Tíminn - 10.05.1996, Blaðsíða 3
Föstudagur 10. maí 1996
WJWJWÖíl
3
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráöherra:
Hvalveiðar verða hafn-
ar en spurning hvenær
„Engin spuming er um
hvort hvalveibar verða hafn-
ar heldur hvenær þær veröa
hafnar," sagbi Þorsteinn
Pálsson, sjávarútvegsráb-
herra, í umræöum utandag-
skrár á Alþingi í gær. Hann
sagbi ab ákvörbun um þab
yrbi meðal annars aö byggj-
ast á möguleikum til nýting-
ar afurba, áhrifum hvalveiða
á vibskipti og aöstæbum í
samskiptum þjóba.
Þorsteinn gat þess að íslend-
ingar ættu í mörgum erfiðum
samningamálum á svibi fisk-
veiða og nýtingar sjávarfangs
og ein af ástæðum þess að ekki
hafi enn verið tekin ákvörðum
um að hefja hvalveiðar að
nýju væri sú að ekki hafi þótt
fært að efna til fleiri ágrein-
ingsmála á því sviði. Hann
sagði að búið væri að ákveða
að hefja takmarkaðar hrefnu-
veiðar fyrir innanlandsmarkað
og hvalarannsóknir væru nú
hluti af fjölþættu rannsókna-
verkefni sem Hafrannsókna-
stofnun vinni að.
Guðjón Guðmundsson,
Sjálfstæðisflokki, hóf umræð-
una og spurði hvað tefði þá
ákvörðun stjórnvalda að hefja
hvalveiðar að nýju. Nú væru
liðin sjö ár frá því síðasti hval-
urinn var dregin að landi en
þá hafi lokið takmörkuðum
veiðum á hvölum í vísinda-
skini. Guðjón benti á þær tekj-
ur sem þjóðarbúið hafði af
hvalveiðum og að fjöldi fólks
hafi einnig haft atvinnu af
þeim þar sem þær hafi skapað
allt að 150 ársverk. Guðjón
ræddi einnig um mikinn vöxt
hvalastofnanna hér við land
og að þeir ætu nú álíka magn
af fiski og allur veiðifloti
landsmanna aflaði.
Hjörleifur Guttormsson, Al-
þýðubandalagi, spurði hvað
tefði orminn langa. Hann
kvað núverandi utanríksráð-
herra hafa hvatt til þess að
hefja hvalveiðar á meðan
hann sat utan stjórnar og
sagði að um loddaraleik væri
að ræða þegar þingmenn úr
flokki sjávarútvegsráðherra
stæðu upp hver eftir annan til
þess að krefjast ákvörðunar í
málinu en síðan væri ekkert
gert.
Siv Friðleifsdóttir, Fram-
sóknarflokki, sagði að íslend-
ingar væru að verða að athlægi
og spurbi hversu lengi ætti að
tala án nokkurra aðgerða. Hún
benti á að hvalirnir ætu mikiö
af fiski í hafinu og sagði að
Magnús Guðmundsson, kvik-
myndagerðarmaður, ætti
þakkir skildar vegna starfa
hans í þágu hvalveiða. Árni
Matthiesen, Sjálfstæðisflokki,
sagði að heimila ætti hvalveið-
ar strax úr þeim stofnum sem
vísindamenn teldu óhætt að
veiða úr og Gísli S. Einarsson,
Alþýðuflokki, sagði ab hval-
veiðar hafi verið eini sjávarút-
vegurinn sem ekki hafi þurft á
ríkisstyrkjum að halda meðan
þær voru stundaðar.
