Tíminn - 24.08.1995, Side 10

Tíminn - 24.08.1995, Side 10
10 WWSttWM Fimmtudagur 24. ágúst 1995 Framsóknarflokkurínn Hérabshátíb framsóknar- manna í Skaqafirbi verður haldin i Miðgarði laugardaginn 26. ágúst. Dagskrá Ávarp llytur Isólfur Gylfi Pálmason alþingismaður. Fílapenslar frá Siglufirði flytja söng og gamanmál. Einsöng syngur Sólrún Bragadóttir sópran við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Dansleikur að dagskrá lokinni. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur. Mætum hress og kát að venju. Nefndin „Á ab standa vib kosninga- loforbin?" Stefna SUF — Reykjum í Hrútafirði 25.-27. ágúst 1995. Föstudagur 25. ágúst: Kl. 21.00 Miðstjórnarfundur SUF Gestur: Ingibjörg Pálmadóttir, heilbr.ráðh., ritari Framsóknarflokksins. Laugardagur 26. ágúst: Kl. 10.00 Setning - Guðjón Ólafur Jónsson, formaður SUF. Kl. 10.10 „Hverju var lofað?" - Páll Magnússon, varaformaður SUF. Kl. 10.30 „Staða rlkissjóðs — fjárlagagerðin" - Jón Kristjánsson, alþm., formaður fjárlaganefndar Alþingis. Kl. 11.00 ,Áhrif fjárlaga á þjóðarbúskapinn" - Dr. Hilmar Þór Hilmarsson, hagfræðingur, aðstm. utanr.ráðherra. Kl. 11.30 „Störf Alþingis — þáttur þingflokksins við efndir kosningaloforða" - Valgerður Sverrisdóttir, alþm., form. þingfl. framsóknarmanna. Kl. 12.00 Hádegisverður — hlé Kl. 13.30 Kosningamálin: .Atvinnumál — 12000 ný störf" - Stefán Guðmundsson, alþm. og varaform. stj. Byggðastofnunar. „Húsnæðismál — greiðsluvandi heimilanna" - Magnús Stefánsson, SUF-ari og alþingismaður. „Menntamál í öndvegi" - Hjálmar Árnason, alþingismaður. Kl. 15.00 „Unga fólkið og framtlðin" - Anna Margrét Valgeirsdóttir, formaður FUF-Ströndum. Kl. 15.30 Kaffihlé Kl. 16.00 Pallborðsumræður—ráðstefnulok Kl. 18.00 Kvöldverður — brottför á héraðsmót framsóknarmanna (Skagafirði Sunnudagur 27. ágúst Kl. 10.00 Morgunmatur — brottför Jöfnunarabstob í skipaiðnaöi Á grundveili samþykktar ríkisstjórnarinnar, sem mióar ab því ab tryggja ab innlend fyrirtæki geti keppt á jafnréttis- grunni vib erlend, hefur verib ákvebib ab veita fyrirtækjum í skipa- og málmibnabi jöfnunarabstob vegna skilgreindra verkefna í skipasmíbum og endurbótum innan ramma 7. tilskipunar ESB um þab efni. Ibnlánasjóbur veitir nánari upplýsingar og annast afgreibslu þessarar jöfnunarabstobar fyrir hönd ibnabar- og vibskiptarábu- neytisins. Ibnabar- og vibskiptarábuneyti, Ibnlánasjóbur og Samtök ibnabarins Innilegt þakklœti sendi ég þeim sem glöddu mig á 80 ára afmœli mínu 4. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll Dóra Guðbjartsdóttir Tjarnarbíó , Söngleikurinn jOSEP og hans undraverba skrautkápa eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber. Mibnætursýning 25/8 kl. 23.30 — Laugard. 26/8 og sunnud. 27/8 kl. 17.00 — Fjölskyldusýning (lækkaö verö) —^Sunnud. 27/8 kl. 21.00 Miöasala opin alla daga í Tjarnarbíói frá kl. 12.30 — kl. 21.00. Miöapantanir símar: 561 0280 og 551 9181, fax 551 5015. „ Þab er langt síban undirritaöur hefur skemmt sér eins vel í leikhúsi." Sveinn Haraldsson, leiklistargagnrýnandi Morgunblabsins. Takmarkaöur sýningarfjöldi, sýningum verbur ab Ijúka í byrjun sept. ✓ / Afram eru kannaöir möguleikar á því aö reisa zinkverksmiöju á Islandi. Benedikt Jóhannsson hjá Talnakönnun: Spádómar borga sig ekki „Ég spáöi því í fyrra að menn yröu farnir aö grafa fyrir þessu núna, en þaö er greini- legt aö þaö er ekki. Þannig aö ég held aö þaö borgi sig ekki aö vera meö neina spádóma í því," segir Benedikt Jóhanns- son hjá Talnakönnun, en hann er ráögjafi Áburöarverk- smiöjunnar viö könnun á mögulegri uppsetningu zink- verksmiöju hérlendis. „Þetto er nú sami barningur- inn hjá okkur. Þaö er verið aö vinna í þess.um hráefnismálum, víöa um heim, má eiginlega segja," segir Benedikt Jóhanns- son aöspuröur um stööu mála. Samstarf hefur veriö í gangi viö Zink Corporation of Amer- ica og telur Benedikt aö þaö fyr- irtæki sé í þessu samstarfi af fullri alvöru. Maöur frá fyrirtæk- inu hafi veriö aö vinna aö þesSu verkefni frá því fyrir síöustu ára- mót. „Ég veit ekki betur en aö hann sé aö fara í næstu viku til Brasil- íu og kanna grundvöllinn þar. Maöur veit þaö ekki fyrr en hann hefur lokiö sinni könnun hvort sú náma