Tíminn - 21.06.1995, Side 5
Miövikudagur 21. júní 1995
5
Opið bréf til Náttúruverndarrábs:
Auglýsingaskilti viö náttúruperlur
Sjálfboðalibasamtök um nátt-
úruvernd eru samtök fólks sem
vilja vernda íslenska náttúru um
leiö og almenningi er gert auð-
veldara ab umgangast hana.
Samtökin vinna að markmiöum
sínum með vinnuferðum á vib-
kvæma staði, þar sem gerðir eru
göngustígar, þrep og annaö sem
auðveldar aðgengið, en eru að
öðru leyti eins lítið áberandi og
kostur er. Landgræðsla er líka
meðal verkefna. Einnig standa
samtökin fyrir umræðufundum
þar sem ýmis mál, sem snerta
umhverfið og náttúruvernd, eru
rædd.
Nú nýverið barst stjórn Sjálf-
boðaliðasamtaka um náttúru-
vernd í hendur bréf Verkefnis-
stjórnar vegna átaks í umhverf-
ismálum, en þá nefnd skipaði
samgöngumálaráðherra á síðast-
liðnu ári. Bréfið fjallar um átaks-
verkefnið „Fossar í fóstur" sem
gert er með samkomulagi við
Eimskipafélag íslands hf. Með
þessu átaksverkefni á að setja
auglýsingaskilti við tvo fossa á
ári. 1 ár verða það Skógafoss og
Goðafoss. Á þessum skiltum
verða, auk upplýsinga um vatns-
fallið á fimm tungumálum,
myndir af skipi Eimskipafélags-
ins og upplýsingar um starfsemi
félagsins. Skiltin eru rúmur
metri á kant, en staðsetning
þeirra er að öðru leyti ekki til-
greind, svo sem í hvaða hæð þau
skuli vera, hve nálægt fossinum
þau mega standa, hve lengi þau
eiga að standa og þá hvernig
viðhaldi þeirra skal háttað. Eim-
skipafélagið greiðir eina miljón
króna til átaksverkefnisins, en í
því felst uppsetning skiltisins
tum 350 þúsund krónur) og abr-
ar framkvæmdir sem samþykkt-
ar verða (við Skógafoss er það
m.a. útsýnisstaður fyrir hreyfi-
hamlaða).
Sameiginlegur
evrópskur
gjaldmibill
2001 eba 2002?
Skógafoss.
salerni og fleira sem ferðamað-
urinn þarf. Það hlýtur að vera
spurning hvort slíkar auglýsing-
ar eru þessa virði og hvort ekki
sé hægt að nálgast þessa fjár-
muni án þess að auglýsing komi
til með að valda þeirri sjón-
mengun sem þær, sem nú eru
settar upp, valda óhjákvæmi-
lega. Við í stjórn Sjálfboðaliða-
samtakanna teljum aðrar leiðir
færar, svo sem að birta þessar
upplýsingar í bæklingum, sem
gefnir yrðu við staðina, eða að
hengja skiltin innanhúss, svo
sem gert er við Gullfoss.
Það er okkar álit að það sé
hvorki Eimskipafélaginu, Nátt-
úruverndarráði, Ferðamálaráði,
landeigendum né öðrum, sem
ab þessum auglýsingaskiltum
standa, til framdráttar ab setja
þau upp þar sem ætlunin er. Þau
eru frekar öllum til skammar og
vonandi verða þau aldrei fleiri.
F.h. stjórnar Sjálfboðaliðasam-
taka um náttúruvernd.
Jáhann Guðjónsson
fortnaður
Erindi þetta var lagt fyrir Nátt-
úruverndarráð og féllst ráðib á
þab.
Þab er þessi afstaða Náttúru-
verndarráðs sem vekur sérstaka
furðu okkar, þó ekki sé ætlunin
að draga úr ábyrgð annarra aðila
að málinu.
Gjörningur þessi er umdeilan-
legur og sú stefna sem þarna er
mörkuð, að selja náttúrufyrir-
bæri undir auglýsingar, er að
áliti okkar afar varhugaverður.
