Tíminn - 30.05.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.05.1995, Blaðsíða 8
8 WjimflMftMí Þribjudagur 30. maí 1995 Voriö i 945 geröu georgískir hermenn í þýskri þjónustu á hollensku eynni Texel uppreisn. Þar hélt heimsstyrjöldin síöari áfram í tvœr vikur eftir aö henni var formlega lokiö í Evr- ópu Þann 8. maí 1945 gafst þýski herinn skilyrðislaust upp fyrir bandamönnum. En þar með er ekki sagt að þann dag hafi friður komist á í allri Evrópu. í Eystrasaltslöndum og Úkraínu hélt skæruhernaður þarlendra manna gegn Rússum áfram í mörg ár eftir þetta. Og á einum stað í Vestur-Evrópu var barist í marga daga eftir að stríð- inu var lokið formlega. Sá staður er hollenska eyjan Texel (flatarmál 184 ferkíló- metrar, íbúafjöldi um 11.000), sú syðsta af Vesturfrísnesku eyj- unum (Westfriesche Eilanden), sem mynda keðju úti fyrir strönd landsins frá norðurenda fylkisins Noord Holland til þýsku landamæranna. Láglent er þar sem í Hollandi yfirleitt og aöalatvinnuvegir fiskveiðar, sauðfjárrækt og blómlaukarækt. Georgískir hermenn á Texel. Stríðiö á Texel 800 Georgíumenn — 400 Þjóbverjar Stríösaðilar á Texel voru Þjóð- verjar (sem hertóku Holland 1940 og héldu því að miklu leyti til stríðsloka) og — af öll- um mönnum — Georgíumenn. Margir sovéskir stríðsfangar gengu í þýska herinn, einkum í þeim tilgangi að bjarga sér frá dauða af völdum hungurs og illrar meöferöar í þýskum fanga- búðum eða þá vegna þess að þeir vildu frekar berjast meö Þjóðverjum en Rússum. Meðal þessara sovésku liðsmanna Þjóðverja voru Georgíumenn- irnir á Texel. Þjóðverjar létu gera á Texel virki mikil, til varnar gegn bandamönnum ef þeir skyldu freista landgöngu í Hollandi. Vorið 1945 var á eynni um 1200 manna herlið, um 800 Georgíu- menn og um 400 Þjóðverjar. Þá orðið þótti flestum sýnt, að Þjóðverjar væru að þrotum komnir. Af væntanlegum sigur- vegurum áttu Georgíumennirn- ir á Texel ekki annars von en að litið yrði á þá sem liðhlaupa. Til að bæta ráð sitt í augum banda- manna ákváðu þeir að gerast liðhlaupar á ný og auglýsa þau sinnaskipti sem áþreifanlegast. Þýskir félagar þeirra kunnu ekki georgísku og gátu Georgíu- menn þessir því undirbúið upp- reisn á móðurmáli sínu án þess aö Þjóðverja grunaði neitt. Sam- komulag georgísku hermann- anna og þeirra þýsku hafði og til þessa veriö heldur gott, þeir höfðu blandað geði og skemmt sér saman. Áttu þýsku her- mennirnir sér því einskis ills von og komu litlum vörnum við er þeir georgísku réðust á þá, allir sem einn. Voru flestir Þjóð- verjanna drepnir með hnífum og byssustingjum. Fangar voru ekki teknir. Mikib mannfall Nokkrum Þjóðverjanna tókst þó að halda velli í virkjum sybst og nyrst á eynni og frá megin- landinu barst þeim fljótlega all- fjölmennur libsauki. Frá byrgi Hitlers í Berlín var því liði fyrir- skipað að láta ekki af fyrr en all- ir Georgíumenn á eynni væru dauðir. Og með hliðsjón af ör- lögum félaga sinna á Texel voru Þjóðverjar í hefndarhug. Þeir náðu eynni að miklu leyti á vald sitt aftur, en sá árangur varb þeim dýr. Manntjón þeirra varð hvað mest er þeir sóttu ab Georgíumönnum, sem vörðust í vita á hæð nyrst á eynni. Landslag og gróður þar er þann- ig að hermennirnir, sem sóttu að vitanum, höfðu ekkert til aö skýla sér á bak við, og stráféllu þeir fyrir skotum Georgíu- manna. Vitann tóku Þjóöverjar um síöir, en ekki lauk bardögum á eynni þar með. Georgíumenn héldu uppi skæruhernabi með aðstoö hollenskra andspyrnu- manna og eyjarbúar virðast yfir- leitt hafa verið á þeirra bandi. Þeir gerþekktu hvern krók og kima a eynni. Mun aðstoð Hol- lendinganna hafa valdib miklu um, hve lengi Georgíumönnun- um, er áttu við ofurefli liðs að etja, tókst að halda út, sem og það hve mikið manntjón Þjób- verja varð. Sumt af þýska liðinu þarna hefur og að líkindum ver- ið miöur vel þjálfab. Hvorugir tóku fanga. Ibúar eyjarinnar fóru ekki var- hluta af bardögunum. Grunaði Þjóbverja að Georgíumenn væru í felum á einhverju byggðu bóli, beindu þeir að því stórskotahríð. Tjón á húsum og öbrum eignum varð gífurlegt, þ.