Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 18

Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 18
18 Laugardagur 1. júlí 1995 Indæla Reykjavík Indæla Reykjavík — 6 göngúleiðir um Þingholt og sunnanvert Skólavöröuholt heitir ný bók eftir Guöjón Friöriksson, rithöfund og sagnfræðing. Þessi indæla bók á eflaust eftir aö hlýja mörgum Reykvíkingum um hjartarætur, en búast má viö því aö hún veröi ekki síður til þess aö auka skilning aö- komumanna á því dálæti sem innfæddir hafa á átt- högum sínum. Eins og titillinn bendir til, skiptist bókin í þætti sem hver um sig spannar sjálfstæða gönguleið. Ein þeirra, sú sjötta og síðasta, hefst á Týsgötu og liggur síðan um Lokastíg, Þórs- götu, Freyjugötu, Baldursgötu, Urðarstíg, Nönnugötu, Haöar- stíg og Válastíg, áður en hún endar á Bragagötunni. Við hvert fótmál er eitthvað að sjá og athuga og lesandan- um finnst eins og hann sé kominn aftur í fortíðina og sjái „þessar götur í anda á kreppuárunum, ómalbikaðar og alsettar leðjupollum þar sem ótrúlegur urmull af krakk- arollingum veltist um. Þreytu- legar konur með strigasvuntur halla sér öðru hvoru út um glugga til að kalla á börn sín í mat eða stinga sér inn í þvög- una til að hremma þau yngstu," eins og segir á einum stað, en þetta er dæmi um þann andblæ sem komið er til skila í bókinni. Smásögur úr daglega lífinu, persónulegur fróðleikur um þá sem hér settust að og heimild- ir um afkomu alþýöunnar og þeirra sem betur máttu sín ger- ir textann í heild sinni að sannkallaðri skemmtilesn- ingu, en á hverri opnu eru 4-5 myndir sem fylgja frásögninni og þab jafnvægi, sem náðst hefur á milli lesmáls og mynda, sýnir gleggst að hér má hvorugt án hins vera. Hverfið sem hér er gert að umtalsefni er sundurleitt, svo vægt sé til orða tekið. í suður- jaðrinum, við Laufásveg og Fjölnisveg, átti yfirleitt heima fólk sem bjó við góð efni í glæsilegum húsakynnum, en á næsta leiti er Urðarstígur og um hann segir: „Við Urðarstíg bjó yfirleitt fátækt fólk en rétt handan Njaröargötu opnast Fjölnis- vegur. Meðalútsvar húseig- enda þar var 1198 krónur árið 1938 en meðalútsvar húseig- enda við Uröarstíg var á sama tíma 162 krónur." Af slíkum dæmum er mikið í textanum og þau eru oft á tíð- um gleggri þjóðlífslýsingar en langir sagnabálkar. Þótt myndarleg hús séu á stangli í þessu hverfi, ber heildarsvipurinn vott um skipulagsleysi og jafnvel óreiðu, enda eru mörg húsin þar byggð af vanefnum. Mörg- um þeirra var hróflaö upp á ár- um heimsstyrjaldarinnar fyrri, en þá var húsnæðisekla til- C uöjón Fribriksson er afkastamikill sagnfrœbingur og rithöfundur. Mebal helstu verka hans er Reykjavíkursagan 1870-1940 og œvisaga jónasar frá Hriflu í þrem- ur bindum. Hann er nýbúinn ab skila afsér handriti ab sögu blaba- mennsku á íslandi og er ab byrja á nýrri ævisögu eins af stórmennum andans meb þessari þjób, en ekki er tímabært ab segja nánar frá því verkefni enn sem komib er. Gubjón er hagvanur á þeim slób- um sem lýst er í „Indælu Reykja- vík". Hann ólst upp á Barónsstígn- um og átti heima á Spítalastígn- um um árabil. Nú er hann fluttur vestur yfir læk og á heima vib Tjarnargötu, en þaban er ágætt útsýni yfir Þingholtin. finnanleg í Reykjavík og skipulagsstjórnin ekkert að kippa sér upp við smámuni eins og það þótt einum og ein- um kofa væri klambrað saman á einhverri baklóðinni, oft ut- an í húsum sem þar stóðu fyr- ir. Þvílíkar ástæöur eiga eflaust sinn þátt í því að kunnugir kalla þetta stundum Kína- hverfið sín á milli. Þótt ólíklegt megi telja að fólkið, sem þannig fór að því að bjarga sér um þak yfir höf- uðið, hafi séð eitthvað sjarm- erandi við þær aðstæður sem það bjó vib á þessum árum og frameftir öldinni, ekki síst í sjálfri