Tíminn - 10.07.1996, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.07.1996, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 10. júlí 1996 5 Árni Gunnarsson: Illa launar þú stuðninginn Opib bréftil Gubrúnar Agnarsdóttur, lœknis og fyrrverandi forsetaframbjóbenda Nokkru fyrir kjördag tók ég þá ákvörðun að ljá þér atkvæði mitt í nýaf- stöðnum forsetakosningum. Ég gerði þetta að vel ígrunduðu máli. Mér fannst mikilvægt að friður og sátt ríkti meðal þjóðar- innar um embætti forseta ís- lands og af þeim frambjóðend- um, sem gáfu á sér kost, treysti ég þér best til þess sitja á Bessa- stöðum. Nú eru kosningar afstaðnar og Ólafur Ragnar Grímsson vann yfirburðasigur. Engu að síður mátt þú mjög vel við una, en ríflega fjórði hver kjósandi treysti þér best til þess að verða forseti Islands, þrátt fyrir að þú blandaðir þér aldrei í toppbar- áttuna. Þar á meðal var fjöldi framsóknarmanna og margir þeirra lýstu yfir stuðningi við þig opinberlega, s.s. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi, Herdís Sæmundardóttir á Sauð- árkróki, Halldóra Jónsdóttir á Siglufirði, ég og fleiri. Nokkrir makar flokksforystunnar (og aðrir sem kusu að gefa upp af- stöðu sína) í Alþýðubandalag- inu lýstu yfir stuðningi við þig, sömuleiðis þekkt fólk úr Al- þýðuflokki og að minnsta kosti einn gildur sjálfstæðisbóndi á Suðurlandi var á stuðnings- mannalista þínum. Eftir forsetakjörið hef ég síðan heyrt og lesið að þú ætlir að halda kosningabaráttunni áfram og nota sama hóp stuðn- ingsmanna til þess að koma þér „ Viljir þú mín ráð að einhverju hafa, þá vertu ánœgð með þann árangur sem náðist í forsetakosn- ingunum, en viður- kenndu að þú tapað- ir. Að því er engin skömm." VETTVANGUR inn á þing að nýju, hugsanlega sem leiðtoga einhverskonar nýs jafnaðarmannaflokks. Guð láti gott á vita, en ekki færð þú mitt atkvæði þar. Ekki geri ég heldur ráð fyrir að flokkssystkini mín í Framsókn, makar Alþýðubanda- lagsforystunnar, eða gildir íhaldsbændur styðji þig í kosn- ingum til Alþingis. Reyndar er ekki fallega launaður stuöning- urinn í forsetakosningunum með því að gefa í skyn að við sem ljáðum þér atkvæði okkar séum það óánægð með núver- andi pólitíska stöðu að við séum gengin í björg með þér í nýrri stjórnmálahreyfingu. Svo er ekki um mig. Ágæta Guðrún. Ég lýsi því formlega yfir og að gefnu til- efni, að ég styð þig ekki í þínu pólitíska brölti. Ég bendi þér jafnframt á í fullri einlægni, að ég tel að þú hafir sáralítinn stuðning sem formaður nýs stjórnmálaflokks, og látir þú til skarar skríða veldur árangurinn sennilega ekki öðru en von- brigðum. Ég vil alls ekki láta bendla mig við hugmyndir um sameiningu jafnaðarmanna á íslandi. Ég er formaður ungliða- samtaka þar sem manngildið er sett ofar auðgildinu, starf okkar er öflugt, málefnalegt og gengur vel. Viljir þú mín ráð að einhverju hafa, þá vertu ánægð með þann árangur sem náðist í forseta- kosningunum, en viðurkenndu að þú tapaðir. Að því er engin skömm. Ekki blanda saman embætti forseta íslands og flokkspólitík. Úrslit kosning- anna eru gott dæmi um að for- setakosningar snúast ekki um pólitík. Höfundur er absto&armabur