á m. í Den Burg, helsta bæ eyj- arinnar sem er á henni sunnan- verðri. Bæirnir voru brenndir ofan af bændum, sem leynt höfðu Georgíumönnum. Marg- ir eyjarbúar fórust í stórskota- hríbinni eöa voru teknir af Iífi af Þjóðverjum, vegna abstoðar eða gruns um aöstoð við Georgíu- mennina. Áfram gleymt stríb Alls féllu og fórust yfir 3000 manns í ófriðnum á Texel, þar af um 500 Georgíumenn. Af Þjóðverjum voru drepnir yfir 2300 (að sögn kanadískra heryf- irvalda) eða álíka margir og þeir og ítalir misstu fallna í ólíkt frægari slag, síöari orrustunni við E1 Alamein (samkvæmt þýskum og ítölskum heimild- BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON um, Bretar nefna um það hærri tölur). Hálfum mánuði eftir að heimsstyrjöldinni síðari lauk formlega í Hollandi, geisaði hún enn á Texel. Á meginland- inu hvarf stríðið á eyju þessari, sem hafði varla neina hernaðar- lega þýðingu eftir að innrás bandamanna í Frakkland hafði heppnast, alveg á bak vib aðra atburði, og átti það bæði við um bandamenn og Þjóðverja. Upp- gjöf herja Þjóbverja í Norður- Þýskalandi, Danmörku, Noregi og Hollandi fyrir Montgomery 5. maí hafði engin áhrif á at- burbi á Texel og ekki heldur uppgjöf alls herafla Þjóðverja 8. maí. Þjóðverjar á eynni virðast hafa verið í of miklum hefndar- hug til þess að skeyta um upp- gjöf herja sinna og stjórnar, og Georgíumennirnir, sem áttu bana vísan ef þeir gáfust upp og gátu ekki komist frá eynni, leyndust og vörðust með öllum tiltækum ráðum. Bardögum á Texel lauk ekki ab fullu fyrr en 20. maí, er Kanadamenn, sem tóku á móti uppgjöf Þjóðverja í Hollandi, komu því í verk ab senda hermenn út á eyna og af- vopna þýska herliðið þar. Georgíumennina, sem þá voru enn á lífi á Texel, fram- seldu Kanadamenn Rússum. Sovésk yfirvöld sendu hermenn þessa í þrælkunarbúöir, fjöl- skyldur sumra þeirra einnig. Það af fólki þessu, sem enn var á lífi um miðjan sjötta áratug, var þá látið laust. Texelstríðið hefur haldið áfram að vera gleymt, einnig í Hollandi. Dick van Reeuwijk, hollenskur blaðamabur, skrifaöi bók um það, en hún fæst hvergi nema í bókabúðum á Texel. Og þegar Hollendingar héldu upp á hálfrar aldar afmæli frelsunar sinnar undan Þjóðverjum, var stríðsins á Texel að litlu getið. Ekki einu sinni á eynni sjálfri virbist áhuginn á þessum þætti sögu hennar vera mikill. ■ Léleg kosningaþátttaka í Hvíta- Rússlandi: Nýkjöríb þing óstarfhæft Minsk — Reuter Fyrstu kosningarnar í Hvíta- Rússlandi fóru fram um helg- ina. Vegna lélegrar kosninga- þátttöku náðu einungis 120 þingmenn kosningu, en alls eiga 260 þingmenn að vera á þingi. Þetta gerir það að verkum að hið nýkjörna þing er í raun óstarfhæft, því a.m.k. tvo þriöju þingmanna þurfa aö vera á þingi til þess ab það geti afgreitt mál. Afleiðingin er sú ab Alex- ander Lúkasjenkó forseti lands- ins getur tekið þær ákvarðanir sem honum sýnist. Samkvæmt kosningareglun- um sem kosið var eftir þarf kosningaþátttaka ab vera a.m.k. 50% í hverju kjördæmi til þess að þingmenn nái kjöri. Talið er ab framferði Lúkasjenkós fyrir kosningarnar eigi stóran þátt í því hvernig fór. Hann hafbi óspart látið í Ijósi neikvætt álit sitt á kosningunum, komið í veg fyrir aðgang frambjóöenda aö fjölmiðlum og takmarkað fjárstuöning við frambjóbend- ur. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.