Tíminn - 10.08.1995, Qupperneq 11
Fimmtudagur 10. ágúst 1995
MRtisxfóvinn
11
Hrikti í stobunum þegar mest gekk á vegna dóma á HM:
Meint hludrægni dómara
verbur tekin fyrir innan FEIF
Kynbótadómar á alþjóblegum
mótum veröa sérstaklega
teknir fyrir innan FEIF eftir
heimsmeistaramót íslenskra
hesta í Sviss. Tilefniö er mót-
mæli íslendinga viö því aö
þýsk hryssa, Hnosslotta frá
Wiesenhof, var dæmd áber-
andi hátt af þýska kynbóta-
dómaranum en keppinautur-
inn frá íslandi, Brynja frá
Hafsteinsstööum, var dæmd
áberandi lágt af þýska dómar-
anum. Afleiöingin var sú aö
íslenska hryssan lenti í ööru
sæti meö einkunnina 8,05 en
sú þýska í fyrsta, meö 8,07.
Þetta litla atvik var dropi sem
fyllti mælinn á þessu sviði en
íslendingar hafa lengi sakað
Þjóöverja og fleiri um
hlutdrægni í dómum á alþjóð-
legum mótum.
Þorkell Bjarnason, hrossa-
ræktarráöunautur, sem var
annar kynbótadómaranna fyrir
íslands hönd, segir aö menn
hafi lengi haft þaö á tilfinning-
unni aö dómarar á heims-
meistaramótum séu valdir eftir
því hversu duglegir þeir séu viö
aö standa á bak við hesta frá
sínu eigin landi.
„Þetta á bæði við í kynbóta-
dómum og íþróttadómum,"
segir Þorkell. „Eg hef áður veriö
í kynbótadómnefnd á mótum
eins og þessum og fundið fyrir
þessu.
Þorkell segir að þýski dómar-
inn hafi dæmt jafn hludrægt
og raun bar vitni á heimsmeist-
aramótinu nú, og því hafi ís-
lensku dómararnir, hann og
Jón Vilmundarson, notað
tækifærið og mótmælt því sem
hafi lengið lengi í loftinu,
nefnilega hlutdrægum dómum.
íslensku dómararnir neituðu að
skrifa undir dóma nema málið
yrði tekið fyrir.
Kvörtun íslendinganna kom
fyrst fram eftir að dómarnir
höfðu verið birtir og þegar mót-
mælin höfðu verið staðfest var
þess farið á leit við íslending-
ana að þeir féllust á dóminn,
en að öðmm kosti væri hætta á
því að mótið færi hreinlega í
vaskinn. Eftir mikil fundarhöld
náöist nokkurskonar sátt um
framhaldið. Lyktir deilunnar
urðu þær að málið veröur tekin
upp inan FEIF en dómurinn
verður látinn standr.
Þýski kynbótadómarinn
hvarf hins vegar af vettvangi og
annar var kallaður inn fyrir
hann til þess að sitja dómara-
fundi. Samkvæmt heimildum
Tímans var á tímabili mjög
þungt í íslendingunum vegna
þessa máls og á dómarafundum
kom sú skoðun skýrt fram að
vinnubrögð sem þessi gætu
ekki gengið lengur. Hér væri
um hreinasta fúsk aö ræða, sem
Islendingar vildu ekki og
mundu ekki taka þátt í að ó-
breyttu.
„Það er náttúrlega til skamm-
ar að mismuna hrossunum eftir
því frá hvaða landi þau eru og
nýðast svo á hinum sem eru
hættuleg í samkeppninni," seg-
ir Þorkell Bjarnason.