félagsmála- rá&herra og formabur Sambands ungra framsóknarmanna. Tónskáld og bókmenntir Tímarit Máls og menningar, 2. hefti 1996, er komið út. Efni þess er nú sem fyrr ab mestu bókmenntalegs eðlis, en þó er tónlistinni gert hærra undir höfði í þessu hefti en oft áður meb grein um tónskáld af yngri kynslóðinni, Þorstein Hauksson, og viðtali við ungan jazzgítarleikara, Hilmar Jensson. Ljóðskáld, sem birta efni í TMM nú, em Nína Björk '___________________ Árnadóttir, Kjartan | | |y|/\|^| H. Grétarsson, Gub- brandur Siglaugs- ---------------------------------- son og Arni Bergmann, auk slóv- ensku skáldkonunnar Makarovic og bandarísku skáldanna Patchen og Creeley. Landa þeirra, bandaríska skáldkonan Alice Walker sem þekktust er fyrir bókina Purpuralit- inn, á smásögu í tímaritinu og einn- ig Guðbergur Bergsson. Greinar af margvíslegum toga prýða þetta hefti. Gyrðir Elíasson ritar grein um blindan ritsnilling, Skúla Guðjónsson frá Ljótunnar- stöbum, Ólafur Sveinsson skrifar grein um menningarástandið í Þýskalandi eftir sameininguna og Gísli Sigurðsson fjallar um strauma og stefnur í bókmenntagagnrýni undanfarinna ára. Jóhann Páll Árnason er íslenskur heimspekingur sem hefur verið bú- settur í Ástralíu undanfarna áratugi, en hann er líklegast sá hugsuður ís- lenskur sem hvað lengst hefur náð í heiminum, þótt lítið hafi heyrst frá honum hér heima lengi. Nú kveður hann sér hljóðs hér á landi í nýrri grein þar sem hann veltir fyrir sér því sem hann kallar „20. öldina hina styttri". Enn- fremur ritar Ágúst Þór Árnason stutta kynningu um Jó- hann Pál. Steinunn Sigurðardóttir sló eftir- minnilega í gegn meb skáldsögunni Hjartastaður fyrir síðustu jól, en hún segir í ítarlegu viðtali við Úlf- hildi Dagsdóttur frá tilurð bókar- innar og hugmyndum sínum um skáldskapinn og rithöfundarstarfið. Loks eru vandaðar umsagnir um bækur á sínum hefðbundna stað. Tímarit Máls og menningar, 2. hefti 1996, er 136 bls. Sigurborg Stefánsdóttir gerði kápumyndina. TMM kemur út fjórum sinnum á ári og kostar árs áskrift 3300 kr., auk þess sem það er selt í lausasölu í öll- um skárri bókaverslunum. Ritstjóri TMM er Friðrik Rafnsson. ■ Lög og ljóð Kristjáns frá Gilhaga Ut er komin ný geislaplata og hljóðsnælda sem ber heitið Minn- ingamál. Höfundur laga og ljóða er Kristján Stefánsson frá Gilhaga í Skagafirði, en hann er einnig út- gefandi. Á síðastliðnu sumri kom á markaö geislaplata og snælda með sönglagasafninu Mitt hjart- ans mál, ásamt nótnabók eftir þennan sama höf- und, og náði mikl- um vinsældum. __________________ Á þessari nýju út- gáfu eru hinir sömu skagfirsku söngvarar og sungu „Mitt hjart- ans mál". Þar að auki syngja þau nú Ásdís Guðmundsdóttir og Baldvin Kr. Baldvinsson, og koma nú einnig landskunnir hljóðfæra- leikarar við sögu. Um útsetningar og undirleik á harmonikku sá Kristján sjálfur, á gítar leikur Hlynur Guðmundsson, Jón Rafnsson á kontrabassa, Sveinn Sigurbjörnsson á trompet og Árni Friðriksson á trommur. Upptökur fóru fram í apríl-júní 1996 í H.S. stúdíói á Sauðárkróki. Upptökumaður var Hilmar Sverr- isson, sem sá einnig um hljóð- blöndun og hljómborðsundirleik. Minningamál er nokkuð