Tíminn - 24.08.1996, Blaðsíða 18
' ->o r '
18
r> ' Kr ii '»>t l->i i c I
Laugardagur 24. ágúst 1996
HVAÐ E R A SEYÐI
Fyrirlestur í Norræna húsinu:
Asger Jorn og 10.000
ára norræn alþýbulist
Á listasöfnura víða í Evrópu
var sett upp yfirgripsmikil sýn-
ig um Asger Jorn og 10.000 ára
norræna alþýðulist. Michael
Rasmussen lektor, starfsmaður
Listasafnsins í Silkeborg um
árabil, sem stundum hefur ver-
ið nefnt Asger Jorn safnið, mun
halda fyrirlestur í Norræna hús-
inu þriðjudaginn 27. ágúst kl.
20.30. í fyrirlestrinum, sem
hann flytur á dönsku, mun
hann fjalla um áhuga danska
COBRA málarans Asger Jorn á
fornöldinni og fyrri hluta mið-
alda á Nroðurlöndum.
í byrjun 7. áratugsins fékk As-
ger Jorn franska ljósmyndarann
Gerard Francesci til að taka fyr-
ir sig yfir 25.000 ljósmyndir af
fornum tré- og steinverkum um
jgörvöll Noröurlönd. Þessar
ljósmyndir áttu að vera upp-
hafið að miklu ritverki í 32
bindum um norræna alþýðu-
list. Á árunum 1962-65 vann
hann úr því efni sem hann
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
hafði viðað að sér og gaf síðan
sjálfur út ritið „Skánes sten-
skulpture" árið 1965. En á sama
tíma hafði hann leitað til Norð-
urlandaráðs um styrk til útgáfu
á ritverkinu. Því var hafnað og
árið 1966 hætti hann við hug-
myndina. Eftir nokkra ára
ígrundun árið 1973, stuttu fyrir
andlát hans, lauk hann þó
verki í tveim bindum um forn-
hetjuna Kóng Þiðrek, og var
það gefið út 1978.
En hvað gekk Asger Jorn til
með allri þessari vinnu og í
hverju felst hið norræna í nor-
rænni list? Hugsanleg svör er
að finna í þeim ótal verkum
sem eftir hann liggja — 16
bækur og 500 greinar — Micha-
el Rasmussen mun skýra frá því
í fyrirlestri sínum í Norræna
húsinu þar sem hann styðst við
skyggnimyndir.
Allir velkomnir, aðgangur
ókeypis.
David Pizarro í
Hallgrímskirkju
Sunnudagskvöldið 25. ágúst
kl. 20.30 leikur bandaríski org-
anistinn David Pizarro í Hall-
grímskirkju á vegum „Sumar-
kvölds við orgelið 2996". Þetta
eru sjöundu tónleikarnir þetta
sumarið sem hófust með tón-
leikum Harðar Áskelssonar 7.
júlís sl. Hingað til hafa komið
fram organistar eins og Christ-
opher Herrick frá Bretlandi,
Gunnar Idenstam frá Svíþjóð
og 21. júlí sl. bresk-bandarísku
hjónin Colin Andrews og Ja-
nette fishell sem m.a. léku tví-
leik á Klais-orgel Hallgríms-
kirkju.
Segja má að efnisskrá Pizarro
sé tvíþætt, annars vegar hefð-
bundin orgelverk og hins vegar
umritanir. tónleikarnir hefjast á
hefðbundinni spænskri Batalla
frá 17. öld eftir prestinn An-
tonio Martin y Coll. Láréttar
tunguraddir orgelsins, kallaðir
spænskir trompetar eða
Chamade, passa einmitt mjög
vel fyrir þessa tegund tónlistar.
Á eftir koma tvö vluntary eftir
breska ogrganistann John
Stanley. Eftir hann eru m.a. 30
svokölluð Voluntary op. 5-7 frá
árunum 1748-54.
Upphaflega voru „volunt-
ary", sem ekki hefur fengið
góða íslenska þýðingu, spuni
(voluntas), sem var hluti af
morgun- og kvöldsöng í ensku
kirkjunni eftir siðaskipti.