Fleiri af forráðamönnum ís-
lenska liðsins og íslensku dóm-
nefndarinnar hafa tekið í sama
streng og fullyrða að fulltrúar
Þorkell Bjarnason, hrossarœktar-
ráöunautur: Andrúmloftiö er allt
annaö en þaö var fyrir t.d. 30
árum og maöur finnur einnig fyrír
þrýstingi vegna peningasjónar-
miöa heima.
vissra aðildarlanda innan FEIF
vinni saman þegar kemur að
dómum á sviði kynbóta og í í-
þróttakeppnum. í þessu sam-
bandi hafa aðallega verið nefnd
Þýskaland, Austurríki og Sviss
en enginn af viðmælendum í
hópi Islendinganna vildi stað-
festa þetta opinberlega undir
nafni. Menn vonast til að það
sem gerðist nú marki nokkur
tímamót og hafi í för með sér
aðfaglegri vinnubrögð verði
viðhöfð af hálfu dómaranna.
„Við sögðum að við gætum
ekki staðið í þessu," segir Þor-
kell Bjarnason. „Frá upphafi
hefðu íslendingar alltaf sent
fagmenn í kynbótadómnefndir
og við tækjum ekki lengur þátt
í þessu ef það ætti að ganga
svona áfram. Ég vona að þetta
verði upphafið að því aö þessi
mál verði öll tekin í gegn, and-
rúmsloftið hreinsað og fagleg
vinnubrögð sett í öndvegi við
kynbótadómana og sport-
mennirnir fylgi svo á eftir."
-En hvað segir Þorkell um
meinta blokkamyndun ákveð-
inna landa á heimsmeistara-
mótum?
„Hún er greinileg," segir
hann. Þeir sem eru kunnugri
þessu en ég og í innsta hring í
íslenska líðinu halda því fram
að það séu nokkrar þjóðir sem
standi saman og vinni hver
með annarri. Þá eru vinnu-
brögðin þau að gefa ákveðnum
hrossum jafn háa einkunn og
menn mögulega þora en dæma
skæðasta keppinautinn jafn-
framt eins mikiö niður og hægt
er. Þetta er alveg viðurkennt og
ég þori að standa við þetta hvar
sem er."
-Hestamótin snúast þá meira
um peninga en áður?
„Það er alveg greinilegt að
þetta er farið að snúast meira
um peninga en áður var. Sú
þróun er líka greinileg heima á
Islandi. Maður finnur þrýsting
á mann að vera ekki of fagleg-
ur, þetta séu peningamál og
maður verði að taka tillit til
þess. Ég hef ekki nokkra trú á
að nokkur einasti kynbóta-
dómari á íslandi víki nokkuð
undan þessum þrýstingi, en
hann er til staðar og andrúms-
loftið er allt annað en það var
fyrir t.d. 30 árum." ■
DAGBÓK
Fimmfudaqur
10
ágúst
222. dagur ársins -143 dagar eftir.
32. vika
Sólris kl. 05.01
sólarlag kl. 22.03
Dagurinn styttist um
ómínutur
Frá Félagi eldri borgara
Bridge, tvímenningur í Risinu,
kl. 13.00 í dag.
Frá Feita Dvergnum
Trúbadorinn Ingvar Valgeirsson
spilar föstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Tónskrattar
leikur föstudags- og laugardags-
kvöld í Næturgalanum, Smiðjuvegi
14, Kópavogi.
Taflfélag Reykjavíkur:
Helgarskákmót
Taflfélag Reykjavíkur gengst fyrir
helgarskákmóti um næstu helgi,
11.-13. ágúst, og er teflt
í félagsheimilinu að Faxafeni 12.
Tefldar verða sjö umferðir meö
Monrad-kerfi. Fyrtu þrjár umferð-
irnar verða með 30 mínútna um-
hugsunartíma, en fjórar síðari með
1 1/2 klst. á 30 leiki og síðan 30
mín til viðbótar til að ljúka skák-
inni. Mótið hefst kl. 19.30 á föstu-
dagskvöld og lýkur kl. 21.00 á
sunnudag. Verðlaunafé nemur 40
þúsundum. Öllum heimil þátttaka.
Ný sýning í gallerí Greip
Laugardaginn 12. ágúst nk. opn-
ar í gallerí Greip sýning á verkum
ísraelska listhönnuðarins Yaron
Ronen. Hann útskrifaðist frá Bezal-
el listháskólanum í Jerúsalem áriö
1993 en hefur kennt og starfað þar
í borg síðan. Á sýningunni verða
ýmsir nytjahlutir s.s. pennar,
klukkur, skálar ofl. sem hann hefur
hannað og smíðað á undanförnum
árum. Sýningin stendur til 20. ágú-
ast og er opin alla daga nema
mánudaga, frá k. 14-18.