Sú spurning hlýtur aö vakna
hvort innan fárra ára getum við
búist við frumskógi auglýsinga-
skilta við fjölsótta stabi á svipaö-
an hátt og sést í sumum lönd-
um. Þetta er sú stefna sem vib
teljum mjög óæskilegt ab fylgt
verði eftir hérlendis og hana á
Náttúruverndarráö að varast.
Náttúruverndarráð er eitt fárra
opinberra ráða sem kosið er á
fundi ýmissa félaga, sem vinna
að náttúruvernd í landinu, og
skipan þess á að endurspegla
viðhorf þeirra (formabur og
varaformaður eru þó skipuð af
rábherra). Því ætti almenningur
í landinu að geta treyst ábyrgri
afstöbu þess til framkvæmda við
náttúruperlur landsins. •
Sú ákvörbun ráðsins að leyfa
uppsetningu skiltanna orkar tví-
mælis og væri því ekki óeölilegt
að ráðið gerbi grein fyrir þessari
stefnu sinni opinberlega í fjöl-
miölum. Þab er eðlilegt að spurt
sé hvar megi auglýsa, hvað megi
auglýsa, hve nálægt náttúru-
minjum megi setja auglýsinga-
skilti, hve umfangsmikil þau
megi vera, hve lengi þau megi
standa o.s.frv. Hve dýrar eru
þessar auglýsingar? Þurfa ab vera
tengsl milli náttúrunnar og
starfsemi félagsins sem auglýsir?
Má til dæmis auglýsa þá sápu,
sem gefur besta gosib í Geysi, á
barmi goshversins?
Rök fyrir þessum auglýsingum
hafa verið nefnd þau að til að
hægt sé að standa straum af
framkvæmdum fyrir ferða-
menn, sem skoða þessa staði,
þurfi peninga. Peningarnir verði
notaðir til að byggja göngustíga,
Gobafoss.
í fyrstu viku júní 1995 birti fram-
kvæmdastjórn ESB álitsgerð,
„græna bók", um evrópsk peninga-
mál. í henni eru fram settar tillögur
um upptöku sameiginlegs evrópsks
gjaldmibils í þremur áföngum, sem
ljúki 2001-2002. í henni er að auki
vænst, að áður viðhafi peninga-
stofnanir hinn sameiginlega gjald-
mibil sín á milli. Framkvæmda-
stjórnarmaður sá, sem umsjón hef-
ur með peningamálum, Yves-Thi-
bault de Silguy, fylgdi álitsgerbinni
úr hlaði með nokkrum oröum, sem
European 2. júní 1995 hafði svo eft-
ir:
„Annar áfanginn verður hinn
vandasamasti, en bjartsýnismenn
vonast til, að hann hefjist í janúar
1998, en ýmsum varfærnum þykir
sennilegra, að það verði ári síðar.
Þá yrði ecu gjaldmiöill á eigin fót-
um og með ákvörbuð skiptahlut-
föll gagnvart öbrum gjaldmiblum."
„í grænu bókinni er vakið máls
á, að greiða mætti ýmsa innlenda
skatta með ecu og að stórir liðir rík-
isútgjalda gætu verib fram settir í
ecu, þegar á því yrðu tök."
„Á þriðja áfanga færu fram um-
skipti í sameiginlega gjaldmiðilinn.
Þau yrðu ekki síðar en fjórum árum
eftir að ríkin afréðu þau og þau
tækju aðeins fáeinar vikur — þann
tíma sem þyrfti til að láta nýja
gjaldmiðilinn korna í stað seðla og
myntar aðildarríkja." ■
Er atvinnuleysiö atvinnu-
lausum aö kenna?
Þegar Björn Jónsson, sem var
fæddur í Veisu 1768, var nibur-
setningur og var spurður hvort svo
væri, svaraöi hann því til ab það
þyrfti nú víst ekki tvenn gleraugu
til að sjá það. Um vist sína sem
niöursetningur sagði Björn: „Allir
eru mér góðir, og þó eru hundarn-
ir bestir."
