Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Laugardagur 1. júlí 1995 120. tölublað 1995
■3
i
WM—I:
:i . ^r-..—
Rannsókn lokiö á silfursjóönum frá Miöhúsum:
Silfrib er frá
víkingatímanum
Loönuvertíö hafin:
Floti og bræbslur
í startholunum
Sveinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags ísl. fiskimjölsfram-
leiðenda, segir að heimsmarkaös-
verö á loðnuafurðum sé þokk-
legra en oft áður í byrjun loðnu-
vertíðar. Heimilt er að hefja
loðnuveibar í dag, 1. júlí, sam-
kvæmt ákvörðun sjávarútvegs-
rábuneytisins en brábabirgða-
kvóti flotans er um 536 þúsund
tonn.
Flestar helstu loðnuverksmiðjur
landsins em tilbúnar ab taka við
loðnu til bræðslu um leið og afli
berst að landi. Hinsvegar er óvíst
hvað veröur um Vestdalsmjöl á
Seyöisfirði sem skemmdist illa í
snjóflóði í vetur. Búist er við aö
fyrstu skipin láti úr höfn strax á
morgun til loðnuleitar djúpt útaf
Langanesi og jafnvel alla leið að
lögsögumörkunum vib Jan Mayen.
Aðspurður um afkomu verk-
smiðjanna í ljósi nýafstaðinnar
síldarvertíðar, sagðist Sveinn lítið
sem ekkert hafa heyrt frá eigendum
um þau mál. Af þeim sökum má
kannski draga þá ályktun að af-
koman sé all þokkaleg þegar lítil
umræða er um afkomumálin önd-
vert við það þegar illa árar. ■
Davíö farinn
til Vilníus
Forsætisráðherra er floginn til
Vilnius í Litháen, en þar mun
hann sitja fund forsætisráb-
herra Norðurlanda og Eystra-
saltsríkjanna.
Á fundinum verður rætt um
alþjóða-, öryggis- og efnahags-
mál og leiðir til að efla samstarf
Noröurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna.
í för með ráðherra eru Albert
Jónsson, deildarstjóri í forsætis-
ráðuneyti, og Snjólaug Ólafs-
dóttir, skrifstofustjóri Norður-
landaskrifstofu ráðuneytisins. ■
Endanlegar mannfjölda-
tölur liggja fyrir:
Viö erum 266.786
Endanlegar tölur Hagstofu ís-
lands um mannfjölda á land-
inu þann 1. desember liggja
fyrir. Þann dag voru íslend-
ingar alls 266.786 talsins.
Frá því í byrjun desember
1993 og til jafnlengdar í fyrra
fjölgaöi íslendingum um 1.864
manns, eða 0,7%. Á sama tíma-
bili þar áður fjölgaöi lands-
mönnum um 1,04%. ■
Seölabanki
lækkar vexti
Bankastjórn Seðlabanka ís-
lands hefur ákvebið að lækka
forvexti og vexti í endurhverf-
um ríkisvíxlakaupum um 0,3
prósentustig frá 1. júlí. Vext-
irnir gilda í viðskiptum bank-
ans vib innlánsstofnanir.
Breytingarnar á vöxtum
Seðlabankans nú eru í samræmi
við mjög litla veröbólgu hér á
landi á næstunni og þróun
skammtímavaxta á markaði. ■
Nú hafa verib tekin af öll tví-
mæli um aldur silfursjóðsins
sem fannst við bæinn Miðhús
á Héraöi árið 1980, en miklar
deilur hafa verib uppi um
þetta mál allt frá því Vilhjálm-
ur Örn Vilhjálmsson, starfs-
maöur Þjóðminjasafnsins, lýsti
yfir efasemdum sínum um ald-
ur silfursins.
Niðurstaða danska þjóðminja-
safnsins liggur nú fyrir, en sér-
fræðingar þess voru fengnir til
að rannsaka silfrið og komust að
Lögreglan í Vestmannaeyjum
býr sig nú undir ab stöbva þá
lundaveiðimenn í fjöllum og
úteyjum þar ytra, sem ekki
hafa veiöikort útgefin af
Veiðistjóraembættinu. Agnar
Angantýsson, yfirlögreglu-
þjónn í Eyjum, sagði í samtali
vib Tímann í gær að verið
væri ab skoða máliö og hvern-
ig á því yrði tekib.
