Tíminn - 17.01.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur
Forsetaframboö 1996:
Talaö um Jón Baldvin
sem frambjóöanda:
„Ætti meiri
möguleika í
Litháen"
Nafn Jóns Baldvins Hannibals-
sonar heyrist stöhugt meira í um-
ræbunni manna á mebal í sam-
bandi vib væntanlega frambjóð-
endur til forsetakjörs. Jón Baldvin
er nýkominn heim meb sendi-
nefnd Alþingismanna til Litháen,
þar sem þingmönnum og þá ekki
síst Jóni Baldvin var tekib meb
kostum og kynjum.
„Svona þér ab segja, þá held ég ab
ég hefbi miklu meiri möguleika í
Litháen heldur en hér," svaraði Jón
Baldvin spurningu Tímans í gær og
hló við. Hann sagðist vilja svara
þessu síðar, spurningin kæmi frem-
ur flatt upp á sig, og sér leiddist orb-
ið spekúlasjónir um forsetafram-
boð, alla vega í bili. - /BP
Bjórsalan
aukist 40%
Heildarsala ÁTVR á áfengi og tób-
aki nam rúmlega 12.520 milljón-
um króna á síbasta ári, sem sam-
svarar tæplega 130.000 kr. á
hvern landsmann sem náb hefur
16 ára aldri. Þar af komu 7.940
milljónir í kassann fyrir áfengi.
Áfengissala ÁTVR, mæld í lítrum
hreins alkóhóls, óx nú umtalsvert
annað árið í röð, eða um 3,4% frá
árinu áöur — þrátt fyrir að ÁTVR
hafi hætt heildsölu áfengis til veit-
ingahúsa frá og með 1. desember sl.
Miðað við hlut veitingahúsanna í
heildarsölunni árið áður virðist
ljóst að áfengissala 1996 hafi verið
hátt í 6% meiri en árið áður.
Öðru sinni er það stóraukin bjór-
sala sem einkum einkennir sölutöl-
ur ÁTVR. í fyrra var sá hluti alkó-
hólsins sem íslendingar innibirtu í
bjór kominn í um 40% m.v. sölutöl-
ur ÁTVR.
Sala brenndra drykkja heldur á
hinn bóginn áfram að dragast sam-
an hvað mest, eða um 18%, á
Brennivíninu gamla og góða. Sala
borðvína heldur aftur á móti áfram
upp á vib, sérstaklega á raubvíni. ■
Umsœkjendur um opinberar
stöbur:
Nafnleynd
afnumin
Forsætisráðherra hefur sett stjórn-
arráðinu reglur um afnám nafn-
leyndar umsækjenda um opin-
berar stöbur í framhaldi af sam-
þykkt ríkisstjórnar þar að lútandi
frá 29. desember sl. Samkvæmt
því heyrir svonefndur „Óskar
nafnleyndar" sögunni til.
Þessar nýju reglur taka gildi um
leið og auglýsing þess efnis hefur
birst í næsta tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins. Upp frá því verður ekki
þörf á að gera sérstakan fyrirvara
um afnám nafnleyndar í auglýsing-
um um einstaka stöbur. -grh
Miðvikudagur 17. janúar
11. tölublað 1996
jón Stefánsson á cefingu meb kórnum ífyrrakvöld.
Tímamynd ÞÖK
Séra Flóki Kristinsson krefst uppsagnar Jóns Stefánssonar í bréfi til
sóknarnefndar. Ólafur Skúlason biskup:
„Kemur algjörlega
í opna skjöldu"
Séra Flóki Kristinsson, sókn-
arprestur í Langholtskirkju,
hefur ritað sóknarnefnd
Langholtskirkju bréf þar sem
hann fer fram á að Jóni Stef-
ánssyni organista og kór-
stjórnanda Langholtskirkju-
kórs verði sagt upp störfum.
Jón Stefánsson segir ekkert
nýtt að Flóki fari fram á
þetta við sóknarnefnd en
herra Ólafur Skúlason bisk-
up segir bréfið og opinbera
birtingu þess í fjölmiðlum
torvelda lausn deilunnar og
það komi honum í opna
skjöldu að bréfið skuli hafa
komist í hendur fjölmiðla.
Jón tók til starfa í kirkjunni í
fyrradag eftir ab hafa verið í
leyfi síðan fyrir jól. Bréf Flóka
er dagsett 13. janúar en næst
verður messað í Langholts-
kirkju næstkomandi sunnu-
dag.
