Tíminn - 30.05.1995, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. maí 1995
3
Sjálfstœöiskonur enn bálillar yfir rýrum hlut:
Ástandið er óvibunandi og
niburlægjandi fyrir flokkinn
„í stærsta stjórnmálaflokki
landsins ríkir augljóst misrétti
milli kynja. Sú staöreynd er
óþolandi og henni þarf að
breyta," segir í ályktun 20.
landsþings Landssambands
sjálfstæðiskvenna, sem haldið
var að Hótel Örk um helgina.
Sjálfstæðiskonur eru bálillar.
Þeim var víða hafnaö í próf-
kjörum flokksins, og aðeins
fjórar konur sitja í 25 manna
þingflokki. Konur innan Sjálf-
stæöisflokksins fengu sáralítil
völd þegar ríkisstjórnin var
mynduð.
Landsþingið ályktaði um
kröfur til jafnræðisreglu, sem
þingið segir að verði aö gæta í
hvívetna í starfi Sjálfstæðis-
flokksins. Sjálfstæðiskonur
segjast sannfærðar um að auk-
in áhrif kvenna séu til heilla
fyrir þjóðfélagið í heild, karlar
og konur eigi að vinna saman
og ekkert þjóðfélag hafi efni á
að vannýta menntun og
reynslu kvenna.
Landssamband sjálfstæðis-
kvenna hefur fram til þessa
hafnað kvótakerfi kynjanna,
ef frá er talin tillaga til mið-
stjórnar fyrir nokkrum árum.
En nú er þolinmæðin brostin.
„Reynsla síðustu ára sýnir aö
hógvær afstaða sambandsins
hefur ekki skilað árangri sem
skyldi fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Umræöa um þessi mál
getur aldrei skaðað. Hún er
nauðsynleg. Núverandi ástand
er óviðunandi og niðurlægj-
andi fyrir flokkinn," segir í
ályktun þings sjálfstæöis-
kvenna. Felur landsþingið ný-
kjörinni stjórn að fylgja eftir
kröfu þingsins um að jafnræði
ríki í forystusveit, þingflokki
og sveitarstjórnum á vegum
Sjálfstæðisflokksins og þannig
sé í raun fylgt eftir landsfund-
arsamþykktum hans til
margra ára.
Arndís Jónsdóttir, formaður
Landssambands sjálfstæöis-
kvenna sagði í ræðu sinni á
fundinum að heit umræða
sjálfstæðiskvenna um rýran
hlut kvenna í landstjórninni
hefði ekki skaðað flokkinn.
Nýjustu skoðanakannanir hafi
þvert á móti sýnt 4% fylgis-
aukningu við flokkinn.
Bolton, liö Cubna Bergssonar,
lék í gœr á Wembley um sœtl
í Úrvalsdeildinni í ensku
knattspyrnunnni:
Gubni í úr-
valsdeild
Bolton, lið Guðna Bergssonar,
tryggði sér í gær sæti í úrvals-
deildinni í knattspyrnu, með 4-
3 sigri á Reading á framlengdum
leik á Wembley-leikvanginum í
Lundúnum. Staðan í hálfleik var
0-2, Reading í hag, en liö Bolton
náði að jafna áður en leiktíminn
rann út. Bolton hafði betur í
framlengingunni, skoraði tvö
mörk gegn einu marki Reading.
Guðni var ekki meðal marka-
skorara og í fréttaskeytum kom
ekki fram hverjir léku fyrir hönd
liðanna og því ekki vitað hvort
Guðni var í leikmannahópi
Bolton. Það voru 64 þúsund
manns sem fylgdust meö leik
liöanna í gær. ■
Akureyri:
Glerárkirkja
stórskemmist í
eldsvoba
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tfm-
ans á Akureyri:
Miklar skemmdir urðu á Glerár-
kirkju á Akureyri i eldsvoöa á
sunnudag. Ekki er að fullu ljóst um
upptök eldsins, en þau hafa verið
rakin til þurrkskápa sem notaðir eru
til þess að þurrka föt. Líkur benda til
aö eldurinn hafi kraumað lengi í
kjallaranum áður en hans varð vart,
en hlutýaf kirkjukór Glerárkirkju
var við æfingar í kirkjunni nokkru
áður en eldsins varð vart og uröu
kórfélagar einskis varir.
Eldurinn virðist hafa komist í
loftræstikerfi hússins og breiðst út
um allan kjallarann þar sem flest
brann sem brunnið gat. Þá uröu
einnig miklar skemmdir af völdum
reyks á sjálfu kirkjuskipinu, auk
safnaðarheimilis og skrifstofu- og
kennsluálmu. Ljóst er að innrétta
þarf kjallara kirkjunnar frá grunni
og miklar lagfæringar verða að fara
fram í kirkjunni sjálfri. Að öllum
líkindum verður að mála aliar vist-
arverur á efri hæðinni að innan,
auk þess sem hreinsa verður öll
húsgögn og búnað. ■
Árni ísaksson veibimálastjóri um áhrif kulda á Norbur-
landi á fískigengd í árnar og seibagengd til sjávar:
Ekki áhrif í sumar
Vegna mikils kulda á Norður-
landi hafa vaknað spurningar
um hvort hann gæti haft áhrif
á fiskigengd í ámar og þar með
á lax og silungsveiði í ánum í
sumar. Ámi ísaksson veiði-
málastjóri segir ekki ástæðu til
að hafa áhyggju af sumrinu í
sumar, en hins vegar geti kuld-
inn haft áhrif þegar til lengri
tíma er litiö.
