Tíminn - 23.03.1996, Page 11
Laugardagur 23. mars 1996
wmmm
11
Ólafur Ólafsson landlœknir segir samtökin Lífsvog ekki fara meö rétt mál:
Heilbrigbiskerfið
tekur á mistökum
Landlæknir segir þaö stablausa
stafi ab heilbrigöiskerfiö viöur-
kenni ekki mistök. Hann segir aö
veröi læknar uppvísir aö endur-
teknum mistökum í starfi sé tek-
iö á því máli. Læknar hverfi úr
starfi eöa séu fluttir til í kerfinu.
Samtökin Lífsvog segja reynslu
sína af kerfinu vera aöra.
Kvörtunum og kæmmálum sem
berast Landlæknisembættinu hef-
ur fjölgaö mikiö á síöustu árum. Á
ámnum 1990- 1994 bárust emb-
ættinu að meðaltali 211 erindi á ári
en meðaltal fimm ára þar á undan
var 100 mál á ári.
Samtökin Lífsvog voru stofnuð
fyrir u.þ.b. ári í þeim tilgangi aö
aöstoða fólk sem telur sig hafa orö-
iö fyrir læknamistökum. Frá stofn-
un samtakanna hafa á annað
hundrað manns leitaö til þeirra að
sögn Guörúnar Maríu Óskarsdótt-
ur, stjórnarkonu í Lífsvog.
Guörún María og tvær aörar
konur úr stjórn Lífsvogar rituðu
lesendabréf í Morgunblaðið sl.
fimmtudag þar sem þær segja m.a.
að heiibrigöiskerfiö viðurkenni
ekki mistök og því sé ekki reynt að
koma í veg fyrir þau innan kerfis-
ins. Þær segja ennfremur aö fá-
mennur hópur lækna sé valdur að
þeim mistökum sem fólk telji sig
hafa orðið fyrir.
Ólafur Ólafsson landlæknir seg-
Ólafur Ólafsson.
ist lýsa því sem staðlausum stöfum
aö heilbrigöiskerfið viöurkenni
ekki mistök. Hann segir aö emb-
ætti sínu hafi borist tugir erinda frá
Lífsvog. Hvert þeirra hafi verið
skoðað vandlega og leyst úr þeim
eftir bestu getu. Ólafur segir þó aö
allmörg erindanna séu fyrnd eöa
leysist ekki vegna „óheppilegrar
löggjafar". Meö því vísar hann til
þess aö slysasjóður er ekki aftur-
virkur, þ.e. mál sem komu upp fyr-
ir árið 1989 eru ekki afgreidd. Lög-
in voru samþykkt þvert gegn vilja
landlæknisembættisins, aö sögn
Ólafs.
„Ef læknir veröur uppvís að end-
urteknum mistökum er tekið á því
máli. Læknar hverfa úr starfi eða
eru fluttir til í kerfinu. Sum tilfelli
eru erfiö, þótt vel og rétt sé staðið
að meðferö getur útkoman verið
léleg. í þeim tilfellum kemur slysa-
sjóður til hjálpar en því miður
gegnir hann ekki því hlutverki sem
hann ætti að gera vegna óheppi-
legrar löggjafar. Landlæknisemb-
ættið hefur óskað eftir breytingum
á þessum lögum en ekki hefur ver-
ið orðið viö því."
Samkvæmt tölum frá landlækn-
isembættinu bárust því 227 alvar-
legar kærur og kvartanir á árunum
1991-1992. í 35-45% tilfella er tal-
ið að um læknamistök hafi verið
að ræða. Yfir 90% málanna voru
afgreidd innan árs. 56 málanna
leiddu til ábendingar, 23 til
áminningar og 16 til tilmæla. Al-
varlegar áminningar voru veittar í
fjórum tilfellum og ein tillaga um
leyfissviptingu kom í kjölfar þess-
ara mála. A árunum 1976-1993
hafa 6 læknar verið sviptir leyfi og
3 hjúkrunarfræðingar. Þá hafa 4
læknar veriö látnir hætta störfum
og 3 fengið takmarkað leyfi. Loks
hafa 4 kandidatar ekki fengið leyfi.
„Af þessu tölum má sjá að eftirlit
með heilbrigðisstarfsfólki er virkt á
íslandi þar sem hlutfallslega mun
fleira heilbrigöisstarfsfólk verður
fyrir sviptingu eða takmörkun á
starfsleyfi hér á landi en á hinum
Noröurlöndunum," segir Ólafur.