Eftir Johann Sebastian Bach
leikur Pizarro Sónötu nr. 4,
eina af sex tríósónötum sem
Bach skrifaði sennilega sem
kennsluefni fyrir nemendur
sína í byrjun dvalar sinnar í
Leipzig. Þá leikur hann umrit-
un á síðasta kafla H-moll mess-
unnar Dona nobis pacem. Bach
margnotaði góðar hugmyndir
og má líka heyra efnivið kafl-
ans í Kantötu nr. 29.
Eftir Matthison-Hansen leik-
ur Pizarro dæmigerðan orgel-
konsert en inn á milli má svo
heyra sálmforleikinn Jesus
Christus unser Heiland eftir
Martin Radeck og umritanir á
forleik að mótettunni Ave ver-
um corpus eftir Mozart og Ad-
agio eftir Josef Haydn.
David Pizarro er fæddur og
uppalinn í New York. Hann var
kórdrengur í Saint-John the Di-
vine dómkirkjjunni þar og hóf
orgelnám sitt þar hjá Dr. Nor-
man Coke-Jephcott. Síðar
stundaði hann nám við Yale
háskóla og fékk orgelverðlaun-
in við útskrift. Hann var í fram-
haldsnámi við tónlistarháskól-
ann í Detmold í Þýskalandi og
hjá Marcel Dupré í París. Eftir
að hann kom aftur til Banda-
ríkjanna starfaði hann víða um
Austurströndina en árið 1974
varðhann tónlistarstjóri við Sa-
int- Johnd the Divine dóm-
kirkjuna og 1983 tók hann við
stöðu organista hjá Emanuel-
söfnuðinum í Pleasantville í
New York fylki.
Allt frá árinu 1958 hefur
hann farið fjölmargar tónleika-
ferðir um Evrópu og komið oft
fram í útvarpi og sjónvarpi.
„Óperuþykkni" á Akur-
eyri og Húsavík
Þlngeyska þremenningaklík-
an „Alltof langt-gengið", nánar
tiltekið þeir Ármann Guð-
mundsson, Sævar Sigurgerisson
og Þorgeir Tryggvason, hyggjast
skemmt norölendingum um
helgina með sýningum á söng-
leiknum Bíbí og blakan (á valdi
kaldhæðni örlaganna), sem þeir
félagar kjósa að kalla óperu-
þykkni.
Ármann, Sævar og Þorgeir
eru norðlensku leikhúsáhuga-
fólki að góðu kunnir, en þeir
skrifuðu m.a. Góðverkin kalla
— átakasaga, fyrir Leikfélag Ák-
ureyrar á sínum tíma. Einnig
hafa ýmis áhugaleikfélög víða
um land notið krafta þeirra.
Bíbí og blakan rekur á grá-
glettinn hátt sögu hinnar dul-
arfullu Bíbíar og tveggja enn
dularfyllri karlmanna, ástum
þeirra og örlögum í ómöguleg-
um heimi óperunnar þar sem
allt er mögulegt og leðurblökur
og næturdrottningar eru dag-
legt brauð.
Flytjendur auk höfundanna
þriggja eru Silja Björk Ólafs-
dóttir og Hulda Hákonardóttir.
Undirleik annast Gunnar Bene-
diktsson.
Sýnt verður í Samkomuhús-
inu á Húsavík föstudaginn 23.
ágúst og í Deiglunni á Akureyri
laugardaginn 24. ágúst og
sunnudaginn 25. ágúst.
Sýningarnar hefjast kl. 21.00
en verkið er um klukkustundar
langt.
Síbasta sýningarhelgi
Þúsundþjalasmiðurinn, mál-
arinn, myndhöggvarinn, leik-
tjaldamálarinn, kennarinn og
myndlistarkrítíker Dagsljóss,
Vignir Jóhannsson, gefur Ákur-
eyringum kost á að skoða í
kistu sína í Deiglunni um þess-
ar mundir. Vignir sýnir vegg-
verk úr tré og eir ásamt frí-
standandi skúlptúr. Vignir, sem
er Akureyringur, útskrifaðist frá
grafíkdeild Myndlista- og hand-
íðaskólans 1979 en hélt til
framhaldsnáms til N-Ameríku
þar sem hann bjó að loknu
framhaldsnámi í allmörg ár.
Vignir býr og starfar í Reykjavík
um þessar mundir og hefur
ekki sýnt hér á Akureyri áður.
Sýningunni lýkur 26. ágúst.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Síml 551 1200
Sala áskriftarkorta
hefst sunnudaginn 1. september kl. 13.00.