„Maður hefur í sjálfu sér ekki
ástæðu til að ætla að kuldinn
hafi áhrif á fiskigengdina í sum-
ar, nema kannski í mesta lagi
seinkað henni eitthvað. Það er
hins vegar meiri ástæða til að
hafa áhyggjur upp á framtíðina,"
sagði Árni.
Hann segir að það geti verið
erfitt fyrir seiðin að ganga út í
svo kaldan sjó sem raun ber
vitni. Það þurfi að hlýna mikið
til að þau geti gengið út í sjó.
Seiðin ganga ekki út fyrr en árnar
hafa náð vissu hitastigi, sem
miðast við 10 gráður. „Þegar það
gerist er spurningin, hvernig
ástand sjávar veröur á þeim tíma,
sem líklega verður í júlí, eða jafn-
vel í byrjun ágúst. Ef hann er
kaldur er hann næringarsnauður
og vanti í hann fæðu. Að auki er
slíkur fimbulkuldi óhagstæður
fyrir vöxt fiska," segir Arni að
lokum. ■
jón Sigurbsson bóndi á Hánefsstöbum rekur iambær ígegnum snjógöng sem rudd voru ab fjárhúsinu. Litlu
lömbin virbast einstaklega umkomulaus og mega sín lítils innan um snjóstálib.
Mikill snjór ennþá í Seyöisfiröi. Svanbjörg Siguröardóttir, húsfreyja á
Hánefsstööum:
„Eins og ekkert annab
sé til en norðanátt"
Enn er mikill snjór víða um
land og hafa Seyðfirðingar ekki
síst oröiö fyrir barðinu á vetrar-
hörkunum og köldu vori. Tala
menn um aö aldrei hafi verið
meiri snjór á þessum árstíma en
nú og er ástandiö víöa erfitt af
þeim sökum.
Svanbjörg Siguröardóttir, hús-
freyja á Hánefsstööum, Seyðis-
firði, segir að snjóinn hafi lítillega
tekið upp síðustu daga en ennþá
sé allt hvítt og víða skaflar. Hún
segist nýkomin úr reisu um Norö-
urland og telur að hvergi sé þar
jafnmikinn snjó að finna og í
Seyðisfirði, nema e.t.v. í Kinninni
og yst á Árskógsströndinni.
Sumariö lcetur enn standa á sér noröanlands. Nánast ekkert veröur úr þeim hlýindum sem spáö haföi veriö.
Ásdís Auöunsdóttir:
Engar gleðifréttir fyrir Norölendingana
„Viö erum eiginlega aö bakka
með það, þetta verða lítil hlý-
indi og lægðirnar hálfslapp-
ar," svaraði Ásdís Auðunsdótt-
ir, veðurfræöingur á spádeild í
gær, þegar hún var spurð
hvort loks hillti undir sumar-
ið norðan heiða.
Nokkurrar bjartsýni gætti hjá
Norölendingum vegna lang-
tímaspár Veðurstofunnar um
helgina en þá benti margt til að
sumarið færi loks að láta á sér
kræla með sunnanátt og hlýind-
um. Nú benda síöustu spár til að
ekkert verði úr því:
„Það hlýnar væntanlega frá
miövikudegi til föstudags, en
sennilega aðeins á Suður- og
Vesturlandi. Áfram veröur
norðaustanátt viö norðaustur-
og austurströndina. Frá og með
helginni verður trúlega kóln-
andi veður." ■
„Við erum aö jafna þessu við ár-
ið 1977 hvaö langstæðar vetrar-
hörkur og vorkulda varðar, en þá
hlýnaði verulega 20. maí en nú er
ennnþá mikill kuldi," segir Svan-
björg aðspurð um hvort vorið sé
það versta í hennar minnum.
Hún segist ekki sjá fyrir endann
á þessu ástandi og óttast kal undir
snjónum. „Sauðburðurinn hefur
samt gengið ótrúlega vel en enn
er enginn hagi fyrir búfénaö.
Þetta er alltaf noröanátt og ekkert
annað."
Svanbjörg hefur ekki heyrt um
að bændur í héraðinu séu komnir
í þrot meö hey en nefnir þó aö
heykaup séu miklum takmörkun-
um háö vegna riðunnar. Sjálf
þurfti hún og Jón Sigurösson,
bóndi hennar, að skera allt fé fyr-
ir nokkrum árum en þau eru
sæmilega birg með heyfeng enn-
þá, eftir góða tíð síöasta sumar. ■