heimskreppunni um 1930, á öreigarómantíkin greiðan aðgang að mörgu nú- tímafólki. Hún á sjálfsagt sinn þátt í því að nú eru margir sem sækjast eftir íbúðarhúsnæði á þessum slóöum, og sl. fimm- tán ár eða svo hefur hverfið tekið þvílíkum stakkaskiptum að þar er nú leitun á því kofa- skrifli sem ekki er búib ab „gera upp" eftir kúnstarinnar reglum. I formála rekur Guðjón Frið- riksson aðdraganda þess ab bókin varð til. Hann var ráð- inn til þess árið 1985 af Reykjavíkurborg að skrifa sögu Reykjavíkur 1870-1940 og vann að því verki um fimm ára skeið. Vinnan fólst ma. í því að fara í gegnum ógrynni heimilda, en um leið fór Guð- jón að halda til haga ýmsum upplýsingum um einstök hús og einstaklinga. Sá vísir ab heimildaskrá varð síðan efni- vibur í röb útvarpserinda og greinar í Lesbók Morgunblaðs- ins um einstakar götur í gamla bænum í Reykjavík, en bókin „Ipdæla Reykjavík" er eins- konar framhald þeirrar vinnu. Langflestar myndir í bók- inni tók Valdimar Sverrisson, en Vilhjálmur Sigtryggsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, var Gubjóni til ráðuneytis um trjágróbur á þeim slóðum sem hér segir frá. Þingholtin, og þó einkum og sér í lagi Skólavörðuholtið sunnanvert, eru sannkölluö Kontt skrifaSi IAI- fýðublaðið 1923 og bað um aðstoð tií fjöl- skyldu sem hafði búii i einu herbergi í nið- urgröfnum kjallara i nastum fintm ár. Herbergið var aðeins um sex fermetrar og hetð undir lofi 1,90 metrar. Þó tóku skor- steinn og klóakjiipa töluvert rúm I herberginu. Knud Zimsen borgar- stjóri segir firá jtvi 1 endurminningum sln- um að þessi þrönga gata hafi orðið tilfyr- ir þrýstingjrá einurn 132 INDÆLA REYKjAVÍK út ( gangstéttina og grind- um yfir til þess að dá- lítil dagsglæta getí komist inn. Þetta staiár af þvi að við malbikun hefúr þurft að hækka göt- una en þá var búið að ' “ . ... , byggja húsið. Þetta sést v(ða í gömlu Reykjavík. Týsgata 7 er mjótr hús sem nú tilheyrir Hótel Óðinsvéum. Á neðri hæðinni var áratugum sanian skóvinnustoíá en nú er útidyrahurðin horfin. í hennar stað er þar hórelgluggi. Á nr. 8 er fjórlyfc verslunarhús, teiknað af Finari Erlendssyni 1929 fyrir Júlíus Guðmundsson kaup- Tilttrtí Lokastigs Við snúum til baka og hefjttm göngu upp Lokastlg. Eins og áður hefur komið frarn var hér býlið Holt og þegar hús fóru að rísa á landi þess viidi eigandinn, Matthías Manhíasson í Holti, fénast sem mest. Með því að fá götu * samþykkta þarna gat hann selt fleiri lóðír en ella. Borgarstjórinn kvaðst hafaverið mjög andvígur þessu en orðið að láta undan því að Matthías í Holti átti allsterk ítök í bygginganefnd og bæjarstjórn. Sú er ástæða þess að húsin standa svo þétt við Lokastíg og þeirn tilhcyra liclar lóðir. Kannski hefur Knud Zimsen borgarstjóti þó aðeins náð sér niðri á Matthíasi með því að ráða nafni göt- unnar en hún heitir vitaskttld eftir þeim svikula Loka Laufcyjarsyni. Það er hins vegar ekki óeðlilegt því að Lokastígur felur sig hálfpartinn á bak við Þórsgötu, ltkt og Loki var oftast skammt undan þar sem Þór fór forðum. l.oknstíptr að Bttldursgötu Flest húsin við Lokastíg eru frá því um og efcir 1920 og eru í misjöfnu ástandi. Samt er eitrhvað heillandi og dularfullt við þessa götu. Kannski er það vegna Nú á dögum eiga margir bágt meb ab ímynda sér hvernig sumar af skrýtnu götunum í Þingholtunum hafa orbib til, þeas. hvab þeir menn hafa verib ab hugsa sem áttu ab sjá um röbun byggbarinnar. Ein þeirra gatna er Lokastígurinn. Vib hann eru mörg vöndub og reisuleg hús, en þó ergatan svo þröng ab þegar hvert bílastæbi sunnanmegin er skipab er einstefnuakstur vandkvœbum bundinn. Skýringu á því hvernig Lokastíg- urinn varb til, ab hluta til amk., er ab finna í„Indælu Reykjavík" eins