Korthafar frá fyrra leikári hafa forgang a&
sætum sínum til og me& 9. september.
Mi&asalan ver&ur opin alla daga frá 13.00-
20.00 me&an á kortasölu stendur.
Sími 551 1200.
Frá Félagi eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Félagsvist í Risinu á morgun
kl. 14.
Dansað í Goðheimum kl. 20.
Bridge verður í Risinu mánu-
dag kl. 13.
Laugardagsganga Hana
nú
Vikuleg laugardagsganga
Hana nú í Kópavogi verður í
dag. Lagt af staö frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.00.
Nýlagað molakaffi.
Auglýst eftir pennavin-
um
Ungur maður frá Perú, stadd-
ur í Hvíta-Rússlandi, sendi Tím-
anum línu og bað um að eftir-
farandi yrði birt:
Peruvian young man (22),
student, would like to corres-
pond with girl for exchanging
ideas, friendship.
Gonzalo Portilla, Poste Rest-
ante, Main Post Office, Minsk
220050, Belams.
Lesendum Tímans er bent
á að framvegis verða til-
kynningar, sem birtast
eiga í Dagbók blaðsins, að
berast fyrir kl. 14 daginn
áður.
Absendar greinar
sem birtast eiga í blaöinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistaöar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar ^
mmm
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
Pagskrá útvarps og sjónvarps
Laugardagur
0
24. ágúst
6.45 Ve&urfregnir
6.50 Bæn: SéraArnaldur
Bár&arson flytur.
7.3 J Fréttir á ensku
8.0Ö Fréttir
8.07 Snemma á laugardagsmorgni
8.50 Ljó& dagsins
9.00 Fréttir
9.03 Út um græna grundu
10.00 Fréttir
10.03 Ve&urfregnir
10.15 Me& sól f hjarta
11.00 í vikulokin
12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá
laugardagsins
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir og auglýsingar
13.00 Fréttaauki á laugardegi
13.30 Táp og fjör á Tátknafirði
15.00 Tónlist náttúrunnar
16.00 Fréttir
16.08 ísMús 1996
17.00 Hádegisleikrit vikunnar endurflutt
18.05 Standarðar og stél
18.45 Ljó& dagsins
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og ve&urfregnir
19.40 Sumarvaka: Hulduma&ur,
rímsnillingar og tónlist
21.00 IHeimur harmóníkunnar
21.40 Úrval úr kvöldvöku:
Ferö til fyrirheitna landsins
22.00 Fréttir
22.10 Veðurfregnir
22.15 Or& kvöldsins
22.20 Út og su&ur
23.00 Dustaö af dansskónum
24.00 Fréttir
00.10 Um lágnættib
01.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Veöurspá
Laugardagur
24. ágúst
Q 09.00 Morgunsjónvarp
/ barnanna
------“ 10.50 Hlé
13.30 Ólympíumót fatla&ra
13.50 Enska knattspyrnan
16.00 Einn-x-tveir
16.50 Mótorsport
17.20 íþróttaþátturinn
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Öskubuska (19:26)
19.00 Strandver&ir (19:22)
20.00 Fréttir
20.30 Ve&ur
20.35 Lottó
20.40 Hasar á heimavelli (3:25)
(Grace Under Fire III) Ný syrpa í
bandaríska gamanmyndaflokknum
um Grace Kelly og hamaganginn á
heimili hennar. A&alhlutverk: Brett
Butler. Þýðandi: Sveinbjörg Svein-
björnsdóttir.
21.10 Barátta um barn
(For the Love of Aaron) Bandarísk
sjónvarpsmynd frá 1994 sem segir
frá sambandi móður, sem á vi&
veikindi a& strí&a, og ungs sonar.
Leikstjóri er John Kent Harrisson og
aðalhlutverk leika Meredith Baxter,
Keegan Maclntosh og Nick
Manusco. Myndin vann til verðlauna
á kvikmyndahátí&inni í Monte Carlo
1994. Þýðandi: Rannveig
Tryggvadóttir.
22.55 Karlremba
(Todos les hombres sois iguales)
Spænsk gamanmynd frá 1993 um
þrjá fráskilda karlmenn sem rá&a.sér
unga ræstingarkonu og ver&a allir
ástfangnir af henni vi& litla hrifningu
fyrrverandi eiginkvenna sinna. Leik-
stjóri er Manuel Gomez Pereira og
a&alhlutverk leika Imanol Arias, Ant-
onio Resines, Juanjo Puigcorbé og
Christina Marcos. Þýðandi: Örnólfur
Árnason. Myndin sló öll
a&sóknarmet á Spáni 1994.