Geir H. Haarde, Sjálfstæbis-
flokki og formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, sagbi
að öll þróun á alþjóðavett-
vangi væri okkur hliðholl
hvað hvalveiðar varðar. Hann
kvaðst telja eblilegt að utan-
ríkismálanefnd taki málið til
meðferðar í því efni ab hval-
veiðir verið hafnar á nýjan
leik. Stefán Guðmundsson,
Framsóknarflokki, sagði að
taka verði tillit til þess hversu
mikið hvalir taki af fiskistofn-
unum sem sé næstum því eins
mikið og íslendingar veiði í
dag. Einar K. Guðfinnsson,
Sjálfsstæðisflokki, sagði allt
mæla með því að hefja hval-
veiðar aö nýju. Hann vitnaöi
til fundar Alþjóðaþingmanna-
sambandsins, sem hann sótti
nýverið í Tyrklandi og sagði
mikla breytingu hafa orðið á
viðhorfi til hvalveiða. Ragnar
Arnalds, Alþýðubandalagi,
sagði að hefja ætti hvaðveiðar
að nýju. Þær hafi gefið af sér
allt að milljarði í þjóðarbúið
og veitt um 250 manns vinnu
meðan á þeim hafi staðið. Ág-
úst Einarsson, Þjóðvaka,
kvaðst hafa verið andvígur
hvalveiðum en hafa skipt um
skoöun því öll rök mæltu með
því í dag að veiöa hvali á
grundvelli sjálfbærrar þróun-
ar.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Þjóðvaka, sagði að hafa yrði
útflutningshagsmuni þjóðar-
innar í huga ef hefja eigi hval-
veiðar en ekkert væri því til
fyrirstöðu að heimila takmark-
aðar hrefnuveibar fyrir innan-
landsmarkað. Kristín Halldórs-
dóttir, Kvennalista, sagbi þau
rök að hætta stafaði af því fyr-
ir fiskustofnana að hvalir ætu
fisk ekki standast. Hvalir væru
Á landsþingi Barnaheilla, sem
haldið var um síðustu helgi, var
úthlutaö fjórum styrkjum úr
Rannsóknarsjóði Barnaheilla.
Hæsta styrkinn, 200.000 kr.,
hlaut verkefnið „Heilbrigöi og
líðan bama og unglinga" sem
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir og prófessoramir
Ásgeir Haraldsson og Jóhann
Ágúst Sigurbsson stjórna.
100.000 kr styrk hlutu verkefn-
hluti af mikið stærri lífkeðju.
Hún ræddi einnig um útfutn-
ingshagsmuni íslendinga og
sagbi að ekkert mætti gera sem
skabaði þá. Japansmarkaður
væri lokabur fyrir hvalaafurðir
og Japanir myndu aldrei fórna
viðskiptahagsmunum sínum í
Bandaríkjunum með því að
kaupa hvalaafurðir af íslend-
ingum. -ÞI
in „Orsakir og kringumstæður
bmnaslysa íslenskra barna", sem
Ragnheiður Elísdóttir læknir, Ás-
geir Haraldsson prófessor og Pét-
ur Lúðvíksson barnalæknir
stjórna; „Upplýsingaöflun um
einkenni og stöðu fámennra
skóla, með sérstakri áherslu á
samskipti kennara og nemenda,"
sem Kristín Aðalsteinsdóttir lekt-
or stjórnar og „Alþjóðleg könnun
á réttindum barna á heimili og í
Litlar líkur á ab „landsins forni
fjandi", hafísinn, valdi usla í ár:
Is á miblínu
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF
SÝN, fór í eftirlits- og ískönnunar-
flug á mibunum úti fyrir Vest-
fjörðum I gær. Næst landi var ís-
jaðarinn 65 sjómílur VNV af
Deild og 113 sjómílur vestur af
Barba. ísinn hefur fjarlægst land-
ib ört ab undanförnu.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
sagði ísjaðarinn vera nú á miðlínu
milli íslands og Grænlands, hluti
hans væri á fiskimiðunum við
Dohrn-banka. Fullsnemmt væri að
útiloka að hafís ætti eftir að gera
landsmönnum einhverja skráveifu,
því hann ykist jafnan fram í maílok
í Grænlandssundi. „Ef ríkjandi vest-
lægar áttir myndu vara lengi gæti
það sett strik í reikninginn en veð-
urhorfur næstu daga gefa tilefni
til bjartsýni," sagði Þór. -BÞ
skóla" sem Ágústa Gunnarsdóttir
og Maja Sigurðardóttir sálfræð-
ingar stjórna.