I bréfinu sem lesið var upp í
hádegisfréttum RÚV í gær, er
farið fram á að sóknarnefnd
segi organista og kórstjórn-
anda upp störfum og sé ástæð-
an einkum framkoma Jóns
sem hafi valdiö söfnuðinum
og orðstír kirkjunnar miklu
tjóni, auk þess sem séra Flóki
segir að sér vegiö. Hann óskar
þess að farið verði að lögum og
ákvæði um uppsagnarfrest
verði virt en frábiður sér með
öllu þjónustu organistans
framvegis og fer fram á það við
sóknarnefnd að hún geri vib-
eigandi ráðstafanir til að helgi-
hald kirkjunnar geti ótruflað
haldið áfram og ráðinn verði
tímabundið í samráði vib Jón
hljóðfæraleikari eða organisti á
meðan uppsagnarfrestur renn-
ur út.
„Þetta er ekkert nýtt," sagði
Jón Stefánsson í samtali við
Tímann í gær. „Hann er marg-
oft búinn að krefjast þessa við
sóknarnefnd. Þetta er ekki einu
sinni í fyrsta skipti sem hann
gerir það bréflega. En það er
augljóslega ekki mikill sátta-
hugur í Flóka."
Um mögulegt framhald
málsins sagði Jón: „Sóknar-
nefndin hefur með manna-
hald að gera og ef sóknar-
nefndin vill ekki reka mig er
málið óneitanlega dálítib flók-
ið. Ekki fyrir sóknarnefndina
heldur Flóka. Þá kemur til
kasta organistafélagsins sem
verður að sjá um að ákvæði
samninga verði ekki brotin, að
einhver gangi ekki í þau störf
sem þegar hefur verið ráðið í."
Aðspurður hvort Jón myndi
ótrauður halda sínu striki í
störfum fyrir kirkjuna sagði
hann að á meðan Eiríkur Tóm-
asson lögmaöur ynni í málinu
og fundaði með hlutaðeigandi,
myndi hann reyna að halda
sjó.
Tíminn innti herra Ólaf
Skúlason biskup eftir við-
brögðum vegna bréfsins í gær.
„Ég hef beðið alla aöila að gæta
þess að halda þessu máli þann-
ig að vatnið yrði ekki gruggað
frekar. í því hefur verib númer
eitt að við værum ekki að berg-
mála skoðanir okkar í fjölmibl-
um. Þetta eru mér gífurleg
vonbrigði."
-Þetta auðveldar ekki lausn
deilunnar, eða hvað?
„Alls ekki. Ef eitthvað er ger-
ir þetta lausn deilunnar erfið-
ari."
Biskup sagðist ekki skilja
hvernig Ríkisútvarpið komst
yfir bréfið. „Mér þykir miður
að bréfið skuli hafa komist í
Ríkisútvarpið og skil ekki
hvernig það gerist. Stjórn
prestafélagsins hafði samþykkt
í gær á fundi með mér að ekki
yrði meira fjallað um þessi mál
í fjölmiðlum. Þetta kemur mér
því algjörlega í opna skjöldu."
Sóknarnefnd hafði ekki tekið
afstöðu til beiðnar Flóka þegar
Tíminn fór í prentun í gær. -BÞ
Kosningabarátta
forsetaefna:
Gæti vel
kostaö um
10-20 m.kr.
Miklar breytingar hafa átt
sér stað á fjölmiðlun og
kynningum síðan siðasta
alvöru forsetakjör átti sér
stað fyrir nærri 16 árum.
Sérfræðingar um kosn-
ingamennsku sem Tím-
inn ræddi viö í gær gera
ráð fyrir aö forsetaefnin
muni nýta sér nútíma-
tæknina í fjölmiðlum.
Auglýsingar í fjölmiðlum
og fjölmiölaumræða
komi til dæmis í stað
stórra framboösfunda.
Það er hald manna sem
vit hafa á kostnaði í kosn-
ingabaráttunni að þeir sem
stefna á framboð megi bú-
ast vib að þurfa að greiða
10-20 milljónir fyrir kynn-
ingu á sér og sínum stefnu-
málum.
Gunnar Steinn Pálsson,
almannatengill hjá GSP- al-
mannatengslum, sagði að
alvöru kosningabaráttu
mætti framkvæma þokka-
lega fyrir 10-15 milljónir
króna. Ámundi Ámunda-
son, víðkunnur kosninga-
stjóri, sagði að áætlanir
ættu þab til að hlaupa úr
böndunum, dæmi væru
um að herkostnaður' fjór-
faldaðist á lokasprettinum.
Indriði G. Þorsteinsson,
fyrrum kosningastjóri við
forsetakjör, tók undir þetta.
-]BP
Nánar á bls. 3
\