kemur til greina. En þetta sýnir manni þó að þetta er í fullum gangi, þeir eru að senda mann á sinn kostnað heimshornanna á milii," segir Benedikt. Þetta fyrirtæki rak fjórar verk- smiöjur í Bandaríkjunum, en lokaöi einni þeirra í fyrrasumar. Ástæða lokunarinnar var hátt orkuverð og óstööug orka. Hér- lendis stendur fyrirtækinu til boöa orka á viðráðanlegu veröi og í öruggu magni. En þaö er fleira en orkan og orkuverðiö sem Bandaríkjamennirnir telja jákvætt viö ísland. „Þeir hafa nú lagt mikla áherslu á að þeim lítist mjög vel á sig hérna. Menn kunni vel til verka hér í svona verksmiðju- rekstri. „Benedikt segir aö á sumum öðrum stöðum þar sem orka bjóðist á sambærilegu verði og hér sé mikið um ólæsi, en menntunarstigið væri einn þátturinn sem horft væri á. Einnig voru þeir hrifnir af frá- gangi viö þær verksmiðjur sem þeir skoðuðu hérlendis. „Þetta er nú snyrtilegra, finnst mér, hérna heima heldur en maður sér víöast úti," segir Benedikt. -TÞ Stefnir í verkfall á fjóröa hundraö ófaglœröra starfskvenna á heilbrigöisstofnun- um í Hafnarfiröi: Neyöarástand blasir við Gubríður Elíasdóttir, formaöur Verkakvennafélagsins Framtíb- arinnar í Hafnarfirbi, segir ab jiab verbi algjört neybarástand á heilbrigðisstofnunum í Hafn- arfirbi ef samningar takast ekki á milli félagsins og ríkisins ábur en bobab verkfall á fjórba hundrab félagskvenna kemur til framkvæmda á miönætti n.k. föstudags. Mánabarlaun ófaglærbra kvenna á viðkom- andi stofnunum, St. Jósefsspít- ala, Hrafnistu og Sólvangi eru frá 58-73 þúsund krónur aö mebtöldum námskeiöum. Formaður félagsins segir aö konurnar séu alveg „eitilharöar" í sinni kröfugerö, enda ætla þær aö sýna hvers viröi þær séu inni á stofnunum. Hún vill ekki tjá sig aö svo stöddu um kröfugerð fé- lagsins í krónum eöa prósentum að ööru leyti en því að krafist er hliðstæðra launaleiöréttinga og samið var við ófaglært starfsfólk á heilbrigðisstofnunum á Austur- landi í vetur. Auk þess krefst fé- lagið að ríkiö semji í gegnum þjónustudeild VMSÍ. Ríkiö hefur hinsvegar boðið félaginu Sóknar- samninginn. í kjarasamningum Framtíöar Guöríöur Elíasdóttir, formaöur Framtíöarinnar. Hún segir aö neyöarástand blasi nú viö. eru engin ákvæöi um þjónustu- skyldu eða vinnu samkvæmt neyðaráætlun í verkföllum á heil- brigðisstofnunum. Ef til verkfalls verður þaö í fyrsta skipti síðan í byrjun sjöunda áratugarins sem Framtíöin stendur ein aö aögerð- um sem þessum. Komi til verk- falls mun þaö ekki aðeins bitna á sjúklingum og vistmönnum á þessum stofnunum og aðstand- endum þeirra því viöbúiö er að vinnuálagið muni aukast all veru- lega hjá ööru starfsfólki eins og t.d. hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. Boöaður hefur verið sáttafund- ur í deilunni í dag, fimmtudag, þar sem væntanlega veröur reynt til þrautar aö ná samningum. Hinsvegar bendir fátt eitt til þess aö svo geti orðið miðað viö undir- tektir samninganefndar ríkisins við kröfum Framtíðarinnar á síö- asta sáttafundi í sl. viku. Samningaumleitanir hafa staö- iö yfir með hléum nær allar götur frá því aðilar á almennum mark- aöi sömdu sín í milli í febrúar sl. En um síðustu áramót tók ríkiö yfir rekstur viðkomandi stofnana og allra sjúkrahúsa landsins en áöur samdi Framtíðin við Hafnar- fjarðarbæ. Viö yfirtöku ríkisins fór samninganefnd þess fram á það að gerður verði einn heildar- kjarasamningur við ófaglært starfsfólk heilbrigðisstofnana. Þegar á reyndi gekk þessi áætlun ríkisins ekki upp vegna þess aö kjör ófaglærðra heilbrigðisstétta eru mismunandi eftir stöðum. Hinsvegar var Framtíðin samþykk því að standa að einum kjara- samningi. ■ r Í ■ m. 1 I... J Tímamynd Birgir Cuömundsson. ^ ^ ^ umumynu Diiyir ui fyrir fuglinn Aðeins Þessa litlu og snotru sundlaug í fallegu umhverfi er að finna nokkra kílómetra frá Grenivík, í Gljúfurárgili, og freistar ferða- langa eins og aðrar sundlaugar landsins, sem eru 122 að tölu. En hún er sýnd veiði en ekki gefin. í fyrsta lagi er brúin yfir ána að sligast eftir mikla vatna- vexti í sumar og hún lokuð svo sem sjá má. Og taki menn áhættuna og láti reyna á brúna, þá kemur í ljós aö í lauginni er ekki vatnsdropa að finna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.