Tíminn - 01.07.1995, Page 3
Laugardagur 1. júlí 1995
Wmtom
3
Úrskuröarnefnd um fiskverö:
Rætt um „sjó-
aban" lögmann
sem oddamann
til Belfast
Miöncetursólarhringurinn gagnrýnir vegageröina milli Húsavíkur og Vopnafjaröar:
Forystumenn sjómanna og út-
vegsmanna hittust í húsakynn-
um LIÚ í vikunni þar sem m.a.
var rætt um fyrirhugað starf í
úrskurðamefnd aðila um fisk-
verðsmál. Búist er viö að gengið
veröi frá formennsku í nefnd-
inni 10. júlí nk. en ákveðið hef-
ur verib að nefndin hafi absetur
í húsakynnum samtaka sjó-
manna að Borgartúni 18.
Enn sem komið er hefur ekki
verið tekin ákvörðun um það
hver verður oddamaður nefndar-
innar í ágreiningsmálum, en
meðal aðila er talað um að fá „sjó-
aðan" lögmann, þ.e. duglegan og
Flugfélagib Emerald fór fyrstu
feröina til íslands í gœr:
Vel bókað
reynslumikinn lögmann í starfið.
í því sambandi hefur m.a. nafn
Friðgeirs Björnssonar, dómstjóra
Héraðsdóms Reykjavíkur, borið á
góma og einnig nafn Valtýs Gub-
mundssonar lögmanns.
Alls munu sex fulltrúar sitja í
nefndinni, þrír frá útvegsmönn-
um og þrír frá sjómönnum.
Samkvæmt starfslýsingu nefnd-
arinnar, en nefndin var eitt af
hryggstykkjunum í nýgerðum
fiskimannasamningum, líða
mest 3 vikur frá því nefndin fær
mál til meðferðar og úrskurður
er birtur. í málum óskyldra aðila
hefur nefndin aðeins 12 daga til
að afgreiða mál. Ef nefndarfull-
trúarnir sex komast ekki að nið-
urstöðu verður oddamaður
nefndarinnar kallabur til að
höggva á hnútinn. ■
Bœttur er skaöinn.. • Þab vakti þjóbarathygli þegar hún Steinþóra Sœvarsdóttir
var rœnd öllum ferbasjóbi sínum, þegar hún var nýkomin út úr banka í Reykjavík í vor. Steinþóra hafbi pantab
far til sólarlanda meb Samvinnuferbum- Landsýn og hafbi í því skyni lagt fyrir fé á bók. Lögreglunni hefur ekki
tekist ab hafa hendur í hári rœningjanna og málib óupplýst. SL ákvab í Ijósi abstæbna ab hlaupa undir bagga
meb Steinþóru og fella nibur eftirstöbvar af ferbinni til Benidorm. Hún var köllub á fund þeirra Kristjáns Gunnars-
sonar og Helga Péturssonar hjá SL á dögunum og þar fékk hún afhentan farsebilinn meb bestu óskum um góba
og ánœgjulega ferb.
Um 90 manns flugu utan til Bel-
fast frá Keflavík síbdegis í gær
meb hinu íslensk-írska flugfé-
lagi Emerald, en fyrsta leiguflug
þess hingað til lands var í gær.
Ab sögn Stefáns Ásgrímssonar
starfsmanns félagsins er vel
bókab í ferbir í allt sumar.
Emerald mun í sumar fljúga
milli íslands og Bretlands á föstu-
dögum og laugardögum. Mest er
bókað til Belfast framan af sumri,
en þegar hallar á sumar fjölgar
Lundúnafarþegum. Emerald flýgur
leiguflug fýrir íslenskar og breskar
ferðaskrifstofur og þær annast jafn-
framt farmibasöluna. ■
Næsta landsmót
hestamanna
í Eyjafirbi
Frá Þóröi Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri:
Næsta landsmót hestamanna
verbur haldið á Melgerbismel-
um í Eyjafirði sumarib 1998.
Stjóm Landssambands hesta-
manna hefur lagt til að Mel-
gerbismelar veröi fyrir valinu,
en Eyfirbingar og Skagfirðingar
hafa keppt um landsmótið.
Eyfirðingar hafa lengi sóst eftir
ab landa landsmót hestamanna,
en slíkt mót hefur aðeins einu
sinni farið fram í Eyjafirði. Það
var á Þveráreymm fýrir rúmum
40 ámm, eða sumarið 1954. Segja
má að barátta þeirra hafi staðið í
20 ár, eða frá árinu 1975, að upp-
bygging áMelgerðismelum hófst,
en umsóknum Eyfirðinga um að
halda landsmót hefur tvívegis
verib hafnað. Síðasta landsmót
hestamanna var haldið á Gadd-
staðaflötum við Hellu fyrir um
það bili einu ári, en samkvæmt
reglum Landssambands hesta-
manna verður að ákveöa næsta
mótsstab innan eins árs frá því
síðasta landsmót fór fram. Gera
verður ráð fyrir að næsta lands-
mót hestamanna verði haldið á
Melgerðismelum fyrrihluta júlí-
mánaöar sumarið 1998, en ná-
kvæmar dagsetningar þess liggja
ekki fyrir enn sem komiö er. Fyrir-
hugaö er að breyta skipulagi
landsmóta hestamanna á þann
veg að eftir mótið 1998 verði
landsmót haldin á tveggja ára
fresti, í stab f jöguna eins og nú er,
og tengist sú ákvörðun að halda
næsta landsmót á Melgerðismel-
um þeim skipulagsbreytingum.