og hér má sjá, en opnan sem myndin er af er annars gott dæmi um þann fróbleik í máli og myndum sem er ab finna í bókinni. gróðurvin þar sem fjölbreytn- in ræður ríkjum, en þar eru mörg elstu og merkustu tré í borginni. Eins og að líkum lætur er fjöldi einstaklinga frá ýmsum tímum nefndur í bókinni. Um þá er nafnaskrá, en oft er um að ræða menn sem voru af- kastamiklir í byggingafram- kvæmdum og raunar er frá- sögnin ágrip af byggingasögu þessa borgarhluta í megin- dráttum. ■ Ab leggja undir sig landið Islenskir fossar/lcelandic Waterfalls. Myndir og texti eftir Jón Kr. Gunnars- son. Skuggsjá, Bókabúb Olivers Steins, Hafnarfirbi 1992. Ensk þýbing Lárus Vilhjálmsson. 352 blabsíbur meb litprentubum myndum allra fossanna sem nefndir eru. Það er sama í hverju það er falið, það er ekki svo lítið verk að leggja undir sig allt ísland. Það hefir þó verið gert nokkrum sinnum á undan- förnum árum í ferðabók- menntum. Þar tróna á toppn- um myndabækur Hjálmars R. Bárðarsonar og íslenskir fossar Jóns Kr. Gunnarssonar. Þessi bók er stórvirki, því að Jón hefir ferðast um allt land og tekið allar myndirnar sjálf- ur. Ár eftir ár kom hann til að taka myndir að nýju af sama fossi, því að honum líkaði sú fyrri ekki nógu vel, eða þá að hann hafði verið kynntur fyrir nýjum fossi. Þessi þrautseigja hefir líka skapað meistaraverk. Sjálfur þykist ég þekkja all- marga fossa af yfir 30 ára ferðalögum um landiö, sem leiðsögumaður, en Jón hefir kynnt mig fyrir mörgum nýj- um, þó mér finnist suma vanta. Þá hefir honum tekist að finna ýmis ný sjónarhorn, sem gera fossana á vissan hátt fallegri myndrænt séð. í formála sínum notar Jón þá samlíkingu að það að fara BÆKUR SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON til fundar við foss sé eins og að fara á stefnumót vib fagra konu. Til slíks er mikið á sig lagt, ferðir og göngur. Þegar svo loks fundinum er náð, næst ákvebiö hámark og svo þarf loks ab leita að fegurstu hliöum eða þáttum hvers foss, eins og hverrar konu. Enda segir Jón í formálanum: „Heimsóknir til hinna fögru fossa verða auðveldlega að á- stríbu." Þó svo undirrituðum finnist að í vanti nokkra fossa, verður slíkt ekki talið bókinni til lasts á nokkum hátt, enda segir höfundur: „Þessari bók er ekki ætlað ab verða nein alsherjar- úttekt á íslenskum fossum. ... Hafa skal í huga að hinir fjöl- mörgu leynifossar landsins eru ekki síður fallegir en þeir sem eru í þjóðleið og betur þekkt- ir." Þetta gefur ef til vill mögu- leikann til að opna lesendum nýjan heim þessara fossa, sem þeir einir þekkja er búa á slóð- um þessara fossa eða leggja land undir fót í löngum gönguferðum. Að slíkri bók væri mikill fengur, ekki síður en þessari. Irafoss undir Eyjafjöllum. Ljósm. Tímirm/jón Kr. Gunnarsson Þá segir dr. Jón Jónsson jarð- fræðingur í eftirmála að bók- inni: „í þessu verki er farið nokkuð út fyrir það, sem kalla mætti troðnar slóðir, og víða leitab fanga nokkuð fjarri al- mennum leiðum og nokkra fyrirhöfn þarf til að skoða. En einmitt á þess- um slóðum má vænta þess að finna fullkom- lega óspillta náttúru, en slík- um stöðum fer nú óðum fækk- andi þar sem hægt er að losna algerlega við vélargný, njóta fegurðarinnar og hlýða á „hljóðin snjöllu úr hamra- þröng"." í bókinni er miklu stærra og meira og betra úrval þess jarð- fræðilega fyrir- bæris,*, sem við nefnum fossa, en áður hefir nokkru sinni komið á prent og þá fyrir al- mennings sjón- ir. Gefur bókin jafnvel ferða- löngum meðal lesendanna, hugmyndir að fossaferðum um ýmsa hluta landsins. Bókin er afbragðsvel unnin að því er prentun, pappír og band varðar. Má Skuggsjá hafa þökk fyrir að hafa komið henni á framfæri. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.