS, Selfossi
íslenskar sjávarafuröir:
Heppilegt hús-
næoi vandfundið
Enn hefur ekki verib tekin
ákvörbun um framtíbarstabsetn-
ingu á höfubstöbvum íslenska
sjávarafur&a, en samkvæmt
kaupsamningi íslandsbanka á
núverandi húsnæbi fyrirtækisins
á Kirkjusandi þarf ÍS a& rýma þab
í júlí næstkomandi.
Kristinn Lund, framkvæmda-
stjóri fjármála og stjómunarsviðs
ÍS, segir að nú sé unnið að því að
finna fyrirtækinu framtíðarstað á
höfuðborgarsvæðinu. „Það kemur
okkur í raun á óvart, að eftir allt
umtal um að gífurlegt framboð sé á
góðu skrifstofuhúsnæði hér á svæð-
inu, þá hefur komið í ljós að lítið er
til af húsnæði sem er það stórt að
það myndi hýsa skrifstofur fyrir-
tækisins," segir Kristinn Lund, en
alls þarf fyrirtækið um 1200-1400
fermetra fyrir starfssemina. Krist-
inn vildi ekki tjá um sig hvaða stað-
setningar þeir væru að skoða fyrst
og fremst en ákvörðun yrði tekin í
lok næstu viku. ■
Nýja loönubrœöslan á Fáskrúösfíröi vœntanleg til
landsins um 20. mars frá Japan. Loönuvinnslan hf.:
Japanir gefa grænt
ljos á frystingu
Fulltrúar japanskra kaupenda stefnt að því að verksmiðjan
gafu grænt ljos a loönufryst-
ingu hjá Lobnuvinnslunni hf. á
Fáskrúbsfirbi í gær eftir ab þeir
höfbu tekib út afla Bergs VE
sem kom meb um 500 tonn af
lobnu. En ágætis veibi hefur
verib á mibunum þar eystra.
Haraldur Haraldson í Ándra hf.
og einn af eigendum Loðnu-
vinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði
segir að hrognafyllingin hafi ver-
ið um 14%. Hann segir að það
hafi ekki komib ab sök þótt ein-
hver áta sé í loðnunni vegna þess
hve stuttur tími leiö frá því hún
var veidd og komið var með afl-
ann til vinnslu. En innan við
fjögurra tíma sigling er frá mið-
unum og inn til Fáskrúðsfjarðar.
Búist er við ab nýja loðnu-
bræðslan sem keypt var í Japan
komi til landsins seinnihluta
næsta mánuðar, eða 20. mars nk.,
en hún var lestuð um borð í skip
þann 4. febrúar sl. Upphaflega var
kæmi hingaö til lands í ágúst í
fyrra en vegna seinagangs í „kerf-
inu" eins og Haraldur orðar það,
varð ekkert úr því. Hann segir að
verksmiðjan verði tilbúin næsta
haust, en þangað til verður notast
við gömlu bræbsluna á Fáskrúðs-
firði.
Nýja verksmibjan með öllu er
fjárfesting uppá 600 miljónir
króna og mun hún geta brætt um
eitt þúsund tonn á sólarhring. Án
mikils tilkostnabar á ab vera hægt
að auka afköst hennar í tæp 1400
tonn á sólarhring. Með tilkomu
hennar mun afkastageta loðnu-
verksmiðja fyrir austan aukast
töluvert frá því sem nú er. Ef ekk-
ert lát verður á loðnuveiðum er
skammt í það ab erfitt verði að fá
löndun á Austfjaröahöfnum og
því viðbúið að loðnuskip fari að
sigla með aflann norður fyrir
land, eöa til útlanda.
Súöavík:
Landburbur af rækju
Landbur&ur af rækju hefur verib
hjá Frosta hf. í Sú&avík í vikunni.