Opib hús í Norræna húsinu:
Fyrirlestur í kvöld
Guðmundur Gunnarsson arki-
tekt flytur fyrirlesturinn „Islands
bygninghistorie á dönsku í kvöld á
sal Norrænna hússins. Fyrirlestur-
inn er stutt ágrip af byggingasögu
íslands. Hann mun bæði fjalla um
sögulega arfleifö byggingarlistar á
íslandi og nútíma arkitektúr. Sýnd-
ar verða litskyggnur. Að fyrirlestri
loknum mun Guðmundur svara
spurningum.
Allir em velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Bókasafn Norræna hússins er op-
ið til. kl. 22. á fimmtudögum í
sumar. Kaffistofan opin til 20.00.
Hjólaö í kringum gamla
Seltjarnarnesib
Ahugafólk um almenningshjól-
reiðar í Borgarlandinu stendur fyrir
könnunarferð á aðstæöum til að
hjóla eins og kostur er með strönd-
inni umhverfis gamla Seltjarnar-
nesið. Öllur er heimilt að taka þátt
í þessu og hjóla alla leiðina eða
hluta hennar með vönum hjól-
reiðamanni. Ekkert þátttökugjald.
Mæting kl. 20.00 í kvöld í porti
Hafnarhússins við Tryggvagötu.
Hjólað verður inni í Laugames og
áfram inn í Elliðaárvog. Þaöan yfir
á gangstíg í Fossvogsdal og út með
Fossvogi og síðan út á Suðurnes í
Seltjarnarnesbæ og yfir að Snoppu
við Gróttu og að lokum með
ströndinni niður á Höfn að Hafnar-
húsinu. Áætlað er að það taki um
2-2 1/2 tíma að hjóla leiðina.
Hið íslenska náttúrufræbifélag:
Gróburkortanámskeib
12. ágúst
Hib íslenska náttúrufræðifélag
efnir til námskeiðs í notkun og
gerð gróðurkorta laugardaginn
12. ágúst 1995. Námskeiðið hefst
kl. 10.00 í fundarsal Rannsókna-
stofnunar landbúnabarins á
Keldnaholti á kortakynningu og
starfsaðferbum, en síðan fara
fram hagnýtar æfingar úti í nátt-
úrunni sjálfri. Leiðsögumenn
verða náttúrufræðingarnir Einar
Gíslason og Guðmundur Gub-
jónsson.
Námskeiðið er ætlað almenn-
ingi, skipulagsaðilum og öbrum
sem hafa not af gróðurkortum í
starfi sínu. Skráning þátttakenda
fer fram á skrifstofu HÍN, sími
562-4757. Allar nánari upplýs-
ingar veitir Guðmundur Guð-
jónsson, Rannsóknastofnun
íandbúnaðarins í síma 577-1010.
Þátttökugjald er kr. 1.000.
Hlini kóngsson í Ævin-
týra-Kringlunni
í dag, fimmtudaginn 10. ágúst
kl. 17.00, sýnirt Furðleikhúsið leik-
sýninguna um Hlina kóngsson í
Ævintýra-Kringlunni. Leikritiö er
unnið upp úr mörgum útgáfum af
sama þjóðsöguævintýrinu. Það
fjallar um Hlina kóngsson sem týn-
ist í þokunni og finnst hvergi þrátt
fyrir víðtæka leit. Signý, bónda-
dóttirin í Garðshorni, leggur af
stað og finnur hann í tröllahelli.
Miðaverb kr. 450.
Tónleikar í Deiglunni í
kvöld
Fimmtudaginn 10. ágúst, í
kvöld, verða haldnir tónleikar í
Deiglunni. Þar koma fram Hilmar
Jensson gítarleikari, Chris Speed
saxófónleikari og Jim Black
trommuleikari.
