Tíminn - 09.11.1995, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 9. nóvember 1995
Toyota Corolla hefur um
langt árabil verið mest seldi
bíll á landinu og er algeng-
asti fjölskyldubíllinn hér. Hann
er nú eingöngu fluttur inn meö
1332 rúmsm vélinni, þar sem 1,6
1 vélin færir bílinn upp um vöru-
gjaldsflokk og gerir hann umtals-
vert dýrari. Um þrjár megingerðir
er að ræða: hlaðbak, stallbak og
langbak. Innan þeirra má velja
um ýmsan búnað. Hlaðbakurinn
fæst þriggja eða fimm dyra og
með mismiklum íburði. Milli
tveggja meginútfærslna þriggja
dyra bílsins er að velja og kostar
sú ódýrari 1134 þúsund krónur,
en sú dýrari 1244 þúsund krónur.
Munurinn felst aðallega í samlæs-
ingu, rafdrifnum rúðum og snún-
ingshraöamæli. Báðar gerðir hafa
vökva- og veltistýri. Lítum nú á
þennan vinsæla bíl með dálítið
gagnrýnum augum og í mjög
stuttu máli og styðjumst við ná-
kvæma úttekt, sem þýska bíleig-
endafélagiö ADAC gerði á hon-
um:
Yfirbygging
Þrennra dyra hlaðbakur.
Corolla fæst einnig sem stallbak-
ur og langbakur.
Plús: Allur frágangur mjög góð-
ur að utan og innan. Stuðararnir
eru yfirborðsmiklir og verja bíl-
inn vel. Samlæsing (virkar aðeins
frá ökumannsdyralásnum).
Mínus: Hliðarárekstursvöm
heldur rýr. Stefnuljósin að fram-
an felld í hornin á stubaranum og
er því hætt við að brotna. Ekkert
handfang á hurðinni fyrir farang-
ursrýminu. Engin festing fyrir að-
vörunarþríhyrninginn í skottinu.
Vont að nálgast varadekkið, ef
farangur er í skottinu. Hægt að
slysast til að læsa lyklana inni í
bílnum.
Farangursrými:
Stórt miöaö viö
bílinn
Plús: Gott farangursými (315 1)
og aubvelt að hlaða og tæma það.
Hægt ab fella aftursætisbakið
fram i tvennu lagi (1/3-2/3). Með
því fæst verulega aukiö farangurs-
rými með sléttu gólfi.
Mínus: Öryggisbeltin afturí
þvælast fyrir, þegar setunni í aft-
ursætinu er velt fram og bakið
Mazda sjaldn-
ast strand
Þegar tímareim slitnar á fullri ferð,
þá skemmist vélin venjulegast mjög
illa og bíllinn verður strand þar sem
hann er kominn. Slitin tímareim er
ein algengasta ástæða þess að bílar
verða stopp á þýsku hraðbrautun-
um, að því er kemur fram í tölum
vegaþjónustu ADAC, félags bif-
reiðaeigenda í Þýskalandi. Þetta
kemur fram í Ökuþór, blaði FÍB sem
nýkomið er út.
Eölilegt er að skipt sé um
tímareimina á 60-100 þúsund km
fresti, en margir trassa þetta, sumir
hugsanlega í spamaðarskyni. En
það er harla vafasamur sparnaður,
því aö viðgerðir á afleiðingum slit-
inna tímareima eru mjög dýrar. En
hvaða bílategundir verða oftast
stopp í Þýskalandi af þessum sökym
og hverjar sjaldnast? Tölurnar í töfl-
unni eru miðaðar við einn af hverj-
um lOOObílum.
Smábílar
Sjaldnast: Mazda 121 10,7
Oftast: Citroen AX 42,1
Minni millifl.
Sjaldnast: Mazda 323 11,9
Oftast: Lada Samara 83,7
Stærri milliflokkur
Sjaldnast: Mazda 626 15,6
Oftast: Citroen BX 88,1
Stórir bílar
Sjaldnast: Mercedes-Benz E 23,7
Oftast: Opel Omega 48,1
Traustur hversdagsbíll:
Toyota Corolla 1,4 XLi árg. 1995
fellt fram á við til ab fá slétt gólf
og vörurými fram að framsætum.