í vikubyrjun kom Bessi meb 90
tonn af rækju eftir fimm daga
veibiferb og nam aflaverbmætib
um 8 miljónum króna. í gær kom
Banaslys varb þegar vörubifreið
og fólksbifreiö lentu harkalega
saman við bæinn Stóru-Þúfu,
sem stendur vib Laxá í Mikla-
holtshreppi, um klukkan 16.00
í gær. Þrír voru í bílunum og
lést einn, en hinir tveir voru
fluttir slasabir á sjúkrahús. Slys-
ið varö þegar bílarnir mættust
við ánna og eru bábir bílarnir
mikið skemmdir. ■
Haffari meb 40 tonn og í dag er
búist vib Kofra meb annab eins af
Vestfjar&ami&um.
Ingimar Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Frosta hf. segir að
unnið sé á tveimur vöktum við
rækjuvinnsluna í stab einnar þegar
vinnslan var gangsett ab nýju í lok
janúar. Hann segir að þótt íbúar
Súbavíkur muni eflaust verða lengi
að ná sér eftir hörmungar snjóflóðs-
ins, þá sé vinnan komin á fullt og
fólk að skila sér smátt og smátt tii
baka. Það séu einna helst fjölskyld-
ur með börn sem dvelja enn á ísa-
firði og það helgast öðru fremur af
skóla- og dagvistunarmálum.
Framkvæmdastjórinn segir að af-
uröaverö á rækju sé enn á uppleið á
erlendum mörkuðum og rækjunni
sé skipaö út nánast jafnóðum og
búið sé að vinna hana. ■
Banaslys í Mikla-
holtshreppi
Frá fundi nemenda íMS ígœr.
Fjölmennur stjórnmálafundur í Menntaskólanum viö Sund:
Fjörugar umræður
um menntakerfiö
Tímamynd: CS
Nemendafélag Menntaskólans
við Sund hélt í gær stjórmála-
fund þar sem þingmenn allra
stjórmálaflokka, auk fulltrúa
Þjóbvaka til a& flytja erindi og
svara spurningum.
Ab loknum framsöguerindum,
urbu fjörugar umræður um stefnu
flokkanna í menntamálum, nið-
urskurð til menntamála, yfirvof-
andi kennaraverkfall og hvernig
flokkarnir hyggöust fjármagna ís-
lenska menntakerfið í framtíð-
inni. Nemendur fjölmenntu á
fundinn, sem haldinn var í há-
deginu og má gera ráb fyrir að alls
hafi mætt á bilinu 250-300 nem-
endur.
Fulltrúar flokkanna voru þeir
Finnur Ingólfsson, Framsóknar-
flokki, Jón Baldvin Hannibalsson,
Alþýðuflokki, Fribrik Sophusson,
Sjálfstæðisflokki, Ágúst Einars-
son, Þjóðvaka, Kristín Ástgeirs-
dóttir, Kvennalista, og Svavar
Gestsson, Alþýðubandalagi.
Á fundinum kom fram í máli
fulltrúa minnihlutaflokkanna á
þingi að niðurskurður til mennta-
mála á yfirstandandi kjörtímabili
væri um tveir milljarðar og þá
væri aðeins verið að tala um
grunnskóla og menntaskólastig.'
Finnur Ingólfsson sagöi ab þessari
þróun yrði að snúa vib og þáttur í
því væri að auka hagvöxt í land-
inu, skapa þannig fólki atvinnu,
stefna að hallalausum rekstri rík-
issjóðs og með þessum hætti
fengist aukib fé til ab leggja í ís-
lenska menntakerfið. Hins vegar
lægi það ljóst fyrir, að engu að síb-
ur og þrátt fyrir að þessar abstæb-
ur væru fyrir hendi, að þab yrði
að setja aukið fé til menntamála
nú, því þeir peningar væru grund-
völlur fyrir framförum og verð-
mætasköpun í framtíöinni. Það
yrbi að komast út úr þeim víta-
hring stöbvunar sem núverandi
ríkisstjórn hefði komið þjóbinni
í.
Sjá einnig
„Tíminn spyr ..." bls. 2.