Með tilkomu landsmótsins
gefst tækifæri til að ljúka þeirri
uppbyggingu, sem unnið hefur
verið að á mótssvæðiriu, og
byggja upp fullkomna aðstöðu á
Melgerðismelum. Eigendur svæö-
isins hafa þegar skuldbundið sig
til þess, auk þess sem fýrir liggur
ab Eyjafjarðarsveit og Akureyrar-
bær hafa heitið allt ab 10 milljón
króna fjárstubningi við verklð. ■
Hér er hópurinn sem hóf námib í ársbyrjun 1994 og lauk því nýlega. Fyrir mibju á myndinni er Margrét Björns-
dóttir, endurmenntunarstjóri og fyrrverandi abstobarmabur Sighvatar Björgvinssonar, ibnabarrábherra. Sitt
hvoru megin vib hana sitja þeir Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor og Valdimar K. jónsson prófessor.
Endurmenntun / rekstri og viöskiptum viö Háskólann:
Læknirinn
Oddur Fjalldal læknir við
Landspítalann „dúxaði" á
prófi Endurmenntunarstofn-
unar Háskóla íslands í rekstr-
ar- og viðskiptagreinum meb
ágætiseikunnina 9,19. Tutt-
ugu og einn nemandi var
brautskráður úr þriggja miss-
era námi stofnunarinnar á
dögunum.
Námið er þannig skipulagt ab
þaö má stunda meðfram vinnu
og samsvarar 18 eininga námi á
háskólastigi. Á .þriöja hundrað
nemendur hafa lokiö þessu
námi og koma þeir frá einkafyr-
irtækjum og stofnunum, flestir
með viðamikla stjórnunar-
reynslu og gera miklar kröfur
um hagnýtt gildi og fræðilega
undirstöðu oámsins. ■
„Ástand vega á leiðinni frá
Húsavík til Vopnafjaröar er á
þann veg að það er fyrir löngu
óásættanlegt, hvort heldur er
frá sjónarhóli íbúa á svæðinu,
þeirra fyrirtækja er starfa þar,
eba ferðafólks sem á leib hér
um. Á þessari Ieib eru lengstu
samfelldir malarvegir á Iand-
inu þar sem um er ab ræða líf-
æð íbúanna. Einungis örlítill
hluti leibarinnar er lagbur
bundnu slitlagi," segir í álykt-
un ferðasamtakanna Miðnæt-
ursólarhringurinn sem hélt
fund á Raufarhöfn á dögun-
um. Formaður „hringsins" er
Gunnlaugur Júlíusson, sveit-
arstjóri á Raufarhöfn. Hann
óttast að slæmir vegir fæli frá
ferbafólk.
•Bent er á vaxandi þungaflutn-
ing á þessari leið, ekki síst eftir
ab starfsemi Ríkisskips var lögb
niður. Þetta komi berlega nibur
á ástandi veganna. Á sama tíma
hafi viðhaldi veganna hrakað
og sé nú undir lágmarkskröfum.
Margítrekuöum kvörtunum
íbúa sé í engu sinnt.
„Þetta ástand er algerlega óá-
sættanlegt að mati þeirra aðila
sem bera hag ferðaþjóustu á
svæðinu fyrir brjósti og vilja
vinna að framgangi hennar.
Þegar samdráttur hefur orðið í
atvinnumöguleikum til lands
og sjávar á ýmsan hátt, þá hefur
verið um það rætt af opinberum
aðilum, aö ferðaþjónusta sé val-
kostur sem sé án kvóta og þeir
afli sem róa á þau mið. Það ligg-
ur ljóst fyrir að á meðan Norð-
ur-Þingeyjarsýsla og nyrstu
hreppar Norður-Múlasýslu eru
sveltir af viðhalds- og fram-
kvæmdafé í vegamálum á sama
tíma og vegir eru byggðir upp í
miklum mæli annars staðar á
landinu, þá mun þetta svæði
eiga í auknum mæli undir högg
aö sækja í ferðamálum. Ferða-
fólk sættir sig ekki lengur við að
eiga á hættu að skemma bíla
sína vegna slæmra vega og
sneiðir því frekar hjá þeim.
Ferðamálasamtökin telja að
stjórnvöld og fjárveitingarvald
hafi ekki síðri skyldum að gegna
við þennan landshluta en íbúa
annara landshluta. Er þess kraf-
ist ab fólk nyrðra fái aö sitja við
sama borð og aðrir landsmenn
hvað varðar viðhald og upp-
byggingu helstu samgönguæða
héraðsins. ■
Vondir vegir fæla ferðafólkið frá