frábrugð- in hinni fyrri útgáfu og fjölbreytt- -------------- ari. Þar er að GEISLADISKAR ke“: söngslög og dú- etta meb píanóundirleik, eldri dan- salög án söngs leikin á harmonikku og danslög með fjölbreyttum út- setningum þar sem m.a. má finna blandaðan kvartett og dúetta. Japis sér um dreifingu, en einn- ig geta væntanlegir kaupendur snúib sér til höfundar og útgef- anda, Kristjáns Stefánssonar, í síma 453 8131. ■ VETTVANGUB „Nú blasir við að uppgangur í atvinnu- og efnahagsmálum mun styrkja stöðu höfuðborgarsvaeðis- ins og hafa þegar komið fram skýr merki um að þessi landshluti hafi dregið til sín fólk og umsvif frá landsbyggðinni." Magnús Stefánsson: Akranes. Landmælingar til Akraness Eins og kunnugt er hefur Guömundur Bjarnason um- hverfisráðherra tekið þá ákvörðun að starfsemi Landmæl- inga íslands skuli flutt frá Reykja- vík til Akraness. Mál þetta hefur nokkra forsögu, en stjórnvöld hafa um nokkurra ára skeið haft uppi áform um að færa starfsemi ríkisstofnana frá Reykjavík og út á landsbyggðina og eru Landmæl- ingar ein þeirra ríkisstofnana sem bent hefur verið á í þessu sam- bandi. í tíð síðustu ríkisstjórnar voru gefin fyrirheit um að Landmæl- ingar íslands yrðu fluttar til Akra- ness. Bæjaryfirvöld höfðu unnið að því að taka við stofnuninni og tryggt starfseminni aðstöðu í stjórnsýsluhúsinu í bænum. Það urðu því vonbrigði fyrir Akurnes- inga þegar horfið var frá flutningi stofnunarinnar og má segja að þáverandi umhverfisráðherra hafi snúið við með stofnunina á miðri leið yfir flóann og aftur til Reykja- víkur. Það hefur lengi verið baráttu- mál fyrir landsbyggðina að hluti af starfsemi og þjónustu ríkis- stofnana væri staðsett utan höf- ubborgarsvæðisins. Nú blasir við að uppgangur í atvinnu- og efna- hagsmálum mun styrkja stöðu höfuðborgarsvæðisins og hafa þegar komið fram skýr merki um að þessi landshluti hafi dregið til sín fólk og umsvif frá landsbyggð- inni. Þetta er mikið áhyggjuefni og það blasir við að ef stjórnvöld gera ekkert til þess að bregöast við þessari þróun, þá mun staða landsbyggðarinnar veikjast enn meira en orðib er. Það er því ánægjulegt og já- kvætt að Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra hefur sýnt frumkvæði og viðleitni til þess að bregbast vib þessu með því að ákveba að flytja starfsemi ríkis- stofnunar út á landsbyggðina. Þessi ákvörðun er mjög mikilvæg og hún sýnir það að stjórnvöld hafa vilja til þess að styrkja stöbu landsbyggöarinnar. Með flutn- ingi Éandmælinga íslands til Akraness sýna stjórnvöld þennan vilja í verki og það ber ab þakka. Hins vegar er það svo að slíkar ákvarbanir sem þessar kalla fram snörp viðbrögð og andmæli ým- issa aðila, það er út af fyrir sig skiljanlegt, enda snertir þetta einkahagi starfsmanna og þeirra fjölskyldna. Hins vegar hefur það legið í loftinu um nokkurt skeið að þessi ákvörðun um flutning Landmælinga íslands yrbi tekin og það er mikilvægt að allir aðilar málsins sameinist um ab leiða það til farsælla lykta og framfylgja þeirri ákvörðun sem umhverfis- ráðherra hefur tekib. Höfundur er 3. þingma&ur Vesturiands- kjördæmis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.