Chris og Jim em íslendingum ab
góðu kunnir og hafa þrisvar áður
leikið hér á landi, síðast á Rúrek
'94. Þeir eru bábir í fremstu röb í
nýjum jazzi í New York og hafa
leikið víba í Bandaríkjunum, Evr-
ópu og Japan. Þeir hafa leikið á
fjölda geisladiska, m.a. með Dewey
Redman, Dave Douglas og Tim
Barne. Auk þess hafa þeir leikið á
tónleikum með ýsmum þekktum
tónlsistarmönnum, eins og Joe
Henderson, John Zorn og Marc
Ducret.
Hilmar hefur nýlokib við upp-
tökur á geisladisk sem Jazzis gefur
út í september. Á disknum leika
Tim Berne, Andrew D'Angelo,
Skúli Sverrisson, Jim Black og Chris
Speed.
Á tónleikunum í Deiglunni
munu þeir félagar leika lög af
væntanlegri plötu og annað frum-
samið efni. Tónleikarnir hefjast kl.
22.00 og aögangur er ókeypis.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reyk|avfk frá 4. tll 10. ágúst er I Borgar apótekl og
Grafarvogs apótekl. Þaó apótek sem fyrr er nefnt
annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl.
9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudöa-
um. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru
gefnar f sfma 18ö8ð.Hafnargönguhópurlnn:
Neyðai vakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Simsvari
681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjaróar apótek og Norðurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar í simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjórnu apótek eru opin
virka daga á opnurrartima búða. Apótekin skiptast á sína
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavórslu.
Á kvöldin er opið í því apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 c
20.00-21.00. Á öðrum timum er lyljafræðingur á bakvakt.
Upplýsingar eru gefnar i s ma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00, ___
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.0f
Garðabær: Apóteklð er opið rúmhelga daga kl. j.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATBYGGINGAR
1. ágúst 1995
Mánabargreibsfur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1 /2 hjónalífeyrir 11.629
Full tgkjutrygging ellilífeyrisþega 28.528
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 29.327
Heimilisuppbót 9.697
Sérstök heimilisuppbót 6.671
Barnalífeyrir v/1 barns 10.794
Meblag v/1 barns 10.794
Mæbralaun/feðralaun v/1 barns 1.048
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja bama eba ffeiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaba 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaba 12.139
Fullurekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæbingarstyrkur 26.294
Vasapeningar vistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreiöslur
Fullir fæbingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150 00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri 150,00
í ágúst er greidd 20% oriofsuppbót á fjárhæbir tekju-
tryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilis-
uppbótar. Uppbótin skerbist vegna tekna ísama
hlutfalli og þessir bótaflokkar skerbast.
GENGISSKRÁNING
9. ágúst 1995 kl. 10,54
Oplnb. viðm.gengi Gergi
Kaup Sala skr.func t
Bandarfkjadollar 63,62 63,80 63,71
Sterlingspund ....101,83 102,11 ■ 101,97
Kanadadollar 46,79 46,97 46,88
Dönsk króna ....11,637 11,675 11,656
Norsk króna ... 10,240 10,274 10,257
Sænsk króna 8,885 8,915 8,900
Flnnskt mark ....15,059 15,109 15,084
Franskur franki ....13,057 13,101 13,079
Belgfskur frankl ....2,1954 2,2028 2,1991
Svissneskur franki. 54,51 54,69 54,60
Hollenskt gyllini 40,31 40,45 40,38
Þýsktmark 45,18 45,30 45,24
..0,04005 0,04023 0,04014
Austurrfskur sch .../.6,421 6,445 6,433
Portúg. escudo ....0,4345 0,4363 0,4354
Spánskur peseti ....0,5285 0,5306 0,5295
Japanskt yen ....0,6959 0,6981 0,6970
....104,08 104,50 104,29
Sérst. dráttarr 97,65 98Í03 97,84
ECU-Evrópumynt.... 84,09 84,39 84,24
Grfsk drakma ....0,2802 0,2812 0,2807
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar