Tíminn - 13.06.1996, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.06.1996, Blaðsíða 2
2 Wtomlfflw Fimmtudagur 13. júní 1996 - Árni Sigfússon, fyrrverandi borgar- stjóri og oddviti sjálfstæbismanna í borgarstjórn: Kosningabandalag, sem lofaði því aö ráðast gegn atvinnuleysinu, hækka ekki skatta og lækka skuldir, en hefur brotið allt af þessu, getur ekki fengiö nema falleinkunn og þaö er sú einkunn sem borgarbúar virbast hafa gefið R-listanum í þeim skoð- anakönnunum sem hingað til hafa verið gerðar. Hann hefur viljab hreykja sér af gangstígagerð um borg- ina, en staðreyndin er hins vegar sú að það verkefni var löngu hafið und- ir forystu sjálfstæðismanna. Hib sama er að segja um öfluga uppbygg- ingu á leikskólum. R-listinn hefur reyndar hert á þeirri uppbyggingu, en þó með þeim hætti að greiðslur til foreldra, sem vildu hafa börn sín heima, voru afnumdar. Það er veru- legur ljóður á þeirra ráði. Hvernig finnst þér R-listinn hafa staðið sig í stjórnartíð sinni, nú þegar samtökin eiga tveggja ára afmæli? Kristín Ástgeirsdóttir, þingmabur (V) í Reykjavík: Mér finnst R-listinn hafa staðið sig vel og samstarfið gengiö jafnvel betur en maður átti von á, það hafa ekki komiö upp neinir alvarlegir árekstrar. Búið er að ná góðum tökum á fjár- málum borgarinnar, þótt þau hafi komið að afskaplega siæmu búi. Þá hefur margt gott veriö aö gerast í fé- lagsmálunum, sem koma mun betur í ljós síðar. Vissulega má deila um þætti eins og strætó og holræsagjald- ib, en yfirleitt er ég mjög ánægð með þeirra starf. Sigrún Magnúsdóttir, pólitískur oddviti It-listans: Ég er afskaplega ánægð með þetta samstarf. Hér var gerð sú tilraun að fjórir stjórnmálaflokkar slógu saman og þaö hefur heppnast vel, fólk hefur unnið saman sem ein heild. Mikið starf er að skila árangri, ég hef líkt því við að þau störf séu eins og bióm sem springa mun út á næsta ári. Af ein- stökum málum er ég sérlega ánægð meö umhverfis-, dagvistunar- og skólamál. Einnig ber að geta hins frá- bæra borgarstjóra okkar, sem er sann- kallaö sameiningartákn borgarbúa. -BÞ I pottinum var rætt um stofnun Skjöldunga, royalistanna, sem vilja fá danskan kóng eba drottn- ingu í stab íslensks forseta. Þar kom fram sú athyglisverða kenn- ing ab hér á landi væri ab finna launbörn Knúts hins danska arfa- prins, sem nota mætti sem þjób- höfðingja. Einn þeirra er glæsi- legur mabur, ab sögn. Þessi til- laga þótti reyndar ekkert fyndin hjá obba fólks í pottinum... • Óiafur Ragnar sagbi uppunum í Junior Chamber Reykjavík á fundi í síbasta mánubi, ab hann fengi aballega upphringingar frá eldri kjósendunum. Þab hefursagt honum ab þab hafi alltaf kosib frambjóbanda sem hafi unnið í kosningunum og orbib forsetar. Ólafur sagbi þó frá einum göml- um manni sem sagbist vilja kjósa hann — en varabi hann vib, hans menn hefbu nefnilega aldrei komist ab: „Ólafur, ég segi þab engum ab ég ætli ab kjósa þig." Fundur jC Reykjavík var haldinn á Seltjarnarnesinu, í næsta ná- grenni vib heimili Ólafs og Cub- rúnar Katrínar, og hófst meb fordrykk... Barnanna ab velja? „Þab verður allt brjálað. Börnrn munu veljá hvort þau fara til íslands eba vilja vera áfram hjá pabba sín- um." Halim Al í samtali vib DV í gær, en í dag verbur enn réttab hjá hérabsdómara í Istanbul um forræbismálib. Halim vill helming fjárins „Halim sagbist hafa heyrt að Sophia Hansen hefbi safnab „miklum pen- ingum" á íslandi og sló því fram í gríni að hann ætti þá að fá helming- inn." ' . : fJr sómu frétt DV. Ekkfer víst^ab skop- skyn Halims höfbi almennt til lands- manna. Erfið leit „Bjargvætturinn Kristján yar óvænt orbinn ab Önnu" Fyrirsögn DV í gær, sem segir manni ab kynskiptaabgerbir geta flækt málin svo um munar, sérstaklega þegar fyrrum karlmanna, sem hafa látib breyta sér í konu, er leitab. Tæknin er þjónn en ekki herra „Kominn er tímrtil