Fjarlægja þarf höfuðpúöana, þeg-
ar þetta er gert.
Farþegarými:
Fimm manna bíll
Plús: Fyrirtaks pláss í framsæt-
um. Auðvelt að stíga inn og út.
Fótarými og höfuðrými ágætt fyr-
ir stærstu menn (um 1,90 m á
hæb). Sætin stillanleg að flestra
vaxtarlagi. Allt framsætið rennur
fram á við, þegar aftursætisfar-
þegar stíga inn. Allur frágangur á
innréttingum góbur.
Mínus: Geymsluhólf í mæla-
borði (hanskahólfið) þröngt og
ekki mjög aðgengilegt og vantar í
þab ljós. Langt að teygja sig í ör-
yggisbeltin fyrir framsætin til aö
spenna þau á sig. (Aðeins í þriggja
dyra útgáfunni). Þröngt að stíga í
aftursætið og úr því. Framsætin
falla í fasta stillingu, en ekki í þá
sem farþegi eða bílstjóri var bú-
inn aö finna sér. Fótarými afturí
mætti vera meira. Öryggisbeltin
afturí ekki þægileg í meðförum og
notkun.
Aöstaöa ökumanns
Plús: Bíllinn er auðveldur í
meðförum. Ökumaður hefur
góða yfirsýn yfir mælaborðið og
stjórntækin. Mælar eru aublæsi-
legir og takkar og rofar eru þægi-
lega staðsettir, bæði fyrir augu og
hendur, og auk þess upplýstir.
Bábir útispeglar eru rafstýrðir og
útsýni gott úr þeim. Hæðarstill-
ing er á stýrishjóli. Vökvastýri.
Ljós og tölvurödd lætur vita ef
maöur ætlar út úr bílnum án þess
ab slökkva á ljósunum og eins ef
dyr eru hviklæstar.
Mínus: Útsýn úr baksýnisspegli
er léleg og villandi (smækkuð
mynd). Útsýni afturávið úr öku-
mannssæti er í það heila tekið lé-
Iegt. Ljósmagn aballjósa er of lít-
ið.
Öryggi
Plús: Mælaborb og gluggapóst-
ar eru þykkbólstraðir og engar
brúnir eba horn.
í Þýskalandi er staðalútgáfa
BILAR
STEFÁN ÁSGRÍMSSON
þessa bíls með loftpúða fyrir öku-
mann og farþega frammí og sjálf-
virka strekkjara fyrir öryggisbelt-
in. Slíkur öryggisbúnaður er skatt-
lagöur hér á landi og þannig bú-
inn yrði Corollan verulega dýrari
(sem og aðrir bílar).
Mínus: Rafgeymirinn er alveg
fremst í vélarrúpiinu sem eykur
hættu af honum við árekstur. Ör-
yggisbeltin frammí sitja of nærri
hálsi farþega og ökumanns. Belt-
in afturí, sem eiga að grípa um
mjabmir farþega, sitja of hátt.
Hnakkapúðar í aftursæti duga
ekki fyrir fólk sem er hærra en
1,75 m.
Vél og drifbúnaöur
Plús: Vélin hefur allgott þanþol
í snúningshraða, fremur jafnt
togafl, svarar vel og er þýðgeng.
Fimm gíra gírkassinn og hlutföll-
in í honum eru vel sniðin að eig-
inleikum vélarinnar.
Umhverfisáhrif
Eldsneytisnotkun í minna lagi
miöað við stærð og þyngd bílsins.
Mebaleybsla í borgarakstri 8,0
1/100 km.
' Plús: Sérlega sparneytinn í
Norskar konur hafa skorið
upp herör gegn frúarbílum
þar í landi, en frúarbílar þar
eru oftar en ekki gamlar og lé-
legar smápútur. í þessum
druslum aka konur börnum
sínum til og frá skóla og sinna
öbrum erindum heimilanna.
í Noregi leggur ríkið mjög
þungar álögur á nýja bíla og eru
þeir því mjög dýrir og þeim
mun vandaðri sem þeir eru, því
hærri álögur eru lagöar á þá.
Ungt barnafólk hefur sjaldnast
of rúm fjárráð og neyðist til að
kaupa sér minni, eldri og óör-
þjóðvegaakstri. (6,01/100 km).
Lítið af mengandi efnum í út-
blæstri.
Mínus: Hávaði, sem bíllinn gef-
ur frá sér í akstri, er 75 db.
Öryggi í akstri
Plús: Rásfastur. Smávægileg
vanstýring (undirstýring) í beygj-
um. Stýrið mjög nákvæmt og gef-
ur ökumanni tilfinningu fyrir ör-
uggu sambandi framhjólanna viö
veginn. Hemlarnir svara vel og
auðvelt að stjóma hemluninni.
Þægindi í akstri
Plús: Fjöðrunin er stinn án þess
ab vera hörð. Sætið fellur vel að
líkamanum og ökumaður situr
tryggt í því.
Mínus: Dynur í undirvagni,
einkum þegar ekiö er á ósléttum
brautum. Talsvert vindgnauð
þegar greitt er ekiö.
Miöstöö -
loftræsting
Plús: Stjórntakkar og rofar mið-
stöbvarinnar liggja vel við sjón-
um og höndum. Öflugur fjögurra
hraða blásari. Hægt að loka fyrir
loftstreymi utanfrá.
Mínus: Vantar betra ljós á
stjórntakkana. Ónákvæm stilling
á hita og loftblöndun. Loftristar í
mælaboröi of litlar.
uggari bíla en þeir sem eldri eru
og hafa betur komið undir sig
fótunum. Raunar er sams konar
neyslustýringu beitt hér á landi,
þótt ekki hafi enn að minnsta
kosti veriö farið út í sömu
öfgarnar, því að bílar í Noregi
eru almennt um helmingi dýr-
ari en þeir eru hér. Að vísu ber
að taka fram að kaupmáttur
launa í Noregi er verulega meiri
en hér. Konurnar benda á að
þær og börn þeirra séu í ástæðu-
lausri hættu af þessum sökum
og mótmæla þessari neyslustýr-
ingu harblega. ■
Tæknilegar
upplýsingar
Vél og gírkassi:
Fjögurra strokka vél, 1332
rúmsm.
Bensín: Blýlaust 95 okt.
Afl: 75 hö/5400 sn.
Tog: 145 Nm/4800 sn.
Framhjóladrif.
5 gíra gírkassi.
Hámarkshraði: 170 km.
Viðbragð 0-100 km: 12,8 sek.
Lengd/breidd/hæð í mm:
4095/1685/1380.
Farangursrými: 314 til 650 1.
Þyngd: 975 kg.
Hlassþyngd: 585 kg.
Eldsneytisgeymir: 50 1.
Veg- og vélarhljóð í bílnum á
50 km hraða
59 db í 4. gír.
100 km hraða 70 db í 5. gír
130 km hraða 75 db í 5. gír
Aðrar vélargerðir framleiddar
í Corolla:
4 strokka bensínvél
Rúmtak: 1587 rúmsm
Afl: 114 hö.
Viðbragð: 0-100 10 sek
Hámarkshraði: 195
Meðaleyðsla pr 100 km: 8,0 1.
4 strokka dísilvél
Rúmtak: 1975 rúmsm
Afl: 72 hö.
Viöbragð: 0-100 14,1 sek
Hámarkshraði: 165 km/klst.
Meöaleyðsla pr 100 km: 7,0 1.
í Þýskalandi er Toyota Corolla
seld með eftirfarandi staðalbún-
aði auk þess staðalbúnaðar sem
hér fylgir í kaupunum: 1587
rúmsm vél, ABS (læsivöröum)
hemlum, loftpúða fyrir öku-
mann og framsætisfarþega og
sjálfstrekkjandi öryggisbeltum.
Hér á landi fæst einnig
Corolla sem skutbíll með
sítengdu aldrifi og 1,8 1 vél, en
það líkar Skattmanni ekki og
setur á hann hressiiegt vöru-
gjald til ab gera færri mögulegt
að kaupa hann. Skattmann er á
móti stórum vélum og öryggis-
búnaöi eins og loftpúbum og
læsivöröum hemlum. Það er nú
þab. * ■
Noregur:
Konur og börn í óþarfa hættu