Lundaveiðitímabiliö í Eyjum
hefst í dag, l.Júlí, og stendur
fram í ágúst. í fyrsta sinn nú
reynir á að lundakarlar hafi
veiðikort, en svo kveba lög, sem
þeirri niðurstöðu að efnasam-
setning silfursins í öllum sjóðn-
um eigi sér hliðstæöu í óve-
fengdum silfursjóðum frá Vík-
ingaöld og að allir gripimir beri
skýr einkenni víkingasmíðar,
bæði hvað varbar stíl og tækni. A
þessu er þó ein undantekning,
einn hringur, sem sker sig úr
hvað varðar gerö. Silfrið er þó
samskonar og þeim möguleika er
velt upp að einhver skartgrip-
anna hafi verið bræddur niður
síðar og nýr hringur gerður úr.
nýlega tóku gildi, á um. Kosta
þessi kort 1.500 kr. Einnig þarf
staðfestingu á hlunnindarétti,
sem fæst hjá Vestmannaeyjabæ
sem er eigandi allra eyjanna.
Ljóst er að lög um veiðikort
koma við samfélagslega hefð í
Eyjum, þar sem lundaveiði er
nánast þáttur af mannlífinu. „Ég
veit ekki hverju þaö breytir í
þessu sambandi, svona em lög-
in," sagði Agnar Angantýsson.
Hann segir þó að erfitt kunni að
verða í raun ab framfylgja þessum
lagaákvæðum: að elta veibimenn
uppi út um eyjar og á fjöllum.
Gerð hringsins bendir til að
hann hafi veriö gerður á 17. eða
18. öld.
Þab voru þau Hlynur Halldórs-
son og Edda Kr. Björnsdóttir í
Miðhúsum, sem fundu silfrið, en
Hlynur er bóndi og silfursmiður
og er Hlynur nú sýknaöur af öll-
um ásökunum sem á hann hafa
verið bornar, um að hann hafi
komið silfrinu fyrir sjálfur. Einn-
ig hefur verið vegið að heiðri
Kristjáns Eldjárns í þessu máli.
Stærri myndin hér að ofan er
Árni Johnsen, lundakarl og
þingmaður Eyjamanna, sagði í
samtali við Tímann að lögin um
veiðikort lundamanna væru af-
ar ósanngjörn — og hin argasta
vitleysa, eins og hann komst að
oröi. „Þab verður afar erfitt ab
fylgja þessum lögum eftir og er
nánast óframkvæmanlegt,
hvort heldur það er í Eyjum, á
Breiðafirði eða Mýrdal, þar sem
veiði af þessu tagi er stunduð.
Ég veit heldur ekki hvaða ár-
angri svona bókhald og mið-
stýring skilar," sagði Árni.
frá blaðamannafundi Þjóð-
minjaráðs í gær, frá vinstri: Helgi
Þorláksson, sagnfræðingur, Lilja
Árnadóttir, safnvörður, Sturla
Böðvarsson, formabur Þjóð-
minjaráðs, Þór Magnússon,
þjóðminjavörður og Sigurjón
Pétursson. Á minni myndinni
má sjá silfursjóðinn, en hringur-
inn neðst í horninu til vinstri er
úr silfri sem líklega hefur verib
brætt niður á síðari tímum og
smíðaður að nýju.
Sjá meira um þetta mál á bls. 7
Flugvél týnd
Leit var hafin í gær ab tveggja
hreyfla íslenskri flugvél sem
ekki kom fram á tilskyldum
tíma á Selfossi. Um borð í flug-
vélinni var abeins flugmaður-
inn.
Björgunarsveitir frá Reykjavík,
Reykjanesi og Suöurlandi voru
kallaðar út og allsherjarleit var
hafin úr lofti og á landi um 5-
leytið í gær. Áður hafði flugvél
Hugmálastjómar hafið frumleit
ásamt einkaflugmönnum frá Sel-
fossi og þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar.
Flugvélin fór frá Reykjavíkur-
flugvelli kl. 14.10 og áætlub lend-
ing á flugvellinum við Selfoss var
kl. 14.40. Síðasta radarsamband
og fjarskiptasamband við vélina
var kl. 14.15 og var hún þá stödd
við Kleifarvatn. Að sögn Hall-
gríms N. Sigurðssonar hjá Flug-
málastjóm voru viðskipti við flug-
vélina þá meb eðlilegum hætti. ■
Lundaveiöin í Eyjum hefst í dag. Allir veröa aö hafa veiöikort uppá vasann:
Löggan á eftir
lundakörlum?