ab taka upp ger- breyttar áherslur í upplýsingamálum hér á landi. Upplýsingatæknin er þjónn en ekki herra, tæki en ekki markmib. Upplýsingarnar sjálfar, mebhöndlun og miblun þeirra, er þab sem máli skiptir." Jón Erlendsson í DV skrifar um óhóf- lega dýrkun tækniundra nútímans og brenglabar áherslur þeim samfara. Feit læri í fótboltanum „Þessi blessabur bolti hefur ekkert upp á sig nema feit læri, sem ekki passa í neinar buxur." Rósa Ingólfsdóttir í Tímanum um EM í knattspyrnu. Ríkisstjórnin segi af sér vegna EM „Mér finnst ab maður ætti ab fá skababætur og endurgreidd afnota- gjöldin. Þetta er svo dónaleg fram- koma ab ef svipab yrði gert í Bret- landi, yrði ríkisstjórnin ab segja af sér." Segir Flosi Ólafsson í Tímanum um sama mál og Rósa: EM-fárib í fótbolta, sem tröllríbur dagskrá Sjónvarps. Þtígnin rofin „Nú verbur aldrei vandræbaleg þögn í vibræbum fóks; andlausustu idjót geta orbib samtalshetjur á kaffihús- um, hjón sem hafa þagaö saman í 25 ár hafa allt í einu eitthvab ab tala um, leigubílstjórarnir eru algjörlega óstöbvandi og taka jafnvel aukavaktir til ab koma skoðunum sínum á fram- færi." Skrifar Hrafn jökulsson hnyttilega í Al- þýbublabib um forsetaframbobin. Umferbarteppa á nebsta hluta Bústabavegar. Ökumenn í höfubborgarumferbinni voru óþolinmóbir kl. 16.15 í fyrradag. Frá Miklatorgi austur fyrir Valssvœbib var 12 mínútna akstur vegna framkvœmdanna á þessum tíma. Umferbarteppa var ab myndast á fjölförnustu gatnamótum borgarinnar þar sem Hringbraut, Snorrabraut, Miklabraut og Bústabavegur mœtast. Örfáum mínútum eftir ab myndin var tekin fóru malbikunarmenn af vett- vangi meb tceki sín, enda abalumferbaraldan ab skella á. Á litlu myndinni eru „sökudólgarnir", valtarar frá borginni. Tímamynd JBP Vidgeröir á götum borgarinnar, hiö árlega vandamál í umferöinni: Illa farnar götur komu undan „góöum" vetri Gott og slæmt árferbi er nokkub afstætt gagnvart vega- og gatnamálum. Gób- ur vetur, þ.e. snjóléttur, þýddi ab götur slitnuðu meira og verr en ella. Minni kostnaður við snjómokstur og hálkueyöingu veröur aö litlu, þegar auka þarf fé til aö laga slitið malbik gatnanna. Malbiksviðhaldið kostar borgina 215 milljónir á þessu sumri, svipað og und- anfarin ár. Gatnaviðgerðir byrjuðu 2-3 vikum fyrr en venjulega vegna góðs árferðis, seint í apríl. Unnið er að smærri viðgerð- um, bitum hér og þar, að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar gatnamálastjóra, en stærri göt- ur, t.d. Miklabraut og Kringlu- mýrarbraut, verða lagfærðar þegar líður á sumarið og hita- stigið verður hærra. í gærdag var unnið við veginn út í Skerjafjörð, Suðurgötu og göt- una að innanlandsfluginu. Árvissar gatnaviðgerðir í Reykjavíkurborg setja gjarnan umferðina úr skorðum, en til- kynnt er um framkvæmdir á útvarpsstöðvunum og ættu ökumenn að leggja hlustir við og velja akstursleiðir í sam- ræmi við þær fréttir. Oft hefur verið rætt um steinsteypu á aðalumferða- ræðar, þannig að komast mætti hjá hvimleiðum lokun- um stórra gatna á hverju sumri. Sigurður Skarphéðinsson sagði að hjá Gatnamálastjóra væru menn ekkert allt of hrifnir af þeirri hugmynd. Ef steinsteypa yrði tekin upp, yrði það þá helst á nýjum um- ferðaræðum, steypan þyrfti að harðna tiltekinn tíma. Menn vildu líka gjarnan sjá ítarlegri og betri samanburð. Steypan entist betur, en væri verulega mikið dýrara vegagerðarefni. Þá hefðu tilraunir Vegagerðar- innar á Vesturlandsvegi ekki gengið sérlega vel. -JBP Jörð skalf í Þrengslum ÞRÍR jaröskjálftar urðu syðst á Hengilssvaeðinu við Þrengsla- veginn nálægt KrossQalli að morgni skírdags og mældust þeir á bilinu 3,3 til 3,5 á Ric- hter-kvarða. Talið er að þess- I ari hrin«> -a * BOGGr //ISÆÆAS/& £/? MEÐ SXJ/UFT/IA/N; /y//&G/?sr //n/v/v 3/?/?r? /upm ? Tíminn spyr... Sagt var...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.