-GBK
Um 21% allra atvinnulausra kvenna í febrúarlok voru í hlutastörfum:
Atvinnulausum fækkabi um þribjung
Atvinnulausum á landsbyggð-
inni fækkaði ab jafnaði um
nærri því þribjung milli janú-
ar og febrúar, eba úr 5,9% nib-
ur í 4%. Fækkunin var svipub
mebal karla og kvenna. Á höf-
ubborgarsvæbinu fækkabi at-
vinnulausum miklu minna,
úr 6,2% nibur í 5,7%, enda
voru 2/3 allra atvinnulausra í
febrúar (eba 4.300 af 6.400)
búsettir á höfubborgarsvæb-
inu.
Skráðir atvinnuleysisdagar í
febrúar svara til þess ab 5% af
mannafla hafi jafnan verib án
vinnu í mánuðinum, eba ámóta
og Vinnumálaskrifstofan spábi í
janúar. Mest dró úr atvinnuleysi
á Austurlandi, úr 7,4% niður í
3% eða um miklu meira en
helming. Atvinnulausir voru nú
um 1.300 færri en í febrúar í
fyrra.
Þótt 7.050 manns hafi verið
án vinnu í lok febrúar, eba 650
fleiri en ab mebaltali í mánub-
inum, er ekki búist við ab at-
vinnuleysi verbi ab rábi meira í
mars en í febrúar. Gott tíbarfar
og ágæt aflabrögð muni að
miklu leyti vega upp samdrátt
eftir lobnuvertíbina.
Af 7.050 á atvinnuleysisskrá í
febrúar voru nær 15%, eða rösk-
lega 1.030 samt í hlutastörfum.
Af þeim voru tæplega 790 kon-
ur, eða tæplega 21% þeirra
3.770 kvenna sem voru á skrá.
Hlutfall atvinnulausra í hluta-
starfi var hæst á Austurlandi
(28%) og Nl. vestra (26%), og
litlu lægra á Suðurlandi, Vestur-
landi og Norburlandi eystra.
Mibab vib heildartölurnar má
því ætla að jafnvel í kringum
40% atvinnulausra kvenna á
þessum svæöum séu í hluta-
störfum. Á höfuðborgarsvæðinu
voru einungis tæplega 11% at-
vinnulausra í hlutastörfum .■
BÆNDUR
Pantiö
^ Kverneland féUjjspíli
RÚLLUBAGGAPLASTIÐ
TÍMANLEGA
50 cm kr. 4.300,- + vsk. 75 cm kr. 5.200,- + vsk
Hafiö samband vió sölumenn okkar, sem gefa
allar nánar/ upplýsingar.
Ingvar
irj- = i Helgason hff- vélasala
C '
Landsvirkjun
Útboð
Sandblástur og málun
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboðum í að sandblása
og mála stálklædda vatnsvegi Steingríms- og írafoss-
stöðva í samræmi við útboðsgögn SOG-07.
Verkið felst í að sandblása og mála vatnsvegina sem eru
um það bil 2400 fermetrar og útvega í því skyni og
leggja til allt efni og alla vinnu, svo og allt annað sem
þarf til að framkvæma verkið og Ijúka því að fullu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með þriðjudeg-
inum 26. mars 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að upp-
hæð kr. 3.000,- m. VSK fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Landsvirkjunar
að Háaleitisbraut 68, Reykjavík til opnunar miðvikudag-
inn 10. apríl 1996, kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda er
heimilt að vera viðstaddir opnunina.
Aösendar greinar
sem birtast eiga í blaðinu þurfa að vera tölvusettar og
vistaðar á diskling sem texti, hvort scm er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar
getá þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
mm
■0 eAiit Ifolta
lemut
vatn!
mIUMFERÐAR
Uráð
--------------------------------------------
'TJ*
Faöir okkar, tengdafabir, afi og langafi
Egill Sigurgeirsson
hæstaréttarlögmaður,
Hringbraut 110
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudag-
inn 26. mars kl. 13.30.
Ebba Urbancic
Agla Egilsdóttir
Ingibjörg Egilsdóttir
jón Axel Egilsson
Cubrún Egilsdóttir
Ásta Egilsdóttir
barnabörn og
Pétur Urbancic
Tryggvi Ásmundsson
Svavar Ármannsson
Sigríbur Magnúsdóttir
Axel Cómez
Karl Ásgeirsson
barnabarnabörn
V
(---------------------------------------------------------------\
H1
Kæru vinir.
Af alúö þökkum vib ykkur fyrir alla þá hjálp og
samúb er þib veittub okkur vib andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móbur, tengdamóbur,
ömmu, dóttur og stjúpdóttur
Agnesar Kristínar
Eiríksdóttur
Sólvöllum 11, Selfossi
Sérstakar þakkir til allra er önnubust hana f hennar veikindum.
Cubs blessun fylgi ykkur.
Óli jörundsson
Kristbjörg Óladóttlr Cestur Haraldsson
María Óladóttir Svanur Ingvarsson
Eiríkur Cubmundsson Margrét Benediktsdóttir
Barnabörn og abrir abstandendur