00.45 Ólympíumót fatlaðra
Svipmyndir frá keppni dagsins.
(Endursýntá sunnudag kl. 14.45).
01.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Laugardagur
24. ágúst
Íjm 09.00 Kata og Orgill
TÆnrrfn n 09 25 Bangsi litli
ÆS7BIJ2 09.35 Hei&ursmenn og
' heiöurskonur
09.45 Bangsi gamli
09.50 Baldur búálfur
10.15 Villti Villi
10.40 Ævintýri Villa og Tedda
11.05 Heljarslóð
11.30 Skippý
12.00 NBA-molar
12.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
13.00 Me& kve&ju frá Víetnam (1:2)
14.30 Handlaginn heimilisfaðir (e)
15.00 Ævintýri íkornanna
16.15 Geimverurnar
18.00 Listamannaskálinn
19.00 Fréttir og ve&ur
20.00 Fyndnar fjölskyldumyndir (20:25)
(America's Funniest Home Videos)
20.30 Góða nótt, elskan (19:27)
(Goodnight Sweetheart)
21.05 Ógnarfljótiö
(The River Wild) Æsispennandi og
ví&fræg bandarísk bíómynd frá 1994
me& Meryl Streep, Kevin Bacon og
David Strathairn í a&alhlutverkum.
Myndin fjallar um Gail sem var áður
fyrr lei&söguma&ur í bátsfer&um
ni&ur Ógnarfljóti& en settist a& í
borginni þegar hún giftist og
eignabist barn. Nú er hún komin
aftur a& fljótinu til a& fara niður
flúbirnar ásamt manninum sínum,
syni þeirra og fjölskylduhundinum.
Á&ur en lagt er í hann kynnast þau
ungum náunga ab nafni Wade og
skuggalegum vini hans en þessir
tveir gera fer&ina ni&ur Ógnarfljótib
a& hreinustu martröb. Leikstjóri er
Curtis Hanson. Bönnub börnum.
22.55 Cat Ballou
Gamasöm skopstæling á vestrabíó-
myndunum. Hér leikur Jane Fonda
háskakvendið Cat Ballou, illræmda
kennslukonu sem hefur gerst útlagi
og vílar ekkert fyrir sér. Lee Marvin
fékk Óskarsver&launin fyrir túlkun
sína á drykkfellda byssubófanum Kid
Sheleen og tvíburabró&ur hans meö
gervinefiö. [ öbrum helstu
hlutverkum eru Michael Callan,
Dwayne Hickman og Nat King Cole
bregður fyrir í myndinni. 1965.
00.35 Aftur á vaktinni
(Another Stakeout)
Þa& er snúib verkefni a& hafa eftirlit
meb grunu&um glæpamönnum og
þa& er a&eins á færi reyndustu lög-
reglumanna. Því er hætt vi& a& allt
fari í handaskolum þegar leynilögg-
unum Chris Lecce og Bill Reimers er
falib verkefni á þessu svibi og ekki
bætir úr skák a& þeir eru með Ginu
Garrett, a&sto&arkonu saksóknarans,
og hundinn hennar í eftirdragi.
Aðalhlutverk. Richard Dreyfuss,
Emilio Estevez, Rosie O'Donnell og
Dennis Farina: Leikstjóri. John
Badham. 1993.
02.20 Dagskrárlok
Laugardagur
24. ágúst
a 17.00 Taumlaus tónlist
C j cún 19.30 Þjálfarinn
•3T* * 20.00 Hunter
21.00 Mannránib
22.30 Órá&nar gátur
23.20 Ma&ur og kona
00.50 Dagskrárlok
Laugardagur
24. ágúst
09.00 Barnatími Stöðvar
3
11.05 Bjallan hringir
11.30 Su&ur-ameríska
knattspyrnan
12.20 Hlé
18.15 Lífshættir ríka og fræga fólksins
19.00 Benny Hill
19.30 Þri&ji steinn frá sólu
19.55 Gestir
20.55 Ofurhetjur
22.25 Sannleikurinn er sagna bestur
23.55 Endimörk
00.40 Tál og svik
02.10 Dagskrárlok Stöðvar 3