Tigangur Rannsóknarsjóbs er
að efla rannsóknir á högum barna
hér á landi. Stjórn sjóðsins er
skipuð fulltrúum frá Félagsvís-
indadeild Háskóla íslands, Kenn-
araháskóla íslands og stjórn og
fulltrúaráði Barnaheilla. Formað-
ur Barnaheilla er jafnframt for-
maður sjóðsstjórnar. -BÞ
Frá styrkveitingunni. F.v. Ragnheibur Elísdóttir lœknir, Arthur Morthens, fráfarandi formabur Barnaheilla, Maja
Sigurbardóttir og Ágústa Cunnarsdóttir sálfrœbingar, Matthías Halldórsson abstobarlandlœknir og Abalsteinn
Císlason sem tók vib styrknum fyrir hönd Kristínar Abalsteinsdóttur lektors.
Barnaheill:
500.000 kr. úthlutaö
úr Rannsóknarsjóöi
Kosiö í fyrsta sinn á morgun í sameinaöa sveitarfélaginu á Vestfjöröum. Jón Baldvin
og Sighvatur blanda sér í kosningabaráttuna. Bœjarfulltrúi Alþýöuflokks:
„Skelfileg skoðanakönnun"
Karítas Pálsdóttir, baejarfull-
trúi Alþýbuflokks á ísafirbi,
telur fylgi Funklistans sam-
kvæmt skobanakönnun Bæj-
arins besta vera sterka vís-
bendingu um ab sitjandi
stjórnmálamenn hugsi ekki
nóg um unga fólkib í landinu.
Hún segir nýlega skoðana-
könnun BB vera skelfilega fyr-
ir flokkinn.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins og
Sighvatur Björgvinsson, alþing-
ismaður, fóru til ísafjarðar í
fyrradag, og tengdist heimsókn
þeirra kosningabaráttunni fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar.
Kosið verður um nýja stjórn í
fyrsta sinn á morgun í samein-
aða nafnlausa sveitarfélaginu á
norðanverðum Vestfjörðum.
Alþýðuflokkurinn fær engan
mann kjörinn skv. fyrrnefndri
könnun en nýtt afl, Funklisti
framhaldskólanema, fær tvo
menn ef marka má könnunina.
„Þetta er nattúrlega alveg
skelfileg könnun fyrir flokkinn
en þó gæti önnur niðurstaða
komið upp úr kjörkössunum.
Við erum bjartsýn á að ná inn
a.m.k. einum manni."
Um fylgi Funklistans sagði
Karítas: „Þessi hugmynd unga
fólksins ab gera þetta ein og
óstudd sýnir kraftinn sem býr í
þessu fólki. Mér finnst hug-
mynd þeirra í raun og veru
mjög góð. Ég túlka þetta sem
aðvörun til þess fólks — og þar á
meðal mín — sem ráðið hefur
ferðinni. Ungu fólki hefur
kannski ekki veriö gefinn nægi-
legur gaumur hingað til."
Karítas sagði kosingarnar sér-
stakar fyrir margar sakir og ekki
síst vegna verulegra umskipta á
íbúaskrá undanfarin ár. Alþýðu-
flokkurinn fékk tvo menn í síð-
ustu kosningum á ísafirði. Sig-
urður Ólafsson leiðir listann
sem fyrr.
-BÞ
Kópavogur:
Lýst eftir manni
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
Sigurði Hjálmari Jónssyni, til
hcimilis að Hlíðarhjalla 53 í
Kópavogi. Ekkert hefur spurst til
Sigurbar síban klukkan 11.30 að
morgni mánudagsins 6. maí sl.,
en hann var þá vib Breibholtsúti-
bú Landsbankans á bifreibinni
LG-372.
Sigurður er 37 ára gamall, um
175 cm á hæð, gráhærður með
stutt liðað hár. Bifreiðin LG-372 er
af gerðinni Subaru 1800 station,
grá að lit, meb áberandi gulu aug-
lýsingamerki á ökumannshlið.
Þeir sem kunna að hafa orðið
varir við Sigurð eða bifreiðina síð-
an klukkan 11.30 sl. mánudag eru
beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Kópavogi. -BÞ Sigurbur Hjálmar jónsson.