Andrés bróðir hans var ekki
svona heppinn. Hann kom að
kvöldlagi, 9 vetra vergangsdreng-
ur, að Végeirsstöðum til Þorgeirs,
var úthýst og fannst örendur dag-
inn eftir í klifinu milli Végeirs-
staða og Böövarsness. Við Þorgeir á
Végeirsstöðum er kenndur hinn
víðfrægi draugur Þorgeirsboli.
Þannig fór stundum fyrir ver-
gangsmönnum á fyrri öldum og
enn veröa ýmsir til að agnúast út í
þá sem eru utangarðs.
Maöur er nefndur Jón Erlends-
son og er yfirverkfræöingur Upp-
lýsingaþjónustu Háskóla íslands.
Hann hefur gengið fram fyrir
skjöldu og vill láta svipta atvinnu-
lausa bótunum, en koma á þess í
staö einhverju sem hann kallar
„atvinnutryggingar". Hugmyndin
er sótt til Johns Major, leiötoga
breska íhalds- -------------------
flokksins, og segir
þaö dálitla sögu.
Svo íslensk alþýöa
veit þá á hverju hún á von.
Ég vil benda Jóni Erlendssyni á
að atvinnuleysisbæturnar eru hluti
af launum sem launþegar hafa
unnib fyrir. Og fólk á ekki að þurfa
ab vinna tvisvar fyrir sömu pen-
ingunum. Nú eru uppi kröfur um
að þeir vinni aftur fyrir þessum
peningum sem þeir eiga.
Gegn þessu þarf verkalýðshreyf-
ingin að snúast. Flestir, sem eru at-
vinnulausir, eru það vegna þess að
þeim hefur verið sagt upp störfum.
Atvinnuleysið er því á ábyrgð at-
vinnurekenda og Jón Erlendsson
ætti að snúa geiri sínum þangað.
Þá er vafasamt ab halda því fram
LESENDUR
að atvinnuleysib stafi af menntun-
arskorti. Oddrún Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Vinnumiblun-
ar Reykjavíkur, upplýsir nýlega í
blaðaviötali að 15% ungra kvenna
------------- séu með stúdents-
próf og 8% karla.
Og Haukur Bald-
ursson, sern er
verkfræðingur eins og Jón Erlends-
son, missti atvinnuna í Lands-
smiðjunni eftir að hún var einka-
vædd. Hann skýrir frá því í blaö-
inu „Gegn atvinnuleysi" 6. tbl.
1994, að hann sjái ekki fram á þaö
að fá vinnu, en hafi þó unnið
stuttan tíma í múrverki! Jón Er-
lendsson ætti að lesa þetta blað.
Haukur segir að margir verkfræð-
ingar séu atvinnulausir. Það setur
svip sinn á skoðanir Jóns Erlends-
sonar að hann er sjálfur í vinnu.
Þegar Miðstöð fólks í atvinnuleit
var opin 1 húsi Dómkirkjunnar
komu þangaö ýmsir stjórnmála-
menn og það hlaut að vekja at-
hygli hvab sumir þeirra voru eins
og úti á þekju þegar kom að mál-
efnum atvinnulausra. T.d. hafði
Ólafur Ragnar Grímsson það helst
til málanna að leggja að sér hefði
þótt gaman í Indlandi og þar syltu
ekki nema 100 milljónir. Og í
nefndu viðtali við Oddrúnu Krist-
jánsdóttur í Mbl. 4. júní setur hún
fram skoðanir sem draga dám af
viðhorfum Jóns Erlendssonar. Og
á Ráðningarstofunni liggja í bunk-
um ljósrit af blaðaviðtölum við
hann.
Þaö getur ekki verið hlutverk
Ráöningarstofunnar að halda á
lofti skoðunum Johns Major og
Jóns Erlendssonar. Skoðanir þeirra
standa þó á gömlum merg. Árib
1901 sagði Valtýr Guðmundsson í
þingræðu: „... Onytjungum er hér
sýnd of mikil miskunnsemi ...
Menn heimta af sveitinni kaffi,
sykur og tóbak, auk heldur annaö,
og láta sér enga skömm þykja."
(Alþt. 1901, 3585). J.M.G.